Morgunblaðið - 20.04.1924, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 20.04.1924, Blaðsíða 4
ovmaí; að leggja Ixjer í land síld til sölt- unar.Enda er það auðsjeð á norsk- um blöðum t. d. „Fiskets Gang“, að ]?essi lög hafa Norðmenn altaf verið hræddir við, enda gert fyrir- spumir árlega til stjórnarráða ís- lands, gegnum konsúl sinn, hvort J>au lög mundu verða notuð, enda kemur það beint fram frá Norð- manna hálfu að þá yrðu þeir að hætta þegar þau lög verða notuð. Jafnframt þarf að breyta síldar- matslögunum, þannig að lögskipað væri, að mála á efri botn hverrar tiuxnu stórt lögskipað merki, sem sýxidi tegund og fiokk síldarinn- ar, nokkuð líkt og nú er á kjöti. Annað merki minna ætti líka að mála innan á háls hverrar tunnu, til að útiioka að hægt væri að taka botn úr matinni tunnu og setja á ómetna. V Söltun á hafinu. pað eru svo margir hræddir um að Norðmenn muni auka svo veið- ina fyrir utan landhelgina, að við komumst í vandræði með að selja okkar síld, en þetta er sá mesti misskilningur, sem stafar af ó- kunnugleika á verkunaraðferðinni, enda. hefir þessi söltun fyrir utan línuna, stöðugt farið þverrandi hin síðari árin. Geta allir skilið að það er dýrara, að halda dýrum skipum í gangi á hafinu til að salta í síld, heldur en í stöð á landi, þar sem landrými er nægi- legt, enda verður vinnan ódrjúg og ilt aðstöðu í misjöfnu veðri á hafi, ef landhelgin er varin nokk- urn veginn. En þó er aðalatriðið, að síldin verður verri. pví annaðhvort er síidin „rundsöltuð", eða bara mokað niður í tunnurnar og svo kverkuð þegar heim kemur, eða þá að síldin er fullkverkuð, en þá verður eins og í hinu tilfellinu að koma fullum tunnum frá, og verð- ur því að láta þær niður. Bætist þá stöðugt ofan á þær þangað til sldpið er fult, en með þessu móti er ekki hægt að halda við pækli á síldmni, nema að litlu leyti. pessi síld er því ekki samkepnis- fær við síld verkaða í landi. En þrátt fyrir það hefir henni verið blandað saman við íslenska eíld metna og verkaða í landi, af þvi að tegundin er sú sama, en tunn- urnar ómerktar. ’ J Sögulok. pað er eins og hlakki í herra HeJga Valtýssyni yfir því, að á- stand útgerðarinnar sje verra en hr. Ólafur Thors segir, og má hann gleðjast yfir því ef hann vill, en jafnan mun herra Ólafur Thors verða talinn betri Islend- ingur í þessu máli en hr. Helgi Valtýsson, enda munu hagsmun- irnir harla ólíkir, og vinningurinn eða vonimar um þá misjafnar, En það má hr. H. V. og Norð- menn vita, að þó illa láti í ári hiá okkur, þá er þó svo mikil seigja til í íslensku þjóðinni, að töluvert mun að sverfa, fyr en undan verður látið, ef samtök ekki skorta, sem jeg veit að ekki mun vera, enda væri sá stjórn- málaflokkur dauðadæmdur, svo langt sem vötn falla til sjávar á landi voru, sem hikaði nú við að halda fram fylstu kröfum olckar, eða ljeti nokkum bilbug á sjer finna. Og ekki munu land- vættir íslands heldur sofandi eða útdauðir, og munu þeir nú sem til fcrna verja okkur fyrir ágangi austan að, þó þeir Ijetu fæðing- arrjett hr. Helga Valtýssonar giepja dómgreind sína þegar hann kom úr sinni síðustu utanlands- för. — Kristján Bergsson. --------o-------- Brjef tii Alþingis, (Borgarstjóri hefir sent alsherj- arnefnd neðri deildar