Morgunblaðið - 29.09.1929, Blaðsíða 8

Morgunblaðið - 29.09.1929, Blaðsíða 8
8 MUKUDNBLAfllÐ Epli, Glóaldin, Vínber, Lanknr og Jarðepli kemur með Goðafossi 1. október í fieildv. Garðars Gíslasonar. Q HuglVsingadagbók fl austurvegum. Eftir Magnús Magnússon. Fundurinn í Vík. •4 ViðskiftL y Til sölu lítið hús á góðum stað. Utborgun 3—4 þúsund, 2 herbergi og eldhús laus 1. okt. Semja þarf strax við Jónas H. Jónsson. 8000 rúllur af veggfóðri ný- komnar. Verð frá 35 aur. Katla. Duglegnr og áreiðanlegur mað- tur getur fengið vinnu við að selja þækur. Upplýsingar á Frakkastíg B4. — Ljósmyndastofa mín er flutt í Lœkjargötu 2 (áður Mensa). Opin yirka daga 10—12 og 1—7. Helgi- daga 1—4. Sími 1980. Tek myndir 6 öðrum tímum eftir samkomulagi. Sigurður Guðmundsson. ^ Kensla. ^ Píanókensla fyrir byrjendur. — Asft Markúsdóttir, Frakkastíg 9. Enska kend, sjerstök áhersla Wgð á framburð, taltímar (con- ▼ereation). Tek einnig böm. — Beba Geirsdóttir, Hverfisgötu 21. Aími 226. Þýaku kennir frk. Spaleck í Bejrkjavík og Hafnarfirði frá 1. okt. Nánari upplýsingar í síma »73. Tek börn til kenslu. Les með Kkólabörnum. Kristján Sig. Krist- fánjHon, Bergstaðastræti 29. Sími M. ^ Vinna. ►* gtúlka óskast í vist með annari (ttl eldhúsverka). Upplýsingar í síma 770. Drengur 14—15 ára getur feng- 16 að læra prentiðn. Upplýsingar i Frakkastíg 24. Ixmistúlka óskast í vist, helst ▼ðn að ganga gestum fyrir beina. Gott kaup. A. S. í. vísar á. Að Kaldaðamesi vantar vetrar- mann, sem kann að mjólka, og einnig vetrarlronu, sem vön er mjöltun. Hún mætti hafa með sjer barn, 5—6 ára eða eldra. Talið gem fyrst við Jón Sigurðsson í Al- þingishúsinu. Sími 61. Reglusamur piltur í 6. bekk Itentaskólans óskar eftir kenslu. TJpplýsingar í síma 1185 milli 12 og 1 e. m. ^ Húsnæði. ►* Skrifstofuherbergi óskast í miS- bíenum- A. S. f. vísar á. Fundurinn í Vík var miklu fjöl- mennari en í Klaustri, mun hafa verið um 300 manns á fundi er flest var. Hjá Lárusi og Magnúsi var sama uppgjöfin og á Klaustur- fundinum. Voru varnir þeirra fyr- ir stjórnina fáar og veigalitlar og jafnóðum ónýttar af Sjálfstæðis- mönnunum Árna, Jóni ogJóhanni Jósefssyni alþm., sem brugðið hafði sjer til Víkur. — En það, sem olli því að ’teygðist nokkuð úr fund- inum, var það, að Jónas hafði sent til styrktar mönnum sinum útbýtingarmann danska socialista- gullsins, hinn sællega og holduga forstjóra Alþýðubrauðgerðarinnar - sem sögð er dálitið magrari — Jón Baldvinssorr. Er Jón búinnað fá mikla æfingu í þvi að tala á fundum og liðamót talfæra hans eru ávalt vandlega smurð í smjör- líki mannkærleikans og umhyggj- unnar fyrir öreigunum, en sjálfur er hann lifandi mynd þess, hve holt það er fyrir magann að kom- ast að ríkissjóðsjötunni. Einnig var þarna mættur Nikulás Friðriksson rafvirki, en hafði sig lítt frammi. Varð allhörð hríð millum Sjálf- stæðismannanna og Jóns. Af inn- anhjeraðsmönnum töluðu auk Þor- láks í Eyjarhólum, sem fyr