Morgunblaðið - 11.08.1929, Síða 4
4
MOKGU NBLAÐIÐ
Huglýsingadegbók
■j Viðskiíti ►
Begoniur o. fl. í pottur, ýms af-
skorin blóm, selt í Hellusundi 6,
sími 230. Sent heim.
Falleg garðblóm til sölu í Mið-
stræti 6. Sími 851.
<
Vinna.
Senðisveinn, röskur og á-
byggilegur, óskast strax. — B.
Benónýsson, Fiskbúðin í Kola-
sundi.
Stúlka, vel fær í skrift og
reikningi, óskast nú þegar. —
B. Benonýsson, Fiskbúðin í Kola-
sundi.
<
Tapað. — Fundið.
>
Ungur köttur, flekkóttur, blá-
grár og hvítur, tapaðist nýlega.—
Skilist á Óðinsgötu 32 B.
Munið að allnr
Snmar-
krenfatnaður
selst nn með atar-
miklnm afslætti.
Verslun
Egill lacobsen.
Mnnið A. S. I.
99
Kodab
u
Ijósmyndavörur eru bað sem við er miðað um allan heirn.
99
Velox
ii
99
ið
Fyrsti gasljósapappírinn.
Aftan á hverju blaði er naín-
„Velox“. Hver einasta örk er
Koðak“ filma
Fyrsta spólufilman.
reynd til hlítar í Kodak-verk-
smiðjunum.
í þremur gerðum, eftir því
sem á við um gagnsæi frum-
plötunnar (negatívplötunnar).
Um hverja einustu spólu er
þannig búið í lokuðum umbúð-
um, að hún þoli loftslag hita-
beltisins.
Biðjið um Kodakfilmu, í gulri
pappaöskju. Það er filman, sem
þjer getið treyst á.
Þjer getið reitt yður á Kodakvörur.
Orðstírinn, reynslan og bestu efnasmiðjur heims-
ins, þær er búa til Ijósmyndavirur, eru trygging fyr-
ir því. Miljónasægurinn, sem notað hefir þær, ber vitni
um gæði þeirra.
' Kodak Limited, Kingsway, London England.
,Drabbari‘
saga um stríð, ást og
œttahatur eftir Rafael
Sabatini þurfa allir að
lesa. Fœst I bókaversl.
sendar kartöfíur, sem uppskornar
voru 10. ágúst, en sáð til þeirra
4. apríl. Eru þær frá Litlu-Hlíð í
Bogamýri. Þessar kartöflur hafa
einnig verið til sýnis í glugga
Mgbl.., og hafa allir undrast hve
stórar þær eru og þroskaðar á þess
um tíma árs. En með öðru fleira
eru þessar kartöflur talandi tákn
þeirrar árgæsku, sem verið hefir
4 íslandi að undanförnu.
10 ára afmælis þýska lýðveldis-
ins verður minst í dag með því, að
v. Ungelter, aðalræðismaður Þjóð-
vcrja, býður þýskum ríkisborgur-
um til veislu í konsulatinu um
hádegi.
Karlakór Reykjavíkur söng í
Nýja Bíó á fimtudagskvöld. Voru
mörg vinsælustu Iög flokksins á
efnisskrá, enda var söngum tekið
ágætlega og aðsókn sæmileg. Flokk
ur þessi fór norður um land fj'rir
skömmu og Ijet til sín hevra á
ýmsum stöðum, eins og skýrt hefir
verið frá áður. Þóttu þeir fjelagar
hvarvetna mestu aufúsugestir.
Væri vel, ef framhalcl gæti orðið
á slíkum söngferðalögmn. Þrír
einsöngvarar ljetu þarna til sín
hejrra. Fyrst söng Erling Olafs-
son, — hljómfagur bariton — Naar
Fjorclene blaaner. Var honum tek-
ið vel. í síðara hluta söngsius
sungu þeir Daníel Þotkelsson og
Stefán Guðmundsson. Daníel söng
„Quinnans lof“, eftir Neithardt og
þótti takast með afbíigðnm vel.
Hann hefir afar-skæra tenórrödd.
Stefán Guðmundsson söng rúss-
neskt þjóðlag „Klultkan“, með
undirsöng kórsins. Um Stefán þarf
ekki að fjölyrða, þar eð aílir Reyk-
víkingar munu kannast við hann.
Kórið hlaut óspart lof áheyrenda,
encla tókst söjigurinn ágætlega.
