Morgunblaðið - 19.01.1922, Qupperneq 4

Morgunblaðið - 19.01.1922, Qupperneq 4
MORGUNBLAÐIÐ T ilbuinn áburour. Þeir sem kynnu að vilja fá sjer tilbúinn ábúrð í vor, sendi pantanir sínar fyrir lok þessa mánaðar. Reykjavík 18. janúar 1922. Eínar Helgason. = Jörðin Múli — i Biskupstungum, Arnessýslu fæst til ábúðar í næstu fardögum 1922 með góðri byggingu. Semjið við Zophonias Baldvinsson Laugaveg 27 B. — Sími 716 og 880. Aðalfunður Ekknasjöðs Raykjavikur verður haldinn fimtudaginn 19. þ. m. kl. 8 síðd. i húsi K. F. U. M. (litla salnum). Stjórnin. lir. 10, S. kr. 10, N. B. NieLsen kr. 50, 'Arni Jóhannsson kr. 20, Sig. Pjet- ursson fangav. kr. 10, Kaffigestir kr. 2.00, Vatnsgestir kr. 2.00, Jökull kr. 10.00, Ó. B. K. kr. 10.00 N. N* kr. 10.00, Kaffigestir kr. 6.00, B. 40 kgr. jarðepli, Ó. B. 20 kgr. skyr, X. X. 4i‘ kgr. kókó, O. Johnson & Kaaber 20 kgr. kaffi, 10 kgr. kóikó, 63 kgr. hveiti, 100 kgr. sagó, 100 kgr. jarðepli 3 ks. mjólk, Gunnar Sigurðsson Von 5« kgr. grjón, 25 kgr. saltfisk 1 ks. mjólk, Sanitas 15 heil fl. saft, T. Þór liíitisson Laufási 15 kgr. saltkjöt, Kr. Daðason 40 kgr. saltfisk, Ónefnd 12(4 kgr. rófur, hf. Alliance 2 ton kol, Þor steinn Jóhannsson Lvg- 68 100 ltr. mjólk, Smjörl'íkisgerðin 27 ltr undan- renna. Bestu þakkir. 18. jan. 1921. Har. Sigurösson. Skólaleikir. Nokkrir nemendur mentaskólans ljeku í gærkvöldi í Iðnó fyrir skólann og nokkra gesti, smá- leik eftir Holberg og tókst skemtilega. Þessi leiksiður sem áður var allmikið tíðkaður, hefir íegið niðri um nokkur ár, þangað til í fyrra að leikinn var uppi S skóla dálítill smáleikur eftir Gunnar Arnason frá Skútustöðum og svo þetta ár. Auðvitað eru ástæðurn- ar fyrir skólaleikunum talsvert áðrar nú en áður, meðan þeir voru einu siótdeikir bæjarins, en samt getur verið gaman að þessu og gagn fyrir skólann og ætti því að halda þessu áfram : Það er líka til latínuskólans, sem sækja á uppruna þess, að farið var að leika hjer á landi, eins og getið var um í formálsræðu S. Sigurbjörns- sonar, þó eldri en hann gat um. ( Geir kom frá Knglandi í gærkvöldi og voru allir skipverjar hans heilir heilsu. Fyrirlestur um Völuspá. Prófessor Sig. Nordal byrjar fyrirlestra fyrir almeuning um Völuspá í háskólanum föstudaginn 20. þ. m. kl. 6 síðd. .. Ungmennaf jelagið heldur fund í kvöld kl. 81/,, á Hússtjórnarskólanum Verður þar m. a. haldinn fyrirlestur. Kvenfjelagið „Hringurinn” hjelt að alfund sinn í fyrrakvöld á Hótel Skjaldbreið. Pormaður fjelagsins fyr- ir næsta ár var endurkosinn frú Krist ír Jacobson. Handa bágstadda heimilinu, sem get ið var um hjer í blaðinu nýlega, hafa safnast 70 kr. og eru þessir gefend- urnir: ,S. 10 kr., Gazi 10 kr., A. 10 kr., N. N. 20 kr., kona 10 kr., Dreng- ur sem hefir atvinuu- 10 kr. Besta þakklíeti til gefendanna. Verslunarmannafjelag Reykjavíkur. heldur fund í kvöld kl. 81/, á Hótel Skjaldbreið. Germania. Það var rangt sem stóð hjer 'í blaðinu í gær, að fjelag þetta ætlaði að halda aðalfund í gærkvöldi. Fundúrinn verður haldinn í kvöld. Skugga-Svein eru knattspyrnumenn bæjarins að æfa og ætla að sýna hann bæjarbúum í næsta mánuði. Leið- beinir Jens B. Waage bankabókari þeim á æfingunum. Strandmennirnir af þýska botn- vörpungnum sem strandaði austur í Meðallandi fyrir skömmu, kom hing- að í gærkvöldi, Eru þeir 13 talsins. Skipið "Grethe strandaði á gamlárs- kvöld og sluppu allir skipverjar ó- skemdir af strandinu. En nokkrum dögum áður en strandið varð hand- leggsbrotnaði 1. vjelstjóri og mátti hann því illa við vosi því, sem strand inu fylgja. Skipstjóri lætur mjög vel yfir gestrisni og viðtökum þeirra, sem hýstu skipsbrotsmennina meðan iþeir biðu fyrir austan og eins á leið- inni. Lætur hann vel