Morgunblaðið - 17.05.1928, Side 6

Morgunblaðið - 17.05.1928, Side 6
0 MORGUNBLAÐiÐ vera mörg dæmi, að vínþyrstir menn drekki hann upp. En eng-inn ! maður með viti mundi drekka { vökva blandaða.n methylalkoholi, sem er eitrað. Og þó einstöku maíð- ur kynni að drekka sjer bana á þann hátt, hvað væri þann skaða að telja í samanburði við það tjón ! •ef heilár skipshafnir manna fær- ust fyrir taumlausa ástríðu ein- hveTra drykkjuræfla.“ Hvað gerir það til, þó menn drepi sig á methylalkoholi? segir klerkur. Þessa eru dæmi hjer og aragrúi í Ameríku. Reynslan hefir sýnt, að menn drekka þennau' „heppilega“ vökva. — Einu sinni var sú tíðin, að bannmenn töldu „drykkjuræflana'1 svo mikilsvirði, að allur landslýður ætti að leggja á sig mikla skerðingu á persónu- legu frelsi til þess að bjarga þeim. Nú er annað hljóð í strokknum. Það er ekki lengi að breytast veð- ur í lofti. Svo segja vitrir nienn, að bráð- um sje. von á IV. heftinu af !riti þessu og sje það skrá yfir alla, sem drukkið hafa áfengi að garnni sínu og hve mikið hver hefir drukkið. Þá er og búist við, að mál verði höfðað gegn þeim öll- um til þess að auka tekjur lands- ins. Sagt er, að Framsóknannenn hafi sopið drjúgum á og litla íhaldssemi sýnt í þeim efnum. ----- G- h. Saðnr naeð sgé. i. Síðastliðið haust sendi „Búnað- arsamband Kjalarnesþings“ Jón á Bessastöðum í fyrirlestraferð „suð- ur með sjó.“ Var aðaltilgangur fararinnar sá að stuðla að því, að stofnuð yrðu Búnaðarf jelög í hverri sveit þar syðra, en áður voru þau þar engin til, sunnar ^ en á Vatnsleysuströnd. Til árjett- ingar og, ef verða mætti til upp-' örfunar, stofnaði svo Búnaðarsam- bandið til nýrrar fyrirlestraferðar núna á dögunum. Fóru þá ferð tveir af stjórnendum þess: Einar ' Helgason garðyrkjufræðingiir og | Jón bóndi á Bessastöðum. Jeg var hinn þriðji í förinni. Við lögðum upp frá Reykjavík ^ Þórsdaginn þann 12. janúar. og Tukum ferðinni á 5 dögum rúm- j um. Vorum á sex fundum alls, sín- j um í hverri sveit. n. Við vorum fyrst á fundi á 'Vatnsleysuströndinni. — Fremur voru þar fáir mættir. En það sögðu kunnugir, að ekki væri það fyrir óvilja sakir eða áhugaskort á fundarefninu. Heldur meira af hinu, að menn væru elcki til nema einn og einn á bæ, og margir mættu ekki sökum anna láta eftir sjer, að skreppa hálfan dag eða skemur. IJnga fólkið flýgur nú "þaðan flest jafn óðum og upp kemst, og eftir situr búandfólkið ■einsamalt með börnin og stritar eins og það orkar. Því verkafólk tekst því varla að fá. — Hann er meira en alvarlegur vinnufólks- skort.ufinn víða í sveitum vorum. En það þýðir lítið að fjargviðrast út af því og álasa unga fólkinu, sem meira girnist glaum og glans kauptúnanna, en kuldagrátt, til- hreytingalítið sveitaskammdegið. Það er eðlilegt, að ungt fólk og glaumgjarnt kjósi sjer heldur, ef kostur er á, fjölmenni, yl og birtu hæjanna, en fásinni, myrkur og kulda kotanna. En þau mein eru nú, því miður, ofalgeng í sveitun- um. Það er sárt að vísu að missa unga fólkið þaðan svo ört sem nú. Ömurlega sárt! En það væri heimska ein að hugsa sjer, að straumur sá yrði stöðvaður eða snúið aftur við, með álasi einu og umvöndunum, eins og algengt er mjög að heyra. Ekki ef heldur hægt að kyrsetja fólkið með valdi. Jeg þekki ekki nema eitt ráð við vinnuhjúavandræðum bænd- anna: Útvega þeim erlent vinnu- fólk. Vinnukonur vil jeg að fengn- ar sjeu frá Þýskalandi, Bretlandi, Póllandi eða Rússlandi. Vinnu- menn mætti aftur á móti fá í Sví- þjóð eða Noregi. Og væri betra að fá þá þaðan en frá Danmörku. Því bæði er, að