Morgunblaðið - 05.11.1929, Side 5
Þriðjudaginn 5. nóv. 1929.
/
5
“Bermallne”
Hin stöðugt vaxandi sai
,Bennaline‘ brauða er best
eönnunin fyrir gæðum þeirr
— Ef þjer eruð ekki þegt>
Bermaline-neytandi, þá byr}
ið í dag.
Regnkápur
og
Regnhlífar
fyrir
Dömur og Herra,
Mikið úrval hjá
S. lohannesdóttur.
SolfmMð,
beint á móti
Landsbankannm.
Eldavjelar, svartar og emaill.
pfnar, emaill.
l»vottapottar sv. og emaill.
Ofnhringir og rör
eldf. leir og steinn
hjá
C. BeUreus, sími 21.
Stálskautar
OQ járnskautar.
Allar stærðir.
VALD. POULSEN.
Sími 24.
: Fyrstasflokks
: sanmastofa
: fyrir karlm nnafSt.
• Úrval af aÍÍskonar
• fataefnnm
: finðm. B. Vikar
• Langaveg 21 Sími 658
lifur og MSrtu
Ktein,
Baldnrsgtta 14. Sfml 73.
fil Ufllsstuia
alla daga kl. 12, 3 og 8.
Bifreiðastöð
Kristlns & finnnars
Hafnarntræti 21 (hjá Zimsen).
Símar 847 og 1214.
Frá Japan.
Nýr hugsnnarháttur og gasaall.
Eitt sem einkennir Japana einna
mest, er stilling, enda þykir það
ein fegursta dygð meðal þeirra.
Það heyrist næstum aldre'i að tveir
Japanar munnhöggvist, heldur
koma þeir ætíð kurteislega fram
hver gagnvart öðrum, og vilja
heldur kurteisa lygi en dónalegan
sannleikann.
Það væru ýkjur að segja, að
okkért finnist í fari þeirra annað
en virðingin fyrir gömlum venjum.
Fjárbrall og svik eiga sjer stað
þar engu síður en annarstaðar. En
hitt er jafnsatt, að virðing þeirra
er mikil fyrir hinum óskrifuðu
Jögum hversdagslífsins. Ein al-
gengasta hefnd þeirra er að rista
upp á sjer kviðinn. Vilji Japani
láta í ljós hatur sitt, eða fyrirlitn-
ingu á fjandmanni sínuin, gengur
hann til hans og ristir upp kvið-
inn á sjer fyrir framan hann. —
Þetta þykir magnaðri hefnd en að
drérpa manninn, eða gera honum
aðra. skráveifu.
Það vakti nýlega feikna-athygli
í Japan, að lögregluþjónn drap
háskólakennara e'inn. Það upplýst-
ist síðar, að háskólakennarinn var
meðlimur verkamannaflokksins, er
bannaður hefir verið ]iar í landi.
Lögregluþjónninn var aftur á móti
meðlimur þjóðerliisflokks, sem
kallar sig fjelag hinna sjö fæðinga,
og skyldar meðlimi sína til að sýna
trúmenskn næstu sjö líf. Slík fje-
lög eru tfl í hundraðatali í Japan.
Sum þeirra hafa líka útlendinga-
hatur á stefnuskrá sinni. Það ev
eldur í beinum þjóðernissinnaðra
Japana að sjá útlendingana vaða
aistaðar uppi. Þeir dansa í veit-
ingahúsunum við japanskar stúlk-
ur eins og þeir eigi í þeim livert
bein og stúlkurnar þar eru, eins
og víðar, hrifnar af útlendingum.
Það er ekki langt síðan að eitt
hinna leynile'gu þjóðernisf jelaga
ákvað að binda enda á útlendinga-
dekrið. Nokkrir me'nn útbjuggu
sig með grímur fyrir andlitunum,
og stutt sverð. Þegar dansinn stóð
sem hæst á laugardagsltvöldi í
Imperial Hotel í Tokio, rjeðust
þeir þar inn albúnir þess að láta
mikið blóðbað fara fram. Fyrir
einstakt snarræði hóteleigandans
varð samsærinu afstýrt. Hann
skipaði hljómsveitinni að leika
þjóðsönginn japanska og samsæris-
menn báru alt of mikla virðingu
fyrir söngnum til að hafast nokk-
uð að, heldur stóðu þeir í he*r-
mannsstellingum á meðan hann
var leikmn. Aðui en hljómsveitin
hafði lokið við sönginn í annað
skifti, var lögreglan komin 0g
hafði tekið samsærismennina fasta.
