Morgunblaðið - 19.06.1928, Síða 2
2
MORGUNBLAÐIÐ
Nlðvrsoðnir ávezlir:
6. allsheriarmót Í.S.Í.
Gód byrjun á sunnudaginn vap.
íslenski met i þrístökki.
Ananas.
Ferskjur.
Perur.
Aprikósur.
Aldinbiand.
Japðarber.
■ ^
/#v DLAve.
Kakstur með ROTBART-
rakvjelablaði fullnægir
kröfum hinna kröfuhörð-
ustu. Það er heimsins besta
| rakvjelablað.
n
SROTBAmg
Notið
við
það
slípivjelina „ROTBART TA NK“
I heildsölu hjá Valtl. Thaulow Kaupm.höfn. Biðjið
kaupmann yðar um Rotbart-blöð og Rotbart Tank.
19. |áni
Allar þær, sem selja ætla m erki Landsspítalasjóðsins eru
beðnar að' koma á Laugaveg 37 ( búðin), til þess að taka við merkj-
um, sem eru afhent þar frá kl. 9 fyrir hádegi.
Nefndin skorar sjerstaklega á ungar stúlkur, sem ekki eru stðrf-
um bundnar að hjálpa til við merkjasöluna í dag.
Mðlningapvðpup
bestu fáanlegu, svo sem: Kvistalakk, Fernis, Þurkefni, Terpentína,
®lackfemis, Carbolin, Kreolin, Titanhvítt, Zinkhvíta, Blýhvíta, Copal-
lakk, Krystallakk, Húsgagnalakk, Hvítt japanlakk, tilbúinn farfi í 25
n ismunandi iitum, lagað Bronse. ÞX7KBIB LITJLB: Kromgrænt, Zink-
grrnt, Kalkgrænt, græn umbra, brún umbra, brend umbra, Kasael-
\ -únt, Ultramarineblátt, Emailleblátt, ftalsk rautt, Ensk-rautt, Fjalla- j
n-autt, Qullokkar, Málmgrátt, Zinkgrátt, Kinrok, Lím, Kítti, Qólffem-!
is, Gólfdúkalakk, Gólfdúkafægikústar.
Vald. Poulsen.
NýkomSð»
Suðusúkkulaði, 2 tegundir.
Átsúkkulaði, margar tegundir.
Cacao, mjög ódýrt. —
Eggert ðt Co.
Simar 1317 og 1400.
P.W.Jacobsev & SSn.
Stofnuð 1824.
Simnefni: Granfuru - Carl- unrtegade, Kífcenhawn C.
Selur timbur í stærri og smærri sendingum frá Kaupm.höfn.
Eik til skipasmíða. — Einnig heila skipsfarma frá Svíþjóð.
Hef verslad við Íeland í 80 ár.
Fu Ikomnar nýtisku vjelar til tunnuframleiðslu
til sðlu. Nánari upplýsingar gefur
Heilöv. Garðars Gíslasonar.
Á sunnudaginn var, var veður
hið besta hjer í Beykjavík, og gaf
íþróttamönnum því vel við' hátíða-
höld sín.
Mikill mannfjöldi safnaðist að
Austurvelli er lúðrasveitin ljek
þar frá kl. V/z~2. Kl. 2 lagði
mannfjöldinn af stað suður á
íþróttavöll, en staðnæmdist eins
og venja er til á Suðurgötunni,
sem næst grafreit Jóns Signrðs-
sonar.
Þá hjelt Tryggvi Þórhallsson
forsætisráðherra ræðu. Síðan spil-
aði lúðrasveitin Ó, guð vors lands.
Var því næst haldið suður á völl.
Þar hjelt Kn. Zimsen horgarstj.
ræðu fyrir minni Islands og
íþróttamanna. Birtist ræða hans
á öðrum stað í blaðinu.
Að lokinni ræðunni gengu í-
þróttamennirnir, þátttakenduí
mótsins í fylkingu inn á völlinn.
Forseti í. S. í. ávarpaði þá og
áhorfendur með nokkrum orðnm.
Hann byrjaði mál sitt með
því að geta um það, hversu
íþróttir og íþróttaiðkanir eru
nauðsynlegar öllum almenningi
hjer á íslandi. Vjek hann síðan
máli sínu til sundhallhrinnar og
hve mikið gæfuspor það væri, að
hyggja hjer sundhöll.
