Morgunblaðið - 08.11.1925, Page 3
MORGUNBLAÐIÐ
3
MORGUNBLAÖI©.
i«iCalnundl: ,VU)i.
sel'andl: F3.sl-H.sr 1 RnyXJ'vrtSs: .
lit *tjorar: Jöu Sjartajtacox..
VoJtýr Bt«ffcnm8-o»
4'agílyoingra»tj6rl: El. Bafbarsr.
HKrlfstofa Austurstrœtl 8.
fSimar: nr. 498 og: 500.
Ausrlýslnsastriíst. nr. 700.
SJreiMttslan&r: J. K). nr. 748.
V. St. nr. 1810.
15. Háfb. nr. 770.
Áskrlftagjald' innanlands kr. 1.00
& mánutJi.
XJtanlands kr. Z.50.
i» Hsas01u 10 onii oint.
Straumhvö 'f i stjórnmáluim
Evrópu.
Eftir Tryggva Sveinbjörnsson.
Niðurl.
III.
Ymsas* frjettir.
Markarfljóts-garðurinn, suður
af Seljalandsmúla, til varnar
vatnságangi á láglendi Yestur-
Eyjafjallasveitar, var lengdur í
sumar, og eins var gamli garður-
iun trevstur nokkuð. Kostaði við-
bótin og viðgerðin 8 þús. kr. —
Kíkissjóður kostar þessa fyrir-
ihleðslu að %.
Kirkjubyggingar í Skagafirði.
Þrjár steinkirkjur eru nú komnar
upp í Skagafirði á síðustu tveim
árum, sú síðasta í Glaumbæ. Að
Mælifelli og Ríp voru kirltjur
fcygðár I fyrra sumar. Rípurkirk-
jan er úr r-st.eini Sveinbjörns
-Jónssonar, byggingarmeistara á
Akureyri. Sá hann uni kirkjusmíð-
ina. " Mælifells- og Glaumbæjar-
kirkjur eru úr sementssteypu.
Á Akranesi hefir ungmennafje-
lag gengist fyrir fyrirlestrahaldi.
Standa þessir fyrirlestrar nú yfir.
Er einn fyrirlestur haldinn á dag,
-og verðnr svo fram eftir þessari
viku. Frú Svava Þórhallsdóttir á
Hvanneyri og frú pórunn Sívert-
sen í Höfn, halda þarna fyrir-
lestra.
Fyrir sauðaþjófnað hefir Jó-
hann bóndi í Litla-Dal í Skaga-
firði nýlega verið dæmdur.
Trúlofun sína hafa nýlega op-
inberað frk. Margrjet Raguels,
kjördóttir Jóhanns Raguelssonar
á. Akuréyri, og Konrad Hansen
frá Lyderslev í Danmörku.
Frá Hólum í Hjaltadal. Þar eru
nú um 30 nemendur. Miðstöðv-
arhitun var sett í bæði hús skól-
ans í sumar.
Rjettarhald var í gær á Akur-
eyri í máli Ragnars Olafssonar,
gegn ritstjora „Yerkmannsins“,
út af grein sem birtist í blaðinu
1 vor um kolasölu Ragnars o. fl.
I greininni var m. a. gefið í skyn,
að Ragnar seldi óþverra af pakk-
húsgólfinu sem kol. Greinin var
nafnlaus. Er til málshöfðunar
kdm, gaf ritstjórinn Halldór Frið-
jónsson það npp, að höfundur
greinarinnar væri Gunnar ikaupm.
Snorrason. En við fyrri rjettar-
hald gaf Gunnar þá yfirlýsingu,
. að hann ætti ekkert í greininni.
Kapptef lið.
Rvík, 7. nóv. ’25.
1 gærkvöldi voru sondir hjeðan
leikir á háðum horðunum:
Á horði 1 var 7. leikur fsl.
(hvítt) D d 1 — d 2.
Á horði 2 var 6. leikur ísl.
Jsvart) B f 8 — d 6.
í greinum þeim undir sama
nafni, sem birst hafa hjer í blað-
inu, var gert stuttlega grein fyrir
aðdragandandum að Locarnofund-
inum. Árangurinn af fundinum
■hefir í aðaldráttunum verið gerð-
■ui almenningi kunnur í símskeyt-
: uin, en til frekari skýringar skulu
I þó meginatriði Locarnosamning-
anna endurtekin hjer.
Gerðabókin.
Það sem líggur eftir fundinn er:
Gerðabókin með 6 fylgiskjölum.
í gerðabókinni, sem er dagsett 16.
október 1925, lýsa fulltrúar Þjóð-
verja, Belga, Breta, Frakka, ítala,
Pólverja og Tjekkóslóvaka því yf-
ic, að þeir sjeu samþvkkir samn-
ingsuppköstum þeim, scm fundur-
inn samdi og sem snerta nefnd
riki. Þann 1. desember eiga fund-
armennirnir að mætast aftur í
London til þess að undirskrifa
samningana að fengnu samþykki
þinga sinna. 1 gerðabókinni láta
fundarmenn í ljósi, að samningur
þessi muni draga úr rígnum milli
þjóðanna, og efna til samvinnu
| milli þeirra í liverskonar efnum.
j Þareð samningarnir þannig stuðli
, að friðsamlegum samtökum og
sam.eiginlegum framförum, - verk-
legnni jafnt og andlegum, muni
1 þeir einnig hrinda. hugmyndinni
um takmörkun vígbúnaðar á skrið.
