Morgunblaðið - 26.04.1922, Blaðsíða 4
MORGUNBLAÐIÐ
|Í :
FyrirhElminguErðsJ
seljum við nokkra pakka
af alullar amerísku her-
mannaklæði í 3 liturn
Aðeins kr 12.00 pr. m. ^
Er að minata kosti kr.
25 00 virði.
4
4
4
4
4
«
AiiimiiitAmmug
sem hann hefði verið forseti þess-
arar deildar. Og, ef það starf hefði
íarið sjer vel fir hendi — sem hann
stundum liefði heyrt utan að sjer —
þá væri það þeirri gæfu sinni að
þakka að hann hefði æ verið svo
lánsamur að hafa þá deild vel skip-
aða að raönnum. Oft hefðu skoðanirnir
verið skiftar, eins og von væri og
artti að vera í landsmálum, en ætíð
liefði samvinnan verið góð og það
varast að láta alt lenda í þrasi og
illdeilum.
r
f>akkaði hann að síðustu þingmönn-
um fvrir góða samvinnu.
pá stóð upp Halldór Steinsson.
Bað hann þingmenn standa upp til
heiðurs fyrir forseta sinn. Mælti hann
síðan nokur orð til hans, sem þing-
ttienn hlustuðu standandi á. Kvað
hann þingmenn þakka honum hans
mikla og vandastarf í þessari stöðu,
seni hann hefði rækt öllum öðrum
l'.c.ur um iill þessi ár. Kvað hann
það einróma álit allra að engin hefði
verið samvi/.kusamari, röggsamari, ár-
vakrari og rjettlátari forseta en hann.
ttskaði hann þess að síðustu, að
enda þótt hann nú yrði að láta af
forsetastörfum um stund, að |þá vrði
þess ekki langt að bíða, að hann
skipaði forsetasætið aftur annaðhvort
wem hjeraðs eða landkjörinn, því þess
væri hann fulviss, að aldrei mundi
deildin fá annan eins forseta kvað
þá betri. Að þassum umr. loknum
sleit forseti fundi hinum síðasta í
E. d. að þessu sinni.
nýlega verið gerðir á Seyðii íirði.
Er kaupið ákveðið kr. 0.90 á klst.,
er. eftirvinna er borguö með kr. 1,20
um virka daga en kr. 130 í lielgi-
dagavinnu. 1
Aflabrögð hafa verið með afbrigð-
um góð á Austfjörðum undanfarinn
tíma. Hafa fámennir bátar fengið
um 10—12 skpd. í róðri. Einn bátur
fjekk á viku 100 skpd. Lítur út fyrir
að óvenjumikill fiskur ætli að ganga
að landinu þetta vor.
Frú X heitir leikrit, sem læikfje-
lagið er að æfa um þessar mundir og
væntanlega verður leikið um aðra
helgi. Leikrit þetta er eftir fransk-
ar höfund, Bisson, og er efni þess
átakanlegt og þannig farið með það
að áhorfandinn hlýtur að fylgjast
með frá upphafi til enida. Segir það
frá konu, sem hleypur í burt fr'á
mani sínum, dómara í París og ratar
síðan út í eymd og spillingu. Hlutverk
þetta leikur frú S!"fanía Guðmunds-
dóttir. Meðal annara leikenda í þess-
um leik eru ungfrúrnar Svanhildur
Þorsteinsdóttir og Soffía Björnsdótt-
ir, frú Soffía Kvaran, Ágúst Kvaran,
Helgi Helgason, Friðfinnur Guðjóns-
son, Oskar Borg og Keinh. Kichter.
,Germania‘ efnir til allnýstárlegrar
skemtunar á laugardaginn næsta. -—•
Nokkrir Þjóðverjar hjer í bæ með
aöstoð Islenldinga, leika þýskan gam-
1 anleik „Als Verlobte empfehlen sieh‘.‘
i — eftir Ernst Wichert. Leikið verður
á þýsku. Ýmislegt annað verður til
skemtunar, t. d. syngur Oskar Norð-
mann ýms þýsk lög, pjóðverjinn
Siemen fer með þýskar gamanvísur
ög loks er dansleikur á eftir. Fjelagar
geta vitjáð aðgöngumiða fyrir sig og
j gesti sína fimtudag og fostudag hjá
! Guðm. Gamalíelssyni.
