Morgunblaðið - 16.03.1929, Síða 2
2
MORGUNBLAÐIÐ
)) & ÖLSEINl ((
■ ' ........ 'V' —■■■UI-JIP. III f
Hðfum til:
Ríó-kaffi,
Kaffibætir Ludvig Daviðs.
Shell-málið.
Dómnr Hæstarjettar.
Stjórn Shellfjelagsins var sýknuð af ákæru valdstjórn-
arinnar og málskostnaður greiðist af almannafje.
Ef þjer biðjið um
PERSIL, þá gætið
þess, að þjer fáið
PERSIL, því ekkert er
þess í gildi.
f gær kvað Hæstirjettur upp
dóm í hínu margumtalaða Shell-
máli. Eru málavextir þeir, er nú
skal greina:
Hinn 14. jan. 1028 var stofnað
hlutafjelagið h.f. Shell á fslandi
og tilkynt til hlutafjelagaskrárinn-
ar í Hafnarfirði 20. s. m., en heim-
ilisfang fjelagsins er að Skildinga-
nesi við Skerjafjörð. Tilkynningin
var undirrituð af stjórn fjelags-
ins, en hana skipa: Magnús Guð-
raundsson, hrm., Hallgrímur Tuli-
nius, stórkaupmaðnr, báðir til
heimilis í Reykjavík, og Björgólf-
ui Olafsson, læknir og óðalsbóndi
á Bessastöðum. í tilkynningunni
var sagt, að hlutafjeð væri alt
innborgað.
Á stofnfundi nefnds fjelags var
svo ákveðið, að hlutafjeð skyldi
vera 500 þús. kr. og innborgast
þegar í stað.
Þegar eftir að fjelag þetta var
■stofnað,, hófust svæsnar árásir á
það, og- stóð fyrir þeim dómsmála-
ráðherrann, Jónas Jónsson frá
Hriflu. Hann beindi aðallega árás-
um sínum gegn Magnúsi Guð-
mundssyni/enda sýmlegt frá upp-
hafi, að hjer var um pólitíska of-
sókn að ræða.
Dómsmálaráðherrann ljet sjer
ekki nægja að gera svæsna árás
í blöðum (Alþbl. og Tímanum) og
á Alþingi, heldur fyrirskipaði
hann rannsókn í nafni ákæruvalds
ins, og málshöfðun að rannsókn
lokinni.
Fyrst rannsakaði Hermann Jón-
asson, þáverandi fulltrúi bæjarfó-
geta, málið ntan rjettar. En síðan
var málið sent til lögreglustjóra,
með brjefi dómsmálaráðh., dags.
16. mars 1928. Var lögreglustjóra
fyrirskipað að framkvæma rann-
sókn, og að senda síðan málið til
bæjarfógeta. Ákæra dómsmálaráð-
herra var í því fólgin, að hluta-
fjeð hefði ekki verið innborgað,
þegar fjelagið var tilkynt til hlnta
fjelagaslcrárinnar, og fjelagið ]iví
ólöglega stofnað. Þá vildi dóms-
málaráðherra einnig halda fram,
að fjelagið nppfylti ekki skilyrði
íslenskra laga til atvinnurekstrar
hjer á landi.
Fór rannsókn fram, fyrst hjá
lögreg-Iustjóra og því næst hjá
bæjarfógeta. Og þann 4. júní 1928
kvjjð bæjarfógeti upp dóm í mál-
inu. Sýknaði hann stjórn Shell-
fjelagsins af ákæru valdstjórnar-
innar.
Þessum dómi áfrýjaði dóms-
málaráðherra til Hæstarjettar. Og
hann ljet ekki nægja áfrýjunina
eina, heldur sótti hann vin sinn
og samherja, Berg Jónsson, sýslu-
mann Barðstrendinga, og bað hann
að rannsaka málið betur.
Áð lokinni rannsókn Bergs kom
málið fyrir Hæstarjett og var dóm
ur upp kveðinn þar í gær. Leit
Hæstirjettur svo á, að framhalds-
rannsóknin hefði í eng'u hnekt
þeirri skýrslu stjórnar Shellfjelags
ins, að alt hlutafjeð hefði verið
innborgað 16. jan. 1928, eða 4 dög-
nm áður en fjelagið var tilkynt til
hlutafjelagaskrárinnar.
Staðfesti Hæstirjettur því dóm
undirrjettarins og sýknaði stjórn-
endur Shellfjelagsins af ákæru
valdstjórnarinnar, og ákvað að
málskostnaður skyldi greiðast af
almannafje.
Sækjandi málsins í Hæstarjetti
var Stefán Jóh. Stefánsson, hrm.,
en vei'jandi Jón Ásbjörnsson,
hrm.
Þar með er þetta frumhlaup
dómsmálaráðherrans úr sögunni.
