Morgunblaðið - 19.06.1929, Síða 3
MOEGUNBLAÐIÐ
8
2Horðunblaí)ií>
f
Stofnandi: Vilh. Plnsen.
OtKefandi: Fjelag í Reykjavlk.
Rltstjðrar: Jðn Kjartansson.
Valtýr Stefánsson.
AuBlýsingastjðri: E. Hafberg.
Skrifstofa Austurstræti 8.
' Slml nr. 600.
Auglýsingaskrifstofa nr. 700.
Heimaslmar:
Jðn Kjartansson nr. 742.
Valtýr Stefánsson nr. 1220.
E. Hafberg nr. 770.
Aakriftagjald:
Innanlands kr. 2.0Ö á mánuOi.
ITtanlands kr. 2.60 - ----
I lausasölu .10 aura eintakiö.
Erlendar sfmfragnir.
Khöfn, FB. 18. júní.
Flugslys í Ermarsundi.
Frá London er símað: Bresk far-
þegaflugvjel hefir steypst niður í
Ermarsund utan við Dungeness (í
Kent, 10 mílur í suðaustur af
Rye). Ellefu farþegar voru í flug-
vjelinni, sem var á leiðinni frá
London til París. Sjö farþeganna
■druknuðu, en fjórir farþegar, stýri
maðurinn og vjelstjórinn komust
af. Flugmennirnir meiddust.
Eldgos í Japan.
Frá Tokio er símað: Eldf jallið
Komagetake gýs. Hraunstraumar
hafa gereyðilegt tvö sveitaþorp;
þar að auki er eitt sveitaþorp að
mokkru leyti eyðilagt.
Khöfn, 18. júní FB.
Briand gefur þjóðabandalaginu
skýrslu um hermál Austurríkis.
Frá Genf er símað: Briand, ut-
anríkisráðherra Frakklands, hefir
sent þjóðabandalaginu skýrslu her-
málanefndar Bandamanna um her-
mál Austurríkis. Kveðst nefndin
vera sannfærð um, að Austurríki
hafi ekki algerlega afvopnað sig.
J?annig sje um hnútana búið, að
með litlum fyrirvara sje hægt að
hefja skotfæraframleiðslu í verk-
smiðjum landsins, einkafjelög æfi
menn til herþjónustu, og geti Aust-
-urríki þess vegna á skömmum
tíma haft 200 þúsund æfða menn
undir vopnúm og framleitt handa
þeim skotfæri. Austurríki hafi
þannig hernaðarlega þýðingu, ef
•ófriður brjótist lit.
Mac Donald
„hefir tungur tvær“.
Frá London er símað til Ritzau-
frjettastofunnar, að Sunday Times
hafi í fyrradag birt grein eftir
Ramsay MacDonald. Fjallar grein-
án um kjör þjóðernislegra minni-
hluta víðsvegar í Evrópu. Meðal
^nnars segir MaeDonald, að ítalir
Ikúgi austurríkslr og slafnesk þjóð-
:arbrot í þeim tilgangi að gera þau
atölsk. Greinin hefir vakið mikla
gremju í ítalíu.
iReuter hefir tilkvnt, að MaeDon-
áld hafi skrifað greinina fyrir
nokkrum mánuðum og ekki ætlast
jtil, að hún væri birt. nú.
Jarðskjálftar í New Zealand.
Frá Wellington er símað: Mikl-
'ír jarðskjálftar í New Zealand,
■einkanlega í bænum Nelson, í sam-
•nefndu hjeraði, og Westport. —
Mörg hús hafa hrunið og noltkrir
menn farist.
Knattspynmmót tslands.
Annar kappleikur mótsins í kvöld.
Knattspyrnufjelag Vestmanneyja og Valur keppa.
Knattspyrnuflokkur Vestmanneyja. Talið frá vinstri. Fremri
röð: Þorgeir Frímannsson (miðfra mvörður), Jón Stefánsson (fram-
vörður h.), Georg Gíslason (bakvörður v.), Ásmundur Steinsson
(markvörður), Jón Ólafsson (miðframherji), Haukur Björnsson
(framherji h.), Filippus Árnason (varam.). Aftari röð: Jóhannes
Gíslason (varaframh.), Þórarinn Guðmundsson (útframherji h.), Guð-
laugur Gíslason (bakvörður h.), Árni M. Jónsson (innframherji v.),
Friðrik Jesson (útframlierji v.), Frimann Helgason (varam.).
í kvöld klukkan 8 fer frarn ann-
ar kappleikur íslandsmótsins.
Keppa þá Vestmanneyingar og
Valur. — Vestmanneyingar voru
fyrstu utanbæjarmenn, sem sótt
háfa íslandsmótið. Komu þeir
hingað 1912 og sýndu þá mikinn
dugnað. Meðal keppenda þeirra
þá var Georg Gíslason kaupmaður
og er liann nú einnig með þeim
á þessu móti. Þá kannast Reykvík-
ingar vel við Friðrik Jesson, sem
einnig keppir. Auk þess eru nokkr-
ir aðrir Vestmanneyingar, sem
kept hafa hjer áður.
