Morgunblaðið - 23.08.1925, Page 2
2
MOR T u NBLAÐiÐ
■sawatfjM—j 'Wi.."i
FRIÐUN OG YERNDUN
ÞINGVALLA.
Höfum fyrirliggjanði:
Rúgmjöl,
Hálfsigtimjöl,
Hveiti, Crem of
Manitoba,
Hveiti, „Oak»,
Hveiti, „Gilt Edge11,
Körtöflumjöl,
Sagógpjön,
Hrismjöl,
Hrfsgrjón,
HaframJÖI,
Kaffi,
The,
Sódi, Krystalsápa,
c c i a m
Höggin sykur,
Flórsykur,
Epli, þurkuð,
Apricots, þurkaðar,
Ferskjur,
Gráfikjur,
Döðlur,
Sveskjur,
Rúsfnur,
Eldspýtur,
Hand-
sápur
Blegsódi, Sápuspænir.
Nauðsynleg mannvirki
sem gera þarf.
Friðun skógarins.
Eftir viðtali við
Matthías Þórðarson þjóðminjavörð
Er Matth'ías Þórðarson kom frá
Þingvöllum í vikunni sem leið,
hittum vjer hann að máli og
spurðum hann um hitt og annað
viðvíkjandi starfi Þingvallanefnd-
arinnar, er skipuð var í vetur
sem leið.
Tilgangurinn með skipun
nefndarinnar
er sá, að nefndin komi fram með
tillögur um hvað gera skuli, til
ab friða staðinn, skóginn og annan
gróður á Þingvöllum og í næsta
umhverfi þeirra, svo og að athuga
hverjar, einkum verklegar fram-
kvæmdir, sje nauðsynlegt að gera
þar til undirbúnings hátíðahöld-
unum árið 1930.
Nefndin tekur einnig til athug-
unar, hverjar ráðstafanir eru
nauðsynlegar vegna hins mikla
gestagangs á Þingvöllum.
Eins og kunnugt er, hefir
Matthías Þórðarson látið gera
nokkrar verklegar umbætur
á Þingvöllum undanfarin sumur.
Unnið hefir verið þar að út-
græðslu á völlunum, vegurinn hef-
ir verið fluttur o. fl.
Enn er þó talsvert eftir af
Uppdráttur af Þingvallaskógi og umhverfi hans.
(Efftir uppdræftti herforingjaráðsins).
Myndin sýnir uppdrátt herfor-
ingjaráðsins af landspildunni milli
Almannagjár og Hrafnagjár frá
Þingvallavatni að Ármannsfelli,
ált upp að Hofmannafleti og Meyj
ársæti. Þau nöfn tvö eru ógreini-
leg efst á myndinni hægra megin.
Grænu skellurnar á herforingja-
uppdrættinum er tákna graslendi,
eru dökkar á mynd þessari og
dekkstu blettirnir eru túnin. —
Vatnskotstún suður við Þingvalla-
vatnið, litlu norðar Skógarkot og
Hrauntún nyrst.
Litlu svörtu kringlóttu dílarnir
tákna að þar sje skógarkjarr, en
litlu hálfhringarnir tákna að þar
sje hraun. Þar sem hálfhringarnir
eru í hvítum fleti og engin önnur
merki, er hraunið gróðurlaust að
mestu.
framkvæmdum þeim, sem hann
hefir ætlast til, að gerðar yrðu
þarna.
Það, sem á vantar, er m. a. að
hækka eyrina vestanvið Öxará og
dýpka árfarveginn. Setja gang-
brú þar yfir ána og gangstíg
meðfram ánni um túnið, ennfrem-
ur akveg alveg heim að prests-
setrinu.
Nöfn vill Matthías setja á marg-
ar búðartóptirnar og aðra forn-
minjastaði. Sjeu nöfnin höggin á
steina.
En auk þessara aðgerða, sem
nauðsynlegar eru á völlunum, verð
ur eigi hjá því komist að reisa
þar hæði kirkju og hæjarhús af
nýju, og gera gistihús í námunda
við sjálfan þingstaðinn, sem sje
fullkomnara en Valhöll er nú.
