Morgunblaðið - 19.11.1922, Side 3
MORGUNBLAÐIÐ
Nýkomið:
Biblía, bæði stóra útgáfan og vasaútgáfan við ýmsu verði,
Nýja testamenti, vasaútgáfa,
íslenskt söngvasafn, II, hefti,
Fæst hjá bóksölum.
Bókav. Sigf. Eymundssonsr.
Til sölu i næstu fardögum ein af bestu jörðum í Arnessýslu,
ásamt ágætu íbúðarhúsi og öllum úti-húsum. Tún og engjar afgirt
og vjeltæk. — Eignaskiftifgætu komið til greina. — Upplýsingar
í talsíma 261
Tvisvar sinnum stœrri en áður er eg nú orðin, hefi bestar vörur, lægst
verð, mest hreinlæti, fljótasta afgreiðslu, fallegastar útstillingar og alt eftir
þessu. — A. E. C.
Engin núll!
Bravó!
Engin núll!
segja allir, sem heyra talað um hlutaveltu skátanna í Bárunni
i dag því þar fá menn fyrir 50 aura: Farsedil til Kaup-
mannahafnar á 1. farrými á Gullfossi, saltfisk, kol, riffil, úr,
bílferðir, sjálfblekung, skó sína sólaða, silfurmuni og fjölda annara
ágætra hluta.
AV. Engin núll, -en í stað þeirra fá menn happdrættismiða
og að hlutaveltunni lokinni verður dregið um þessa muni:
Reidhjól
Myndavjel (verð 150 kr.)
Islendingasögur.
Ágæt skemtiskrá. — Húsið opnað kl. 5. Hlje frá 7—8.
Langbesta hluta veltan,' sem hjer hefir verið haldin.
Stórkostlefi Yörusynins: í das í
Járnvöruöeilö Jes Zimsen.
Plótín var frábært, rökvísin í
ágætu lagi; af vorra daga spek-
inguin er Henri Bergson ef til
vill líkastur honum. Og Timaios
var sú bókin sem hann liafði
mestar mætur á. En ekki man
jeg eftir því, að Plótín víki nokk-
nrstaðar í öllum þessum 54 rit-
gerðum einu orði að þeirri setn-
ingunni sem Platón hefir merki-
legasta skrifað, og í standa orðin
astron synnomon. Fleiri dæmi
inun ekki þurfa að telja frá fom-
öld, því að mjer virðast tals-
verðar líkur til þess, að aldrei
hafi nokkur maðnr rækilegar
lesið Timaios en Plótín gerði. En
tvö r:t ætla jeg að nefna frá
vorum dögum, og tel einnig það
rægja, sakir lærdóms og ment-
nnar þeirra sem samið hafa. Ann-
að ritið er „Um lífið eftir dauð-
aun samkvæmt því sem mann-
kynið hefir ímyndað sjer um það
«fni.“ O. jClemen: Das Leben
nach dem Tode im Glauben der
Menschheit, 1920. Bók þessi er
samin af hinum fræga þýska pró-
fessor af miklum og merkilegum
lærdómi og með góðri þýskri
skipan. En merkilegasti staður-
inn í ritum Platóns er þar ekki
nefndur, jafnvel þó að efnið
krefjist þess að hans sje getið.
Svo langt er sá höfundur frá
því að hafa veitt því eftirtekt
hvað sá staður er merkilegur.
Hin ritgerðin er eftir Norðmann-
inn prófessor , W. Sehencke, og
stendur í 3. bindi af sögu menn-
ingarinnar (Kulturens Historie)
^eftir norska höfunda.Ritgerð þessi
um trúarbrögðin (Religion) er
samin af snild og lærdómi. Og
þessi höfundur víkur að kenningu
Platóns þeirri sem hjer ræðir um
(S. 283). En mjög fróðlega kemur
það fram, að ekki hefir þó hinn
merkilegasti etaður neitt verulega
vakið athygli prófessorsins. Hann
segir nefnilega að Platón hafi
gefið mönnum vonir um að sálin -
hyrfi aftur til æðri heims. En
af því sem áður segir, má sjá
að Schencke minnir að Platón
hafi kent að sá æðri heimur væri
fvrir ofan stjörnúrnar.