Að lokum sneri hann máli sínu
til mótsins, sem er hið sjötta Als-
herjarmót í. S. í. Aðalverðlauna-
grip mótsins sagði hann vera Far-
andbikar f. S. í., sem það fjelag
hlýtur, er flesta fær vinninga á
mótinu. Var fyrst kept um hann
árið 1921. Vann glímufjelagið
Ármann þá bikarinn, og eins árið
1922 og ’23. Árið 1924 var bikar-
inn ekki afhentur, 1925 var ekki
kept; reglugerðinni breytt þá
’ þannig, að keppa skyldi um bik-
j arinn annaðhvort ár. 1926 vann
i fþróttaíjelag Reykjavíkur bikar-
inn. En í fyrra var ekkert kept.
Bjóst forseti 1. S. 1. við harð-
vítugri kepni milli fjelaganna á
þessvi móti.
Um 2000 áhorfendur voru á
vellinum er leikar hófnst.
Fjelagar úr sex íþróttafjelög-
um taka þátt í móti þessu, úr
Ármann 38, fþróttafjelagi Reykja-
víkur (f.R.) 14, fþróttafjelagi1
Kjósarsýslu 1, Knattspyrnufjelagi j
Reykjavíkur (K.R.) 44, Sundfje-j
laginu Ægi 9 og íþróttafjelaginu
Stefni 1. Það fjelag er á Kjalar-
nesi, !
Er leiðinlegt að þátttakan skuli
því nær' eingöngu vera bundin við
Rvík. Meðan svo er, er mótið ekki
það alsherjarmót sem það í raun
og veru á að vera, og kemur
íþróttalíf Rvíkur eigi að þeim
alsherjarnotum fyrir þjóðarheild-
ina sem vera ber. Ættu íþrótta-
frömuðir vorir að kosta kapps um
að fá þetta lagfært. Á íþróttamótið
hjer 17. júní þurfa að koma í-
þróttamenn úr öllum landsfjórð-
ungum, svo þar komi fram mæli-
kvarði á íþróttaþroska allra lands-
manna og holl kepni milli lands-
fjórðunga og bygðarlaga.
Þess skal þó getið að nokkrir
menn utan af landi keppa með
fjel. hjer, er hafa æft með þeim
í vetur.
Byrjað var á því að þreyta hlaup
um 100 metra skeið. Þátttakendur
í*þeirri íþrótt voru 12. Hlupu þeir
fyrst í þrem flokkum.
Síðan reyndu þeir sig, sem næst-
fljótastir vorn í hverjum flokki,
og var fyrstur þeirra Kristján
Gestsson.
Þá var úrslitahlaup háð, og tóku
þátt í því þei'r þrír er fljótastir
reyndust í fyrsta hlaupi („undan-
rás“), ásamt Kristjáni.
Fyrstur varð Sveinbjörn Ingi-
mundarson (Í.R.) (11.5 sek). ísl.
met í þessu hlaupi er 11,3 sek. —
Næstur var Stefán Bjarnason (Á)
11,6 sek., en þeir Garðar S. Gísla-
son (l.R.) og Kristján Gestsson
(K.R.) urðu jafnir, á 11.8 sek.
Næst var kept í ísl. glímu. Voru
glímuflokkar tveir og 6 þátttak-
endur í hvorum. 1 fyrsta flokki
þeir er vega 70 kg. og meira.
Hvorki glímukóngur íslands,
Þorgeir Jónsson í Varmadal nje
Sig. Thorarensen skjaldarhafi Ár-
manns tóku þátt í glímu þessari.
Jörgen Þorhergsson varð hlut-
skarpastur í 1. flokki, eftir að
Jörgen fjell fyrir Trausta Haralds
stein, Kristjánsson. Varð Jörgen að
glíma tvisvar við Þorstein, því
liann fjell fyrir Trauta Haralds-
syni. Næstur varð Þorsteinn og sá
þriðji Georg Þorsteinssón.
f öðrum glímuflokki voru þeir
er vega 60—70 kg. Sex þátttak-
endur. Var-Björgvin Jónsson þar
hlutskarpastur, næstur Stefán Run
ólfsson, sá þriðji Björn Bl. Guð-
mundsson.