þær þjóðir eru oss skaplíkari en Danirnir og að auð- veldara yrði það okkur að losna aftur við gallagripi, sem þaðan væru, en frá Danmörku. Því valda sambandslögin og jafn rjetti danskra manna við íslenska, að ekki er unt að vísa dönskum þegnum úr landi hjef þó illa reynist. En væri nú að því ráði vikið, að fá hingað erlent vinnufólk, yrðu bændurnir jafnframt því að samræma meira siði sína, en þeir hingað til hafa gert. Nú er glund- roðinn á heimilisháttunum svo mikill að maður getur í sumum hjeruðum a. m. k., farið bæ frá bæ, og sífelt hitt fyrir sjer nýjan bæjarbrag. Það er undantekning, ef maður finnur í sömu sveitinni tvo bæi eða fleiri, þar sem fóta- ferð, matmáls- og vinnutími, sje fastákveðinn og nákvæmlega sá sami. -— Víða eru engar heimilis- venjur til, a. m. k. utan sláttar. Það er farið á fætur einhverntíma milli morguns og hádegis. Mið- dagsverður er jetinn einhverntíma milli ldukkan þrjú og átta. Og í rúmið er farið einhverntíma milli kvölds og morguns. Þetta þarf nauðsynlega að laga. Svipaða fóta- ferð, sama matnfálstíma og jafn- langan vinnutíma þarf að ákveða fyrir heilar sveitir og hjeruð, svo að litlu eða engu muni frá bæ til bæjar. Þessari siðbót er nú fyrir löngu lokið í öllum nágrannalönd- um vorum. Og hjer þarf hún að komast á sem allra fyrst. Þar 'vil jeg, að búnaðarfjelögin beiti sjer fyrir. Sii samræming væri áreiðan- lega stórt. stig í framfaraátt. III. Það er víða hrjóstnigt suður með sjónum. Þó er held jeg Vatns- loysuströndin verst. Þar liggur svo að segja allsuakið liraunið milli fjöru og fjalla. Talsvert er þar að vísu til af mold og ofturlít.ið af móum innan um hraunið. En alt svo grýt.t að erfitt er, að rækta. Og þó ekki nærri óvinnandi. Það hafa ýmsir sýnt: T. d. nýbýlingur- inn Bjargmundur á Bakka, sem !ræktað hefir sjer einsamall, fjögra kýrfóður tún. Frá honum er það sagt, að á frumbýlingsárum, með- an hann hafði hvorki hest nje kerru, bar hann mold á klapph’nar í burðarskrínu sinni. Nii kvað það helst ama að honum, að hann er búinn að 'rækta blettinn, sem hann fjekk í fyfstu og fær ekki viðbót við hann! Ein himinhrópandi óhæfan enn, sem eltki má láta líðast! Sá sem rækta vill jörðina, á að hafa for- gangsrjett að lienni. Þeir sem leggja undir sig blásna mela eða brunahraun og breyta í groður- grundir, eru veglegustu landvinn- ingamenn veraldarinnar. Hundrað sinnum betri en þó þeir ynnu /borgir. Þeir taka ekki neitt frá neinum en gefa framtíðinni gró- andi Iðavelli. Þeir eru skapandi menn í samvinnu við Drottinn sinn. f nafni framtíðarinnar, ber ; okkur að krefjast þess, að þá l menn sje hvergi látið vanta verk- | efni. Þeir eiga að vera friðhelg'ir, ; hvar í sveit sem þeir setjast að. Þeir eru þjóðfjelagsgersemar, sem bverri sveit. eru til sæmdar. : , . TV- . - ! \ ið fórum til Grindavíkur um kvöldið og gistum hjá E'nari í Garðhnsun, Aga'tlega er þsr hýst og myndarbragur á mörgu. Enda er dugnsður Einar : alkunmur Ekki verður það um Grindavík sagt að hún sje grösug. Þó stunda 1 menn þar búskap og eiga sumir j allmargt fje. Enda mun sauðbeit þar allgóð. En heldur mun vera óviss arður, af sauðbúum sumra' bænda þar. Mun og heldnr kastað ^ höndum til fjárgey mslunnar sum-, staðar. Nefni jeg til stuðnings þess ! arí staðhæfingo. að vera mun það nokk ið algengr enn. ;:ð bamd- ur vanti þar vctrarhús vfir al]- margt af sauðfje sínu. Þá sögu hefi jeg eftir þeim sjálfum. Tvo stórgalla telur Jón Þor- bergsson þar að auki vera of al- g(-nga á, sauðfjárbúnaði þar sðirr með sjóniun: Of mikið handahóf á vali