Morgunblaðið - 29.09.1929, Side 7
-* 1
7
Obkar gamla, gáða
OhBVlot
í karlmannaföt og
flömnfata Cheviotið
og f jöldi tegunda af
Ullarbiðlataunm
með ýmsu verði, nýkomið í
Austnrstræti 1.
flsg. 6. Gunnlaugsson
& Go.
| | Karla
II Kven
Skófatnaður
U n ávait í
miklu
H H úrvali.
S'efðit Gunnarsson
Austurstræti. 12.
Nýir ivextir
og
nýtt Grænmeti.
Mikið úrval nýkomið í
Versl. Vísir.
Hið alþebta
Peysufatakiæði
á 14 50
er komið aftur.
Versiunin
Egíl! laGOósen.
Bij'liioaiíl
liálftilbúin, sem við fullger-
um á 3—4 klukkustundum
■eru bestu fatakaupin. — Með
viðgerð verða þau samt ekki
dýrari en altilbúin föt, en
fara mikið betur, auk þess-
ara kosta gefum við 10% af-
slátt í viku.
H. Anderseu & Sfln.
m'
nýju, eftir sumarhvíldina, mánu-
daginn 30. sept. kl. 4 síðdegis.
Hlutavelta h.f. Kvennaheimilis-
ins Hallveigarstaðir í dag, sem
auglýst er á fremstu síðu blaðs-
ins, er alveg óvenju vel útbúin að
vönduðum verðmætum munum. Br
fátt .eitt hægt að telja í stuttri
auglýsingu, og reynda.r ekki í
langri heldur. Almenniugur ætti að
koma í íþróttahúsið í dag og sjá
með eigin augum alt það, sem þar
cr um að velja- Auk þeirra muna,
sem prýða horðiu, eru þar ávisanir
á alt hugsanlegt, allskonar mat,
ferðalög, myndatökur, danskenslu,
kol, steiuolíu, aðgöngumiðar að
kvikmyndahúsum og ótal margt
fleira.
Alliance Prangaise heldur uppi
kenslu í frakknesku í vetur eins
og undanfarið. Kenslan verður
bæði fyrir byrjendur og þá, sem
lengra. erU komnir. Væntanlegir
nemendur gefi sig fram í Land-
stjörnunni.
Togararair. Gylfi kom í fyrri-
riótt af saltfiskveiðum. Fór í gær.
Skallagrímur kom í gær af veiðum
og fór aftuí.
Frá höfninni. Timburskip „Anna
ho“ kom í gær með farm til Árna
Jónssonar og Páls Ólafssonar. —
,,Rudolf“ kom í gær að norðan.
— Magni fór í gær til Borgarness
með póst og farþega; kom aftur í
gærkvöldi.
Skipin. Brúarfoss kom í gær-
morgun. Fer á þriðjud. norður um
land til London. Gullfoss kom til
Leith í gær. Esja fer í kvöld kl. 6
austur um land. Goðafoss er vænt-
anlegur á þrið'judagsmorgun. —
Botnía kemur í dag. ísland er
væntanlegt til Vestmannaeyja kl.
8 f. h., kemur hingað seint í
kvöld.
Úrslitakappleikurinn á II. flokbs
mótinu verður háður í þriðja sinn
á þessu móti í dag kl. 2 á íþrótta-
vellinum. Öllum mun þykja merki
legt að vita, hvernig þessi leik-
ur fer, því að hingað til hafa úr-
■slit ekki fengist.
í sambandi við 50 ára starfsaf-
mæli Kristins Auðunnssonar var
reiknað út, hve lína sú mundi löng,
er hefði inni að halda alt það let-
ur, sem hann hefir sett á hinum
óvenjulanga starfstíma. Með venju
iegu letri fara 5 stafir í sentimeter-
inn. Fer þá hálf miljón í kílómeter
inn. Áætlað er, að setjari setji að
meðaltali 8 þúsund stafi á dag, en
á 50 árum má gera ráð fyrir 15.500
vinnudögum. Það verða 124 milj.
stafir. — Línan samlögð verður
þá 248 kílómetrar.
Alfinnur Álfakongnr. Hinu vin-
sæla barnaæfintýri í myndum, sem
komið hefir út hjer í blaðinu, er
nii lokið; kemur síðasti þátturinn
út í blaðinu í dag. Æfintýrið kem-
ur jafnframt út sjerprentað á góð-
urn pappír, °g er fragangur hinn
besti. Tilvalin barnahók, eins og
„Dísa ljósálfur“, sem er einhvev
'dnsælasta barnahók, er út hefir
komið á íslensku. Eru hæði æfin-
týrin, myndirnar og textinn, eftir
sarna höfund, Hollendinginn G. Th.
