Morgunblaðið - 19.12.1929, Blaðsíða 2
2
MORGUNBLAílIÐ
Enn þá er
mikið úrval af borílömpum,
en betra er þó að koma fyr
en seinna, því mikið selst.
Austurstræti 12.
Avextir
Ávextir
Epli, Winesaps, ks. á 22,00
— — kg. á 1.70
Winter, bananas ks. á 24.00
— — kg. á 2,00
Vínber ..... kg. á 2,50
Bananar og Perur.
Niðursoðnir ávextir,
allar teg.
fflatarverslnn
Tómasar Jónssonar
Laugaveg 2 og Laugaveg 32.
Glataði sonurinn, skáld-
saga um íslenskt efni, eftir
Hall Caine, er ágæt jóla-
gjof.
„Pálma-sunnudagur"
Mentaskólans.
Þegar ritstj. þessa blaðs voru
á fundi sáttanefndar með Pálma
Hannessyni rektor, varð nokk-
urt þref um, hvenær greiða
skyldi upphæð þá til málfunda-
fjelags Mentaskólans, ,,Fram-
tíðarinnar“, sem sættin bygðist
á. Voru tveir gjalddagar nefnd-
ir. Var annar Þorláksmessa, en
hinn einhver „Pálma-sunnudag-
ur“ Mentaskólans. Samkomulag
varð um Þorláksmessu.
Ýmsar fyrirspurnir hafa blað
inu borist viðvíkjandi því, hvað
meint hafi verið með því, að
setja gjalddagann á „Pálma-
sunnudag“. Hjeldu menn þá'
eðlilega, að hjer væri átt við
þann eina pálmasunnudag, sem
almanakið greinir frá. En svo
er ekki, og er því rjett að skýra
þetta nánar fyrir ókunnugum.
Nokkru eftir að Pálmi Hann-
esson tók að boða stefnu „nýja
tímans“ í Mentaskólanum, hafði
„yfiröldumennið“ í Sölvhól gef-
ið rektor sínum það snjallræði,
að bjóða nemendum við og við
upp á einn frídag í miðri viku.
Þann dag skyldi einn bekkur
skólans hafa frí. Til þess að
finna út, hvaða bekkur fengi
fríið í hvert sinn, var umsjónar-
mönnum allra bekkja skólans
falið að halda skrá yfir skróp
nemenda. Sá bekkur er engin
skróp hafði yfir heilan mánuð,
skyldi fá fríið. Þessir frídagar
eru meðal skólapilta nefndir
„Pálma-sunnudagar“.
Komið hefir það fyrir, að
„Pálma-sunnudagar“ hafa orð-
ið fleiri en til var ætlast. En þá
kom sjer vel, að til var stjórn-
arbíll (letigarðsbíllinn), til að
þeytast um bæinn nieð rektor
og lækna, sem fóru í heimsókn
til nemenda.
Hugmynd þessi um „Pálma-
sunnudagana“ mun vera ein af
nýjungum þeim, sem ,,renna“
eiga „inn í skólann“ með „nýja
blóðinu“.
Anna Fía.
Allir kannast við það, hve lengi
geýmast endurminningarnar um
fyrstu bækurnar, se'm menn lesa
á unga aldri. Aldrei lifa menn eins
í huganum eins og þá með persón-
fflikið nrval af fall-
egnm vfirnm tu
Jólagjafa:
Skyrfnr,
Slifsi,
Náttföt,
Klntar,
Nærföt,
Sokkar.
Smekklegast nrval.
Hentngir smámnnir
sem ekki mega vanta í jólapakkana.
anchettskyr tnr
misl. frá 7.50, hvítar 8.75. — Nýjnstn gerðir af smokingskyrtnm.
Bindi — Siaufur — Slifsisnálar Fiibbar - Vasaklútar —
Hattar — Húfur — Sokkar — Axlabönd í fallegum skraut-
öskjum. — Treílar, - Alt í mjög fallegu úrvali nýkomiö.
Branns-Verslnn.
um þeim, sem sögurnar fjalla um,
finna eins til með þeim, taka þátt
í lífi þeirra og hugsunum. Endur-
minningarnar um þessa viðkynn-
ingu geymast svo ljóslifandi í hug-
skoti manna, að þær geta blátt
áfram haft áhrif á hugarfar hinna
ungu lesenda langt fram á æfiskeið
þeirra.