Enginn efi er á því að kappleik-
urinn í kvöld verður fjörugur, því
bæði þessi fjelög, Vestmanneying-
ar og Valur hafa mörgum og góð-
um knattspyrnumönnum á að
skipa.
Fundirnir
í Vestur-Skaftafellssýslu.
Fundurinn á Kirkjubæjar-
klaustri var allfjölsóttur. Voru
þar um 130 manns. En engir tóku
þar til máls aðrir en þingmaður-
inn og Magnús Torfason, sem
sendur var honuni til aðstoðar,
og svo fulltrúar Sjálfstæðismanna,
ritstjórarnir Jón Kjartansson og
Árni Jónsson. Stóð fvmdurinn í 5
klukltustundir og gerðu þeir Jón
og Árni harða hríð að Framsókn-
armönnum, en lítið varð um varn-
ir lijá þeim Lárusi og Magnúsi.
Á mánudaginn var fundur hald-
inn í Vík í Mýrdal. Hófst liann
klukkan eitt miðdegis og stóð í
10 stundir. Var fundurinn vel sótt-
ur, um 300 inanns þegar flest var.
Til liðs við þá Magnús og Lárus
voru komnir Jón Baldvinsson og
Nikulás Friðriksson hjeðan úr
Reykjavík. Frá Vestmannaeyjum
kom Jóhann JóSefsson #alþingis-
, maður. Allir þessir, auk hinna
fjögurra, sem áður eru nefndir,
tóku til máls á fundinum, og
ennfremur fjórir innanhjeraðs-
menn: Þorlákur Björnsson í Eyj-
arhólum og Eyjólfur lireppstjóri á
Hvoli með sjálfstæðismönnum,
Magnús í Reynistað og Gísli Þór-
arinsson á, Ketilsstöðum með Fram
sóknarmönnum. — Urðu umræður
hinar fjörugustu og var mikil sókn
af hálfu Sjálfstæðismanna og báru
þeir greinilegan sigur af hólmi.
í dag á að verða fundur á Sauð-
húsvöllum, og þangað kemur Jón
Ólafsson alþingismaður.
Kappleiknrmn
í gærkveldi.
Víkingur sigrar með 3:0.
Fvrsti kappleikur Knattspyrnu-
móts Islands var í gærkvöldi. —
Hann hófst með því, að knatt-
spyrnumennirnir úr fjelögunum 6
gengu í skrúðfylkingu inn á völl-
inn. Bauð forseti í. S. 1. og for-
maður Knattspyrnuráðs Reykja-
víkur aðkomuflokkana velkomna
til mótsins, en mannfjöldinn fagn-
aði þeim með ferföldu húrra og
lófataki.
Svo hófst kappleikur milli Ak-
ureyringa og Víkinga og lauk hon-
um svo, að Víkingar sigruðu með
3:0. Leilturinn var ekki fjörugur
og lítið um samleik á báða bóga,
þó fremur samleikur hjá Víking-
um. Akureyringar eru meiri við-
vaningar og þótt sumir menn
þeirra Ijeki prýðilega, kom það
eltki að notum, vegna samtaka-
leysis og háði þeim það mjög, hve
óskipulegt lið þeirra var á vellin-
um, bæði í sókn og vörn. Víking-
ar ljeku of hranalega í fyrri hálf-
leik, en betur í þeim seinni. Altof
mikið var af stóru spörkunum á
báða bóga.
Dómari var Sigurður Halldórs-
son úr K. R. og gegndi hann því
starfi með röggsemi, aðgætni og
samviskusemi.
f skýrslu mn farsóttir og mann-
dauða í Reykjavík, þeirri er prent-
uð var í blaðinu í gær, stóðu 13
mannslát, en áttu að vera 3.
Dagbók.
Veðrið (í gærkv. kl. 5): Lægðin,
sem var fyrir sunnan og suðaustan
fsland í morgun, hefir færst dá-
lít-ið norður eftir en fer jafnframt
minkandi. Veldur hún S- og SV-átt
með skúrum sunnan lands en á
Breiðafirði og öllu N-landi er NA-
kaldi og sumst. þoka í útsveitum.
Hiti er 10—11 st. syðra, en 7—8
st. fyrir norðan og austan.
Fyrir vestan land og norðan er
loftþrýsting allliá og virðast mikl-
ar líkur fyrir N-átt og yfirleitt
þurviðri næstu tvo daga á S-landi.
Veðurútlit í Rvík í dag: Senni-
lega N-kaldi og þurt veður. (Þó
hætt við sltúraleiðingum í nær-
sveitunum).