Aðeins er eftir að fá vitneskju nm
það, hvaða kostnað ríkið liefir af
þessu haft. Sá kostnaður er áreið-
anlega ekkert smáræði. En þetta
verður sennilega hægt að upplýsa
síðar.
Kotnngskrónan.
Stýfingarfrumvarp er lagt fyrir Alþingi.
Flutningsmaður er Ásgeir Ásgeirsson og bak við hann
stendur Tryggvi Þórhallsson forsætisráðherra.
gjaldmælis
bifreiðar altaf
til leigu hjá
B. S. R. —
Hvergi ódýrari bæjarkeyrsla, en
hjá B. S. R. — — Studebaker
eru bfla bestir.
Ferðir til Vífilsstaða og Hafnar-
fjarðar alla daga á hverjum kl.-
tíma. Best að ferðast með Stnde-
baker drossíum.
Ferðír austur í Fljótshlíð þegar
veður og færð leyfir.
Afgreiðslusímar 715 og 716.
Bifreiðastöð ffeykjavíkur.
Austurstræti 24.
Jnrtapottar
allar stærðir.
Vald. Poulsen,
Klapparstíg 39. Slml 24.
Símnefni Katla.
Borðstofusett mín eru
smekklegust, ódýrust. Talið
við minr. einkasala á íslandi:
Verslunin Katla, Laugaveg
27, Sími 972.
SVEN ANDERSEN,
Stavanger, Norge.
Goiftrevlur.
Nýkomiö:
Fallegt urval af
vöndnðnm treyjnm.
MsmGhester.
Langeveg 40.
Sími 894.
Útbýtt hefir verið á Alþingi frv.
til myntlaga og er flm. Ásgeir Ás-
geirsson, þm. Vestur-ísfirðinga.
Frv. þetta fer fram á að breyta
peningalögum eða myntlögum
landsins á þann hátt, að stýfa
myntina. í núgildandi myntlögum
er ákveðið, að 248 tíukrónupening-
ar skuli fást úr einu kílógrammi af
skíru gulli. En samkv. frv. Ásg.
Ásg. og Tr. Þ. eiga að fást 303,7
tíukrónagullpeningar úr einu kíló-
grammi gulls. Krónan á að skift-
ast t eitt hundrað aura, eins og
nú. En nýja krónan verður sann-
nefnd kotungskróna, ef frv. Ásg.
og Tr. Þ. verður að lögum.
„Landsbankanum og íslands-
banka er skylt að innleysa seðla
]iá, er bankarnir hvor um sig hafa
gefið út, með gnlli, ef þess er kraf-
ist, þegar fjármálaráðuneytið á-
líveður, að fengnum tillögnm
bankaráðs Landsbankaiis,“ 3. gr.
„Innflutningur og útflutningnr
gulls er öllum frjáls,“ 5. gr.
Ríkisstjórnm lætur slá gullmvnt
og skal ákveða í reglugerð stærð
hennar, blöndunarhlutföll o. s. frv.
Þessi gullmynt skal vera löglegnr
gjaldeyrir með fullu ákvæðisverði.
Lög þessi eiga að öðlast þegar
gildi, og eru þá jafnframt úr gildi
numin peningalög landsins frá 23.
Fyrirlestur með skugga.
myndum nm
Borgina týndn
í Andesfjöllum og menningu
og sögu Inkanna, heldur
Ólafnr Friðriksson
í Varðarhúsinu sunnudaginn
17. mars kl. 8x/2- — Aðgöngu-
miðar í Hljóðfærahúsinu,
(sími 656), og hjá Arinbirni
hóksala (sími 74) á 1,00
(50 aura gegn afsláttarmiðá
úr Reykvíking).
Marzinpan
Og
Snkknlaði
frá 020—25.00.
Lítið í gluggana.
Hangikjöt
og
nýtt nautakjðt.
SMJÖR, EGG til suðu og
bökunar. OSTAR og fleira
á kvöldborðið.
Ávalt fyrirliggjandi.
Matarbnð
Siátnrfjelagsins,
Laugaveg 42. — Sími 812.
Stoppugarn
úr
nll og isgarni
nýkomið.
Allir Iitir.
Vöruhúsið.
maí 1873 og I. nr. 9, 27. júní 1925,
um framlenging á gildi laga nr.
48, 4. júní 1924, um gengisskrán-
ing og gjaldeyrisverslun.
Frv. fylgir ítarleg greinargerð,
OV þeir Ásg. Ásg. og Tr. Þ. hafa
samið. Ennfremur fylgir álitsskjal
frá N. Rygg banlcastjóra Noregs-
banka, Ad. av. Jochnick, forseta
hankast.jórnár sænska ríkisbank-
ans og umsögn próf. G. Cassel, um
gengismál íslands.
Kotungskrónu-fr'umvarp þetta
og álitsslcjö) hinna erlendu sjer-
fræðinga verður athugað síðar
hjer í blaðinu.