I
Stúdjentafj elagið hietdur umræðu-
fund um bannmálið í Mensa academica
. í kvöld kl. 9. Nokkrum mönnum hefir
verið boðið sjerstaklega, svo sem for-
sætisráðhera, stórtemplar, fulltrúa
frá andbanningafjelaginu, framsögu-
m. þingnefndanna o. fl. En Árni Sig-
urðsson eand. theol. hefir umræð-
. urnar og mun einkum ætlast til þess,
( að rætt verði um afstöðuna til þeirr-
ar samþyktar sem þingið hefir nú
gert og um framtíðarhorfur málsins.
-o—
~ BASBÖE. =■
Nýir krónuseðlar hafa nú verið
prentaðir, lítið eitt öðruvísi að gerð
en þeir gömlu, og eru komnir í um-
ferð. Þeir eru prentaðir í Gutenlierg
og hefir Olafur Hvanndal smíðað ný
möt og gert nokkra breytingu á
teikningunni frá því, sem áður var.
Trúlofun sína opinberuðu á sumar-
daginn fyrsta ungfrú Guðríður Ein-
arsdóttir og Jón Hj. Jónsson, bæði
til heimilis í Hafnarfirði.
Lík skipbrotsmannanna af „Talis-
man“ átti upphaflega að flytja norð-
ur til Akureyrar. Var „Helgi magri“
gendur vestur í þeim erindum að
saekja þau, en komst ekki norður
vegna vjelarbilunar. Voru því menn-
irnir jarðaðir allir á Vestfjörðum,
9 að Stað í Súgandafirði en 3 að
Holti í Önundarfirði.
Sýning var fyrir nokkru á Akur-
eyri á trjeskurðarmunum þeim, sem
gerðir voru á námskeiði því, er haldið
tbx þar í vetur undir stjórn og leið-
beiningu Guðm. frá Mosdal. Voru þar
ýmsir mjög haglega gerðir mumr,
aaumaskrin, nálhús í bókarformi,
askar o. fl. Þóttu munimir hinir feg-
nrstu.
Málverkasýningu hafði Ólafur Tú-
bals fyrir nokru á Akureyri. Er látið
hið besta yfir henni í norðanblöð-
unum.
Samningar úm verkakaup milli
vinnuveitenda og verkamanna hafa
I Sleipnir hið nýja útgerðarf jelag hef,
ir nú fengið síðari botnvöriiung sinn
frá pýskalandi og á hann að heita
!„Glaðui“. Er hann um það bil að
leggja út á veiðar. Bæði eru þessi
i þýsku skip alveg ný og mjög falleg
. að sjá. Skipstjóri þessa skips verður
I Magnús Kjærnested úr Hafnarfirði.
/
Dánarfregn. A sunnudaginn var and
aðist Katrín Fjeldsted, systir Andr-
1 jesar heitins Fjeldsted bónda á Hvít-
árvöllum. Var hún 93 ára að aldri.
\ Þróttur kom út á sumardaginn
j fyrsta og var seldur á götunum þann
dag, en fáir munu hafa kevpt, vegna
þess að veðrið var slæmt. í hefti
i þessu eru m. a. greinar um þörf á
1 knattspyrnukennara, ágæt þýdd grein
i „Leyndardómur sigursins“ eftir F.
A M. Webster og „Endurmmning
frá Old Boys“, óvenjulega skemti-
leg grein. í heftinu er einnig mynd'
' af bikar þeim, sem „Christiania Turn-
f( rening“ gaf í sumar ásamt reglu-
gerð fyrir hann. j
íþróttakennari er væntanlegur hing-
að til Keykjavíkur í sumar fyrir til-
jstilli íþróttafjelags Reykjavíkur. —
; Ætlar hann að kenna alls konar
i vallaríþróttir og leikfimi og gefst
! niönnuni hjer gott tækifæri til að
njóta leiðbeininga. Væri jþað nauðsyn-
! hgt íþróttum, að fjelög úti á landi
! sendi menn á námskeið það, sem þessi
kennari heldur hjer, og gætu þeir
svo leiðbeint um íþróttaiðkanir, hver
í sínu fjelagi á eftir. Kennarinn heit-'
ir Reiidar Tönsberg, viðurkendur í-
þióttamaður norskur og meistari í
fimleikum. Hefir Christiania Turn-
forening útvegað kennarann með á-
gætum kjörum fyrir íþróttafjelagið
hjer og sýnir það hlý.jan hug fje-
lagsins til íslendinga.
