Morgunblaðið - 22.02.1923, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 22.02.1923, Blaðsíða 4
Þingfiðindi. Stjórnarfrumvörpin. Eins og áður hefir verið skýrt frá, hafa verið lögð fyrir þingið nú 26 stjórnarfrumvörp. Þau eru þessi: 1. Frv. tii íjárlaga íyrir 1924. 2. Frv. til. laga um nýja em- bættaskipun. 3. Frv. til laga um framleng- ing á gildi laga um útflutn- ingsgjald. 4. Frv. tii laga um tekjuskatt og eignaskatt. 5. Frv. tii laga um breytingu á iögum nr. 66, 27. júní 1921, uni íasteignaskatt. 6. Frv. til laga um einkaleyfi. 7. Frv. til laga um breyting á sveitarstjórnarlögum 10. nóv. 1905. 8. Frv. til laga um undanþágu frá lögum nr. 91, 14. nóv. 1917, uni aðflutningsbann á áfengi. 9. Frv. til laga um breytingu á lögum nr. 74, 27. júní 1921, um tekjuskatt og eignaskatt. 10. Frv. til laga um afnám bisk- upsembættisins. 11. Frv. til laga um afnám land- læknisembættisins o,g stofn- un heilbrigðisráðs. 12. Frv. til laga um afnám yfir- skjalavarðarembættisins við þjóðskjalasafn íslands. 13. Frv. til laga um vitabygging- ar. 14. Frv. til laga um manntals- þing. 15. Frv. til laga um verðtoll á nokkrum vörutegundum. 16. Frv. til fjáraukalaga fyrirár- in 1920 og 1921. 17. Frv. til íjáraukalaga fyrir ár- ið 1922. lb. Frv. til laga um samþykt á landsreikningunum 1920 og 1921. Öll þessi 18 frumvörp eru lögð fram í neðri deild, en í efri deild þessi 8 frumvörp: 19. Frv. til laga um samþyktir um sýsluvegasjóði. 20. Frv. til hjúalaga. 21. Frv. til laga um breyting á fátækralögum frá 10. nóv. 1905. 22. Frv. til laga um vatnsorku- sjerleyfi. 23. Frv. til laga um varnir gegn kynsjúkdómum. 24. Frv. til vatnalaga. 25. Frv. til laga um ríkisskulda- brjef. 26. Frv. til laga um skiftimynt úr eirnikkel. Af þessum stjórnarfrumvörpum eru sum gamalkunnug, svo sem vatnalagafrumvörpin, sem mikið hefir verið rætt um áður, og seg- ist atvinnumálaráðherra þó leggja þau fram til frekari athugunar, þó hann búist hins vegar ekki við því að þau verði afgreidd til fulln ustu nú á þessu þingi, enda sjeu þeir góðu möguleikar til fram- kvæmda, sem fyrir hendi hafi ver- ið fyrir fáum árum, nú horfnir aftnr. Af hinum frv. eru það sjálfsagt að ýinsn leyt.i breytingarnar á skattalögunum, sem allur almenn- jngur lætur sig einna rnestu skifta. Bn í lögunum nr. 14. frá 27. júní 1921 var gert ráð fyrir því, að cndurskoðun þeirra færi fram á þessu ári. Segir svo í athugasemd- um við frumv., að þar sem gömlu skattarnir eru afnumdir og nýtt kerfi skattauefnda og yfirskatta- nefnda sett á stofn, getur varla komið til mála, að hverfa frá tekjuskattsfyrirkomulaginu, held- ur verður endurskoðunin að byggj ast á því sem einu sinni er orðið og færa það í rjett horf, sem helst hefir orðið vart við að miður færi eftir núgildandi lögum. Frumvarp það, sem hjer liggur fyrir, er yfirleitt samið með það íyrir augum, að fara aðeins fram á sjálfsagðar eða nauðsynlegar breyt ngar frá því skipulagi sem nú er komið á, enda fer endur- skoðunin þannig best rtr hendi, að hægra sje við að bæta en úr að draga. Þær greinar frumvarps- ins er fara fram á breytingar frá núgildandi lögum eru þessar: Aðalbreytingarnar sem ráðgerð ar eru í frv. frá því sem nú er, eru þær, að skattur af tekjum yfir 15 þús. kr. hækkar yfirleitt, en lækkar af þe:m, sem þar eru fyrir neðan. Þessar breytingar koma einkanlega fram í 6. gr. Nú er t. d. gert ráð fyrir því, að leggja ekki skatt á tekjur undir 2000 kr., í stað 1000 kr. áður á ári, og er hann . 