Rotman.
Stúdentafjelag Reykjavíkur
hafði boðað til fundar annað
kvöld til þess að ræða valið í
rektorsembætti mentaskólans. En
nu hefir verið ákveðið að fresta
fundinum þangáð til á fimtudags-
kvöld; er það gert fyr'ir tilmæli
frá Pálma Hannessyni, því hann
kveðst hafa svo annríkt fyrir skóla
N H
setninguna, að hann geti ekki
mætt á fundinum á morgun. Þá
bjuggust menn einnig við, að
kenslumálaráðherra yrði kominn
heim fyrir fundinn, en hann kem-
vi r ekki fyr en á þriðjudag.
Happdrætti Hjálpræðishersins.
Þessi númer voru dregin út:
3. 36 Lampinn. 2. 310 Klukkan. 3.
311 Myndiu og 4. 217 Körfustóll-
inn. Munanna sje vitjað í siðasta
lagi fyrir þriðjudagskvöld, þ. 1.
október næstkomandi.
Millisíld hefir veiðst á Akureyr-
arpolli að undanförnu. Tunnan
seld á 60 kr.
Leikfjelag Reykjavíkur. Aðal-
fundur fjelagsins var haldinn
fyrra sunnudag, og var Friðfinnur
Guðjónsson kosinn formaðvir fyr-
ir næsta leikár, í stað Jakobs Möll-
er, sem er forfallaður sakir veik-
inda. Um starfsemi fjelagsins á
komandi vetri mun alt vera óráð-
io ennþá, verður skýrt frá því síð-
ar hjer í blaðinu.
Jón Engilberts:
(Tláluerkasýning
í Goodtemplarahúsinu (uppi) opin daglega kl. 11-7V2.
Umboðsmaðar
Við óskum eftir að fá duglegan umhoðsmann, sem hefir góða
sölumöguleika, til að selja smjörlíki vort í Reykjavík og örðum ísl.
bæjum. Þar eð vörur okkar eru alviðurkendar í Noíegi, ætti að vera
hægt að útvega þeim markað á íslandi.
Umsóknir með öllum upplýsingum um sölumöguleika, verð, tolla
0. fl., og þau firmu nefnd, sem viðkomandi er eða var umhoðsmað-
ur fyrir, sendist
A/S. VAN DEN BERGH’S MARGARINEFABRIK,
Postbox 637, Oslo.
íáum með Es. Goðafoss:
Appelsínur 176, 200, 216 og 262 stk.
Epli í kössum, Lauk í tunnum,
Vínber í tunnum.
Eggert Kristjánsson 8 Co.
Kvennaskólinn verður settur 1.
október kl. 2 e. h.
Stúdentaráðið hefir nú flutt
s' rifstofu sína í Kirkjutorg 4. Þar
’verður upplýsingaskrifstofan í vet
ur. Á sama stað hefir Stvídentaráð
ið komið upp matsölu, þar sem
s: údentar geta fengið fæði í vet-
m. Þeir stvvdentar, sem enn hafa
ekki afráðið nm fæði, ættu að tala
við jKonráð Kristjánsson stud'..'
theol., Suðurgötu 16, hið fyrsta.
„Ský“( kvæðabók Sigurjóns
Guðjónssonar frá Vatnsdal er nú
komin á bókamarkaðinn.
Kristileg sairikoma á Njálsgötu
1 í kvöld kl. 8. Allir velkomnir.
Áheit á Elliheimilið frá Ó. P.
200 br. Har. Sigurðsson.
Sigríður Guðmundsdóttir á Elli-
heimilinu verður níræð á morgnn
(30. sept.),
íþróttahús K. R. Efri hæð húss-
ins hefir tekið á leigu nngfrú
Steinunn Valdimarsdóttir. Hefir
hún þar veitingar og matsölu og
mun leigja út litla salinn fyrir
smáfundi og skemtanir. Er nú ver-
ið að lagfæra hæðina og verð-
ur það 1. flokks veitingahús.
Slátrnn sauðfjár hófst á Akur-
eyri í byrjun síðastliðinuar viku.
Kjötverðið er þar frá kr. 0,75 til
1,15 kg. eftir gæðum. Er það tölu-
vert lægra en hjer.
Bifreið brennur. — Aðfaranótt
laugardags brann fólksflutninga-
bifreið á Akureyri, eign Klemens-
ar Þórðarsonar á Blönduósi. Var
hún til viðgerðar á Akureyri, og
var viðgerðinni nýlokið. Aðrar bif
reiðar voru í geymdar í sama húsi,
en sakaði ekki. Óvíst um upptök
eldsins. Bifreiðin var óvátrygð.
