Morgunblaðið - 01.03.1928, Síða 2
2
MORGUNBLAÐIÐ
Þingtiðindi.
Höfum til:
Skiftlng Gullbringu- og Hiósarsýslu
í tvö kjördæmi.
Dfsa
Danskar kartöflur
fllboð ðsbast
i að gera litla uppffyllingu á lóð
trorri við Skerjaffjörð.
Upplýsingar hjó stöðvar-
atjóranum, simi 2208.
H.f. „Shellcc á Islandi.
Nýkominn
Papptr
I samlagningarvjelar.
Benediktsson & Co.
Sfmi 8 (4 linur).
Regnhlifar
stóru úrvali
Marteínn Einarsson $ Go.
Hlutaf jelagið
Det kongelige octroierede almindelige
Brandassurance-Compagni
Stofnað I Kaupmannahöfn 1798.
Vátryggir gegn eldi allskonar fjármnni fasta og lansa.
Nánari upplýsingar fást hjá umboðsmanninum í Reykjavík.
C. Behrens, Simar 21 & 821
MODEL 1928.
Fólksbílar hafa verið mikið endurbættr.
iengri, vandaðri að ölluleyti, kraftmeiri vjel (16%)
Aðal umboðsmenn á íslandi
fyrir Durant Motor Co.
♦
Hjalti Björnsson 5 Co.
Reykjavik.
í fyrradag var skifting Gull-
jbringli- og Kjósarsýslu til 2. umr.
í Efri deild. Urðu snarpar umræð-
Jur, einkum milli þeirra Jóns Þor-
lákssonar og dómsmálaráðherlra.
Ei engin tök á að rekja þæi- um-
ræður hjer.
J En til þess að gera nokkra gre'r*
'fyrir þeim, er hjer birtur útdrátt-
, ur iir einui ræðu Jóns Þorl.
Jón porláksson: Jeg ætla ekki að
' gera hið vanstilta skap dómsmálaráð-
herrans að umtalsefni.Jeg hefi reynslu
Jfyrir mjer í því, að jeg geti „hleypt
honum upp“, þegar mjer sýnist. Hon-
, um kann að finnast, að hann beri
hærra hlut í viðskiftum okkar, og ætla
jeg að lofa honum að eiga þá sjálfs-
blekking í friði fyrir mjer.
En reynsla okkar Efrideildarmanna
er sú, að dómsmiálaráðherrann getur
(ekki talað um neitt af skynsemi, vegna
jþess, að hann veður úr einu í annað og
' talar um alt í einu.
| 1 þessu máli hefir hann þó nokkra
afsökun, því hann hefir vitanlega helst
viljað, að frumvarpið um skifting Gull-
bringu- og" Kjósarsýslu færi orðalaust
í gegnum þingið.
I Hann talaði um að bændaflokkurinn
danski hafi sfáðið fulllengi gegn kröf-
um sósíalistanna, um brevtta kjör-
dæmaskipun.
pað er svo sem auðvitað, að sjá á
vel fyrir því, að bændavaldið hjer á
íslandi fari ekki eins að ráði sínu.
En jeg vil geta hess hjer, að jeg
hefði ekki trúað því fyrir nokkrum
árum, að hinn fyrverandi og núver-
andi sósíalisti, Jónas Jónsson, myndi
geta fengið flokk Þann, er nefnir sig
bændaflokk, til þess að breyta lögum
til þess eins að gefa sósíalistum þing-
sæti.
Ráðherrann hefir reynt að sýna
fram á, að núverandi þingmenn kjör-
dæmisins sjeu andvígir hagsmunum
bænda. En þeir eru á móti honum, og
þesS vegna vill hann breyta lögum, til
þess að flæma ánnan þeirra af þingi.
Hann eys yfir þá ákvæðisorðum vegna
þess, að þeir sjálfir eru ekki bændur.
i En hvernig var það með bændaflokk-
inn, er hann tilnefndi menn í lands-
stjórn ? Yill ráðherrann bentfá á bónda
í hóp ráðherranna ? Honum verður
erfitt um það.
| E. t. v. hafa þessir menn einhvern-
tíma verið bændur. Yill ráðherrann
rifja upp endurminningar um búskap?
pegar þingmenn bændaflokksins
tóku að velja sjer ráðherra, fór eins
fyrir þeim, og er bændnr í Gullbringu-
og Kjósarsýslu völdu sjer þingmann.
j Ráðherrann talaði um hug íhalds-
manna til Hafnarfjarðar í atvinnu-
leysinu um árið.
í Hann talaði um andúð þeirra gegn
atvinnubótunum.
j pað er rjett, að allmargir menn,
sem nú eru í íhaldsflokknum voru and-
vígir Hellyers-undanþágunni. En þeir
voru með þeirri tilhögun, að fjölgað
yrði innlendnm togurum í HafnarfirSi.
I Eramsókn reis öndverð gegn þeirri
tilhögun, og er nú komið sem komið
; er. Og er víst, að margir hallast að
því nú, að rjettari hafi verið liin til-
högunin.
Pá er letigarðurinn.
Agreiningur okkar í f jármálunum er
í raun og veru sá, hvort rjettara sje
að leggja vegi og brýr, eða byggja
letigarð. Jeg vil bæta vegina, hann vill
hreiðra um slæpingjana.
j Ráðherrann jafnar saman heimavist-
um við Mentaskólann og letigarðinn.
pað er alveg eftir honum. Hann viíl
’miklu síður byggja heimavistir, heldur
' en letigarðinn, sem hefir fest sig
í heilabú ráðherrans.
I Hann komst þannig að orði, að það
j væru ekki aðrir en „ofstækisfullir
’íhaldskurfar", sem láta sjer ant um
1 æskulýðinn, að þeir horfi með jafn-
Jaðargeði á það, hvernig fer um nem-
endur Mentaskólans í húsnæðisþrengsl
unum hjer í Rvík.