undaneldishrúta, og oflitla heygjöf í hörðum vorum. Þeir eiga eltki, segir hann, að seilast eftir stórbeinótfum spikskrokkum ofan úr Hvítársíðu eða norðan úr Bárðardal eða úr öðrum sveitum slíkum. Það verður aldrei til kyn- bóta. Heldúr vill hann að menn velji sjer undaneldiskrúta úr heimahögunum. Þykkar kindur holdfastar og harðgerar eru þær Hklegustu til að þola harðrjettið þar syðra og’ gera dálítið gagn. Ennfremúr heldur Jón því fram að ef menn fóðruðu ær sínar sæmi- leg síðustu mánuðinn fyrir burð o'g Jijeldu þeim jafnframt frá fjör- unni, þá væri „skjögrið“ þar með úr sögunni og lambadauði af öðr- um kvillum myndi þá stórum minka, og sauðfjáreignin suður •þar, verða æði miklu arðvænlegri en nú er. Fátæk er Grindavíkin af auð- ræktuðu landi. Þó eru þar til utan túngarða plógfærir grasmóaf. Og allmikið mætti auka túnin þar, þó erfitt yrði eðlilega nokkuð. Túnin þar og víðar suður með sjó, eru og altof þýfð. Þaksljettunin getur ekki annað en gengið hægt. Hún er auk þess erfið mjög og helm- ingi dýraW en sáðsljettunin. Ofanafristuaðferðin var viðun- andi góð meðan ekki þektist ann- að betra. En nú á hún að leggjast niður. Túnin, sem ennþá eru þýfð, eigum við að plægja eins og þau eru. Svo á að herfa flögin vand- lega og bera svikalaust í þau, en síðan sá höfrum og harðgerðu gras fræi. Það ér hin ódýrasta, ágæt- asta og sjálfsagðasta sljettunarað- ferð, sem við þekkjum nú. V. Næst fórum við í Hafnir og gistum í Kotvogi, stórmyndarlegu heimili. Þar hafa búið þrír Katlar, hver eftir annan, en núna býr þar ekkja hins yngsta. Allir munu þeir Katlarnir hafa verið merkismenn. En mest orð fór af þeim í miðið. Þarf maður ekki meira en líta myndina af honum, þá stóru, sem á stofuvegg hangir í Kotvogi. Sú mynd er einskis meðalmanns. Og setja myndi hún mikinn svip á livern salarvegg í hverri höll sem væri. Keim af Katli þeim ber og Kotvogsbærinn, rúmgóður og ram- bygður, svo að lítt sjer á nærri sjötugum húsunum.En húsa- viður Ketils var víst ágætúr og eklti við neglur numinn. Hann færði honum timburskipið stóra, sem sjálft kom siglandi úr hafi, stýrimannslaust og háseta-, og beint upp á fjörur Hafnamanna. TTm Hafnir og Miðnes má hið sama segja. Þar er mikið til af mold og góð skilyrði til ræktunar á ýmsa lund. Sumarfágurt mun þar mjög og gróðúrsæld allmikil. Þar mætti bæði auka bygðina og bæta, til stórmuna, og verður vafalaust gert. Svipað má um Garð og Leiru segja. Þar er graslendi talsvert til og mikið af moldauðgum melum. Flest jörð er þar þó meira og minna grýtt. Nokkrir menn eru þar byrjaðir á nýrækt. En yfir- leitt mun jarðabótaáhuginn í þeirri sveit, vera nokkur daufur. Þrisvar hefir búnaðarfjelag verið stofnað þar, og þrisvar hefir það loguast út af aftur. Nú eru áhugamenn að reyna. að reisa það við á ný. Átján höfðu heitið að ganga í það, en. þrír einir þeirra, voru mrettir á fundi þeim, sem jeg var á, og ekkert varð af endurreisninni þann daginn! Vonandi tekst liún þó með tímanum. Því heyrði jeg haldið fram um Garðmenn, að oft mjög stefndu þeir yfirleitt orku sinni á sjóinn. Hann gefur þeim að vísu stundun; góðar glefsur. En oft. kvað hann skamta þeim æði smátt. Það orkar sjálfsagt oft tvímælis, víðar en í Garðinum, livort rjettara sje að róa á sjó og 'reita upp þyrskling- inn, eða ryðja burt grjóti og rækta tún. En einn mikill munur er þó á þessu: Sá sem ryðst um fast og ræktar landið er afreks- maður, sem auðgar og bætir heim- inn. Hann eftirlætur niðjunum baugum betri arf þó bláfátajkur deyi. Og verk hans eru spor, sera vara lengi. Sá, er