Morgunblaðið - 24.12.1922, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 24.12.1922, Blaðsíða 4
MokuIJNBLAÐIÐ G1 e ð i 1 e g' j ó 1 ! Vaðue*. GleSilegra jóla óskar öllum viðskiftaviuuni sínum Verslunin Vísir. Gleðilegra jóla óskar sínum kæru viðskiftavinum Vigfús Guðbrandsson. Gleðileg jól! Gunnar Þórðarson, Laugaveg 64. Þar sjerðu rætast þínar göfgu þrár og það, sem búið var þig mest að dreyma. ♦*< Þú lifir heill í landi kærleikans, þars ljúfur guö þjer veitir nóg af gæðum, Og hefur bundið bjartan sigurkráns og búið stað á Ijóssins dýröarhæöum. Á. S. Hannes Hafstein Eyjan mælir harmi hreld: honum nú jeg þakkir geld, sem mig í hlýjan færði feld fagurra drauma og ásta. Áður var jeg svikin, seld, en svo kom Hannes, undir kveld, ogkveikti á tindum frelsis, auðnu og friðareld. Þung er núna þjóðar för þessi eru hennar svör: sá, er fyrrum hjó með hjör höft á mínum vegi, og sem bráður beitti knör í brimið Iíkt og flýgi ör, hefur skipið dregið upp í dauðavör. Hulda sína hörpu slær, henni eru lögin kær, sem hann kvað, er sefur vær í sinnar móður skauti, og andi hans er ekki fjær okkur núna í dag en gær. Hann mnn lifa lengur en að gröfin grær. Ounmr Árncuton. Enskar húfur og ‘hattar komu rneð Gullfossi. l/orufyisi&y fíugl. dagbók LÍKKISTUVERSLUN og vinnustof an, Ltugaveg 11, sími 93, selur blóm- sveiga, ai.k alls annars, sem jarðarför- i'in tilheyrir. Helgi Helgason. Besta skemtun, sem þjer fáiö, er aö lesa „Rauðu akurliljuna11. Fæst hjá bóksölum. Nýtt í Lucana, sem hvergi er ann- arstaðar, komið og sannfærist. Englahár, (fæst ekki), en 10 giltnr kúlur fyrir 25 aura, jólalöberarnir að klárast, jólalugtirnar alveg á för- um og jólakonfektpokarnir seldir fyr- ir hálfvirði í ABC-basarnum, happ- drættismiði í kaupbæti. Konfektöskjur allskonar frá 40 aurum í Lucana , jólasveinar, jóla- pokar, jólanet, stórir konfektkassar og alt annað sælgæti, best að vanda í Lueana, happdrættismiði í kaupbæti. Gull og plett skúfhólkar fást hjá Sigurþór Jónssyni, ASalstræti 9. — Spyrjið um verðið. Silfur-tóbaksdósir í miklu úrvali; bestar og ódýrastar hjá Sigurþór Jónssyni, Aðalstræti 9. Sími 341. jUakogi' chriotal barnatúttur kosta aðeins 30 aura stykkið. Fást aðeins í versluninni „Goðafoss" á Lauga- vegi 5. — Frá næstu áramótum óskast ungur piltur eða stúlka til skrifstofu- og búðarstarfa. parf að kunna vjelrih un, ensku, dtineku og helst þýsku, einnig að geta fært bækur með dálkaikerfi. Tilboð með l'aunakröfu ásamt meðmælum sendist afgreiðslu Morgunblaðsíns fyrir 28. þessa mán- aðar, merkt: 6. 12. Slifsi fundið, vitjist í Hafnarstr. 8. Barnaleikfang fanst í gær í Austurstræti. Vitjist á Laugaveg 13. Allir, sem þurfa að kaupa vjela- reimar, (drifreimar úr leðri) kaupa þær í „Sleipnir", því þar eru þær langódýrastar og bestar. Allar breiddir fyrirliggjandi. Sími 646. Dagbók Næturlæknir: Ólafur porsteinsson. Vörður í Laugavegs-apóteki. Stjörnufjelagið. Samkoma á að- fcngadagskvöldið kl. lll/^- Guðspeki- nemar velkomnir. Málverkasafnið í Alþingishúsinu er sýnt kl. 1—3 í dag. A sama tíma er pjóðminjasaf'nið í Safnahúsinu til sýnis, en á annan jóladag verður því ekki haldið opnu. Hjónaefni. Opinberað hafa trúofun sína ungfrú Jóhanna Hannubeck og Stefán Baehmann versunarmaður. — Ennfremur ungfrú Mína pórðardóttir frá Æsustöðum í Mosíe'lssveit og Ingvar Hallsteinsson frá Skarholts- koti í Leirársveit. í greininni um „Kyljur1 ‘ í blað- inu í gær var misprentað á einum stað — svefnleysi, en á að vera scefnuleysi. Strandið á Reykjarfirði. í fyrri- nótt kom Geir að norðan frá Reykj- arfirði. Reyndist för hans þangað árangurslaus, hafði „Fillefjeld“ verið svo mikið brotið, að óhugsandi var að ná því út. Skipshöfnin kom á „Geir“ á norðan Dánarfregn. Bogi pórðarson á Lágafelli og kona hans hafa orðið fyrir þeirri sorg að missa son sinn Lárus nú mjög nýlega. Hann var 15 ára gamall. ,.próttur“ verður seldur í dag á götunum eftir kl. 4. Bifreiðarstöðvar Steindórs og Reykjavíkur verða lokaðar frá kl. 5 í dag þangað til kl. 2 á morgun, sbr. auglýsingar bjer í blaðinu í dag. Hljóðfærasveit Bernburgs fer 1. jóladag að Lauganesi, Kleppi og Landakoti og leikur þar, en á annan jóladag á Gamalmermahælmu. Á nýársdag fer sveitin til Vífilsstaða. Fyrirlestur flytur Bjarni alþm. frá Vogi á annan í jólum um stjórn- mál. Sbr. auglýsingu hjer í blaðinu. pað stóð til að Stúdenta fjelagið hjeldi í vetur ðtjórnmálaviku, eins og trúmálavikuna í fyrra, en óvíst nð af því verði. En þessi fyrir- lestur var henni ætlaður. Jólablað, sjerstakt, fylgir þessu blaði. Næsta blað kemur út • á fimtudag. -------------o-------- Erl. iámtregnir frá frjettaritara WTorgnnblaMns. Khefn 22. des. Umbætur Fascista. Símað er frá Róm, að Musso- lini hafi byrjað á að koma í fram- kvæmd ýmsum stefnumálum Fas- eista. Samgöngumálaráðherrann hefir komið fram með ýmsar sparnaðartillögur, þar á meðal ao sagt verði upp starfa um 60 þús. sýslunarmönnum. ítalir hafa framvegis tvens- konar herlið, hinar venjuleg'J hersveitir og Fascista-ihervörðinn, sem er 70,000 manns.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.