Frá höfninni. Karlsefni kom af
veiðum í gær og fór rjett á eftir
af stað til Englands, hafði 400 ks.
ísfiskjar. Fisktökuskipin Stat og
Carmen fóru í fyrradag. M.b Skaft.
fellingur kom í íyrradag að vestan.
Meteor. Nokkur hluti skipshafn-
arinnar af þýska mælingarskipinu
Meteor fór í gær austur að Grýtu.
Stóðu þeir við lengi og gaus hver-
inn tvisvar. Skipsmenn skemtu sjer
hið besta þar austur frá.
Hjúskapur. Fyrir skömmu voru
gefin saman í hjónaband að Stað
á Reykjanesi ungfrú _ -Tónasína
Hallgrímsdóttir frá Akureyri og
Arni Þorvaldsson, kennari við
gagnfræðaskólann á Akureyri.
Síra Jón Þorvaldsson á Stað, bróð-
ir brúðgumans, framkvæmdi hjóna
vígsluna.
Flugið tiJ Vestmannaeyja fórst
fyrir í gær, sökum veðurs. Flug-
vjelin fór til ísafjarðar með póst
og farþega. f dag verður farið til
Akraness og Yestmannaeyja, ef
veður leyfir. Seinna í dag verður
þá hringflug.
Dánarfregn. Látinn er á Húsa-
vík Jón Sigurðsson, forstjóri spari-
sjóðsins um margra ára skeið, há-
aldraður sæmdarmaður. (FB.).
Saga Akureyrar. Klemens Jóns-
son fyrv. ráðherra hefir afhent
bæjarstjórn Akureyrar handrit að
sögu bæjarins. Ætlast er til að
sagan komi út í vor. (FB.).
Dómur var upp kveðinn í Vest-
mannaeyjum í gær í máli skip-
stjórans á enska tógaranum „Spi-
cler“ og hlaut hann 13 þús. kr.
sekt og afli og veiðarfæri gert
upptækt. Skipstjóri áfrýjaði dómii
um.
0
Þjóðhátíð Vestmannaeyja átti að
byrja í gær, en þar sem veður var
ekki gott, var henni frestað til
næsta góðviðrisdags.
Tunnulaust á fsafirði. Sú fregn
barst frá ísafirði í gær, að þar
væri tunnulaust, en mikil síld. T.
d. fór nýlega einn bátur út í
Djúpið og fylti sig þrisvar á rúiíi-
um sólarhring. Mikið af síldinni
fór í ísliús, en hitt var ónýtt, því
einkasalan liefir engar tnnnur á
ísafirði. Er almenn óánægja vestra
yfir ráðleysi einkasölunnar; en
þingmaður ísfirðinga hjer í bæn-
um er harðánægður!
Alþingishátíðin og ísfirðingar.
Eins og kunnugt er hafði bæjar-
stjórn fsafjarðar samþ. að taka
engan þátt í alþingishátíðinni að
ári. En í fyrrakvöld boðnðu nokkr-
ir menn á ísafirði til .fundar til
þess að ræða þetta mál, og var
þar samþ. að kjósa 5 manna nefnd
til þess að hafa forgöngu í þessu
máli. í nefudina voru kosnir: Sig-
urður Kristjánsson ritstj., Guð-
mundur Jónsson frá Mosdal, Jónas
Tómasson bóksali, Elías Halldórs-
son bankagjaldkeri og Jón A. Jóns
son alþin. Var fundurinn eindregið
með því, að ísfirðingar taki þátt
i hátíðinni.
Gistihús er í smíðum á Akureyri.
Rfuii það lieita „Goðafoss“ og mun
teldð til notkunar næsta sumar.
(FB.).
fsland er væntanleg í kVöld að
norðan.
Brúarfoss fór frá Leitli í gær
áleiðis til Kaupmannahafnar.
Fiskbirgðirnar. í skýrslu Gengis-
néfndar í blaðinu í fyrradag, eru
fiskbirgðirnar taldar 296.483 en
eiga að vera 196.483 þur skippund.
Glímuflokkur Ármanns (Þýska-
landsfararnir) fóru í gærkvöldi
austur í sveitir og ætla að sýna
fimleika og glímu í dag að Hauka
dal. Með þeirn fór Ben. G. Waage
forseti í. S. í. Var búist við að
svna úti, en ekki í íþróttaskólan-
mn, vegna ]iess livað biiist var við
niörgu fólki. — íþróttamennirnir
ætluðu um leið að skreppa til Gull-
foss, en búast við að koma heim
aftur í kvÖld.