Fundarmenn skuldbinda sig meira
ao segja til að taka öflugan þátt
í starfi Alþjóðabandalagsins á
þessn sviði.
Rínarsamningurinn.
1. fylgiskjal gerðabókarinnar
er hinn svokallaði Rínarsamning-
ur, sem fjallar um vesturlanda-
mærin. Þegar þvaglið stóð sem
hæst í fyrra og í ár um öryggis-
jmálið, og þá sjerstaklega um ör-
yggi Frakka gegn árás frá Þjóð-
verja hálfu, gerði Stresemann
Frökkum og Belgum alt í einu
tilboð um öryggissamning um
vesturlandamærin. Nú er þetta
höfðinglega tilboð, sem vakti
undrun flestra og aðdáun margra,
oi ðið veruleiki. í Rínarsamningn-
um viðurk. pjóðverjar, Frakkar,
Bretar, Italir og Belgar enn á ný,
að ákvæði Versalafriðarins nm
landamærin milli Þýskalands og
Frakklands og Þýskalands og Bel-
gíu skuli haldast óbreytt. Þessi
þrjú ríki skuldbinda ,sig til að
grípa ekki til vopna gegn hvort
pðru, nema alveg sjerstaklega
standi á.
Þetta er sem sje hugsanlegt, til
dæmis ef eitthvert ríkjanna gerist
friðrofi og ræðst á einhvern með-
lim Alþjóðahandalagsins. Þá eru
hin ríkin samkvæmt þaraðlútandi
ákvæðum sáttmála Alþjóðabanda-
lagsins skyld að taka þátt í aðför
að þeim, sem friðinn rýfur.
Misklíð milli Þjóðverja, Frakka
og Belga skuli til lykta leidd á
friðsamlegan háitt.
2. og 3. fylgiskjal eru gerðar-
dómssamningar milli Þýskalands
og Frakklands og Þýskalands og
Belgíu. I gerðardómssamningum
þessum skuldbinda nefnd 3 ríki
sig til, að liverskonar misklíð
milli landanna, er sendiráð þeirra
fái ekki greitt úr, skuli leiddi til
lykta á friðsamlegan hátt, annað
hvo.rt með aðstoð sjerstakxa dóm-
ara, er skipaðir kunna að . verða
í þessum tilgangi, eða fyrir milli-
göngu bandalagsráðsins. Ef, eða
þegar leitað verður til ráðsins, eru
áðilar skvldir að hlýðnast ' fyrir-
skipunum þess og sæta þeim úr-
skurði, er það kveður upp. Komi
það fvrir, að einhver samningsað-
ila geri sig sekan í broti gegn
ákvæðum samningsins, eru allir
hinir skyldir að veita þeim aðstoð,
sem áreittur hefir verið. Gerðar-
clómssamningur þessi skal vera í
gildi þangað til þjóðabandalags-
ráðið samkvæmt tillögu einhvers
aðilanná fellur hann rir gildi af
því Alþjóðabandalagið álíst að
vera nægileg trygging.
Þjóðvérjar og Pólverjar.
4. fylgiskjal er gerðardóms-
samningur milli pýskalands og
Póllands, en ákvæði hans eru hin
sömu og gerðardómssamningsins
milli áður nefndra ríkja, þó að
því undanskildn, að í honum er
lckabókun, sem segir, að samning-
nrinn snerti ekki kvaðir þær og
rjettindi, er aðilar hafi sem með-
limir Alþjóðabandalagsins.
Þjóðverjar og Tjekkó-slóvakar.
5. fylgiskjal er gerðardóms-
samningur milli Þýskalands -og
Tjekkóslóvajkíu, algerlega samhlj.
samningnum milli Þýskalands og
Póllands.
Samtakaskyldan gegn friðrofa.
Sjerstaða Þjóðverja.
6. fylgiskjal fjallar um 16. kafla
sáttmála Alþjóðabandalagsins. —
Þessi kafli ræðir eins og kunnugt
er um samtaka-skylduna gegn frið
rofa; ákvæði hans eru óljós, enda
hafa menn verið ákaflega ósam-
mála um, hvað víðtæk samtaka-
skyldan sje. Nvi er gert ráð fyrir
í Locarnosamningunum, að Þjóð-
verjar gerist meðlimur Alþjóða,-
bandalagsins og þá ná auðvitað
ákvæði 16. kapítulans einnig til
þeirra. Á Locarnofundinnm hentu
Þjóverjar á, að gera yrði undan-
tekningar með þá, að því er snerti
samtakaskylduna gegn friðrofa,
þareð Þýskaland engan her hafi.
