Morgunblaðið - 20.01.1929, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 20.01.1929, Blaðsíða 2
MORGUNHTjA ÐTÐ 2 N ý k o m i ð: Blandað marmelaði, Svínafeiti, Sallasykur. Mðtorbátnr 30-40 tonna ðskast keyptnr. — Tilboð merkt „IHútorbátnr“ leggist inn á A.S.Í. Ríó-kaffi fyrirliggjandi Ólafnr Gíslason & Co. (Jtgerðarmenn! Sfldamætur frá 0. Nilssen & Sðn A.s., Bergen iafa jafnan reynst ágætlegar þeím er notað hafa Hmgað er væntan- legur í næsta mánuði sjerfræðingur frá firmanu í þessari grein. Biðjið um upplýsingar og verðtilboð frá aðalumboðsmönnum finuano. 0. Johnson & Kaaber. Sá, sem getur lánað eða útvegað 20—25 þúsund krónur gegn öðrum veðrjetti í nýrri og vandaðri húseign hjer í bænum, getur íemgp® loígðar 1 eða 2 íbúðir í sama húsi, með öllum nútímaþæg- indum. Einnig 1 eða 2 verslimarbúðir. Framtíðar verslunarstaður. Komið gæti til mála kaup á hálfri eigninni. Tilboð sendist A. S- í. fynr 28. þ. m. merkt „íbúð“. Kennath mótorvjelar, 2 og 4 Cyl. 4—5 og 20 H.K. eru sjerstaklega hentugar i fiski- báta, skemtibáta og aðra smærri báta, vegna gang- vissu og sparneytni. 1—6 Cyl, og 3—200 K.H. Nánari upplýsingar gefur Kristinn Ottason skipasmiður, Reykjavík. íbúð og íbúðir. „Núlliö“ talar. Um síðustu helgi birtist for- ystugrein í vikublaði stjórnarinn- ar Tímanum ,og kallar höfundur sig „Þjóðfjelagsborgara.‘ ‘ En af raærðarfullu innihaldi greinarinn- ar þekkist að hún er eftir forsæt- isráðherrann, Tryggvi Þórhallsson. Hann talar þar með eigi litlum fjálgleik um úlfúð þá, sem nú ríki meðal útgerðarmanna og sjómanna, og litmálar með ófögrum, en mikið fremur rjettum litum, hve úlfúðm milli stjettanna innan þjóðfjelags- ins sje mikið þjóðarböl. „Ulfúðin ríkir þeirra á meðal sem þurfa að vinna saman.“ Heyrum kennimannstóninn. — „Öðru vísi mjer áður brá.“ Eða man þessi svonefndi forsæt- isráðherra hvernig hann undan- farin ár hefir stjórnað blaði sínu? Hvaða hlað hjer á Islandi hefir með kröftugri orðum en Tíminn talað um stjettamismuninn innan þjóðfjelagsins, og hve rjettmætt það væri að hver stjett otaði sinum tota. — Það kann að vera að Alþýðublaðið, hið opin- bera málgagn samvinnúmanna og kommúnista hafi stundum tekið dýpra í árinni en Tíminn í þessum efnum. En enginn hjer á landi hef- ir alið eins ósleitilega á stjettaríg innan þjóðfjelagsins eins og J. J. i dálkum Tímans. Látlaust hafa þeir Tímaklíku- menn stagast á því, að útgerðar- menn sjeu sannkallaður hraskara- lýður. Hafa Tímamenn notað hug- kvæmni sína til þess að velja út- gerðarmönnum þau svívirðilegustu og háðulegustu nöfn, og hefir tal þeirra verið eftir því. Var það til þess að efla samúð- inna milli þeirra, er þurfa að vinna saman? Var það til þess að undirbúa jarðveginn undir „sam- vinnu“ þá, sem Tíminn telur nú nauðsynlega? Naumast verða skrif Tímans á undanförnum árum skilin þann veg. Enda voru þau eigi birt með það fyrir augum. Bógur Jónasar frá Hriflu um útgerðarmenn á undanförnum ár- um, miðaði að því, og því ehra, að undirbúa jarðveginn undir harða, langvinna og