Á Hólavelli verður í dag skemt
un, sem engan mun iðra að sækja.
Kl. 4 bvrjar hljóðfærasláttur til
að safna fólkinu saman. Á þá hlið
túnsins, sem snýr í austur, eru
gerð tvö hlið, og er inngangur að
skemtisvæðinu um þau. Syðra hlið-
ið liggur vel við fyrir þá, sem
koma Suðurgötuna og Kirkjugarðs
stíginn, en að því .nyrðra er bein-
ust leið um Túngötu og fyrir-
hugað Garðastræti. Hátíðin hefst
með því að formaður Landspítala-
sjóðsstjórnarinnar, Ingibjörg H.
Bjarnason, flytur ræðu, síðan er
hljóðfærasláttur og þar næst talar
frvi Aðalbjörg Sigurðardóttir. Einn
ræðumaður er enn ónefndur, en
það er Guðmundur Kamban rit-
höfundur. Auk þess sýna nokkrir
fræknir glímumenn list sína. Svo
kemur dansinn, og allan tímann
verður þarna nóg á boðstólum af
allskonar ágætum veitingum.
Ungar stúlkur, sem selja /ilja
Landsspítalamerkið, eru beðnar að
koma í Báruna helst fyrir hádegi
í dag.
Á hlutaveltu Landspítalasjóðsins
í Bárunni (er hefst kl. 5) er fjöldi
ágætra. hluta, er fást við litlu
verði, t. d. far til útlanda (Dan-
merkur, Englands eða Þýskalands
eftir vali þess, sem hlýtur), legu-
bekkur, matarstell, kol, steinolía
og margt annara góðra muna,
smárra og stórra.
Landsmálafundir. Með Suður-
landinu, sem fór hjeðan í gær-
morgun, fór Magnús Guðmunds-
son fyrv. ráðherra til þess að vera
á landsmálafundunum fyrir norð-
an. Mun hann hafa haldið áfram
með bíl frá Borgarnesi í gær. En
í gærkvöldi lögðu þeir á stað í
sömu erindagerðum samherjarnir
Jónas dómsmálaráðherra og Har-
aldur Guðmundsson ritstjóri.Þeir
tóku „Þór“ til þess að flytja sig
til Borgarness, því að nú þykist
Jónas eiga strandvarnaskipin, eins
og kunnugt er, og hefir þau í
snattl eins og honum sýnist. Munu
þeir Jónas og Haraldur hafa haft
með sjer um borð einn af stjórnaí-
ráðsbílunum og ætla að fara á
honum norður í land. — Ólafur
Thors ætlaði að fara norður með
Suðurlandinu í gær, og vera á
fundunum nyrðra, en hann gat
ekki farið vegna deilu, sem ris-
ið hefir milli Sjómannafjelagsins
og Fjelags íslenskra botnvörpu-
skipaeigenda út af skilningi á
samningum þeim, sem gerðir voru
í vetur. Málið hefir verið lagt í
gerð og kaus útgerðarmannafje-
lagið Ólaf Thors fýrir sína hönd,
en Sjómannafjelagið Stefán Jóh.
Stefánsson lögfræðing. Hafa þeir
komið sjer saman um Sigurð Þórð-
arson, fyrv. sýslumann, sem odda-
mann, og er búist, við, að úrskurð-
ur verði kveðinn upp í dag af
gerðarmönnum. Mun þá Ólafur
Ferð
anstnr i
Þrastaskog og Grímsnes
frá BIFRÖST kl. 1 í dag.
NOKKUR SÆTI LAUS
Sími 1529 og 2292.
Kartöflur
í sekkjum á 7,50.
Versl. Merknr,
Grettisgötu 1. Sími 2098.
Uppboð.
Opinbert uppboð verður
haldið í Bárunni fimtudag-
inn 20. þ. m. kl. 1 e. h., og
og verða þar seld borðstofu-
húsgögn, borðstofuborð og
stólar (úr eik), klæðaskáp-
ur með spegli og allskonar
húsgögn, píanó, fatnaður,
bækur, vefnaðarvörur o. fl.
Lögmaðurinn í Reykjavík,
19. júní 1929.
•
* Björn Þórðarson.
Vetrarvinna.
Tilboð óskast i að
reisa steinsteypuhús,
sem á að verða full-
gert í ápríl næstk.
Vit|a má uppl, og
uppdrátta til
Guttorms Hndriessonar.
Laufásveg 67.
stöika
sem hefir verslunarskólapróf
og hefir starfað lengi við
verslun, óskar eftir atvinnu.
Tilboð merkt „21“ óskast
send A. S. I. fyrir 25. þ. m.
af vel verkuðu
Dilbakjöti
verða seldar næstu daga
með lækkuðu verði.
Slátnrljelag
Snðnrlands.
Sími 249.