10 kr., af 3—4 þús. kr. 20 kr. í stað 60 kr. áður, a! 4—5 þús. kr. 40 kr. í stað 100 kr. áður, af 5—6 þús. kr. 70 kr. i stað 150 áður, af 6—7 þús. 110 kr. o. s. frv. Af 14—15 þús. kr. árstekjum er nú gert ráð fyrir 790 kr. skatti, en eftir núgildandi lögum á að greiða 510 kr. af 10— 11 þús. kr. tekjum. Af 20—30 þús. kr. árstekjum eru nú greidd- ar 1460 kr., en er gert ráð fyr'r ■í stjófnarfrv. að greiða 1720 kr. Af 50—75 þús. kr. tekjum eru nú greiddar 5060 kr., en nú er gert ráð fyrir 8120 kr. skatti af 50— 60 þús. kr. tekjum, 10520 kr. skatti af 60—70 þús. kr. tekjum og 13020 kr. skatti af 70—80 þús. kr. tekjum. Af 150 þús. kr. tekjum eru nú greiddar 20310 kr., en er nú gert ráð fyrir 35620 kr. af hverjum 150 þús. og 30% af af- ganginum þar yfir. Ymsar aðrar breytingar eru, svo sem að sam- skattur bavna í foreldrahúsum fellur burtu, frádráttur fyrir eig- in persónu er feldur niður o. fl., en annars er frumvarpið samhlj. núgildandi lögum í einstökum greinum. Af öðrum frumvörpum skal hjer getið frv. um breytingar á embættaskipuninni. Br þar farið fram á sameiningu ýmsra sýslu- njannaembætta, Gullbrmgu, Kjós- ar og Borgarfjarðarsýslur renni saman, með sýslumannssetri í Ilafrrarfirði, Mýra, Snæfellsness og Hnappadalssýsla verði eitt lög- gagnarumdæmi og sitji sýslumað- ur í Stykkishólmi, Dala og Strandasýsla renni saman, en sýslumaður sitji í Dalasýslu, Húna vatns og Skagafjarðarsýslur sam- e'nist undir sýslumann á Blöndu- ósi, Eyjafjörður og Siglufjarðar- kaupstaðui' renni hvorttveggja undir sýslumanninn á Akureyri, Suður-Múla og Austur-Skaftafells sýslur renni saman og sitji sýslu- maður á Eskifirði, en Vestur- Skaftafellssýsla renni saman við Arness og Rangárvallasýslu. • Þossi sameining á þó ekki að fura fram undir eins, heldul' jafn- óðum og sýslurnar losna. Segir stjórnin svo í athugasemdum við frv. þetta, að „öllum sje orðið það ljóst, að hinn fasti árlegþ kostnaður við starfrækslu hins op- iubera sje orðinn gífurlega mikill, og svo virðist sem atvinnuvegir þjóðarinnar muni varla í framtíð- MukGUNBLAÐÍÐ inni geta risið undir útgjöldum 1 þessa átt, og er því nauðsyn að royna að sporna v'J öllum ónauð- synleguiii embættastofnunum og draga úr hinnm miklu útgjöldum sem þegar eni orðin. Auk þess getur það varla talist heppilegt, að ofmikið af vinnukrafti þjóðar- innar gangi til starfrækslu opin- berra embætta“. Embættin sem frv. ger’r ráð fyrir að hverfi úr sögunni eru 6, og eru árslaun þeirra nú rúmlega 53 þús. kr. og skrifstofukostnaður að auki rúm- lega 67 þús. kr. En nú eru alls á landinu 20 bæjarfógetar og sýslumenn, og eru laun þeirra nú rúmlega 152 þús. kr. á ári og skrifstofukostnaður um 100 þús. króna. 1 sambandi við þetta frv. um fækkun sýslumannaembættanna standa einnig frumvörpin um af- cám biskupsembætt'sins, landlækn isembættisins og þjóðskjalavarðar- embættisins. Störfum biskupsins er gert ráð fyrir að skifta milli vígslubiskujia, sem annast vígslur allar, stjórnarráðs og prófasta. — Svipuð frumvörp hafa áður kom’ð fram 1881, 1891 og 1903 (þá var gert ráð fyrir að sameina em-' bættið f orstöðumannsembættinu við prestaskólann) og 1905 kom fram þingsályktunartillaga um það, að veita ekki biskupsembætt- ið undir eins. Sparnaður'nn, sem gert er ráð fyrir af þessu frumv. er rúmlega 14 þús. kr. á ári, eða föstu launin 9500 kr., skrifstofu- kostnaður 3.500 kr. og ferðakostn- aður við vísitatíuferðir 1200 kr. Ekki er þó ætlast til þess, að þessi breyt'ng komi til fram- kvæmda fyr en núverandi 