IV.
Undir því er alt komið að
vita, að hinn „æðri heimur“ eða
guðsríki, og eins sá heimuriim,
sem kallaður hefir verið helvíti,
er hvorki fyrir ofan stjömurn-
urnar eða neðan, heldur einmitt
á stjörnunum. Svo mikils virði
er sú vitneskja, að af henni leiðir
aldaskifti þau sem svo mjög og
svo lengi hefir verið spáð. Hin
a’ð.sta kenning grískrar speki og
enn þess manns sem af Grikkjum
var kominn og Norðmönnum, er
nú fyrir íslenskar uppgötvanir, að
vísindum orðin. Vilji menn haga
rannsóknum eftir mínum ráðum,
þá munu þeir gánga alveg úr
skugga um að þeir geta fengið
samband við íbúa annara stjarná.
Og eigi einungis mtum menn geía
talað við þá, heldur munu íbúaí
annara stjama koma hjer fram,
og það sem þeir segja, þegar hug-
arfar jarðarbúa verður hætt að
vera því til fyrirstöðu að þeir
geti talað eftir vild sinni,- mun
verða mjög fróðlegt. Reykjavík
mun verða. nokkru frægari hær
en líklegt hefir þótt,þegar íslensk-
ir fræðimenn verða betur sam-
taka en hingað til hefir verið,
manni sem mjög hefir haft hug
á því að framhald gæti orðið af
sumrí forníslenskri sjálfstæðis
viðleitni.
Og meira orð mun fara af þús-
und ara hatíð íslendinga þeirri
sem ni) fer að líða að. en með
líkindum mundi þykja um svo
fámenna þjóð. Gunnar og Njáll
og enn aðrir fornmenn ágætir,
munu þátt taka með oss í þús-
und ára afmælishátíð Alþingis.
Jeg veit að slíkt er ekki var-
lega sagt, en þó ætla jeg nokkru
við að bæta. Sjálfir Æsir munu
þátt taka með oss í þeirri há-
tíð. Því að þeir eru lengra kom-
ið mannkyn á annari stjörnn. Á
því getur enginn vaf) leikið, þeg-
ar nokkur þekking er á sumum
hinnm helstu midirstöðuatriðum í
líffræði, að hinir kæru guðir for-
feðra vorra og formæðra, eru
ekkj tómur hugarhurður. Óðinn
lifir og Þór og Baldur og Freyr
og Njörður og Frigg og Freyjá
o,g enn aðrar Ásynjur sem ekki
eru síður ágætar en Æsirnir,
þó að jeg nefni þær síðar.
Jeg hygg að jeg muni vera í
minsta iagi þeirra manna sem
vora jörð byggja, gefinn fyrir
að ala með mjer ástæðulausar
ímyndanir. Og ekki ætla jeg að
leyna því sem mjer líklegt þykir.
Vilji íslendingar vita með mjer
að_ Æsir. eru til, og taka þar
upp aftur vináttu með frænd-
semi, þá geri jeg mjer vonir um
að veturinn yrði mun vægari en
annars kynni að verða. Og jeg
mundi ennfremur búast við því,
að vorið yrði slíkt sem ekki hefði
á Islandi sjest áður og sumarið
síðan, en heyfengur tvöfaldur við
það sem er í meðalári.
En þó mun sumt sem ennþá
betra er, af því leiða, að taka
þeim skilningi á heiminum og
lífinu sem hjer er verið að boða,
og til þess miðar, þó langt sje
að því marki, að eytt verði allri
þjáning og dauðinn sigraður.
Helgi Pjeturss.
i ...
Stiórnarskiftin í Italíu.
London 1. nóv.
Nýja stjórnin ítalska tók við
völdum í gær. Var Mussolini fljót-
ur að mynda ráðuneytið, og er
auðsjeð, að hann hefir bviist við
því, að læti þeirra Fascistanna
mundu leiða til þess, að hann
tæki við völdunum.