hefir verið skýrt frá, þeir Eyjólfur hrepp- stjóri Guðmundsson á Hvoli i Mýrdal af hálfu Sjálfstæðismanna, en Magnús í Reyáisdal og Gísli bóndi Þórarinsson á Ketilsstöðum úr liði socialista og Framsóknar. Mátti af ræðum beggja hinnasíð- asttöldu greina, að það er ekkert lengur, sem skilur á millum þeirra manna í Framsóknarflokknum, sem trúa á Jónas Jónsson, og socia- listanna. Ef það væri nokkuð, mundi það helst vera það, að æstustu fylgismenn Jónasar eru ákveðnari umróts- og byltinga- menn heldur en þeir gætnari í liði socialista, og ósvífnin og lyg- amar í garð andstæðinganna ganga enn lengra. Sökum þess að langt er umlið- ið, verða ræður manna ekki rakt- ar hjer, enda hefir flest verið gert að umtalsefni í blöðuin flokkanna. Ekkert var hægt að marka það á fundarmönnum, hvorir liðfleiri mundu vera Sjálfstæðismenn eða Framsóknar. Eru sveitamenn al- ment ekkert gjarnir á það að láta uppi hvoru megin þeir eru á mannfundum. En það mun mál allra þeirra manna, sem sanngjarnlega vilja meta frammistöðu þeirra manna, er á Vikurfundinum töluðu, að Sjálfstæðismennirnir hafi mjög borið af andstæðingum sinum í rökvísi og rökstuðningi fyrir sínu máli. Rjett er að geta þess, að Þórð- ur kaupfjelagsstj. Pálmason stjórn- aði fundinum röggsamlega og al- gerlega hlutdrægnislaust. Að leiðarlokum. Næsta dag varð það að ráðum að við skyldum fara upp að Heiði til þess að kveðja leiðsögumann okkar, Pál Ólafsson, en að því loknu var svo til stofnað, að við Ámi færum á hestum út að Skarðs- hlíð undir Eyjafjöllum, en þarbýr Hjörleifur Jónsson, faðir Guðna læknis. Tók Guðni og Jón bróðir hans að sjer að koma okkur þessa leið, sem er 4—5 tíma ferð, all- hörð þó. Þóttust við Árni betur geta skoðað náttúruna með þessu móti, og vera má að eitthvað anbað hafi óljóst vakað fyrirokk- ur. Jón og Jóhann ætluðu aftur á móti að gista í Vík næstu nótt og mátti heyra á þeim, að þeir kviðu ekkert fyrir kvöldinu, enda ljetu þeir vel yfir þessu júnikvöldi, er við hittum þá næsta dag, en þó mundum við Árni ekki hafa viljað skifta, því að fagur var Skógarfoss, er við riðum fram hjá honum um náttmálaleytið. Gott var að koma til Páls bónda og fylgdi hann okkur vel á leið. Munum við Árni engan leiðsögu- mann fremur kjósa, ef það á öðru sinni fyrir okkur að Iiggja að ferð- ast um Vestur-Skaftafellssýslu og vafalaust verður það hans hlut- skifti að hesta tilvonandi þing- mann Vestur-Skaftfellinga við næstu kosningar. Er Páll hinn á- gætasti ferðafjelagi. Greindur og margfróður og kann á flestu skil. Hefir hann farið um mestan hluta íslands og þekkir því fjölda manna, enda í eðli sínu persónufróður, eins og margir af okkar skynsömu og prýðilega gefnu bændum eru. Páll er nú orðinn hniginn á hinn efra aldur — kominn á sjötugs- aldur — en er þó kvikur og frár og skjótur í hreyfingum og tein- rjettur, og fá sjást á honum enn þá ellimerki, og hefir þó komist stundum í hann krappan um dagana. Og um kvöldið