'biskuji lætur af embætti. Með afnámi þjóðskjalavarðarem- bættisins á að sameina það lands- bokavarðarstarfinu, þegar annað- hvort starfið losnar. Með þessu er gert ráð fyrir 9500 kr. árlegum sjiarnaði, miðað við núverand: laun. Eins er um landlæknisem- bættið og afnám þess, og hefir það mál einnig verið rætt áður. Er gert ráð fyrir því, a,ð störfum landlæknis verði skift m'lli stjórn- arráðsins og heilbrigðisráðs, sem skipað sje hjeraðslækninum í Revkjavík og tveimur prófessor- um úr læknadeild háskólans. — Þessi breyting á einnig að verða þegar núverandi landlæknis lætur af embætti. Loks má nefna frv. um breyt- ing á fátækralögunum. Eru þau borin fram samkv. þingsályktun frá 1917. Er í þessu frv. t. d. gert ráð fyrir því, að sve'tfestutíminn sje 5 ár, í stað 10 nú. — Að öðru leyti vísast til upptalningarinnar á frumvörpunum hjer að framan f.g verður síðar sagt nákvæmlega frá meðferð þeirra, þegar þau koma úr nefndum þeim, sem hafa þau til athugunar. --o-- Dagbók Ræða fjármálaráðherra, þegíii' liann lagði fjárlagafnnnvarpið fyrir þingið, kemur hjer í blaðinu á morgun. Óvenjulega mörg börn voru saman kc<min í dómkirkjunni í gærkvöldi. Hafði mörguin hundruðuin barna ver- ið boðið á síðustu æfingu Kórfjelags Páls ísólfssonar. — Söngflokkurinn syngur í fyrsta sinni í kvöld. Búnaðarsambasul Austurlands hefir í huga að ráða til sín ráðunaut á næsta vori til eins cða tveggja ára. Þeir, sem vilja sækja urn þessa stöðu snúi sjer til formanns sambandsins Hallgrims l*órarinssonar, Ketils- stödum, Suður-Múla8ýslu fyrir lok aprílmánaðar næstkomandi. Atvinna. Nokkrar stúlkur geta fengið vinnu við fiskverkun í vor og sumar hjá h.f. Alliance. Talið við Jóhann Benediktsson, Ánanaustum. Grein biskups urn M. Jochums- son, sem birtist hjer í blaðinu, er, eins og allir sjá, sem Jiana lesa, lof um kveðskaji lians, mikið og mak- lfgt lof, eins og vera bar. En Tíminn rc-ynir að gera úr henni last og nið, líklega liugsandi sem svo, að þarsem greinin birtist í erlendu tímariti, eigi lesendurnir ekki kost á að sjá, hvern- ig hann misbýður sannleikanum. — Nægir blaðinu nú ekki lengur að fjandskajiast við sannleikann á stjórn málasviðinu1? Háskólinn. Semiikennariun, dr. Kort K. Kortsen, talar í dag um Sören Kierkegaard. Botnía fer hjeðan í dag kl. 4. Meðal farþega eru: Valg. Blöndal, Sörensen trúboði, frú Sigurðsson (konsúfe), ungfrú Margrjet Arnljóts, ungfrú Anna Tómasdóttir, Hjalti Björnsson heildsali, Friðrik Magnús- óvu heildsali, Jónas Hvannberg kaup- inaður og frú A. Árnason, Einar Gíslason málari. Verslunarm.fjel. Rvíkur heldur fjölbreyttan skemtifund í kvöld kl. á Hótel Skjaldbreið. Jarðarför Hallgríms Kristinssonar fór fram í gær að viðstöddu afar- nuklu fjölmenni. Sjera porsteiim Briem flutti húskveðju. Að henni lokinni var hinn látni borinn í hús Guðspekifjelagsins og flutti þar Sig. Kr. Pjetursson nokkur kveðjuorð. I dómkirkjunni talaði sjera Har. Ní- elsson. Hefetu starfsmenn Sambands- in'fc báru kistuna í kirkju, en þing- menn framsóknarflokksins og Tryggvi þórhallsson úr kirkju. Peir sem ætla í samsæti það, er halda á sjera Ólafi Óiafssyni og frú, eru beðnir að vitja aðgöngumiða til Arinbjarnar Sveinbjarnarsonar, eigi síðar en fyrir fcl. 3 í dag, vegna þess að ekki er hægt að koma því við að afihenda þá síðar eða við inn- giinginn. Gullfoss fer frá Kaupmannaihöfn í dag. Skahagrímur kom inn af veiðum í nótt og fór strax til Englands með aflann. ísfiskssalan. Gulltoppur heí'ir ný- lega selt í Englandi fyrir 800 sterl- jid. rúm og Et/hel f.vrir 400 stjid. Er ísfisksmarkaðurinn mjög að bregð- ast upp á síðkastið. í Morgunblaðinu 18. þ. m.., var n.isjirentað Ingólfur Loftsson í stað Ingvar Loptisson undir andlátstil- kynningu. Föstuguðsþjónusta í Hafnarfjarð- a> kirkju annað kvöld kl. 8. „Sverrir“, vjelbátur sá, er sökk r hafnargarðinn og Geir nóði upi> cr nú komitm upp að bryggju. Líkið náðfet úr honum í gær. Skattaframtalið. Síðasti frestur að skila skattaframtali er í dag. Skatt.