Allir þeir er hiðu hærra hlut í
glímukepni þessari eru úr glímu-
fjelaginu Ármann. Af 12 þátttak-
endum voru 8 úr Ármanni og 4
úr K. R.
Gerður var góður rómur að
glímunni. Með'an á henni stóð var
og þreytt staaigarstökk. Þátttak-
endur 6. Varð Arnþór Þorsteins-
son (Í.R.) hlutskarpastnr, stökk
2,93 metra. fsl. met er 3,17 m.
Næstur var Grímur Grímsson (Á).
Stökk 2,83 m., þriðji Óskar Þórð-
arson (Á) stökk 2.63 m.
Þá var þreytt þrístökk. Þátt-
takendur 6.
Reidar Sörensen stökk 13.13 m.
og vann sigúr, enda stökk hann 40
sentim. fremur en fyrverandi ís-
lenskt met, sem var 12.73 m. —
Sörensen er útlendingur, og telst
stöklc hans því ekki íslenskt met.
En Sveinbjöm Ingimundarson (í
B.), er var næstur honum, setti
íslenskt met í þrístökki 12.87 mtr.
Sá þriðji var Ingvar Ólafsson (K.
R.) Hann stökk 12.06 mtr., og
þótti rösklega af sjer vikið af 15
ára pilti.
Næst var 1500 metra hlaup og
vann þar Geir Gígja (K.R.) Hann
rann slteiðið á 4 mín. 27.4 sek. —
Ilann hefir sett ísl. met í þessu
hlaupi á 4 mín. 11 sek. Það va,r á
móti í K.F.U.M. í Höfn í fyrra.
Næstur honum var Jón Þórðar-
son (K.R.) á 4 mín. 37.2 sek., og
sá þriðji Þorsteinn Jósefsson (K.
R.) á 4 mín 38.8 sek.
Boðhlaup var háð 4 sinnum 100
metra. Keptu 4 flokkar, 2 úr 1. R.
1 úr Ármauni, 1 úr K. R.
lipur og prúð getur fengið at-
vinnu í einni af stærstu verslunum
hæjarins.
Umsókn með upplýsingnm um
aldur, mentun, kaupkröfu og
mynd sem verður endursend send-
ist A. S.‘í. fyrir laugardag, merkt
Stað'a.
fastar ferðir.
Til Eyrarbakka
fastar ferðir alla miðvikudaga.
Austur í Fljótshlíð
alla daga kl. 10 f. h.
Afgreiðslusímar: 715 og 716,
BifreEðastöð Reykjavíkur.
Fið
i sængur og kodda,
gufuhpeynsað og
lykfarlaust.
ísl. Æðardúnn
1. flokks.
Fiðurheldir og dúnheldir
Dúkar,
hvítir og mislitir.
Rúmteppi.
hvít og mislit.
Rúmstæði
margar tegundir úr járn og trje.
Ennfremur
Ðeddarnir
þægilegu.
J4<MtUdmJhnawn
Fyrri flokkur 1. R. vann á 48.8
sek., og jafngildir það ísl. meti.
Ármannsmenn voru þar nálægt á
49 sek., en síðari flokk í. R. tók
49.9 sek. að leysa þá þraut. Hlaup
K. R. manna var ógilt, vegna þess
að einn þeirra manna hrasaði á
skeiðinu.
Síðast var þreytt spjótkast. —
Voru þátttakendur 10. íslenskt
met er 72.40 metr. Ásgeir Einars-
son (Á) sigraði. Hann kastaði
70.67 m. Næstur honum var Helgi
Eiríksson (Í.R.) 66.25 m., þriðji
Magnús Einarsson (K.R.) 62,86 m.
Góð stjórn var á vellinum, og
gekk afgreiðsla öll greiðlega, svo
íþróttasýningar þessar voru úti kl.
7 e. hád.
Kl. 9 hópuðust menn aftnr snð-
ur á völl. Þá var stiginn dans. En
meirihluti þess fólks sem kom
þarna suður eftir þá, hirti ekki um
dansinn, heldur kom þangað til að
„sýna sig og sjá aðra,“ enda var
indælisveður, kyrt og hlýtt, og sól-
arlag skínandi fagurt, er nálgað-
ist miðnætti.