I
Fálkaveiðin. Botnvörpungar þeir,
er Islands Falk tók síðastliðna mánu-
dagsnótt við Vestmannaeyjar eru allir
ensldr og eru sex þeirra kærðir fyrir
„hlerabrot“ svokallað, en einn fyrir
að hafa eyðilagt veiðarfæri fyrir
Vestmannaeyinguin. Hefir yfirgang-
ur erlendra botnvörpunga verið gíf-
urlega mikill á miðum austur þar
tmdanfama daga, og Eyjamenn mist
veiðarfæri fjrrir hundrað iþúsund kr.,,
auk skaðans á fiski, sem af þessu
hefir hlotist. Virðist jefnvel svo, að :
sumir botnvörpungarnir hafi gert sjer,
leik að því, að vinna landsmönnum'
svo mikið ógagn sem þeim er unt.
Gullfoss fer hjeðan kl. 5 í dag,
beina leið til Kaupmannahafnar, með 1
fjölda farþega. Emil Nielsen fram-
kvæmdastjóri tekur sjer fari með
skipinu. Sterling fer í hringferð kl.
6 í dag.
Alþingi verður slitið í dag.
Kjarval. í dag verður málverkasýn-1
ing hans í húsi Egils Jacobsen kaup-'
manns opin' í síðasta sinn. í gær bauð
lisnn öllum háskólastúdentum á sýn-
inguna.
Gengi erl. myntar.
Khöfn 25. apríl.
Sterlingspund.............. 20.88
Dollar...................... 4.72
Mörk........................ 1.90
Sænskar krónur.............122.80
Norskar krónur............. 88,85
Franskir frankar........... 44.20
Svissneskir frankar........ 92.00
Lírur...................... 25.85
Pesetar.................... 73.85
Gvllini....................179.65
Nægar birgðir af
salti og kolum
handa togurum, höfum vjer ávalt fyrirliggjandi.
fiinar samEinuQu íslensku uerslanir
Eskifirði.
Sýnishorriasafn.
Fjölbreytt úrval af körfum, svo sem brjefakörfur,
saumakörfur, búðakörfur, taukörfur o. fl. o. fi., verður selt í dag
og næstu daga í Hafnarstræti 15 (austurbúðin).
Kaupirðu góðan hlut þá mundu
hvar þú fjekkst hann.
SílÖarnet.
Það er ekki nema nafnið hvernig net þjer fáið — þesavegna
er það hin mesta nauðsyn fyrir yður að fá aðeins besta efnið setn
hægt er að búa til, það verður yður ódýrast. — Við erum svo
hepnir að hafa síldarnet úr „Best Gold Medal Twine“ frá
Ameríku, það er bæði sterkt og veiðið. — Verðið er iægst í borg-
inni. Komið og skoðið netin.
Sigurjón Pjetursson & Co.
I WM
Efnilegast ríkja ' þeirra, sem
mynduöust eftir ófriðinn, hefir
Tjekko-Slóvakía alment verið tal-
in. Er land þetta besti hlutinn úr
Austurríki hiuu forna; þar eru
landgæði mikil og málmaauður,
iönaður í ágætu lagi og þjóðin
mentuð vel og dugandi. Bættist
og við að mesti friður varð í land-
inu undir eins við ríkisstofnuninia,
svo að stjómin gat hafist handa
þegar í stað til þess að efla hag-
sæld landsmianna. Aðalþjóðflokkur
þessa nýja ríkis eru — eins og
nafnið bendir til — Tjekkar og
Slóvakar, og virtist siambúðin milli
þeirra fara mjög vel.