við sólarlagsbil vorum við komnir að JÖkulsá á Sólheimasandi — ánni, sem ræð- ur landamerkjum milli sýslnanna, og þeir Þrasi og Sólmundur sköp- uðu farveg með kyngi sinni endur fyrir löngu. Að baki okkar — I austurátt — lá sýslan, sem andstæðurnar hafa skapað. Sýslan, sem hefir alt að geyma, er ísland á fegurst og stórfenglegast: jökla og eldfjöll, hraun og eyðisanda, fagrar sveit- ir og gestrisið, kjarngott og ó- svikið bændafólk, sem um aldir hefir háð óslitna baráttu við trylt náttúruöflin. Og nú færist nýmenningin óð- fluga yfir þessar einangruðu sveit- ir. Síminn er kominn, bílarnir eru komnir. Fjarlægðirnar eru horfnar. Að nokkrum áratugum liðnum verður enginn vatnahestur til í Vestur-Skaftafellssýslu, — enginn Páll, sem þræðir brotin í viðsjál- um og hverflyndum jökulfljótun- um, engin Flaga og enginn Breiði- bólsstaður, sem fagnar ókunnum gestinum eins og ættingja eða vini, heldur tekur á móti honum eins og þjónarnir hjá Rosenberg. En Mýrdalsjökull og Öræfajök- ull munu komast af án drykkju- peninganna fyrst um sinn. [Endir.J T. d.: Kökuform frá ....... 1,00 Dörslög frá .........0,75 Pottar email. frá .... 1,20 Sleifasett 7 st. á..3,00 Eldhúshnífar á ..... 1,10 Skeiðar alpacca frá .. 0,75 Gafflar alpacca frá .. 0,75 Teskeiðar alpacca .... 0,40 Hnífapör góð á ......0,75 Borðhnífar riðfríir ... 1,00 Sykursett, postulín .... 1,50 Mjólkurkönnur frá ... 0,75 Vínglös frá .........0,35 U\mm irnsi, Bankastræti 11. Falkonergaardsvej 2 Kaupmannahöfn V. Námsmejjar. Húshald, matreiðsla og mál eða hjúknin, nudd (massa- ge) og sjúkraleikfimi. Frí y2 d'aginn. Fæði og hús- næði. Verða að búa saman. Miðstöðvarhitun, bað og stór garður. Meðlag 85 kr. dansk- ar á mán. (Meðmæli og upp- lýsingar Björn Jósefsson, læknir, Húsavík). Adresse Fr. Sehested. Útsalan í Vík endar á þriðjudag. Margs- konar taubútar verða seldir þessa daga fyrir Jítið verð. Notið síðasta tækifæriðu Verslnnin Vik, Laugaveg 52. sem gefnr fagran svartan gljáa. Notið ávalt Hin dásamiega Taiol-handsApa XATOL * 'gst? VS mýkir og hreinsar hörundið og gefur fallegan og bjartan litarhátt. Elnkatal ari I. Brynlálfsson 8 Kvaran. Ástin er sjúkdómur. Nýlega befir Pierre Bachet, kennari í þjóðfjelaggfræði við há- skólann í París, gert þá uppgötv- un, að ást sje sjúkdómur, sem vitja. ber læknis við, eins og öðnim sjúk- ddómum. — Meðal gegn sjúk- dómnum hefir háskólakennarinn ekki fundið, önnur en þau, að sjúklinguriun verði að hafa full- komna ró, og telur hann best, að Ueltið aihygll! Karlmannafot. Jakkaföt á drengi. Begnkápnr á drengi Manchester, Laugaveg 40. — Sinii 894. idozan, er af öllum læknum álitið framúrskarandi blóðaukandi og siyrkjandi járnmeðal. Fæst í lyfjabúðunum. reyndur læknir hafi hann til með- ferðar. Þessi sjúkdómur er líklega mjög útbreiddur, og m átelja víst, að flestir fái hann einhvem tíma á æfinni, enda þótt margir fái bata.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.