Goðafoss fór hjeðan í fyrrinótt
til Hull og Hamborgar, fullfermd-
ur ísl. afurðum, sem var þetta:
2500 bl. ull, 400 'smálestir síldar-
mjöl, 300 tunnur síld, 55 smál.
fiskur. Farþegar til útlanda voru
33.
Sæluhúsið á Skeiðarársandi.
Lanclsímastjóra barst í gær sú sím-
fregn austan úr Skaftafellssýslu,
að Skeiðará haldi stöðugt áfram
að brjóta af sandöldunni austan
megin áriiinar. Hefir hún enn á
ný rifið með sjer einn símastaur
og var rjett komin að sæluhúsinu
á Skeiðarársandi; þótti því Öræf-
iiigiim tryggara, að rífa sæluhúsið
og flnttu efnið austur í Öræfi-
Elding veldur tjóni. Fvrir
skömniu laust niður eldingu í
gaddavírsgirðingu hjá Syðri-Steins
mýri í Meðallandi. Eyðilagðist girð
ingin á 30 faðma svæði, kubbaðist
vírinn sundnr og staurarnir tvístr-
uðust. Tveimur döguin síðar kom
önnur elding og laust henni niður
mjög nálægt bænum á Steinsmýri.
Karlakór Reykjavíkur fer í dag
upp á Akranes og syngur þar.
Lagt verður af stað frá stein-
bryggjunni kl. 1% e. h.
Frú Sigríður Sæland, ljósmóðir
í Hafnarfirði yerður 40 ára á
niorgun.
Áheit og gjafir til Ellihehnilisins
Gjafir á gamalménnaskemtuninni
kr. 1411.00 Kostnaður við sk.
475.00, mism. kr. '936.00. Heildsali
gaf vörur fyrir 200 kr. og svo allir
bákarar bæjarins nægar kökur.
S. H. B. 5 kr., M. 5 kr., Frá gömlu
lconunni 5 kr., Einar Þórðarson
10 kr., Dísa 5 kr., Gróa 2 kr., í. B.
10 kr. Guðrún Pjetursdóttir 20 kr.,
Gamalt áheit 10 kr., Ón. 5 kr., S.
10 kí., Margi-jet á Árbæ 15 kr.
Heilsali byggingarefni fyrir 2 þús
krónur.
Flyt öllum álúðarþakkir.
F. h. Ellihéimilisins.
Har. Sigurðsson..
Landbúnaður Breta
er í afturför.
Hið stóra Lundúnablað „Dailv
Express“ Jiefir nýlega hafið máis.
á því, að gjörbreyta þurfi land-
búnaði Breta. Blaðið segir meðal
annars:
— Akuryrkjan er í af'turför, svo
mikilli afturför, að nú verður að
gera eitthvað tiJ þess að rjetta
landbúnaðinn við. Frá suðurodda
Englands og norður að landamær-
um Skotlands, og þvert yfir land-
ið frá Norðursjó að Atlantshafi,
blasa hvarvetna við auganu grasi
vaxin lönd. En í skemmunum
ryðga plógarnir og akrarnir minka
ár frá ári. Sje hænclur spurðir að>
því, hvers vegna þeir yrki ekki;
korn, svara þeir því, að enginn
vilji kaupa uppskeruna af sjer þvf
verði, að þeir geti lifað á því.
Fyrir kvikfjárræktinni horfir ekkí
betur. Flutningnr og úthlutun
mjólkur er svo dýr, að bændur
fá í rauninni ekkert í aðra hönd.
Blaðið nefnir síðan sem dæmi, að
bóndi nokkur í Buckinghamshire
liafi búið í 40 ár á sömu jörðinni
og reynt að bæta hana á allan
hátt. En nú, þegar hann hefði átt
að geta sest í helgan stein eftir vel
unnið lífsstarf, þá er hann svo fá-
tækur, að hann hefir ekkert fyrir
sig að leggja. Fyrir 40 árum, þeg-
ar hann tók við jörðinni, vorn um
100 bændur þar í þorpinu og lifðu
sómasamlegu Jífi. Nú eru þar sex
bændur.
Þessi er lýsing blaðsins á land-
búnaðinum enska. •
— Allir hafa sínar tilhneiging-
ar, sagði veitingamaðurinn; hann
drakk íneðam, gestirnir flugust á.