Morgunblaðið - 17.07.1925, Side 4
4
MORGUNBLAÐIÐ
aiirŒriiia
Tækifærisgjafir, mjög hentugar
eru skrautlegir konfektkassar með
rerulega góðu könfekti. peir fást
í úrvali í Tóbakshúsinu, Austur-
Btræti 17.
Kvenreiðfataefni, verð 9 krón-
ur meterinn, víbreiður. Karl-
mannasokkar, hálsbindi, húfur,
axlabönd, sprotar og margt Beira,
Guðm. B. Vikar, Ijaugaveg 5,
———■ ..................... **
Reiðhjól, gummi og varahlutir
x heildsöiu. H. Nielsen, Westend
3, Kbhvn.
Vandað flygel til sölji á Lauf-
ásveg 33.
Landabrjef Þórðar Thoroddsen
óskast keypt. Ætti helst að vera á
stokkum. Mælikvarði 1:600. A. S.
1. vísar á.
HIIJIIIIIIIIIIIIllillll Yimta. JllllUliillllllllllII
Dugleg stúlka óskast, sem
vinnukona á gott heimili í Eng-
landi. Gott kaup. Fríar ferðir.
(Enskukunnátta ekki skilyrði.)
A. S. 1 vísar á.
IIHBiFTsúsnæðínilB
Heildsöluskrifstofur, (tvö her-
bergi) óskast til leigu 1. október.
Væntanlegir útleigjendur snúi sjer
helst sem fyrst til A. S. 1.
Fornminjafundir í Dan-
mörku.
Hvernig Borgbjerg komst
til menta.
Hálsmenið sem fanst í fóðurrófu.
Kynstrin öll hafa jarðræktar-
menn í Danmörku fundið af forn-
minjum við plægingar, skurðgröft
og Önnur jarðyrkjustörf.
Jafnaðarmannaráðherrann Borg
bjerg hefir einhverntíma sagt frá
því, að haníi mætti þakka ment-
un sína þeirri tilviljun, að faðir
sinn hefði aldrei getað lært að
plægja almennilega. Eins og þeir
vita, sem til þekkja í sveitum
Danmerknr, eru bændurnir ákaf-
lega umhyggjusamir með það, ao
plæging akranna sje hin vand-
vi^tenislegasta og nákvæmasta. En
eftir því sem Borgbjerg segist frá,
á faðir hans aldrei að hafa komist
upp á hið rjetta verklag við plæg-
ingar. Og því var það eitt sinn er
hann var við plægingu á akri sin-
um, að plógurirn stakst mikið
Ier*£ra niður ! moldina en til v*r
ætlast. Rakst hnífurinn í ketil-
hald, sem f. iir honum varð. Fs
Borgbjerg hinn eldri fann þar dýr
indis fjársjóð fornminja. Fekk
hann fyrir fund sinn mikil fund-
arlaun, samkv. lögum um fund
fornminja. En fyrir fjeð fjekk
hinn ungi Borgbjerg skólamentun.
Fátæknr bóndi fann í fyrra
dýrindis hálsmen á akri sínum.
Menið fann hann á þann hátt, að
fóðurrófa hafði flækt rótunum ut-
anum menið og kom það npp með
rófunni.
DAGBÖK.
Til Strandarkirkju: Áheit frá
Kr. kr. 10,00, og áheit frá N. N.
kr. 5,00.
Thorefjelagið. Aðalfundur þess
var nýlega haldinn í Höfn, og
reyndist afkoma síðastliðins ars
að* hafa verið mjög slæm. Tekju-
halli varð kr. 34,000,00.
Heiðursmerki. Garðar Gíslason
stórkaupmaðnr, Gísli Johusen kon-
súll, Magnús Sigurðsson hanka-
stjóri, Sæmundur Halldórsson
kaupmaður, og Sigurður Kristins-
son forstjóri hafa verið sæmdir
riddarakrossi Dannebrogsorðunnar
er Ágúst Flygenring kommandör-
krossi II. gráðu.
Hljómleikarnir á ,Skjaldbreið.‘
„Morgunblaðið“ hefir verið beðið
fyrir eftirfarandi: „Ekki verður á
betri hljómlist kosið á kaffihús-
nm hjer í hæ, en þá, sem heyra
má daglega hjá Eymundi Árna-
sjmi og Markúsi Kristjánssyni á
„Skjaldbreið.“ Skal öllum þeim,
er unna góðri hljómlist ráðlagt
að hlusta á þá. Því hvorttveggja
er, að þeir eru mjög vandir í vali
sínu á hlutverkum þeim, er þeir
spila, og virðast vera hið besta
samæfðir og samtaka.“
Þ.
Raft, heitir skip, sem hingað
kom í gær með sement til Hall-
gríms Benediktssonar og Co. Hef-
ir það áður verið hjer og hjet
þá Uno.