Mussolini er sjálfur forsætis-
ráðherra og gegnir jafnframt til
bráðabirga störfum innanríkisráð-
herra og utanríkisráðherra. Aðrir
Faseistar í ráðuneytinu er Aldo
Oviglio dómsmálaráðherra, Al-
berto de Stefani fjármálaráðherra
og Giurati, sem er ráðherra land-
svæða þeirra, er ítalir unnu í
ófriðnum. Annars eru bæði „na-
tioualistar“, frjálslyndir menn,
jafnaðarmenn og miðflokksmenn
í stjórninni, og þykir mönnum
Mussolini hafa orðið vel ágengt
í því, að fá stuðning annara
flokka. Þingið kemur saman 15.
nóv. og þykir sennilegt, að nýja
ráðuneytið muni njóta stuðnings
meiri hlutans þar. Ef ekki, þá
verður þingið rofið og nýjar
kosningar látnar fara frain.
Mikinn gauragang gerðu Fas-
cistar í sambandi við myndun
nýja ráðuneytisins í gær. Fóru
15,000 hermenn úr flokki þeirra
í skrúðgöngú um Rómahorg og
safnaðist að þeim svo mikill mann-
fjöldi, að flokknrinn var orðinn
um 100,000 þegar komið var til
konnngshallarinnar. Æpti mann-
fjöldinn þar fagnaðaróp konung-
inum til vegsemdar, svo að alt
ætlaði ofan að keyra.
Það þykir ekki ósennilegt, að
þessi nýja stjórn, sem komist
hefir til valda með býsna óvenju-
legum hætti, verði vinsæl meðal
þjóðarinnar, í það minsta fyrst
um sinn. Sannleikurinn er sá, að
síðustu árin hafa verið vandræða-
tímar í ftalíu, alment atvinnu-
leysi, verslunin í megnasta ólagi
og fjárreiður allar komnar á við-
sjárverða hraut. Svo mikið hefir
kveðið að þessn, að ýmsir vitrari
stjórnmálamenn þjóðarinnar hafa
spáð ríkinu gjaldþroti, ef eigi
yrði breytt í annað horf hið bráð-
asta. Sumir hafa þá trú, að
Mussolini takist að kippa öllu í
lag aftur, og það er þessi von
sem valdið hefir því, að þjóðin
sættir sig yfirleitt vel við það
sem orðið er.
Það hefir vakfð mikla athygli,
að sendiherra ítala í París, Sforza
greifi, hefir sagt af sjer starfi
sínn, og látið þess getið, að hann
vildi ekki vinna undir stjórn
Mnssolini. En nýji forsætisráð-
herrann sendi honnm samstundis
skeyti aftnr, þar sem hann „skip-
ar“ honum, að gegna störfum
áfram. Er þeirri deilu ekki lok-
ið enn.
| ........ -O—------5
Erl. símfregnir
frá frjettaritara MofgtmblaMsa.
Khöfn 18. nóv. 1922.
Trakkar ðg Þjóðverjar.
París: Poincaré hefir haldið
mikla ræðu í þinginu með nýjum
árásum á Þýskaland. Lagði hann
áherslu á, að Þjóðverjar hefðu
aldrei sýnt vilja til þess að full-
nægja endurreisnarskyldunum og
sýndi frain á ósamræmið í því,
að meðan þýská ríkið væri að
fara á höfuðið, gerði stóriðnaður-
inn þýski heljarmikil kaup í Ame-
ríku. — Hann sagði, að Þýska-
land .yrði að taka lán, eins og
Frakkland 1871, og heimta ihn
skatta, en það hefði ekki verið
gert síðnstu 4 árin.
Soldániim flýr.
Konstantínópel: Soldáninn var
hræddur um að á sig yrði ráðist
og er farinn til Malta með ensku
herskipi, en hefir lýst yfir, að sú
hurtför tákni ekki að hann afsali
sjer soldánsvaldinu.
Frá Danmörku.
' i i iii
Síðan Bretar sleptu yfirráðum
yfir Egyptalandi í fyrravor, hefir
nefnd setið á rökstólum þar til
þess að semja frumvai'p til stjórn-
arskrár fyrir ríkið. Hefir hún
nýlega skilað stjói;ninni áliti sínn.
Stjórnarskipun Egypta verðnr
þingbnndin konungsstjórn og ber
konungurinn kommgsheiti Egypta
■»E Súdan. Þingið verður í tveim-