á sjóinn rær, getur líka verið afreksmaður, en verk hans hverfa jafnóðum og unnin eru, alveg .eins og áraförin á. sjónum. Afrekin lians marka engin spor. Hann rænir! Hinn rælctar. VI. Við komum að lokum til Kefla- víkur. Þar eru nú um 800 íbúar, og fjölga mun þar fólki enn. Nær 20 vjelabátar fljóta nú til fiskjar úr Kefkvík og Njarðvíkum. Enda sækja þeir suður þar, flest sín föng í sjóinn. Lítið er af grasi þar í grend. En víðlendir örfoka rooldarmelar liggja upp og útfrá þorpinu. Ræktunaráhugi er þar vaknaður allmikill, og tún eru farin að teygja sig út um melinn. Mesti nýræktarmaðurinn þar, er Sigui’ður Pjetursson og Ólafur Arnbjarnarson annar. Sáðsljettu Sigurðaú sá jeg, og sýndist hún prýðileg. Þar er gefin fyrirmynd, sem margir mættu fylgja. Og heill sje þeim, er svo fara að sem Sig- urður! í Njarðvíkum er og til talsvert af móum, sem mjög vel mætti rælita, þó nolrkuð sjeu að vísu grýttir. Suðurnesin eru hrjóstugustu sveitir lands voi’s, sem jeg hefi sjeð. Þó eru ræktunarmöguleik- arnir þar miklir. — Og það getur verið 'álitamál hvo'rt nýræktin þar muni vera miklu dýrari, en í ýmsum sveitum öðrum, sem á- rennilegri sýnast. Bætir ekki rek- þarinn Suðurnesjunum það upp, sem jarðvinslan verður þar ö!rð- ugri en annarstaðar? — Jeg vil ekki fulh’rða neitt um það. En hitt fullyrði jeg: Svo mikilsvert sem auðunnið land er fyrir ný- yrkjnn, er þó nægur og góður áburður, miklu naðsynleghi stoð i storfi hans. Væri það orðin föst venja alls staðar „suður með sjó,“ að bjarga þaranum á þ'urt, jafnóðum og hann rekur og nota hann síðan til áburðar, þá mundu Suðurnesin bráðlega breyta um svip. Vera má að vitlaust sje: En nær e'r mjer þó að aúla, að beinn og óbeinn arður af þeirri ráðabreytni, yrði ekki miklu minni, en arðurinn af sjávarútveg þeirra þar er núí.Ein af hinum mörgu ónotuðu auðlind- um lands vors er þarinn á fjör- unum. ! VII. Víða í voru landi átti menningin noJckuð erfitt uppdráttar á vesæld artímum þjóðarinnar. Og ekia munu þeir Suðurnesjamenn hafa tekið öðrum landsbúum fran; á þeim árum. Það hefði líka verið ósanngjarnt, að ætlast til þess af þeim, svo ilt sem þeir áttu þá uppdráttár. Búskapurinn hefir víst aldrei gefið þeim mikið gull. Oft sveik sjórinn þá líka í trygð- um, ár eftir ár. Verst ætla jeg þó að þeir liafi verið leiknir af danska valdinu á Bessastöðum. •— Mjer finst jeg stundum sjá fingra- förin þess á þeim ennþá. Sama svipinn og dönsku ltotungarnir bel’a enn með sjer, frá tímum óð- alskúgunarinnar. Níi ryður ný og meiri menning sjer óðum til rúms þar syðra, —• Blendin mun hún þó nokkuð eips og flest það, sem brátt vex upp. Skepnurnar munu nú orðið vera minna kvaldar en áður var. Þá mun og líðan fólksins vera mikið bætt, bæði um fæði og húsakynni. Silki og híalín er og mjög tekið þar í tísku sem klæðnaður. Lofi það hver sem líkar. Annar hver umrenningur er nú „þjeraður“ þar á hverjum bæ. Um þann sið segi jeg þetta: Þjerið þið þroskinn lifandi og dauðan, suður með • sjó, og þjerið þið hundana ykltar í hverri sveit, ef vkkur sýnist svo! En fyrir alla lifandi muni: Lofið mjer og mínum líkum að sleppa við þá virðing! „Þjer“ og „yður“ eru að mínu viti ekki annað, en úrelt, orð, sem dramsamir menn fyrri tíða' notuðu til að halda fólki frá sjet’. f máli alþýðunnar hafa þau aldrei átt heimá og geta aldrei átt heima. Okkur fslendingum er og minst þörf á málvenjum, sgm standi eins og grjótfleigar milli manna og hrindi hverjum frá öðnim. Við stöndum nógu strjálir samt!

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.