yfir ferðinni, en gat þess þó, að eigi hefði þeim Þjóðverjúiftm þótt árennilegt að ríða vötnin þar eystra, enda voru þau með versta móti. En Jóhannesi bónda á Söndum, sem flutti þá hing- að suður tókst að koma þeim heilum á húfi yfir allar torfærur. Árekstur? Sagt er að Hjeðinn lands verslunarskrifstofustjóri eigi að verða 1 maður á Alþ.fl.listanum nú við bæjarstjórnarkosningariiar og til stuðnings honum eigi á fundi, sem til stendur í verkm.fjel. „Dagsbrún”, að reyna að koma honum þar 'í for- mannssætið. — —En mjer er spurn: Mundi formenska í Dagsbrúnarfjel- aginu ekki geta rekist óþægilega á stöðu hans við landsverslunina ? x. Samverjinn f gær voru 94 máltíðir látnar úti þar --------O--------- Skuldir Rússa erlendis. Sam- kvæmt áætlunum sovjetstjórnarinnar, nerna skuldir Rússa erlendis 12. milj. 749.000.000 gullrúblum eða 1^4 milj- ard sterlingspunda. Af þessu fje skulda þeir Frökkum 5 miljard rúbl- ur og Bretum annað eins. Þökk. Þegar eg varð fyrir þeirri sáru sorg að missa manninn minn í sjó- inn í haust og stóð uppi allslaus með 3 ung börn, þá rjettu sam- borgarar mínir á Flateyri mjer sína hjálpandi hönd og gáfu mjer stórfje til framfærslu mjer og barnanna og ljettu mjer þannig hið sára böl. — Eg vil geta þessum flateyringum til verðugs hróss, og jafnframt biðja guð að launa þeim slíkt örlæti og bróð- urþel. Flateyri 30. nóv. 1921 Arnfriðuí* Álfsdóttir. Þakkarávarp. Hjer með vottum við undir- rituð okkar innilegasta þakklæti öllum þeim mörgu Akurnesingum sem af mannúðarfullum kærleika gáfu okkur peninga í haust er jeg lá veikur á spítala, Og sjerstaklega þökkum við þeim góðu hjónum Jónasi Sigurgeirs- syni og Helgu Þórðardóttur ásamt tengdaföður mínum Sigurgeiri Guðmundssyni umhyggju þeirra fyrir mjer veikum að við ekki gleymum mínum góðu og gömlu fjelögum Guðjóni Þórðarsyni og Vilhjálmi Benediktssyni sem aðal- lega gengust fyrir samskotunum. Biðjum við svo góðan guð að launa öllum okkar velgjörða- mönnum af fíkdómi sinnar náðar. Hvoli á Akranesi 7. jan 1922 Einar Tjörfason. Sigriður Sigurgeirsdóttir. Mótorbátur fæst keyptur, að stærð 7 Va tonn, bygður úr eik með 12 hesta vjel. Veiðarfæri geta fylgt. Nánari upplýsingar í síma nr. 11 á Akranesi. H r e i n a r ljereftstuskur keyptar háu verði. ísafoldarprentsmiðja h.f. til Tuxham-motora svo sem: Millumstykki, Sambandsmúffur, Pakkdósir, Skrúfa, eru af sjerstökum ástæðum til sölu nú þegar. öll stykki eru ný. Upplýsingar gefur Verslun Sigurjóns Pjeturss. & Co. Hafnarstræti 18. Danskai krónur og aðra erlenda peninga, kaupir og selur IWorten Ottesen. Duglegur seljari getur fengið atvinnu. Uppl. á afgr. Morgunblaðsins. S t o f a með húsgögnum til leigu fyrir einhleypa. Forstofuinngangur. A. v. á. heldur aðalfund sinn laugard. 21- þ. m. í barnaskólanum á SeÞ tjarnarnesi Fundurinn byrjar kl. 7 e. m. Áríðandi að allir félagar mæti. Stjórn Fr.fél. Seltirninga. Máfahlíð i Fróðárhreppi á Sn®- fellsnesi fæst hálf eða öll til kaups og ábúdar frá næstu fardögum. Góð- ir skilmálar. Upp*ýsing- ar á Bergstaðastræti 62« Semja ber w«ö ábúanda jarðarinnar 5ig. IngiinundarsDn. — 400 — — 401 — aftur. En hann var þó ekbi annað en maður, og þörf hans fyrir kynningu annara manna var ekki fullnægt. Hann hafði ekki fundið neitt heimili. Það var á sama 'hátt að félagar hans skildu hann ekki og f jölskylda hans og Lizzie, sem hann har þó mikla virðingu fyrir, skildi hann ekki. — Það var dálítil heiskja í hugsunum hans um þetta efni. Þú verður að ná vináttu hans aftur“, sagði hann við Lizzie, þegar þau kvöddust úti 'fyrir heim- ili hennar. „Jeg get þaö ekki — ekki nú“, sagði hún. „O-sei, sei!