\
„Hættulegar hugmyndir".
Vegna kurteisi við Rússa, nefna
Japanar aldrei undirróður Bolsje-
vikka. Bolsjevismann kalla þeir
„hættulega hugmynd." Það er
ekki að ófyrirsvnju að þe'ir óttast
að landið verði litað rautt í bylt-
ingu, því að næ.st Rússlandi eru
rit Karls Marx lesin mest í Japan.
Orsökin til þessa mun vera óá-
nægja, sem sprettur af vaxandi at,-
vinnuleysi. Fýrir nokkrum árum,
gátu 60% útskrifaðra stúdenta
fengið atvinnu og embætti þegar
eftir próf, en nú eru aðeins um
20%, sem atvinnu fá. Þegar hinn
akademiski öreigalýður, sem venju
lega er vel að sjer í Evrópumál-
um meðtekur kenningar kommún-
sta, er hins versta að vænta.
Sú hefð er löngu úr gildi, se'm
íður ríkti, að efnaðir ættingjar
væru skyldir að sjá fyrir fátækum
skyldmennum. Eina lansnin á þess-
um vandamálum virðist menta-
mönnunum sú, að breyta skipulag-
’nu. Það er ekld langt síðan að
fjöldi prófessora og stúdenta fengu
opinbera styrki til að framast í
Evró]iu. Þetta er nú með öllu
lagt niður, sökum þese að reynslan
er sú, að þeir koma aftur fullir
af nýjum hugmyndum, sem e'ru
hættulegar friði í landinu.
Stúdentar starfa að mörgu- á
námsárunum. Margir þeirra ráða
sig sem þjóna á veitingahúsum,
aðrir fást við að selja bækur og
smávöru á götunum. Líf þeirra er
erfitt, og samfara ómeltri mentun
ryðja kenningar byltingamanna
sjer óðum til rúms meðal þeirra.
Lögreglan er alstaðar á verði. —
Meðal stúdentanna e'ru -margir
njósnarar. Kærum fjölgar og eng-
inn er óhultur með öllu, því að
sakir þurfa ekki að vera miklar.
Með þessu móti espar lögreglan
mótstöðu byltingarsinna og gerir
þá enn lieitari. Aðstaða náms-
manna er erfið. Flestir eru þeir
fátækir. Þeir herjast hraustlega
við sult og fátækt og fá ef til vill
ekki annað að launum en rýr em-
bætti eða alls engin.
Atvinnuleysi hefir vaxið stór-
kostlega, síðan samtak fjölskyld-
anna hvarf. Atvinnulausir eru nú
um 3—400.000 og í Tókíó einni
saman er búist við, að tala þeirra
verði í vetur um 70.000.
Framfarir hafa orðið svo stór-
kostlegar í iðnaðinum, að nú er
tala verkamanna í ve'rksmiðjúm
um 40 sinnum hærri en árið 1900.
Iðnaðarsveinn í Japan hefir um
3 yen (h. u. b. 5 krónur) tekjur á
dag. Aðrir, sem ekki hafa lokið
prófi í iðninni, hafa ekki nema 2
yen á dag (3—4 kr.). Menn hafa
af vísu heyrt, að vinna sje lje-
lega horguð í Austurlöndum, en
jafnvel þótt Kínverjar sjeu allra
manna sparneytnastir, þá e‘r öðru
máli að gegna með Japana. Þeir
eru ekki eins sparneytnir, og auk
þess er dýrt að lifa í Japan. —
Meðalverð þar er 20% hærra en í
Englandi.
Árangurinn af þessu er, að þjóð-
in hefir ekki nóg fyrir sig að
leggja. Ve*rst fer kaupgjaldið þó
með þá, sem áður hafa lært. að lifa
eftir Evrópusiðum — mentuðu
millistjettanna. Siðir þeirra hafa
fágast. f>eir hafa vanist á að borða
póleruð hrísgrjón. Nú verða þeir
að venja, sig 4 að borða þau með
hýði, af því að í hýðinu er meira
vitamin. Ostaiðnaður fer í vöxt,
og er rekin mikil starfsemi í þá
átt að útbreiða nevslu á osti.
