Morgunblaðið - 01.12.1929, Qupperneq 12

Morgunblaðið - 01.12.1929, Qupperneq 12
12 MORGUNBLAÐIÐ Til frú Þóreyjar Kolheias á sextugsafmæli hennar, 27. nóvember 1929. Með sextigi ár að baki, en ung og ern að sjá. Með æskufjör í hjarta, og friði krýnda brá. Með ástríkt bros á vörum þótt ellin færist nær; slíkt aðeins von og trúin börnum sínum ljær. Þú hugga náðir marga er harmur nísti sár. í hjörtum kveiktir ylinn er þerrar sorgartár. Þú hendur rjettir mörgum sem hjálparþurfi var. Þitt hjarta geymdi sjóðinn er slíkan ávöxt bar. Þú störf þín vanst í kyrþey, — þau störf jeg fegurst veit að stunda börn og maka, — sem kona uppi í sveit, í trú og von, til Drottins, að bera börnin smá, og byrðar makans ljetta sem frekast verða má. Og vinir þínir fela þig forsjá lausnarans, að fótspor sjerhvert leiði þig verndarenglar hans. t>eir biðja Guðl að launa þjer hjálp og vinahót, og hlýleg orð er veittu þeim sorga’ og raunabót. . mmmmm sssr Bezti eiginleiki W FLIK=FLAKS !■ íf er, að það bleikir þvottinn || við suðuna, án þess að | skemma hann á nokk- /Æ n urn hátt I ■ ijk Ábyrgzt, að laustl® ifbt sé við klór. Þ. Sambandsslit íslands og Danmerkur. Knud Berlin segir aS Danir vilji ekki halda í lögin í trássi við ís- lendinga. — Hægt að slíta saxn- bandinu hvenær sem er, og semja sjerstaklega um fiskiveiðarjettinn og jafnrj ettisákvæðin. Knud Berlin skrifar kjallara- grein i „Nationaltidende“ og læt- ur í ljós ánægju sína út af yfir- lýsingu Halfdan Hendriksens um sambandsslit íslands og Danmerk- ur, „ekki aðeins vegna þess, að þetta er í fyrsta skifti að danskur nefndarmaður kemur fram með ít- arlega yfirlýsingu, sem hægt er að by&gja á opinberar umræður, er að gagni geta komið, heldur aðal- lega vegna hins, að Hendriksen hallast hiklaust að því, sem jeg hefi haldið fram, að vilji Islend- ingar sambandsslit nú þegar, þá sje engin ástæða til þess fyrir Dani að halda í sambandið í trássi við íslendinga, enda hafi þeir eng- an hag af því“. Um það, hvort ósk um sambands slit komi opinberlega fram frá ís- landi, vill Berlin engu spá. Það sje! undir íslendingum sjálfum komið. Ef allir Danir sje sjer og Hendriksen sammála, þá eigi ís- lendingar útspilið. Berlin ræðir síðan um fiski- veiðarjettindin og jafnrjettisá- kvæðin og lýsir yfir því, að hann sjái ekki betur, „eins og málum nú horfi, en að Danir verði að krefj- ast þess, að fiskveiðarjettindin haldist áfram um ákveðið árabil, eða til 1943, en áður en þar að komi verði reynt að leita sam- komulags um að fá hann fram- lengdan. Til þess verði Danir þó sennilega að bjóða einhver fríð- indi í móti og hefi jeg áður bent á það, að hæfile'g ívilnan komi í staðinn frá Dana hálfu með því að opna Islendingum, jafnt dönskum ríkisborgurum, aðgang að auknum fiskveiðum hjá Græn- landi.“ Þetta sje að vísu ekki hægt nú og þess vegna sjálfsagt að láta fiskveiðarjettindin haldast til 1943, en þangað til verði reynt að finna einhvern grundvöll se'm hægt sje að byggja á samninga um framlengingu. Um jafnrjettisákvæðin heldur Berlin því fram, að sambandslögin tryggi hvorugum jafnrjetti „enda- laust“, en hann álítur, að hægt sje að tryggja núverandi ástand með bráðabirgðaákvæðum. — Það þurfi t. d. ekki annað en ákveða að jafnrjettisákvæðin gildi e*nn um 2 ár, og sje sá tími nægur til þess, að Danir á íslandi og Islend- ingar í Danmörku, geti, ef þeir vilja, fengið sjer borgararjett sínir í hvoru landi. ■, : ... ■ v- Konungssambandið. Berlin lýkur grein sinni með því að segja, að samkvæmt stjórnar- skrá íslands sje konungurinn á- fram konungur yfir íslandi þótt sambandslögin vekði upphafin. Hið eina, sem geti komið til greina, sje að setja í þau Iög, sem nema sambandslögin úr gildi, ákvæði um það, að svo lengi sem sömu ríkiserfðalög gildi í báðum lönd- um, þurfi samþykki ríkisþings og Alþingis til þess að komyigur sje einnig konungur í hinu landinu, og sje það ákvæði bindandí í eitt skifti fyrir öll. (Sendiherrafrjett.) Bikattgáfa Þorst. M. Jónssonar á Akureyri. Það mun viðurkent af þeim sem til þekkja, að bókaútgáfa hjer á lendi verður æ erfiðari með hverju ári sem líður. Fólk er mikið að hætta að kaupa og lesa bækur. 