Ráðherrann talaði um, að ómögulegt
væri, að leggja vegi fyrir tekjuhalla.
pegar hæstv. ráðherra kemur inn á
svið fjármálanna, þá kemur hann að
þeim málum, sem honum eru ókunn
með öllu.
En með uokkurri yfirlegu má vera
að hann geti lært, að ef t. d. að í fjár-
lögum væri 1 milj. tekjuhalli, þá er
hægt að nota fjeð til þess að leggja
vegi, alveg eins og hægt er að nota það
tíl annars.
Ráðherrann talaði um, að jeg hafi
viðurkent, að æskulýðurinn fylgdi
mjer ekki að málum. Hann hefir marg
oft endurtekið þetta í ræðu og riti.
Jeg ætla að gamni mínu að segja
tildrög sögu þessarar.
Við vorum eitt sinn á fundi í Borg-
arnesi. Á fundi þessum var meðal
áhoyrenda, hópur ungra manna er sátu
nálægt ræðustól. peir gáfu. mjög til
kynna velþóknun sína á J. J. Jeg gat
þess eitt sinn í ræðu, að þessir vingu
menn væru meðal andstæðinga minna.
petta er tilefnið til þess, að bann
hefir nú undanfarin ár útbásúnað, að
jeg hafi viðurkent, að æskulýðnr
landsins sje mjer yfirleitt andvígur.
En þetta er ekkert einsdæmi. Pví
svona rangt segir ráðherrann altaf frá.
pað er nú alviðurkent meðal þjóðar-
innar, að engu orði hans er trúandi.
Og fari svo, að hann verði æsku-
lýðnum eins „óvinveittur“ í mörgum
málum, eins og í heimavistum Menta-
skólans, er hann tekur letigarðinn
fram yfir þetta nauðsynjamál æskunn-
ar, þá skil jeg ekki, að hann geti til
langframa vonast eftir fylgi hinna
ungu upprennandi manria.
J. J. svaraði ekki þessara ræðu,
geymdi sjer það til 3. urnræðu. Enn-
fremur tóku þeir til raáls Björn Krist-
jánsson og Jón Baldvinsson.
Ijésálfnr.
Æílntýr með 112 myndum.
Besta barnabókin.
Fallegt úrval af
tvisttauum
seljast nú með miklum
afslœtil.
Verslun
Egill lacobsen.
Ný frnmvðrp.
Dragnótaveiði í landhelgí. Ben. S.
og Jör. Br. flytja frv. um bann gegn
dragnótaveiði í landhelgi. Eigendum
jarða þeirra, er að sjó liggja, og þeim
er afnotarjett hafa, skál þó heimilt að
draga ládráttar- og fyrirdráttarnætur
á land. Brot varða 5000—10000 kv.
sektum.
Fiskiræktarfjelög. Ing. Bj. og Jör.
Br. flytja frv. þetta eftir ósk nefnd-
ar þeirrai', er stjórnir Búnaðarfjelags
og Fiskifjelags íslands skipuðu á síð-
astl. sumri, til þess að annast rann-
sóknir á veiðivötnum; hefir Pálmi
Hannesson samið frv.
Frv. heimilar mönnum, er veiðirjett
hafa í sama fiskihverfi, að gera með
sjer fjelagsskap um fiskirækt. Yilji
menn stofna fiskiræktarfjelag, skal
kveðja eigendur jarðanna á fund
í því augnamiði. — líamþykki allir
fjelagsstofnunina, má stofna fjelagið
án frekari undirbúnings. Verði fjelag-
ið ekki stofnað á þessum fyrsta fundi,
skal kjósa nefnd til þess að unáirbúa
málið. pá er nefndin- hefir lokið störf-
um, skal boða til fundar á ný. Ef %
þeirra, er kvaddir voru, samþ. fjelags-
stofnun, skal öllum hinum skylt með
að vera. Ef ekki mæta % þeirra er
kvaddir voru, eða utnboðsmenn þeirra,
skal nefndin enn boða til fundar.Ef %
er þá mæta samþ. fjelagsstofnun, skal
öllum öðrum skylt að vera með.
Vafalaust er frv. þetta mikið nauð-
synjamál.
Kennaraskólahús. Dóms- og kjrkju-
málaráðuneytið hefir farið fram á það
við bæjarstjórn Reykjavíkur, að bær-
inn láti ókeypis af hendi lóð við
Skólavörðutorg undir kennaraskóla-
hús, sem ríkisstjórnin hygst að reisa
þar. Hefir fasteignanefnd haft erjndi
þetta til meðferðar, en ákvörðun ekki
tekin þar ennþá.
Bobíu kelakaupin gjfipa
fjelr, sain kaupa þesat
pjödipasgu iogarakol hjá
i< P. Duus. Ávali þup úr
húsi. Simi 15.
Til Vlfilstaða.
fer bifreiö alla daga kl. 12 á hád.,
kl. 3 og kl. 8 síðd. frá
Bifreiðasiöð Sieindórs.
Staðið við heimsóknartímatin.
Símar 581 og 582.
Smjör,
íslenskt, gott ofan úr Borgarfirði
á 1.80 pr, Y2 kg. Nýkomin ný egg,
stór og góð og appelsínur á 10
aura. 12 stk.. fyrir 1 kr.
Von.
í fjarveru minni
kaupa þeir Guðmundur Kristjáns-
son, skipamiðlari og Þorsteinn
Jónsson, Austurstræti 5, refaskinn
fyrir „Refaræktarfjelagið h.f.“
E. Stefánsson.
5ími 27
hdma 212?
Tln.