Um þetta var allmikið þref á
fundinum. Að vissu leyti er • krafa
Þjóðverja algerlega rjettmæt, en
á ' hinn bóginn geta Bandamenn
ekki lofað að breyta sáttmála
bandalagsins að svo stöddu. —
Ákvæði Locarnosamninganna virð-
ist benda í þá átt, að tekið verði
tillit til, að pýskaland engan her
liefir.
Árangrinum af Locarnofundin-
um hefir verið fagnað, nema af
þeim, sem engan áhuga hafá fyr-
ir, að viðreisnarstarfið í Evrópu
loksins geti byrjað. Engu að síður
mun það sannast, þegar á daginn
líður, að Locarnófundurinn var
fyrsti friðarfundurinn eftir styrj-
öldina miklu, og, að með honum
byrjuðu straumhvörf í stjórnmál-
um Evrópu.
Dvölin hjá Schöller
verður leikin í dag kl. ,8 síðdegis.
Aðgöngurniðar seldir í dag frá
kl. 10 til 12 og eftir kl. 2.
DAGBÓK.
□ Edda 59251110
engiiiM fjm.ur.
Sjómannastofan: Guðsþjónusta
í dag kl. 6. Allir velkomnir.
Gullfoss fór frá Flateyri í fyrra
dag, tók þar m. a. á áttunda
húndrað tunnur af síld. Hann var
á Patreksfirði í gær, en hefir senni
lcga farið þaðan í gærkvöldi.
Frá Flateyri var símað í gær,
að tíðarfár hefði verið hið versta
j undanfarið. Hefir ekki á sjó gef-
ið um langan tíma þangað til í
fyrradag, og aflaðist lítið. Snjóað
liefir ofurlítið; en jörð er þó næg
enn.
j Esjá var á Dýrafirði í gær, og
mun hafa farið þaðan í gærkvöldi.
Goðafoss er í Kaupmannahöfn;
■ fer þaðan í dag.
j Lagarfoss var á Siglufirði í gær.
Væringjar og Ylfingar, sem vilja
selja happdrættismiða Styrktar-
sjóðs sjúklinga á Vífilsstöðnm,
ki.nii í Ilafnarstræti 8 kl. 1 í dag.
Orkesterhljómleikamir. Athygli
skal vakin á því, að ef nokkrir
aðgöngumiðar hafa verið óseldir í
gærkvöldi, þá verða þeir seldir í
Nýja Bíó í dag eftir kl. 1 Hljóm-
[leikarnir byrja kl. 4.
Villemoes fór frá Patreksfirði
í fyrradag til London.
Til Strandarkirkju: Frá E. L.
kr. 15, konu á Mýrum kr. 10, H.
E. kr. 5, frá G. S. H. kr. 7, frá N.
N. kr. 2.
Til Hallgrímskirkju frá konu í
Kí fnarfirði kr. 10.
Gjafir og áheit á Elliheipiilið:
Austan úr Biskupstungum kr. 5
(álieit í óþurki), Ó. kr. 1.00 (afh.
Morgunbl.). G. J. kr. 50. Ónefnd-
U3. mikið af klæðnaði. og nærfatn-
aði. I Byggingarsjóðinn við heim-
sókn sóknarnefndarmanna kr. 100.
Bestu þakkir. Har.i Sigurðsson.
Enskur togari, Fesostris, kom
hingað inn af veiðum, að fá sjer
líol. Eru 3 vikur liðnar síðan hann
lagði á stað frá Englandi, en þó
var afli hans ekki hærri en 100
jkörfur. Hann fjekk hjer fiskiskip-
stjóra, Jón Árnason af Heima-
skaga, og fór hjer iit í flóann sam-
stundis, er hann hafði fengið kol-
ir..
FisktökusMp, er Dernes heitir,
kom hingað í gærkvöldi og tekur
fisk til útflutnings hjá Andrjesi
Guðmundssyni.
Tyro, fisktökuskip, hefir nú tek
ið bjer fullfermi af fiski, og mun
fara hjeðan næstn daga.
Togaramir. Von var í nótt á
Apríl frá Englandi, og Ara af ís-
fiskveiðum. Fer hann strax með
aflann til Englands.
Gerpúlver,
Eggjapúlver,
Vanlllesykur,
Citrondropar,
Vanilledropar.
Efnagerð Reykjavíkur
Simi I75S.
Stell
allmkonar
Postulínsvömr.
Glervörur.
Leirvörur.
Bamaleikföng.
Verðið altaf lækkandi.
Hýjar vörur
tvisvar f mánuði.
L tasn > Wnsai
Bankastræti.
Fermingarböm sjera Bjarna
Jónssonar (báðir flokkarnir) eru
beðin að koma í Dómkirkjuna á
mánudaginn kl. 3.
ísland var væntanlegt til Vest-
rnannaeyja kl. 10 í gærkvöldi. Og
mun því geta komið hingað seinni-
partinn í dag.
Móðurást, listaverk Nínu Sæ-
mundsson, verður sýnd í Alþingis
húsinu í dag kl. 1—3.