Því er það eitt eigi ómerkilegt
hlutverk kennara og leiðtoga æsk-
unnar að benda unglingunum á
góðar bækur — bækur við þeirra
hæfi — sem hafa það tvent til að
bera að vera aðlaðandi skemtile'g-
ar, og sem jafnframt skilja eftir
í hugum hinna ungu lesenda hollar
og góðar endurminningar.
Slík bók er „Anna Fía“ eftir
Evu Dam Thomsen. Eru nú komn-
ir út tveir kaflar af sögu þessari
(sem hvor um sig er alve'g sjálf-
stæð saga), annar x hitt eð fyrra
en hinn í ár. Fyrri kaflinn heitir
„Anna Fía“ en sá nýútkomni
„Anna Fía í höfuðstaðnum“. Þar
er skýrt frá hinni fyrstu lífs-
reynslu hinnar ungu stúlku, er
sagan segir frá, er hún kemur til
stórborgarinnar og verður þar að
vinna fyrir sjer, um viðkynningu
liennar við borgarlífið og hvernig
hún ke'mst klakklaust fram hjá
hættum þeim, sem á leið hennar
verða.
Lýst er í bókinni af náinni þekk
ingu mismun þeim, sem er á hug-
arfari og háttum sveitastúlkunnar
og þeirra,' sem alist hafa upp við
kjör og umhverfi stórborgarinnar.
Er hjer um viðfangsefni að ræða,
svn svo raövg önnur, sem bíður
þess að einhver andans hagieiks-
maður hjerlendur inni af hendi,
eftir því sem íslensk viðhorf og
staðhættir gefa tilefni til.
Þýðingu sögunnar hefir gert
Freysteinn Gunnarsson skólastjóri.
Nýkomið:
áN&NAS,
1,5 og 2,5 lbs.
Þetta eru verulega góðir, en þó mjög ódýrir ávextir.
Hldrei meira en nú af
Goll-, Sflfir- ai silforolett-
vOium,
seiu alt eru hentugar og uytsamar
Jálag jaf Ir.
Allar gamlar silfur- og tinvörur verða seldar
’ fyrir hálfvirði.
"SigurliófTónÍionT
Austurstræti 3. Sími 341.
»»
Perlur“.
Mánaðarrit me'ð myndum,
1. hefti. Útgefendur Kjartan
Ó. Bjarnason og Stefán Ög-
mundsson.
Nafn þessa rits bendir þe'gar til
þess, að útgefendurnir setja ekki
markið lágt um efni og' innihald
þess. Ritinu er ætlað að flyja ein-
ungis „úrval þess hesta, aðeins
perlur heimshókme'ntanna", að því
er hið þýdda efni snertir. Þannig
farast útgendunum orð í formál-
anum. f hefti þessu eru líka sögur
eftir útlenda höfunda eins og Guy
de Maupassant, Victor Hugo og
Knut Hamsun. Af innlendu efni
er fyrst að te'lja Hans hókhaldara,
sögu eftir Davíð Þorvaldsson, Ferð-
ir um óbygðir, eftir Fontenay sendi
herra og Ljósheima, kvæði eftir
Þorstein Halldórsson. Er þetta alt
mjög læsilegt. Vandaðra , mætti
málið vera á þýðingunum — og
innlenda efninu — sumstaðar, e'n
teljast má það þó í betra lagi. Mun
útgeföndum það og mjög hugar-
haldið, að ritið verði sem vand-
aðast að því leyti. Það er fljót-
sagt, að ritið kafnar ekki undir
nafni að þessu sin.ni; í því eru
perlur.
Annað atriði ber sjerstakle'ga að
taka fram nm þetta rit,. Það er
frágangurinn. Hann er alveg fram-
úrskarandi góður, svo að annað
eins hefir ekki sjest hjer, nema
ef til vill á hátíðaritum. Litprent-
aðar myndir prýða alt ritið og
pappír og prentun e'r svo vandað,
að elcki mun hægt að gera betur
hjer á landi. Með tilliti til þess
virðist ritið vera mjög ódýrt, 1.50
í lausasöln heftið, 32 síður í stóru
hroti og auk þess fylgirit með
kýmnisögum og skrítlum, 16 síður
í litlu broti. Áskriftarverð 1.25.
Þetta rit hlýtur að fljúga xit um
alt land og njóta mikilla vinsælda
hjá öllum sem fá það í hendur.
G. J.
TÓ veiku stúlknnnar frá Nonna
Nonna 20.00, X (áheit) 5.00, R. S.
5.00, Ó. H. 5.00, ónefndum 4.00,
Ó. G. 3.00, N. N. 5.00, S. K. 5.00,
Þ. G. 5.00, Laugu 2.00, L. P. 6.00.