brjef það er hjer fer á eftir og jafnframt beðið Morgunblaðið fyrir það til birt- ingar. Snertir það svo mjög al- mennan hag bæjarbúa, og í því er svo mikill fróðleikur, að það vildi ekki meina því rúm. En á hinn bóginn er Morgunbl. þeirrar skoðunar, að Eimskipafjelagið sje ails góðs maklegt, og að allir landsmenn eigi að mætast í því starfi að sjá því farborða með einhverjum ráðum á ^rfiðum ár- um þess.) Háttvirt allsherjarnefnd hefir sent mjer til umsagnar frumvarp til laga um skattfrelsi" fyrir h.f. Eimskipa- fjelag íslands. Frumvarp þetta er einn liður í þeirri keðju laga sem á undanfar- andi og yfirstandandi þingum hafa verið sett og verið er að setja og miða að því að kippa tekjustofnum burt úr Reykjavíkurbæ, en velta gjaldabyrðum yfir á bæjarfjelagið, sumpart alveg nýjum og sumpart öðrum, sem áður hafa hvílt á ríkis- sjóði eða öðrum sveitarfjelögum. Skal jeg sem dæmi benda á að lögin frá 1921 um skattfrelsi samvinnufjelaga sviftu bæinn tekjum, er námu 30—40 bús. krónum á ári og lögum frá 1923 xra skemtanaskatt og pjóðleikhús tóku frá bænum um 40 þús. króna tekjur á ári. Útsvör tóbaks- og steinolíuversl- ana voru áður 60—70 þús. krónur á ári, en 40 þús. króna útsvar hefir verið lagt á Landsverslunina og frum- varp liggur nú frammi fyrir þinginu um skattfrelsi að mestu leyti fyrir verslanir ríkisins, svo að tekjurýrnun bæjarins mun verða 50—60 þúsund krónur á ári af iþessum ráðstöfun- um. Útsvari áfengisverslunar á einn- jg að svifta bæjarsjóði að mestu levti, :neð því að ríkið hefir sjálft á hendi smásölu áfengis hjer í bænum, en annarstaðar á landinu er smásalan í höndum einstaklinga. Ef svo væri ainnig hjer, er óhætt að telja, að bæj- artjóður hefði 20—30 þús. kr. meiri útsvarstekjur af áfengisversluninni, en nú mun verða. i Er ofan á þetta á nú að bæta skattfrelsi Eimskipafjelagsins, sem 4 undanfarin ár hefir að meðaltali greitt 55 þúsund krónur í útsvar, ?á hefir Alþingi síðan árið 1921 svift bæjarsjóði tekjustofnum, er samsvara um 210 þúsund króna árstekjum. Bæjarsjóður tapar þess utan árlega talsverðu af.útsvörum og verður fyrir miklu vaxtatapi vegna þess, að að- stoð sú, sem ríkisvaldið á að veita við innheimtu útsvara með lögtök- um. er skorinn svo við neglur, að logtök hafa ekki fengist framkvæmd á tilblýðilegum fresti. þar sem bæj- arfógetinn hefir ekki haft nægum starfsmönnum á að skipa. Nýir tekjustofnar hafa ekki fengist í stað þeirra, sem afnumdir hafa ver- ið, heldur hefir Alþingi hingað til staðið á móti því, að lagfæring feng- isr á úreltri skattalöggjöf bæjarins, pangað að t. d. þó nokkrir menn, sem hafa miklar tekjur af atvinnu í Reykjavík, komast hjá að greiða hjer útsvar með því að taka sjer bústað 5 mínútna gang fyrir utan lögsagn- arumdæmi bæjarins, en þó styttri leið frá miðbænum en að öðrum tak- mörkum umdæmisins, og njóta samt fyrir aðgerðir þingsins sömu hlunn- inda og bæjarbúar af stórvirkjum MORGIJNBLAÐID bæjarins til vatnsveitu og rafmagns- var arðurinn kr. 1211338,48-f-96574,55 veitu. Bankastjóri Eggert Claessen ■-= kr. 1307913,03 og útsvarið 1920 horgaði t. d. árið 1923, 6000 króna kr. 85000, e. 6,5%; árið 1920 var útsvar til bæjarins, en af því að alls- arðurinn kr. 533806,65—|-151668,00= herjarnefnd