1 bæjunum eru það skemtanir, kvik- myndir og allskonay samfundir sem eyða tómstundum fólksins og svo er lestur blaðanna álitið sæmi- legt. viðhaldsfóður fyrir allan þorra manna. En í sveitunum er fáménnið orðið svo mikið, að hin óhjákvæmilegu daglegu störf taka allan tíma svo varla vdrður komist yfir meira en eitthvað af blöðum og þá tímaritahrafl, til þess að geta fylgst með viðburðum og á- Tæki tengt við baegarstranminn, gefnr hljómmeira og hljómfegnrra afkast Merki E. W. 373. 3 lampa skermgitter viðtæki fyrir allar breytistraumsspennur. — óvenju hljóm- sterkt og skýrt afkast. Á viðtækið heyrast hinar stærri útvarpsstöðvar. Innstilling stöðva með einu handtaki. Merki E. W. 496. 4 lampa skermgitter viðtæki, er fullnægir hinum allra vandlátustu.Tækið er fyrir all- ar breytistraumsspennur. Evrópustöðvar heyrast án loftnets. Merki E. G. 497. 4 lampa skergitter viðtæki fyrir jafn- straum 160 og 220 watta spennu. Lang- dírag tækisins er hið sama og E. W. 496. Dr. Georg Seibt, Berlin, schðueberg. ixmahssa hugamálum líðandi stundar. Af þessum ástæðum mun það, að bókaútgáfa frá hendi bóksala er nær alveg hætt, svo fátt kemur frá þeim annað en „autoriseraðar“ bækur, uppprentanir o. þ. h. Bóka- útgerðin í ár má því heáta nær eingöngu „tækifærisútgáfur' ‘ í einhverri mynd. Undantekning frá því er þó bókaútgáfa Þorst. M. Jónssonar bóksala á Akureyri. Byrjaði hann bólraútgáfu sína 1924, og hefir hún aukist síðan með ári hverju. ár hefir hann sent á bókamarkað- inn þessar bækur: Gráskinna II, Sagan af bróður Ylfing eftir Fr. A. Breklcan, Mansöngvar til mið- alda eftir Jóhann Frímann, Guð og lukkan eftir Guðmund Hagalín, Ritreglur eftir Freystein Gunnars- son, Stafrófskver eftir Egil Þor- láksson,- og Gríma, þjóðsögusafn. Ennfremur gefur hann út tímarit- ið Nýjar kvöldvökur og ókomnar ehu enn tvær bækur frá honum, sem byrjað er að prenta. Mun þetta alt vera kring um 100 arkir og er ekki annað hægt að segja en það sje vel að verið. Þegar Þorsteinn hóf bókaút- gáfu sína byrjaði hann meðal ann- ars með tvo útgáfuflokka, er hann hefir aukið síðan. Var annar Bárna bókasafnið, æfintýrin okkar gömlu með myndum, og hinn „Lýðment- un“, alþýðlegt fræðiritasafn er hann skifti í tve'nt: Heimsjá (og gaf þar út Himingeiminn eftir próf. Ág. Bjarnason með mörgum myndum) og Brautryðjendasögur, æfisögur og áhrif stórmenna mann kynsins. Hafa í því safni komið: Rousseau, Vilhj. Stefánsson og Mahatma Gandhi. Þótt eitthvað megi að bókum þessum finna, hafa þær þó allar þann höfuðkost, sen» allar alþýðubækur verða að hafa fyrst og fremst, að þær eru skemti legar aflestrar og taka huga le's- andans líkum tökum og góðar skáldsögur gera. Þorsteinn er sýnilega mikill á- hugamaður um bókaútgáfima og hefir einlæga viðleitni á að vanda val bóka sinna. Má það heita stórt þrekvirki, sem hann hefir1 þegar af hendi leyst og á fullkom- lega viðurkenningu skilið; og haldi hann svo áfram sem hingað til, er ekki að efa, að hann fær þá viður- kenningu- hjá þjóðinni, sem hverj- um bókaútgefanda er mest verð, þá, að útgefandanafn hans verður1 tekið sem trygging fyrir því að bókin sje góð. B.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.