Hríðarveður var á Aknreyri í
gær, og undanfarna daga liafa
verið miklir umhleypingar nyrðra.
Eitt tunnuskipið enn. Á fimtu-
daginn var kom ennþá eitt tunnu-
skipið til Einkasölunnar; hafði
pað 4000 tunnur. — Liggja nú
nyrðra um 40 þús. tómar tunnur
á vegum Einkasölunnar, er allar
bafa komið eftir að síldveiði var
lokið! Lagleg ráðsmenska að
tarna!
Haustmarkaður K. F. U. M. Sam-
eiginlegur fundur verður haldinn
í kvöld fyrir K. F. U. M. og K. F.
U. K. í fjelagshúsinu við Amt-
inannsstíg, kl. 8%, til þess að
ræða þar um haustmárkað fjelag-
anna, er haldinn verður föstudag,!
laugard. og sunnud. nk. Viðbimað-
ur undir þennan fyrsta markað er
mjög mikill, enda hafa fjelags-
inenn mikinn hug á, að þessi ný-
ung fari sem best úr hendi.
Þeir kaupendur Morgunblaðs-
ins, sem hafa bxistaðaskifti nú um
míraðamótin, eru beðnir að til-
kynna þau á afgr. blaðsins.
Sjómannastofan. Guðsþjónusta í
dag kl. 6 í Varðarhúsinu við Kalk,
ofnsveg. Dr. Jón Helgason biskup
prjedikar. Allir velkomnir.
Skenatanir í dag. Ásta Norð-
mann og Sig. Gnðmundsson halda
danssýningu í Gamla Bíó kl. 3. —
Eggert Stefánsson syngur ísl. lög
í Nýja Bíó kl. 4. —■ Málverkasýn-
ing Jóns Engilberts í Goodtempl-
arahúsinn, opin 11—TV2, og sýning
Helge Zandén, Laugaveg 1, opin
á sama tíma. — Gamla Bíó sýnir
„Flugdrotninguna*4, með hinni
frægu flugkonu Ruth Elder í að-
alhlntverki. — Nýja Bíó sýnir
gamanmynd með Buster Keaton í
aðalhlutverki.
Bruninn á Stokkseyri. Talið er,
að eldurinn hafi kviknað út frá
rafmagni. Allar embættishækur
hreppsins brunnu. Ekki varð bjarg
að öðrn en nokkrn af sængnrfatn-
aði. Innanstokksmunir voru mjög
lágt vátrygðir.
„Embættissvipurinn4 4. í gær
skýrir Haraldur Guðmiuidsson frá
þvi, að hann hafi verið fyrir lög-
reglurjetti í fyrradag, og nú sje
hann hólpinn — því hann fari
ekki í steininn. Væri e. t. v. ástæða
til að senda ritstjóranum heilla-
óskaskeyti. Skýrir H. G. frá því,
að lögreglustjóri hafi, eftir nokk-
urt „góðlátlegt rahb“, eins og
Jónas frá Hriflu myndi hafa kom-
ist að orði, „sett upp prýðilegan
embættissvip, og lýst. því yfir', að
lögreglurjetturinn væri settur“.
En áður en svo langt var komið,
segist H. G. hafa talað utan að
því við Hermann, hvort Guðmund-
ur Jóhannsson gæti eigi fengið að
vera viðstaddur. — En seinna í
sömu grein er H. G. hróðugur yfir
því, að Guðm. Jóh. fái ekki að
vita, hvernig skjölin komnst til
Ljðsmynúastofa
Pjetnrs Leifssonar,
Þingholtsstræti 2. (áður verslun
Lárus G. Luðvigssonar), uppi
syðridyr — Opin virka daga kl.
10—12 og 1—7, helga daga 1—4.
Náttföt
(Pyjamas)
fyrir dömur herra og börn.
Míkið og fallegt úrval
nýkomið.
Vöruhúsið
Ný sending af
Vetrarkápum
og
Vetrarkjólum
tekin npp nm helgina
hjá
5. léhannesdóttur,
Soifinbnð.
beint á móti Landsbankanum
Aunturetratl 14.
Alþýðublaðsins. Svo ekki hefir á-
huginn verið sjerlega mikill hjá
H. G. að Guðmundur fengi að
heyra lögreglustjóra rekja úr hon-
um garnimar; og mun það mála
sannast, að þeir hafa komið sjer
vel saman um það, H. G. og lög-
reglustjóri, að halda leyndardóms-
holu yfir þessn máli, og G. Jóh.
ftngi eigi að koma samtímis H. G.
í endalok greinarinnar gerir H. G.
svo lítið úr lögreglnstjóra, að
hann gefnr í skyn, að innbrotið,
sem lögreglnstjóri var að rann-
saka, hafi aldrei verið framið.