Morgunblaðið - 23.08.1925, Side 4
4
B-ORGUNBLAÐIÐ
HHIllll ViSskifti. ilÍllllllllUlllllllfl
Nýkomið: Mjög fallegir sport-
sokkar á drengi og telpur, hekluð
hálsbindi, axlabönd, sportbelti,
enskar húfur .og karlmannshálf-
sokkar í öllum nýjustu litum og
gerðúm. Guðm. B. Vikar, Lauga-
veg 5.
35 aura kostar líter af stein-
olíu, bestu tegund, Baldursgötu
11, sími 893.
Hjól tekið í misgripum við
Laugavegs Apótek á föstudaginn
var. Skifti fari þar fram.
Ólafur Jónsson, læknir.
Flóra íslands
2. útgáfa, fæst á
Afgr. Morgunblaðsins.
líegfóður
Höfum nýlega feogið birgðir
af veggfóðri, fallegu og ódýru,
eina og áður.
Loftpappír, Maskínupappír, —
Veggpappi, Strigi.
H.f. Hiti & Ljós.
Nokkur eintök
fást enn hjá bóks. af bólcinni
„Pagri hvammur,“ eftir Sigurjón
Jónsson. Úr umsögnum um þá bók
má t. d. taka úr blaðinu „Austur-
landi“ : Bókina má telja allpaikla
framför hjá höf. Efnismeðferðin
er öll greinilegri og frjálsari en
áður var.. En oft er mjög mik-
ið fjör í frásögninni og ímyndun-
arafl höf. virðist mikið en síður
tamið en skyldi ennþá.... En
þrátt fyrir þetta er bókin all-
skemtileg lestrar og hefir sjálfsagt
góð áhrif á menn. Stundum eru
líkingarnar mjög vel valdar og
eumir kaflarnir skáldlegir. Má
þar helst nefna kaflann „Milli
þátta“, sem er á köflum mjög svo
fallegur. Skal þar helst bent á
æfintýrið um. garðvörðinn....
Líking þessi er bæði viturleg og
skáldleg. Málið á bókinni er gott.
Guðm. G. Hagalín.
Umboðs. Bókav. Þór. B. Þor-
lákssonar.
M1 Mr ihr
með Hreins Lanolinsápu, sem
er besta handsápan sem þjer
getið fengið.Húðin helst hrein
mjúk og falleg. Biðjið kaup-
manninn sem þjer verslið við
um hana.
Engin alveg eins góð.
1722
er simanúmer mitt
Lœkjargtttu 10.
Ódýrt: Sveskjukassar 15 krónur
Blandaðir ávextir, kassinn 28 kr.
Dósamjólk, kassinn 31 kr. Hafra-
mjöl, pokinn 29 kr. Púðursykur
35 aura % kg. Hveiti, Hrísgrjón,
Victoríubaunir, lágt verð.
Ódýr sykur.
Hannes Jónsson, Laugaveg 28.
Mikið úrval
af
Sokkum
á karla, konur og bðrn
nýkomid
Vöruhúsið.
Að norðan.
(Eftir símtali við Akureyri
í gær.)
Nýtt læknisembætti.
Auglýst befir verið hjer í blaði
nýtt læknisembætti. Vilja ólafs-
firðingar fá sjer sjerstakan lækni,
en hafa undanfarið notið læknis-
hjálpar hjeraðslæknisins í Svarf-
dælahjeraði. Veitti þingið í vetur
ólafsfjarðarhjeraði 2600 kr. til
þess að standa straum af lækn-
inum, en annað eins ætla íbúar
Lreppsins, að leggja fram,
svo launin verði á sjötta
þús. kr. Auk þessa er lækn-
innm heitið íbúð með vægum
kjörum.
i
Síldveiðin.
Hjer hefir verið tregur síldar-
afli undanfarið, komu öll skipin,
sem hjer leggja npp, inn í morg-
un, sum aflalaus og önnur afla-
lítil. Kom Ýmir með 200 tunnur
og var það langhæst.