neðri deildar Alþingis kr. 685474,65 og útsvarið 1921 krónur svæfði í fyrra lagafrumvarp um bæj- argjöld í Reykjavík, fær bæjarsjóður Reykjavíkur árið 1924 ekkert útsvar frá þessum launahæsta borgara, með ’þvi að hann hefir sjeð sjer hag í að flytja bústað sinn í Seltjarnarnes- hrepp. Hinn nýi tekjustofn sem farið er fram á að fá með frumvarpi til laga um bæjargjöld í Reykjavík, sem nú liggur fyrir Alþingi hefir háttvirt als- herjarnefnd lagt til að lækki um 50% eða jafnvel 60% frá því, sem frrið var fram á, enda þótt aðrir kaupstaðir og jafnvel hreppsfjelög hafi áður orðalaust fengið lagaheim- ild til að leggja sama gjald á lóðir, sem bæjarstjórn Reykjavíkur hefir nú farið fram á með tjeðu frumvarpi, og meiri hluti allsherjarnefndar hefir með tillögu um tvo gjalddaga á út- svörum gert sitt til að auka kostnað (bæjarsjóðs við innheimtuna og tap vegna vanskila, en bæði ríkið og önn- ur sveitafjelög hafa að eins einn gjalddaga á skattgreiðslum. Hinsvegar hafa bæjarsjóði aukist talsvert útgjöld vegna aðgerða Al- þingis. Berklavarnalögin hafa aukið útgjöldin um sjálfsagt 30 þús. krónur á ári og þaraf eru um 10 þúsund kr. greiðslur fyrir fólk, sem ekki á hjer framfærslusveit, en áður tók dval- arsveit engan þátt í kostnaði við Heilsuhælisvist þurfalinga annara sveita. pessari byrði hefir verið Ijett af sveitunum og lögð á Reykjavík. Breytingin á 77. gr. fátækralaganna veldur að miklum auknum kostnaði til ejúkrahúsvistar efnalítils fólks, sem áður kleif þrítugan hamarinn til að þurfa ekki að fá fátækrastyrk til spítalavistar. Býst jeg við að þessi' auknu útgjöld sje ein 15—20 þúsund krónur á ári. Með lögum um fasteignaskatt var lsgður á 15 þús. kr. skattur til rík- issjóðs á allar eignir bæjarins, arð- berandi og óarðberandi, t. d. 6300 kr. á ónotuð holtin og mýrarnar umhverf- is bæinn og nú er verið að samþykkja á Alþingi lög, er færa 30—35 þúsund krónur af launum barnakennara frá ríkissjóði yfir á bæjarsjóð. Fleira mætti telja, svo sem lögin um afstöðu foreldra til óskilgetinna barna og styttingu sveitfestistímans, sem hvorttveggja valda bæjarsjóði miklum auknum útgj. en aðeins þessar nefndu aðgerðir þingsins hafa síðan árið 1921 aukið útgjöld bæjarsjóðs um nálega 100 þúsund krónur á ári. Alls hefir þinginu þannig þóknast rr.eð löggjöf sinni á einum fjórum ár- um að auka skattabyrði borgara R.- víkur um rúmlega einn fjórða miljón króna á ári, eða rúmlega 20% af ölluxn útsvörum. Ef nú hjer við bætist skattfrelsi Eimskipafjelagsins, verður skattaaukningin um 310 þúsund kr., eða fjórði partur af útsvörunum, mið- að við síðastliðið ár og virðist þetta langt farið. Auk alls þessa hefir bæjarbúum á þessum sömu árum verið íþyngt með fasteignaskatti og tekjuskatti til rík- issjóðs, sem nemur mörg hundruð þúsund krónum á ári, en gjaldþolið til bæjarsjóðs hefir rýrnað að sama skapi. Hvað sjálf't frunjvarpið snertir, um skattfrelsi Eimskipafjelagsins, skal jeg láta í ljós þá skoðun mína, að ekki sjeu til nein frambærileg rök fyrir því, að fjelagið sje undanþegið útsvari til bæjarsjóðs. pað’ nýtur hjer allra sömu hlunninda og önnrfr fyrir- tæki, sem starfrækt eru í bænum, og hlýtur að taka þátt I kostnaði þeim, sem bæjarfjelagið hefir til að geta veitt þau, í