Nýlega hefir frjetst að kurr sje
kominn milli þjóða þessara. Hefir
|>jóðernisflokkur Slovaka á þing-
iuu, ásamt þýska flokknum þar,
borið fram frumvarp um að Sló-
vakía fái fulla heimastjórn innan
lýðveldisins, sjerstakt skjaldar-
merki og fána, sjerstaka stjóm
og þing, í líkingu við það sem ger
ist hjá flestum þýsku sambands-
ríkjunum. Ríkismálið á að vera
slovakiska. Herinn á að vera sam-
eiginlegur fyrir ialt lýðveldið. Sam
eignleg mál eiga að liggja undir
sjerstiakt sambandsþing. Enn frem-
ur er ákveðið, að lög þau sem sett
hafa verið síðan ríkið var stofnað,
skuli ekki gilda í Slovakíu, nema
því að eins að % þingmanna í
þinginu þar samþykki þau.
Fmmvarp þetta kom fyrir þing
ið snemma í mars. Síðan hefir
ekkert frjálst af málinu og er því
sennilegt að frumvarpið hafi ekki
náð fram ’að ganga.
Niu myndir úp
lifi meistarans
eftir Olfert Richard,
er besta
fermingargjöfin.
Fæst hjá bóksölunum.
Bókaverslun
Sigurjóns Jónssonar.
LaugaVeg 19.
Þirottakonu
vantar til liiiþvotta a Hotel Is-
land 1. n. m. Á sama stað vant-
ar 8túlku í eldhúsið frá 14. maí.
Nánari upplýsingar á skrifstof-
unni kl. 4—7 e. m.
Hitt og þetta.
Glíinan í Danmörku.
í fyásögn af sýningu leikfimisfje-
lags í Svendborg er sagt frá því, að
einn liðurinn og sá eftirtektarverð-
asti sje sýning islenskiar glímu. Seg-
ir þar, að í leikfimisfjelaginu sjeu
5 ungir Islendingar og ætli þeir að
sýna þjóðaríþrótt Islendinga. Segir í
greininni, að einn þessara manna hafi
tekið þátt í glímunni, sem halídin var
fyrir konung í fyrrasumar á Þing-
völlum og hafi hann orðið annar í
röðinni.
Bannlandið.
í Kansas er eigi aðeins áfengis-
bann eins og í öðrum ríkjum Banda-
ríkjanna, heldur einnig ýmS önnur
hönn. par er bann gegn dansi, „jazz-
músik“, vindlingareykingum og bann
gegn því. að kvenfólk gangi í flegnum
kjólum eða „púðri“ sig. iEskulýðnum
í Kansas finst nú nóg komið af bönn
unum og við næstu landstjórakosning-
ar verður fulltrúaefni í kjöri af hans
hálfu, sem hefir enga aðra stefnu-
skrá en afnám allra banna. Er það
ung og falleg stúlka, sem heitir
Helen Pettigrew.
Menn geta fengið fæði
fyrir lengri og skemri tíma frá
1. maí á Lindargötu 1, hjá Val-
gerði Steinsen. Er til viðtals frá
kl. 5—8 siðdegis.
Prima norskt
portlanö cement
útvega ódýrast í heildsölu
Þórður Sveinsson & Co«
Ný dönsk egg
Og
danskt smjör
ftil sölu.
Þórður Sveinsson & Co.
bimar 701 og 801.
2 stúlkur geta fengið ágæta at-
vinnu við fiskverkun i Keflavík
í 4 mánuði, frá 14. maí til J4,
sept. þ á. Hátt raánaðarkaup,
frítt fæði og húanæði. Upplýs-
ingar á Grettisgötu 53 A, niðri,
til 30 apríl
Skorið
neftóbak
í versl. G. Gunnarss.
Reyniö það!
Hestur til sölu. Upplýsingar á
Laugavegi 35, eftir kl. 7.
Byggingarlóð við Miðbæinn,
760 fer álnir, til sölu. Upplýs
ingar hjá B. Jónssyni og G. Gub-
jónssyni Grettisgötn 28..
|