Morgunblaðið - 02.05.1929, Side 4

Morgunblaðið - 02.05.1929, Side 4
4 M 0 R G U N B L A Ð I Ð Sement' Þakjárn. Þakpappi margar teg. Flókapappi (gölfpappi undir dúka). Heildv. Garðars Gíslasonar Útsprungmr nellikkur og blómstr- andi blóm í pottum, mikið og s’ún- andi fallegt úrval, nýkomið á Amt- mannsstíg 5. Ýmsar útiplöntur; begóníur og kaktusar í pottum, fást í Hellu- sundi 6. Athugið! Peysufatasilkið f rá 12.50 meterinn. Upphlutasilki frá 6.40 í upphlutinn. Verslun Guðbjargar Bergþórs- dóttur, Laugavegi 11. Sími 1199. Fegurstir Túlipanar fást á Vest- Mgötu 19. Sími 19. S í m i 3 3 2. Munið Hamborg, Laugaveg 45, ef þjer þurfið að fá búsáhöld, Leirvörur, Jurtapotta, galv. vörur o. fl. í Bankastræti 6, IL hæð. Sumar- kjólar: Muselin, Shantung, Ull og Silki. Hitamestu steamkolin ávalt fyrirliggjandi í kolaverslun Ólafs Ólafssonar Sími 596. Nýkomnar gardínustengur gylt- ar og brúnar, Rammalistar, ínn, rammanir ódýrastar í Bröttugötu 5. Sími 199. Ljósu dömukápurnar komnar S. lóhannesdóttir Auatupstrati 14. (Beint 4 móti L&ndibiakuuM} Simi Í887. Framvegis tek jeg á móti sjúklingum (á sama stað og áður) milli klukkan V/z og 2 «/2. Katrin Thoroddsen. Sumarkjólaefni (Mnselin o. fl.) nýkomið í fjölbreyttn j nrvali. Verslun Egill lacobsen. Gnlstad hnsmæðra- heimavistarskðli Nesodden pr. Oslo, tekur á móti nemendum; mat- reiðslu-, handavinnu- og mála- kensla. Heilnæmur og góður stað- ur fyrir stúlkur. 90 krónur á mán- uði. Nánari upplýsingar gefnar. (H. 0.) AUskonar • GirlirhiEM. Vald. Poulsen, Sfmi 24. Klapparsttg 29. 60 hestaila nýr eða notaður steinolíumótor óskast keyptur. Þarf að afhendast síðast í maí. Upplýsingar í síma 2370. PJetnr Jðnsson. Eins og mönnum er kunnugt, hefir Pjetur Jónsson síðustu.4 ár- in verið aðalsöngvari óperunnar í Bremen, en þess utan hefir hann, þegar tími gafst til, sungið sem gestur við ýms söngleikhús í Þýskalandi og nálægum löndum og þá t. d. nýlega í Rotterdam, er hann söng lilutverk Sigmundar í Valkyrjunni eftir Wagner. Lofa blöðin Pjetur' mjög fyrir meðferð hans á hlutverkinu, hljómfegurð raddarinnar og góðan leik, og eitt blaðið bætir við, að sjaldan eða aldrei hafi þeir í Hollandi heyrt hlutverk þetta sungið með álíka styrk og hljómfegurð. í Hamborg hefir Pjetur oft sung ið í vetur, t. d. Othello, Tann- hauser og Radames í „Aida“, og ávalt fengið mikið lof fyrir. Og af þeim erfiðari hlutverkum, er hann hefir sungið í Bremen í vetur, má sjerstaklega geta Tristans, er hann nýlega söng með bestu Wagner- söngkonu Þýskalands, Eugenie Burkhardt, sem Isolde. Segir gagn- rýnandinn dr. Kurt Zimmermann, að þótt þeir hafi oft í Bremen heyrt Tristan vel sunginn, þá skari Pjetnr langt fram úr fyrirrennur- um sínum í þessu hlutverki. Hljóm ur. innileiki og styrkur raddarinn- ar inrðist, enn altaf vera að auk- ast, og njóti það sín ekki síst í Tristan. Þetta afarerfiða hlutverk sje bæði líkamlega og andlega. (physisch wie psvchisch) eitt af hans allra hestu. og endar með að segja, að betri Tristan leikur sjáfst elcki í Bavruth. Berlín, Munchen nje Dresdeni Dagbðk. Veðrið (í gær kl. 5): SA og S- kaldi með 6—9 stiga liita á S- landi