Gatnagerðin í bænum. Á það
var minst hjer í blaðinu í gær, að
mikla umbót væri nú verið að
gera á Hverfisgötu innanverðri.
En víða annarstaðar hefir farið
fram í sumar eða á að fara fram
viðgerð á götum eða lagning
nýrra. Gera á t. d. við Laugaveg
innanverðan, og við Njálsgötu, við
Aðalstræti norðanvert og Austur-
stræti vestanvert, ennfremur á að
leggja holræsi í Hallveigarstíg og
fylla hann upp, en ekki verður
sá stígur fullgerður í haust. Þær
götur, sem nú er þegar hafin við-
gerð á, eru t. d. Klapparstígur,
frá Laugavegi og upp á Skóla-
vörðustíg, nokkur hluti af Njarð-
argötu; þá hafa og verið geíðir
upp gamlir vegir, svo sem Kapla-
skjólsvegur, var hann „pukkaður“
í vor, alla leið fra bænum, og
vestur á Seltjarnarnes. Á Bræðra-
borgarstíg hefir og mikil viðgerð
fgrið fram. Á síðustu fjárhags-
áætlun voru veittar 80 þúsund kr.
til Hverfisgötu og Laugavegar, 80
þús. til viðhalds gatna og 9 þús.
kr. til Njarðargötu.
Barnaskólinn. Umsóknir hafa
bæjarstjórninni borist um fastar
kennarastöður við skólann frá
þessum: Geir Gígja, Jóhannes Lín-
dal Jónassyni, Pálma Jósefssyni,
Sigurði Sigurðssyni og Hafliða M.
Eigið þjer
Lestrarbók Noröals?
Hún er einhver allra eigulegasta bókin sem til er í bókabúðunum.
Bókav. Sigfúsar Eymundssonar.
Sæmundssyni, og um stundakenslu
frá Helga Elíassvni.
Smíðaáhöld í Bamaskólanum.
Ákveðið var á bæjarstjórnarfundi
í gær, samkvæmt tillögum skóla-
nefndar, að kaupa smíðaáhöld í
Barnaskólann, er nægi til að hafa
30—40 pilta í kenslustund í einu.
Kosta þau rúml. 1460 kr. í Kaup-
mannahöfn.
Barnaskólalæknarnir. Á fundi
skólanefndar bæjarstjórnarinnar
liafði verið rætt um fyrir skömmu,
hvort heppilegra mundi að hafa
einn lækni við skólann, sem ann-
aðist hæði almennar lækningar og
tannlækningar. Leit skólanefndin
svo á, að ekki væri að svo komnu
ástæða til að breyta frá því fyrir-
komulagi, sem nú er. Og sam-
þykti bæjarstjórnin það.
Haraldur Sigurðsson píanóleik-
ari heldur hljómleika í kvöld. —
Vafalaust verða það færri en vilja,
sem geta komist að til þess að
njóta listar hans, svo mjög hafa
menn þráð komn hans. Verkefni
Haralds verða í þetta sinn: Præ-
lude, Fugue og Variations, eftir
César Franck; Fantasi, eftir Schu-
mann; tvö lög eftir Pál ísólfsson;
Barcarole, eftir Chopin og Scher-
zo, eftir sama. Þetta verður eina
tækifærið, sem menn hafa til þess
að hlusta á snillinginn nú, því á
laugardag fer Haraldur og kona
hans, frú Dóra, austur að Kald-
aðarnesi, til stuttrar dvalar þar.
íþróttavöllurinn nýi. Langt er
nú komið að sljetta hann og
marka fyrir hlaupabraut og knatt
spyrnusvæði. En ekld er farið að
girða neitt enn.
ð
Reiðjakkar vatnsheldir
frá 35,00, Reiðbuxur frá
24,00. Mest úrval af
alsk. vinnufatnaði. —
Einkasala á íslandi fyr-
ir Olskind olíufatnað.
Reynið hann, og þið
munuð aldrei nota ann-
an olíufatnað, hann er
ódýrastur en samt
sterkur.
Vöruhúsið
GENGIÐ.
Reykjavík í gær.
Sterlingspund ........... 26,I
Danskar krónur ........ 111,70-
Norskar krónur............ 96,45
Sænskar krónur ........ 145,21
Dollar ................ 5,41341
Franskir frankar .v..... 25,64
STAKA.
pótt mig langi að leika frí
laus við hangið kífsins,
verð jeg fangi innan i
öldugangi lífsins.
Ebenezer Árnason,
Húnvetningur.
SPÆJARAGILDRAN
Duncombe kinkaði kolli og mælti:
— Haldið þjer áfram.