Tvö skip strönduðu
hjer úti á firðinum nýlega í sót-
þoku en náðnst mjög fljótt út
aftur óskemd. Skipin voru „Elj-
an“ og „Andey“, lítil gufuskip
bæði.
Maður slasast hættulega.
Fyrir skömmu var maður að
nafni Valdimar Sveinbjarnarson
að vinna hjer við múrsmíði á
húsi, og stóð á palli er festur var
ofarlega á húsinu. Brotnaði pall-
urinn, og fjell maðnrinn niður á
jafnsljettu. Slasaðist hann mikið,
og er talið að mænan hafi skemst.
Segja læknar að hann muni aldr-
ei verða jafngóður, þó hann haldi
lífi, sem vafasamt sje.
Tíðarfar
er hjer og hefir verið gott, en
þurkaminna en áður. Hafa komið
þokudagar með smáskúrum en
stórfeld rigning hefir engin verið.
Bændur hafa alliirt töður sínar
með ágætri nýtingu, og eru nú
komnir á út-engi.
\
„Nova.“
Meðan „Nova“ lá hjer, hafði
skipstjóri boð inni og bauð til
skips ýmsnm borgurum bæjarins.
Er þetta, eins og kunnugt er,
fyrst ferð skipsins hingað. Mönn-
um leist hið hesta á skipið.
Lúðrasveit Reykjavíkur.
Sá hluti hennar, sem landveginn
fór að norðan, kominn hingað.
Flokkurinn hinn ánægðasti
yfir förinni.
- --
Eins og knnnngt er, fór Lúðra-
j sveit Reykjavíkur til Vestur- og
' Norðurlands fyrir nokkru og spil-
. aði á ýmsum stöðum'. Á Akureyri
| skiftust leiðir, fóru 10 menn úr
* sveitinni ásamt stjórnanda henn-
■ ar, Páli ísólfssyni, landveg suður,
en hinir fóru sjóleiðina.
Þeir sem á landi fóru, eru ný-
, lega komnir suður. Og láta þeir
* hið besta yfir ferðinni að öllu
Ileyti'
Frá Akureyri fóru þeir Öxna-
dalsheiði til Skagafjarðar. — Á
Bakka í Öxnadal spiluðu þeir
fyrst frá því þeir fóru af Akur-
eyri. 1 Skagafirði spiluðu þeir á
Víðivöllum og Sauðárkróki. Var
þeim tekið með hinni mestu rausn
af Skagfirðingum, og settir undir
þá gæðingar, og fengnir fylgdar-
menn til Blönduóss.
Þar spiluðu þeir fyrir miklum
mannsöfnuði, er samankominn var
víðsvegar að úr sýslunni. Var þar
dansleikur um kvöldið, og ljek
sveitin þar. Stóðu þeir við heilan
dag á Blönduósi. Síðan fóru þeir
í bifreiðum fram Vatnsdalinn, að
Hnjúki, og spiluðu þar og síðan
að Flögu og þá að Undirfelli. Var
þar margt fólk samankomið.
Þaðan lögðu þeir með 22 hesta
og tvo fylgdarmenn suður Gríms-
tungu og Arnarvatnsheiði, og yf-
ir Kaldadal til Þingvalla, og það-
an í bifreiðum hingað.
Alstaðar þar sem þeir komu ljek
Páll á orgel, ýmist í kirkjum eða
heimahúsum. Þótti mönnum hið
mesta ágæti að hlýða á hann, og
átti spil hans ekki minstan þátt í
því að gera för sveitarinnar góða
og Norðlendingum ógleymanlega,
þó mikla ánægju hefðu þeir af
hijómlist sveitarinnar. — Fjöldi
raanna, sem á þá hlustaði, hafði,
eins og við er að húast, aldrei
sjeð lúðra, auk heldur heyrt leik-
ið á þá.