hlutfalli við getu sína á móts við aðra borgara og fyrirtæki. Útsvar hefir og ávalt verið lagt á fjelagið mismunandi eftir því, sem arður þess hefir verið, Árið 1919 50000,00, c. 7,3%; árið 1921 var arð- urinn kr. 485278,91+112805,50= kr. 598084.41 og útsvarið 1922 krónur 40000,00 c. 5,7%; árið 1922 var arð- urinn kr. 203891,74+111456,13= kr. 598094.41 og útsvarið 1922 krónur 45000,00 c. 14,2%. Útsvör fjelagsins þessi 4 ár hafa þannig verið að ineð- alt. c. 8,7% af arði þess árið áður og er þetta talsvert lægra útsvar en lagt hefir verið sömu ár á tekjur annara atvinnufyrirtækja og á einstaklinga, sem hafa haft miklar tekjur. pað er því ekki hægt að rjettlæta framkomu hjer umrædds frumvarps með því, að Eimskipafjelaginu hafi undanfarið veríð íþyngt með tiltölu- lega háum útsvörum, og þdð er vissu- legan engin hætta á því, að svo verði gert framvegis, heldur mun útsvarið lækka með lækkandi verði. pað kann satt að vera, að Eimskapa- fjelagið eigi nokkuð erfiða aðstöðu í bili, vegna gengislækkunar krónunn- ar, en það er ekki sjerstakt fyrir 'þetta fjelag, heldur tekur það til allra, sem skulda fje í útlöndum, ekki síst til bæjarfjelagsins sjálfs, sem skuldar ca. 4% miljón króna í út- lör.dum, en útlendar skuldir Eim- skipafjelagsins eru í reikningunum fyrir árið 1922 taldar alls tæplega 1 miljón. Eimskipafjelagið stendur og það betur að vígi en flestir aðrir, að flutningsgjöld fyrir vörur frá út- löndum eru að mestu leyti greidu í erlendri mynt, dönskum krónum og sterlingspundum. Jeg þykist hafa sýnt fram á, að það er rangt gagnvart Reykjavíkur- bæ, að lögleiða útsvarsfrelsi fyrir Eimskipafjelag íslands og engin þörf fyrir fjelagið. Yæntanlega getur það og ekki komið til mála að Alþingi fallist á það, en ef ástæða þykir til að vernda fjelagið fyrir ofþungum sköttum, sem þá einnig er þarflaust og að mínu áliti óviðeigandi, gæti í frekasta lagi komið til málu að ákveða hámark útsvars t. d. 12% af arði fjelagsins undanfarand: úr. Læt jeg svo úttalað um þetta mál og vænti að háttvirt allsherjarnefnd vilji líta sanngirnisaugum á afxtöðu Reykjavíkurbæjar til þess og þeirra annara mála, sem fyrir Alþingi liggja og snerta svo mjög hagsmuni bæj- arins. — Virðingarfyllst , K. Zimsen. Aðalfundargerð íþróttasambands íslands 1923. Niðurl. pá kom fram tillaga frá Sambands- stjórninni, um íþróttablað, svo Mjóð- andi: „Sámbandsstjórnin gerir það að tiliögu sinni, að íþróttasambandið gefi út íþróttablað, sem komi út fyrst um sinn einu sinni í mánuði." Forseti gat þess í sambandi við tillöguna, að stjórn I. S. I. hefði farið þess á leit við blöðin Skinfaxa, prótt og Skóla- blaðið, að vera í sambandi um útgáfu íþróttablaðs, en úr þyí hefði ekki get- að orðið. Til máls tóku, auk forseta, Magnús Stefánsson, Erlendur Pjeturs- scn, Eyjólfur Jóhannesson og Ben. G. Waage og mæltu allir með tillögunni, en Haraldur Jóhannessen kvað þetta verða til þess að drepa áðurnefnd biöð, eða að minsta kosti gera þeim miklu erfiðara uppdráttar. Fleiri tóku el.ki tii máls, og var tillaga stjórnar- innar borin undir atkv. og samþykt rr.eí 26 atkv. gegn 4. pá kom fram tillaga frá Steindóri Björnssyni og Eyjólfi Jóhannssyni, svohljóðandi: „Aðalfundur í. S. í. s&mþykkir að skora á útgefemiur þtirra blaða, sem nú eru eða hafa vcrið starfandi að kenslu 1 íþrótta- og ungmennafjelagsmálefnum að ganga í sambancl við væntanlegt blað 1. S. í., með þeim skilyrðum, að þau velji sinn manninn hvert í ritnefnd blaðsins og að ritstjóri þess verði maður, sem hefir fullan hug og þekk- ingu á öllum þessum málum.