— Ungfrú Poynton kom hjer í fyrsta sinni
fyrir mánuði eða sex vikum. Hún varð hjer stöð-
ugur gestur. Hún kom altaf ein og talaði ekki við
neinn. Hún var okkur öllum gáta. Hún eyddi miklu
fje, og herra Alfred gætti þess jafnan að hafa til
borð handa henni. Eitt kvöld hafði hann drukkið
allmikið — það hefir hann aldrei gert, hvorki fyr
nje síðar. Þá sagði hann okknr, að hún hefði spurt
hann um bróður sinn, og að hann hefði getað sagt
henni hvað af honum varð. Hann bjóst ekki við að
sjá hana aftur. En næsta kvöld kom hún þó. Svo
sagði hann okknr enn meira — það, að ungfrúin
hefði ásett sjer að mála kaffihúsið. Hr. Alfred
kvaðst mundn sjá um það, að koma því á sýning-
una. Þjer vitið ef til vill, að ungfrúin málar?
Þessi spurning kom svo skyndilega, að hún
átti áreiðanlega að koma Duncombe í bobba. En
það brást.
__ Ilaldið þjer áfram, mælti hann hryssings-
lega. Það er jeg, sem spyr yður, en þjer ekki mig.
__ Svo vildi það til eitt kvöldið, að ungfrúin
kom ekki einsömul. Með henni var karlmaður einn,
og settist við sama borðið. Hann heitir D. Aubarde,
og við þekkjum hann vel öll hjer. En það leit út
fyrir, að unga stúlkan kannaðist ekki við hann. Þau
töluðu saman með mikilli alvöru í eina klukku-
fitund, og þegar hún fór, stóð maðurinn líka á
fætur og fór.
Duncombe var orðinn náfölur. Louis tók eftir
því og brosti.
— Flossie stóð úti fyrir hiisinu, og sá þau aka
burtu í vagni D. Aubarde. Þau voru að sjá orðnir
ágætir vinir. Síðan höfum við ekki sjeð þau. Og
nú vitið þjer eins mikið og við.
— Hvað er langt síðan? spurði Duncombe
rólegur. , : 'U
' — í kvöld er nákvæmlega vika síðan.
Duncombe lagði seðlabunka á borðið.
— Jeg vil með þessu sýna ykliur, að mjer er
alvara með starf mitt. Þess vegna borga jeg kon-
unum þá upphæð, sem jeg Ipfaði, þó jeg sje ekki
í hinum minsta vafa um það, að hvert orð, sem
þjer hafið sagt er lýgi.
— Herra minn!
— Jeg endurtek það — lýgi! En heyrið þjer.
Jeg ætla að freista einhvers ykkar til þess að leysa
ykkur úr þeim læðingi þjofnaðar hafta, sem hvila
4 ykkur nú. Jeg hefi borgað 10 þúsund franka fyr-
ir lýgi. Nú býð jeg 20 þúsund franka fyrir sann-
leika. 20 þúsund franka fyrir sannar og öruggar
upplýsingar um núverandi samastað.
Flossie leit snögt á hann. Þar næst skotraði
hún augunum til frúarinnar, og sá að hún varð öll
að einni peningagræðgi.
Duncombe gekk hægt til dyranna.
— Jeg borga reikninginn frammi í salnum,
sagði hann stuttlega. Góða nótt, vinir mínir. Hugs-
ið um tilboð mitt. 20 þúsund frankar!
Louis stóð upp og hneigði sig nokknð drembl-
lega. Flossie dirfðist að senda Duneombe koss á
fingrinum og frúin leit til hans með brosi, sem
margt gat þýtt.
Hurðin laukst aftur á eftir honum, og þau
heyrðu hann ganga fram salinn. Þá tók frúinnafn-
spjald hans og las hátt:
George Duncombe,
Risley Hall
Norfolk
I_ (j, ef niaður gœti sagt honum saimleikann,,
tautaði frúin, fengið peningana — og —
Louis brosti íbygginn.
IX. KAFLI.
Freistingin.
Ungfrú Flossie var ekki sýnd sjerlega mikit
kurteisi á Grand Hótel. Dyravörðurinn áleit, að ,
Duncombe væri farinn út. Ef ungfrúin vildi bíða,
þá skyldi hann gæta að þvi. En liann visaði henni
ekki inn í salinn, eins og skyldan bauð honum þó,
og bauð henni ek'ki einu sinni sæti.
Ungfrú Flossie var ein þeirra kvenna, sem finsti
þær vera móðgaðar af öllum blntum. En 1 þetta
sinn var hún í svo mikilH geðshræringn, að húni
tók ekki eftir þessu. Meðan dyravörðnrinn var að
c-æta að, hvort Duncombe væri heima, hrökk hún
saman, ef hún heyrði fótatak. Og við og við leit hún * 1
með hræðslublandinni óró út á götuna.
,jjún varð fyrir miklum vonbrigðum, þegar
dyravörðurinn kom einn aftur.
— George Duncombe er genginn út, nngfrú.
Á jeg ekki að skila neinu?
— Vitið þjer hve langt verður þangað til að
Duneombe kemur heim ?
__ Hann gat ekkert um það. Hann fór fyrir|
morgunverð.
Flossie bað um leyfi til að skrifa fáein orð.