- stofan er ojiin tii kl. 4. Útfyltar skatt skýrslnr má legg.ja í kassa við dyrn- ac á bvaða tíma sem ei'. Dansleikur kuattspyrnufjekgisiris „l"rmn“ verður haldinn laugardag- inn 3. mars n. k. í Bárunni. petta er b' ára atmælishátíð fjelagsins og vc.rður margt nýstárlegt til skemtun- ai', og salurinn skreyttur margvís- Ifcga. Listi fyrir fjelagsmenn og gesti liygur frammi til 25. þ. m. í bóka- vcrslun Sigf. Eymundssonar. Eftir fiugl. dagbák Rússnesku og þýsku kennir rúss- ntsk stúlka, Ljuba Eridland, Freyju- götu 10. Heima frá kl. 7—9 e. h. Gler og kítti kaujia allir í verslun Hjálmars porsteinssonar, Skólavörðu- stíg 2. Sími 840. Tveir gríwubúningar til sölu. Ann- sv kvenbúningur, hitt Háskotabún- ingur. Einnig nokkuð af efnum eftir í grímubúninga í Yersl. Alfa, Lauga- veg 5. Skriftir óskast, nokkrar stundir á dag, t. d. við brjefaþýðingar á þýsku og ens'ku, et c. Upplýsingar á skrif- stofu Mbl. Hangiðkjöt Z IM S E N. fasst enn lijá J E S þaiin tíma verður ekki tekið við áskriftum. m ~~ Vart mun sá maður eða kona vera tii, er ekki þarf eitthvað að kaupa eða selja. Eitthvað að feelja öðrum eða taka á leigu. Æskir eftir starfi ec'a einhverjum til þess að starfa f' rir sig, o. s. frv. Allar ofanritaðar þarfir yðar getur Morgunblaðið hjólp- ai yður ti 1- að fá uppfyltar. Auglýs- iN > því og lesið auglýsingar sem þar birtast. — púsundir af lesend- un. þess hafa þegar haft hag af því. , * ------------------------------- Utsvör í Stykkishólmi árið 1922. Alls lagt á 256 gjaldendur krónur 29,000,00. lljer eru útsvör talin 150 krónur og yfir: Ágúst Pórarinsson, verslunarstjóri kr. 600,06. Anton Christensen, Jyfsali kr. 2200,00. Ebeneser Sívertsen, suikkari krónur 200,00. Eggert Einarsson, læknir kr. 500i,00. Eggert Eggertsson, óðalsbóndi kr. 190,00. Guðm. Guðmundsson hjer- aðslæknir kr. 900,00. Guðm. Guð- mundsson, s'kipasmiður kr. 190,00. Gunnar S. Halldórsson, fulltrúi kr. 320,00. Hannes Jónsson, dýralæknir kr. 675,OOc H.f. Hiti og Ljós, Rvík. kr. 300,00. ísleifur Jónsson, verkstj. kr. 150,00. Jónína p. Jónsdóttir, ekkjufrú kr. 220,00. Jón Guðmunds- son, veitingamaður kr. 200,00. Jon M agnússon, hafnsögumaður kr. 150, 00. Jón Skúlason, boni í Fagurey kr. 170,00. Kaupfjelag Verkamanna kr. 700,00. Níels B. Jónsson, óðals- bðndi kr. 170,00. Ólafur Jóhannesson, oddviti kr. 250,00. Ólafur Jónsson, vitavörður, Elliðaey kr. 250,00. Ól- ahir M. Sigurðssoil, snikkari kr. 170JJ0. Páll V. Bjarnaison, sýslu- naður kr. 800,00. Pjetur Ó. Lár- usson, bókhaldari kr. 200i,00. Rann- veig Jónsdóttir, verslun og sauma- siiijfa. kr. 180,00. Röguvaldur Lár- usson, skipasmiður kr. 170.00. Sig- urður Agústsson, bókhaldari krónur 270,00. Sigurður Ó. Lárusson, sókn- arprestur kr. 350,00. Stefán Jónsson, skólastjóri, kr. 220,00. Sæmundur Halldórsson, kaupmaður kr. 3,500,00. Tang og Riis versluti kr. 7.000.00. W. Th. Möllor, póstafgreiðslumaður krónuf 250.00. ■ntp •* '*•' 'V

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.