“ Ennfremur kom fram tillaga frá Guðmundi Sigurjónssyni, svo hljóð- andi: „Fundurinn heimilar stjórn í- S. í. að sameina hið væntanlega blað Sambandsins við blöðin Templar og Skínfaxa, með hverju því fyrirkomu- lagi, er hún (stjórnin) telur viðun- ar.di.‘ ‘ \ msir tóku til máls um tillögurnar, og kom tillaga fram í umræðunum, að varla mundi gerlegt að gefa blað- ið út í sambandi við Templar og Skólablaðið. Tillaga Steindórs Björnssonar og Eyjólfs Jóhannsson var feld með 12 atkv. gegn 10. pá lýsti tillögumaður yfir, að hann tæki hana aftur. pá kom fram tillaga frá stjóm Sambandsins: „Fundurinn samþykkir að taka með þökkum við gjöf U. M. F. Iðunnar, hluta fjelagsins í íþrótta- vellinum í Rvík, með þeim ábyrgðum, er á þeim hluta hvílir.“ Tillagan var samþ. og vottuðu fundarmenn U. M. F. Iðunni þakkir með því að standa upp. pá kom svohljóðandi tillaga frá fulltrúum knattsp.fjel. „Víkings,“ Helga Eiríkssyni, Óskari Norðmann, Axel Andrjessyni og pórði Alberts- syni: „Fundurinn samþykkir, að í. S. í. endurgreiði Knattspyrnufjclag- iui „Víkingi“ s.ekt þá, er það hefir greitt samkvæmt dómi stjórnar í. S. 1“ Frummælandi var Axel And- rjosson, er krafðist, að tillagan væri samþykt. Forseti las upp úrskurði í S. í. Ýmsir fleiri tóku til máls um tillöguna. pá kom svohljóðandi rök- studd dagskrá frá Guðmundi Sigur- jónssyni: „Með því að fundurinn lítur svo á, að þetta mál heyri ekki undir hann, tekur hann fyrir næsta mál á dagskrá.“ Dagskráin samþykt. pá tók Steindór Björnsson til raáls viðvíkjandi reikningsskilum Olympiu- nefndar knattspyrnumanna; þótti ræðumgnni óþarflega mikið í kostnað borið. Erlendur Pjetursson og Pjetur Sigurðsson mótmæltu frummælanda og sögðu kostnaðinn varla geta verið irinni. Fleiri tóku til máls og í sama strenginn. pá var lesið upp brjef frá stjórn Sítmbands U. M. F. Kjalarnessþings, iþar sem það býður stjórn í. S. í. ásamt fulltrúum þeim, er aðalfund Sitja, á samfund þess, er haldmn verður að Gufunesi 24. þ. m. og hefst kl. 11 f. h. Forseti þakkaði fyrir hönd Sambandsins. Ben. G. Waage stóð upp og þakkaði stjórn U. M. F. R. fyrir lán á fund- arhúsi ókeypis. Fundargerð lesin upp og samþykt. Fundi slitið. Egill Guttormsson, (fundarstj.) Páll Jónsson (ritari.) --------o—------- sm'ar Iala i HfMiosaio. I sænska stórblaðinu Götaborg Handels Söf. Tid. stóð nýlcga grein uminnflutningshöftin okkar. pegar búið er að segja frá hvaða vörutegundir við útilokum er eft' irfarandi málsgrein: „pegar birgðirnar af skófatn- aðinum eru uppseldar, verða í®' lendingar að taka upp gönú11 seiskinnsskóna, og þnngu heima- unnu vaðmálsfötin, og lífið tekur alt sama blæ og á tímum löngu liðinna forfeðra. pegar fjármál landsins eru komin í betra horf verður innflutningur leyfður aft- uf; og er óskandi að eigi verði þess langt að bíða, bæði vegna íslendinga sjálfra og þeirra sem selja þeim vörur.“

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.