og Faxaflóa, en annars NA og A átt með 3—4 stiga hita um alt land. Smáskúrir á SV-landi og þokusúld á N-landi, en dálítil snjó- koma í Stykkishólmi. Grunn lægð yfir Faxaflóa og fvrir snðaustan land, en háþrýsti- svæði norður unclan. Lítur út fyr- ir að veður haldist fremur stilt með þykkviðri og lítils háttar úr- komu næstu tvö dægur. Á hafinu milli Islands og Skot- lands er NA-gola og bjart veður. Veðurútlit í dag: Breytileg átt og fremur hæg. Skúrir. Wagnerkonsert F. v. Reuters í lcvöld hefir að bjóða kafla úr ,Hol- lendingnum fljúgandi, Tannháuser, Lohengrin, Parsival og hinum frægu „Niflungaljóðum“, sem ís- lenskar bókmentir hafa að nokkru leyti geymt heimildirnar að. Þessi klaverleikur v. Reuters er alveg sjerstakur í sinni röð. Þar er eig- inlega farið út fyrir takmörk venjulegs klaverleiks og reynt að ná formi og áhrifum orkestur- liljóma. h. Gullbrúðkaup eiga á morgun 3. maí Guðrún Pjetursdóttir og Jón Pálsson, Fljótstungu í Hvítársíðu í Borgarfirði. Stauning-stjómin tók við völd- um í fyrradag. (Sendiherrafrjett). Flug Svíanna í sumar. Lands- stjórnin hjer hefir fengið tilmæli um það frá sænsku stjórninni, að hún greiddi götu sænsku flug- mannanna, sem hingað eru vænt- anlegir í sumar. P. Reumert, hinn danski leikari, er væntanlegur hingað til Reykja- víkur þann 9. júní. Leiksýningar hans munu eiga að hyrja næstu daga á eftir. Óþrifnaður mikill er í kringum safnahús Einars Jónssonar, svo að- komumenn, sem koma til að skoða safnið, hneykslast á. Hefir maður einn aðkomandi óskað eftir því, að Morgunblaðið vekti máls á að þörf væri á að þrífa til þar í holt- inu, og væri vel ef það drægist ekki langt fram á sumar. Bæjarstjómarfundur er í dag. Fjórtán mál á dagskrá. Togararnir. Þessir togarar eru nýkomnir með afla: Max Pember- ton 72 tunnur. Njörður 50 trnrnur. Barðinn 110 tunnur. Aukaskip Eimskipafjelagsins, Union, kom í gær frá Hull. Áttaviltur sósíalisti. Einn af só- síalistum bæjarins hringdi til Morgunblaðsins í gær og spurði hvort eigi fengist keypt á áf- greiðslu blaðsins rauða ,holsaslauf- an‘, er seld var hjer í gær, á Jón- asar-afmælinu. Mun manninum hafa þótt fremur lítið bera á að bæjarbúar sæktust eftir að bera hið rauða merki.Það frjettist í gær að hugulsamur náungi hefði sent Hriflu-Jónasi slaufu eina, með til- mælum um að hann bæri hana ut- «n á sjer hæði í gær og endranær. En til þess brestur J. J. kjark, sem kunnugt er og heilindi að sýna sinn rjetta lit. Heimdællur heldur síðasta fund sinn á þessu vori á laugardaginn kemur í Hótel Skjaldbreið. Býður hann þangað þingmönnum íhalds- flokksins til kaffidrykkju, skrafs og ráðagerða. Um Raspútín hjelt Ólafur Frið- riksson fyrirlestur á sunnudaginn var í Nýja Bíó. Endurtekur hann fyrirlestur sinn á sunnudaginn kemur á sama stað. Árbók Fomleifafjelagsins fvrir árið 1928 kemur xít næstu daga. Er hún í þetta sinn tileinkuð minningu tveggja fyrstu formanna fjelagsins, sem háðir voru fæddir árið 1828. Voru það þeir Árni Thorsteinsson landfógeti og Sig. Vigfússon fornfræðingur. Mikil verðlækkun. Það sem enn er óselt af HROSSA: Saltkjöti. Bjúgum. Rúllupylsum. Hangikjöti. verður