stórkostlega deilu milli þeirra sem þurfa að vinna saman. í 13 ár hefir þessi maður — sáð fræjum úlfúðar og öfundar, ill- girni og haturs í hug þeirra manna, er við útgerð vinna, og eiga alt sitt undir velgengni henn- ar. Þetta veit og skilur nærri því hvert mannsharn á landinu. En „núllið“ talar á annan veg. Það er skylda þeirra, sem við út- gerðina vinna, skylda stjettanna að . vinna saman í sátt og ein- drægni. Þetta segir fyrverandi ritstjóri Tímans, forsætisráðherrann, eftir að hafa látið nota sig sem rit- stjóra árum saman til þess að út- breiða úlfúðina, óvináttuna, tor- trygnina, fjandskapinn milli stjettanna. Og er þá aðeins eftir að vita hvort forsætisráðherrann íslenski talar hjer gegn betri vitund, eins og maður sem enga ábyrgðartil- finningar hefir —- ellegar hann kemur þarna fram sem hinn star- blindi einfeldningur, sem hefir enga hugmynd haft um það, hvað hann var að gera meðan hann var ritstjóri, hefir alt frá því hann var á Hesti verið úti á þekju, hefir verið leiddur upp í ráðherra- stólinn eins og ósjálfbjarga, á- byrgðarlaus maður, ekki til þess að vilja neitt, vera neitt, eða gera neitt, heldur til þess eins að vera „núllið“ hans Jónasar frá Hriflu. lugo-Slauia - eða Serbia hin nýja. Hjer birtist uppdráttur af Jugo-Slaviu, og er gerð grein fyrir þAÓ hvað landsvæði Serba hefir stækkað síðastliðin ár. Svæðið með þjettu skástrikunum er Serbía hin forna, eins og hún var á updan Balkanófriðnum síðasta. Eftir þann ófrið fengu Serbar yfirráð yfir landsvæði því sem merkt er með gisnari smá- strikunum. — En svæðið innan- við feita strikið er núverandi landsvæði Jugo-Slaviu. Eru hin 6 nýju fylki eða hjeruð nafn greind, sem lögð voru undir Serba í ófriðarlokin; Montene- gro eða Svartfjallaland, Bosnia, Dalmatia, Króatia, Slovenia og Vojvodina. Deilan hefir undanfarið stað- ið um það, að Króatar og aðrir íbúar hinna nýju hjeraða, sem Serbakonungur hefir fengið um- ráð yfir, vilja að Jugo-Slavia verði sambandsríki í fernu lagi, Serbia hin forna í einu lagi með Vojvodina og hluta af Bosniu, Króatia, með Slavoniu og Dal- Bláar verkamanna- peysur með ýmsn verði nýkomnar f Anstnrstræti 1. Hsg. G. Bunnlaugsson S Go. Er flutiur nr Lækjargðtn 6 B. f Tjarnargötu 30, Magnús Th. S. Blöndahl. REYKJAVÍK. SÍMI 249. (2 linur) I heildsölu: Saltað dilkakjöt, Tðlg, Kæia, nýsoðin. Tryggið eigur yðar gegn eldi hjá The Eagle Star & British Ðominions Insnrance Co. Ltd. Aðalumboðsm. á Íslandi Garöar Gíslason, Reykjavík. Hótel Heklau í kvöld: manna „Jazz-baná“. Gömnl og ný danslög. Veitingasalnrinn skreyttnr. matiu og hluta af Bosniu, í þriðja lagi Slovenia og í fjórða lagi Montenegro. Serbarnir hafa sett sig upp á móti þessari skiftingu, hafa vilj- að safna öllu undir sinn hatt. Af þessu hafa risið óeirðir, mann- dráp og óregla hin mesta, uns konungur tók það ráð á dögun- um að reka þingið heim. Er mælt að Króatar m. a. hafi í upphafi verið fegnir þeirri þreytingu, hversu sem ánægja þeirra verð- ur langvinn.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.