Allar þessar framkvæmdir eru
nauðsynlegar, þó ekkert tillit sje
tekið til alþingishátíðarinnar.
En vegna hennar þarf að gera
ýmsar fleiri byggingar og skýli,
sem nefndin mun síðar gera til-
lögur um.
1 vegalögunum frá 1924, er á-
kveðið að leggja nýja Þingvalla-
braut frá Mosfellssveitarveginum
skamt sunnan við Köldukvísl um
Mosfellsdalinn eins og leið liggur
lægst austur í Þingvallasveit. Til
þess þarf auk annara verulegra
umbóta að gera nýjan akveg
úr Mosfellssveitinni 15 — 16
km. á lengd, áður en komið verð-
ur á hinn núverandi Þingvalla-
veg.
Með því móti yrði vegurinh ak-
fær mikið lengri tíma á árinu en
nú er.
Frumvarp til laga um friðun
Þingvallaskógar var samþykt í
Efri deild fyrir skömmu. En mál-
ið dagaði uppi í Neðri deild.
Eftir frumvarpi þessu átti að
| gerfriða alt landið, milli Almanna-
gjár og Hrafnagjár, og svo langt
uppeftir, að ábúð varð að leggj-
ast niður á Þingvöllum, svo <'g
í Vatnskoti, Skógarkoti og Hraun-
túni.
Þingvallanefndin lítur svo á, að
alger friðun skógarins þurfi ekki
að vera eins víðtæk og til var ætl-
ast í frumvarpi þessu, og hefir
það mál nú til frekari athugunar.
Nefndin telur einnig nauðsyn-
legt, að j
spilda úr Þingvalla- og Brúsa-
staðalandi verði numin undan
ábúðarnotkun.
Þ. e. Almannagjá öll og spilda
fram með henni að austan. í
spildu þeirri er þingstaðurinn
sjálfur og nánasta umhverfi hans.
Hið núverandi tún prestsins ætti
þó að fylgja ábúð jarðarinnar
framvegis.
Slík ráðabreytni er vitanlega
ekki framkvæmanleg, nema sam-
ið verði við núverandi ábúendur
jarðanna. i
Setja yrði sjerstakan skógar-,
vörð til að gæta alls skógarins, I
grisja hann og vinna úr honum.
Yrði skógarvörðurinn að hafa fast
an bústað þar eystra.
Annar vörður með lögregluvaldi
er nauðsynlegur á þingstaðnum
og í grend við hann um sumar-
timann, meðan gestagangurinn er
mestur.
Kaupið
yður gl raugu þar sem
gæðin eru best,
úpvalið mesft og
verðió lægsft.
Laugavegs Apótek
Sjóntækjadeildin
von 'ccozn
ex
MILK
SM0RBO0OKJEX
ATCLItR £ O
Aðalumboðsmenn:
I. Brynjólfsson & Kvaran.
Gleymið ekki
að taka með ykkur
Mackintosh’s
T O F F E E
í 8umarfríið
Nýkomið i
Gráfíkjur,
Sveskjur,
með og án steina.
B\ ávextir.
Hjer er þá tekið fram hið
helsta, sem Matthías Þórðarson
hafði um þetta mál að segja að
svo komnu.
Nánari grein mun nefndin gera
fyrir áliti sínu, áður en þing kem-
ur saman í vetur. Almenningur
mun fylgja því öllu með hinni
mestu athygli, sem gert verður til
nmbóta á Þingvöllum og þar í
nágrenninn.
Senn er undirbúningurinn ekki
orðinn langur undir hátíðahöldin
1930, og tími er til þess kominn
að menn geri sjer grein fyrir því
í aðalatriðum, hvernig þeim skuli
haga.
Ef halda á þúsund ára hátíð
Alþingis rneð þeim ummerkjum
og þeirri viðhöfn, sem vera ber,
þarf margskonar undirbúning, sem
eigi verður gerðnr í fumi og
flaustri á 1—2 árum.