selt næstu daga, með 25-30 afslætti. Jónasar-fagmaðurinn í gær. Sam- koman á Austurvelli var fremur fámenn, og er alveg áreiðanlegt, að mikill meirihluti þess fólks sem þar var samankomið kom þangað fyrir forvitnissakir, en eklci af fvlgi við sósíalistabroddanna, sem þar töluðu — eða til þess að minn- ast. afmælis Hriflu-Jónasar. Tals- vert var þar af börnum og ung- lingum, og voru flest leturspjöld in sem þar var haldið á lofti í höndum drengja innan við ferm- ingu. Minsti merkisberinn var á að giska 6 ára, í svuntu-buxum bláum. Á hans spjaldi stóð: „Eng- inn rjettindamissir vegna fátækt- ar“. Rjett hjá var merkið „Lifi heimsbyltingin :: í liöndum stálp- aðri ríkisborgara. Allmargt fólk stóð utan við völlinn svo langt frá. að það heyrði ekki til ræðu- manna, enda erindi þess aðeins áð sjá ytra form þessa einkennilega afmælisfagnaðar. Ræðustóll var reistur á vellinum og utan við hann blöktu rauðar ^mádruslur. — Rauða slaufan „maí-merkið“ sást á fremur fáum, nema á sósíalista- broddunum sjálfum. Sigurður Jón- asson sást ekki. Sat hann að snæð- ingi í Hótel Island og var ekki sjerlega „seriös“. — Frá síðari þætti afmælisfagnaðarins í Iðnó hefir Morgunblaðið engar fregnir. Að því loknu verður búin gerð að algengri kjötverslun með kinda- kjöt o. 8. frv. Hrossadeildin Njálsgötu 23. Sími 2349. Útsæðis- Kartfiilnr nýkomuar. TlffiMNÐI Langaveg 63. — Sfmi 2393. Nýkomið: Mavonnaise í Salöt. í lausri vigt. Hallgrímur Tulinius stórkaup- maður er nýlcominn heim úr löngu ferðalagi, I fylgd með honum var Jón Lárusson kaupmaður. Fóru þeir á norsku skemtiskipi um Mið- jarðarliaf, er lagði frá landi í Monaco og hjelt meðfram norður- ströndinni, alt til Miklagarðs, það- an suður til Egyptalands (Cairo) Tunis, og aftur til Monaco. Voru 29 daga í þeirri ferð. Láta þeir m^ög vel af ferð þessari. — Suður í Tyrklandi voru alveg óvenjulegir kuldar, snjór niður í sjó, í mars. Og enn gerði þar fannkomu í apríl. Fara eigi Sögur af, að þar hafi fyr hríðað í aprílmánuði. Línuveiðarinn Grímsey kom ný- lega með 191 skippund fiskjar (vigtað upp úr skipi) til Hafnar- fjarðar, eftir fjóra daga. Mun það einsdæmi að slíkur afli hafi feng- ist eftir fjórar legur. Fyrir bakara: '/, sigtimjðl, do. Rykok, V* sigtimjöl, rúgmjöl, tlorsyknr, marmelade, eldi. steinn og leir iyrirliggjandi. G. Behrens. Bamavinafjelagið „Sumargjöf“ hefir sótt um það til bæjarstjórn- arinnar að fá land undir barna- hæli. Mun eigi veita af einum hektara. Má staðurinn ekki vera langt út úr bænum. Eftir síðustu fjársöfnun á sumardaginn fyrsta á fjelagið nál. 20 þúsund krónur í sjóði. Zieten, hið þýska eftirlitsskip, er komið hingað aftur úr Vest- mannaeyja ferð sinni. Skipið fór þangað eftir beiðni bæjarfógetans í Vestmannaeyjum, og skipstjór- ans á þýska togaranum „Island“, til þess að gefa yfirmönnum tælci- færi að vera viðstaddir prófin í máli skipstjórans. En mælingar gerði Zieten ekki, enda ekki til þess ætlast, Þessar upplýsingar hefir Mbl. frá þýska konsúlatinu hjer. Morgunblaðið er 6 síður í dag. Sími 21. Barnarúmstæðil (ómálnð) nýkomin Uöruhúsið.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.