Árste'kjur þjóðarinnar saman-
lagðar nema 13.382.323.000 ven. —
Verða það 224 yen á nef, því íbúar
eru 70 miljónir. Að meðaltali á
Timburversiun
P. W.Jacobsen & Sön.
Stofnud 1824.^
Simnefnii Granfuru — Carl-Lundsgade, Köbenhavn C.
8elnr timbur í atærri og smærri sendingum frá Kaupm.höfn.
Eik til *kipasmíB&. — Einnig heila skipsfarma frá 8víþjó8.
Hef #e»*flad við ísland 80 ái-.
TOSKS WK«ll
Railýsið < <m
vielbáta yóar j ifnspennu-rafai. — Leitið tilboða hji
H.F. RAFMAGN.
Uatnar"træti 18.
Sími: 1005.
hver nraður að lifa á tæpum 19
yen á mánuði (rúinlega 30 kr.).
Eftir hagskýrslum fara 15%, í
skatta, en 15% eru lögð á spari-
sjóð (af öllum tekjum samanlögð-
um). T raun og veru verða menn
að reikna með miklu lægri og
raunalegri tölum. Fæstir verka-
menn liafa me'iri tekjur en sem
svarar 120 yen á ári, miðað við
heila fjölskyldu. Til samanhurðar
má geta þess, að árstekjur enskra
verkainanna eru að meðaltali fjór-
um sinnum hærri og er þó, eins
og áður er sagt, ódýrara að lifa í i —
Englandi en í Japan.
Offjölgun fólks er sú liætta, sem | •
öðrum frémur er ástæða til að J
óttast fyrir Japan. Meðal hinna j J
mörgu þjóðernisfjelaga eTu til fje-
lög, sem innræta fjelögum sínum,
að skylda þeirra gagnvart þjóð- j •
inni sje að eiga sem flest börn. •
Að vísu eru mörg áhrifamikil blöð, •
svo sem „Osaka Mainichi“, sem •
kemur út í miljónatali, sem prje- J
dika nauðsyn á takmörkun! *
^ i •
barneigna, en fólkinu fjölgar engu ! •
að síður. í fyrra fjölgaði því uín, j
900 þús., en í hitteðfyrra um 850 1 •
þúsundir, og í ár mun fjölgunin
verða me’iri en nokkru sinni áður.
Byltingasinnar skella auðvitað
ailri slculdinni á stjórnarfyrir-
kontulagið og auðvaldsstjórnina.
Ótal leiðir hafa verið reyndar
til að veita fólksstraum út úr
landinu, en hingað til hefir ekkert
landnám gefist vel, nema Kali-
fornia, en þar hafa Ameríkumenn
lokað fyrir innflutning. Helst vilja
Japanar hvergi vera, nema í Jap-
an. Þeir vilja lifa saman, í smá-
híbýlum me'ð litlum görðum. Þeir j
hafa engan smekk fyrir stórfeldri
náttúru, og þeim líður illa innan
ara fjöll og kletta.
Óttinn við hinar ,hættulegu hug-
myndir* grefur um sig meðal
stjórnmálamanna í Japan. Það er
þeim mun hastarlegra fyrir þá,
þar sem þeir liafa alla tíð haft,
mestu tröllatrú á ágæti stjÖrn-
skipulags síns. Menn vita ekki,
hvort er betra, liinn æsti þjóðernis-
gorgeir e'ða kenningar byltinga-
manna. Það er ]iá aldrei nema skó-
bótaskifti, segja þeir og ypta
öxlum.
Þjóðardrambinu er sífelt verið
að berja inn í meðvitund þjóðar-
innar. Ekki alls fyrir löngu liefir
einn vísindamanna þeirra fundið
Vetrarfrakkar
Nýjar birðir
teknar npp í gær.
Vöruhúsið.
n’dlippúiur.
Hndlitscresm.
Hndlitssápur
og Ilmwðtn
er Avalt ódýrast
og best i
Aðalumboðsmenn
Hvannbergsbræður.
það út, að Japanar sjeu fuílkomn-
ast þjóð heimsins, bæði að líkaiw-
legu og andlegu atgervi. Hann
hefir í mörg ár haft á hendi hinar
flóknustu mannfræðirannsóknir,
og er nú loks búinn að komast að-
fastri niðurstöðu í þeim efnuln.