Mjög rómar sveitin risnu og
ihöfðingsskap Norðlinga og nátt-
úrufegurð þar nyrðra.
GENGIÐ.
Reykjavík í gær.
Sterlingspund ........... 26,00
Danskar kr. .. v....... 124,88
Norskar kr..............101,03
Sænskar kr..............144,05
Dollar .................. 5,37
Franskir frankar ........ 25,41
Nýjap
pósfkorlatsgundir
falleg glanskort i
. v
Bókav. Sigfúsar Eymundisonap.
Hin góðkunna
Ogstons & Tennant’s
Bultermilk Toilet Soap
nýkomin í
Heildv. Garðars Gíslasonar.
Kol. Kol. Kol.
Háttvirtu bæjarbúar
Veitið athygli: Jeg sel mín góðu viðurkendu hú
og skipakol framvegis eins og að undanförnu, krón
10 (skpd.) 160 kg. heimflutt.
ódýrasta verð bæjarins í tonna tali.
Símar 807 og 1009.
G. Kristjánsson,
Hafnarstr. 17. (uppi)
Inngangur frá Kolasundi.
DAGBÓK.
Nova, hið nýja skip Björgvinj-
arfjelagsins, var á ísafirði í gær.
Hún er væntanleg hingað í dag.
Nordpol, kolaskip, sem hjer hef-
ir legið, fór hjeðan í gær.
Togarnir, Baldur og Otur, fóru
á veiðar í.gær.
Njörður fór á veiðar út í fló-
ann í fyrradag, og kom inn í gær.
Hann seldi aflann í bæinn.
Farþegar á Gullfossi hjeðan í
gær, voru aub þeirra, sem áður
voru taldir: Praefect Richard,
Steindór Gunnarsson prentsmiðju-
stj., frú Copland og Mr. Berry og
sonur hans.
jDánarfregn. 1 fyrradag ljest að
heimili sínu, bjer í bænum frú
Ingibjörg Grímsdóttir, kona Hann-
esar Hafliðasonar, skipstjóra.
„Island“ fór frá Færeyjum í
gær, og er væntanlegt hingað í
fyrramálið.
Skipstjóri á Gullfossi þessa ferð
til ritlanda er Jón Eiríksson, I.
stýrimaður á skipinu. Tekur Sig-
urður skipstjóri Pjetursson sjer
hvíld á meðan.
Sigurður Eggerz bankastjóri og
frú hans vorn meðal farþega á
Esjunni hjeðan í gærmorgun.
Henriette Strindberg, heitir
norsk söngkona, er kemur hingað
með „Lyra“ á morgun. Hún sýng-
ui hjer í fyrsta sinn á föstudag-
inn kemní.
Ekkjan Sigríður Ólafsdóttir,
Lindargötu 17, verður 70 ára á
þriðjudag 25. þ. m.
Morgunblaðið er 8 síður í dag.
Sjómannastofan. Guðsþjónusta í
dag kl. 6. Allir velkomnir.
Brúnar
lili-Stl|F ÖF
með 2 Flihbum
á 3 kp.
Egill lanlsgfl.
Málningup
bæði mikla og góða höfum vi5
afn ódýra og áður.
H.f. Hiti & Ljós.
— Hafnarfjarðarhlaupið verður
háð í dag og hefst kl. 2, frá Hafn-
arfirði. Hlaupið endar á íþrótta-
vellinum hjer.
Keppendur eru þessir:
Guðm. Guðjónsson (Á.)
Ingimar Jónsson (Á.)
Ingi Árdal (Á.)
Magnús Guðbjörnsson (K.R.)
Stefán Bjarnason (Á.)
Vegalengdin er um 14 km., og vai
Magnús hlutskarpastur í fyrra
hijóp þessa vegalengd á 47 mín
og 8 sek.