“ sagSi hann brosandi, „þú þarft ekk- ert annað en að blístra, þá kemur hann hlaupandi” „Jeg átti ekki við það“, sagði hún stillflega. Hún iiallaði sjer áfram til hans, þegar hún bauö honum góða nótt. En það var ekkert eggjandi í hreyf- ingunni, aðeins auðmýkt. Haun þiðnaði allur upp. Hann tók hana í íaðm sinn og kysti hana, og hann fann að sá koss, sem hún þrýsti á varir hans, var svo kreinn og sannur, að engin kona hafði nokkru sinni gefið hreinni koss. Hún fór að gráta og stundi upp: „Jeg gæti dáið fyrir þig, jeg gæti strax dáið fyrir >ig“- Svo losaði hún sig úr faðmlögum hans og hljóp upp tröppurnar. En Martin fann að tár komu fram í augu hans. » XLIIT. kapítuli. „Þegar sólin eyðileggur“ vár send út í október. Þegar Martin skar sundur seglgarnið, sem bundið var utan um hin þrjú eintök, sem útgefendurnir sendu honum, varð hann sorgbitinn. Honum datt í hug sú óumrafðilega gleði, sem hann mundi hafa fundið til, ef þetta hefði aðeins skeð einum eða tveim mánuðum fyr. En nú leithann á þetta með köldu blóði. Þetta var fyrsta bókin hans, og þó var hann svo kærulaus um hana, jafnvel hryggur! Það skifti nú alt saman svo litlu máli. Það eina, sem nokkurs var um vert, var, að hann gæti fengið nóga peninga, og jafnvel þeir voru honum lítils virði. Ilann fór irieð eitt eintak út í eldhús til Maríu. „Þessa bók hefi jeg samið. Jeg hefi skrifað hana þarna inni í stofunni, og jeg hugsa að getið sje um nokkrar súpuskálarnúr yðar í henni. Þjer eigið að eiga hana, María, til minningar um mig“. Ilaim gerði þetta ekki af neinni stórmensku, að- ein.s til þess að gleðja konuna og sýna henni, að hún hefði ekki farið villur vegar, þegar hún trúði á hann og treysti honum. Hún Iagði bókina inn í dagstofuna, ofan á biblíuná. Það var helgur dómur þessi bók, sem leigjandi hennar hafði samið. Og þetta dró nokkuð úr því, að Martin hafði eittsinn unnið í þvottahúsi. Þótt hún skildi ekki eina línu í bókinni vissi hún að hver þeirra hlaut að vera listaverk. Martin tók á móti ummælum um bók*sína daglega, en þau höf’ðu ekki meiri áhrif á hann en útkoma bók- arinnar sjálfrar. En húu vakti athygli, það var áreið- anlegt. Og þaö var þaö sama og meiri peningar. Ilanu - gat nú gert eitthvað fyrir Lizzie, efna öll loforð sín, og samt sem áön^ byggja sína grasþöktu höll. Pjelagið, sem gaf út bókina, hafði verið svo var- færið, að prenta aðeins 1500 eintök. En strax og fyrstu ritdómarnir komu, var strax byrjað á nýrri prentun, og- npplagið haft helmingi stærra. Og áður en það væri uppselt, átti að prenta þriðja upplagið, 5 þúsnnd einfök. TJtgáfufjelag eitt í London samdi um enska útgáfu, og stuttu síðar koin fregn um, að verið væri að þýða bókina á frönsku, þýsku og norðurlandamál- in. Árásin á Mallerlinck gat ekki verið framkvæmd á Iieillavænlegri stundu, því nú var barist í blöðum og tímaritum um „Þegar sólin eyðileggur“. ■— Fylgjend- ur Maeterlincks fylgtu sjer undir fána hans, ritstýr- endur og' heimspekingar beggja rnegin Atlantshafsins skrifuðu með og móti. Jafnvel sjálfur Bernard Shau koni á stríðsvöllinn og slöngvaði þar út einni greiö svo þróttmikilli, að nœrri lá, að hún gengi að báðum aðiljum dauðum. „Þetta er sjerlega merkilegt“, skrifaði fjelagi* Martin, „að skýrandi, heimspekileg grein selst eins og skáldsaga. Þjer hefðuð ekki getað valið betra efni, og þar að auki hafa hin ytri skilyrði verið einkar góð- Vjer þurfum væntanlega ekki að segja yður það, a® við munum smíða meðan járnið er heitt. Nú eru þegar seld um 40 þús. eintök í Bandaríkjunum og Kanada? og nýtt upp lag er í aðsígi. Við vinnum nótt og dag, til þess að fullnægja eftirspurninni. ■ Við sendum yður hjermeð eftirrit af samningi um kaup á næstu bók yðar. Þjer takið sjálfsagt eftir

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.