Morgunblaðið - 12.01.1930, Blaðsíða 5

Morgunblaðið - 12.01.1930, Blaðsíða 5
Sunimdagmn 12. janúar 1930. 5 0U Hkæruvaldíð og relslvaldið Það e'r nú rjett ár síðan Her- mann Jónasson Hóf starf sitt sem lögreglustjóri þessa bæjar. Menn hugðu alment gott til hans í þess ari vandasömu og ábyrgðarmiklu stöðu. Hann hafði áður um nokk- urt skeið farið með lögreglumál bæjarins undir handleiðslu eins af bestu og glegstu dómurum þessa lands, Jóhannesar fyrv. bæjarfó- geta Jóhanne'ssonar, aulc þess sem hann hafði sjerstaklaga kynt sjer erlendis meðferð lögreglumála og annað það er að starfi lögreglu- stjóra lýtur. En það sem mest var um vert og menn lögðu mesta a- herslu á, og töldu He'rmanni sjer- staklega til ágætis var það, að hamn hafði- ávalt. haldið sjer utan við stjórnmáladeilurnar og virtist að öllu leyti óháður flokkum og einstökum mönnum í því efni. Það töldu menn vera tryggingu þess. að hann mundi verða rjettlátur í starfi sínu og á engan þátt láta stjórnast af pólitískri eða persónu- legri óvild til manna, se'm oft leiðir af hinni harðvítSgu stjórnmála- deilu vorra tíma. Mönnum var það ljóst hversu afaráríðandi það er þjóðfjelaginu og ekki síst þessu bæjarfjelagi að lögreglustjórinn, sá embættismaður sem að miklu leyti hefir refsivaldið og framkvæmd þess í höndum sjer, c'igi ekki í dagsins deilum og stjórnmálaþrefi, heldur inni starf sitt af liendi óskiftur og óháður og laus við alla pólitíska samúð eða andúð til þeirra manna sem eiga við að búa stjórn hans, eiga rjett sinn að sækja í hendur honum og eiga kröfu til verndar hans ef svo ber undir. Menn tóku þegar í öndve'rðu eft ir því, að dómsmálaráðherrann, Jónas Jónsson frá Hriflu, sem skip aði Hermann í lögreglustjóraem- bættið, ljeti ekki þar við sitja, heldur tók hann beinlínis að sjer og ól önn fyrir honum sem embætt ismanni með mikilli nákvæmni og gerði alt sem hann gat til þess að breiða út hróður hans sem lög- reglustjóra. Flutti stjórnarblaðið „Tíminn“ hverja greinina eftir aðra um ágæti þessa nýja lögreglu stjóra og gat ekki nógsamlega lof- að skarpskygni hans í því að kom- ast fyrir glæpi, stjórnsemi hans og röggse’mi. Mönnum þotti þessi lofsöngur „Tímans“ nokkuð kyn- legur og jafnvel grunsamlegur, þar sem það var ekki vitað, að nokkuð ■ það hefði komið fyrir í tíð þessa nýja lögreglustjóra, er gæfi minsta tilefni til slíkrar aðdáunar eða benti á nokkurn hátt á yfirburða- liæfileika hans. — Hvað veldur? spurðu menn. Og nú er gátan ráðin Hermann Jónasson átti að vei-ða pólitískt verkfæri í höndnm Jónas- ar frá Hriflu. Dómsmálaráðherrann og lög- reglustjórhm í Reykjavík — á- kæruvaldið og refsivaldið — áttu að standa saman í stjórnmálabar- áttunni og þar með áttii að kúga pólitíska andstæðinga til auð- sveipni og undirgefni. Margir þeir, er þektu Hermann Jónasson, bjuggust við því að hann liefði það þrek og þann manndóm, að standast blíðmælgi Jónasar frá Ifriflu og að hann, jafn skarp- skygn og hann var sagður sem lög- reglustjóri, myndi hafa þá greind til að bera að liann ljeti ekki blekkjast af atlotum Jónasar. Og menn voru e’innig að búast við því að Hermann tæki starf sitt sem lögreglustjóri svo alvarlega, væri svo ant. um embættisheiður sinn, væri svo samviskusamur og fýndi til svo mikillar ábyrgðar í þessu starfi sínu, að hann mundi aldrei láta dómsmálaráðherrann leiða sig út á þá háskalegu braut sem hann nú er genginn inn á, — að standa við lilið Jónasar i stjórnmáladeil- unni, jafn óvægile'g og persónuleg og hún jafnan hefir verið af hálfu ráðherrans. Mönnum bar öllum saman um það, að lögreglustjórinn mætti síst allra manna verða flæktur í póli- tískar flokkadeilur, því að aðstaða hans væri þannig að enginn gæti sem hann, misbeitt valdi sínu á því sviði ef honum biði svo við að horfa. En hvað skeður? Hermann Jónasson er óvenju- lega framgjarn maður, og það vita þeir sem þekkja hann best að hann er ekki að sama skapi hygginn maður.Hann stóðst ekki atlot Jón- asar frá Hriflu. Honum finst það vera vegsauki að standa framar- lega í hinni pólitísku baráttu og hann sjer í hillingum ókomins tíma frægð og frama þjóðmálaleið togans. — Hann fellur fyrir gyll- ingum dómsmálaráðherrans. Og hvað svo? Það sem menn óttuðust mest verður að verule'ika. Þegar á fyrsta fundinum, sem haldinn er hjer í bænum vegna bæj arstjórnarkosninganna, sem nú fara í hönd, gerir lögreglustjórinn sig sekan um það, að drótta því að mönnum, sem ekkert höfðu til saka unnið annað en það að standa á öndve'rðum meiði við hann í póli tískum skoðunum, að hann hafi haft þá undir hendi; vitanlega sem sökudólga. Hann misbeitir þannig við fyrsta tækifæri, á hinn háska- legasta hátt, stöðu sinni sem lögreglustjói-i, — á opinbe'rum fundi og framan í hundruðum manna. Og meira enn: Hann er neyddur til þess á sama fundi og framan í sömu mönnum, að aftur- kalla þessar aðdróttanir sínar og gerist þannig opinber ósanninda- maður frammi fyrir alþjóð. Getur slíkur maður krafist trausts og virðingar borgara þessa bæjar? H rmann Jónasson hefir brugð- ist trausti þeirra manna sem best hugðu til hans sem lögreglustjóra. Hann hefir sýnt það nú, að hann tekur ekki starf sitt sem lögreglu- stjóri eins alvarle'ga og honum ber, að hann hefir skort samviskusemi og ábyrgðartilfinningu til þess’að halda sjer utan við deilur stjórn- málanna, — og að hann hefir fórn að embættisheiðri sínum á altari Jónasar frá Hriflu. Þetta er öllum bæjarbúum ljóst og þeir munu minnast þess við bæj aistjórnarkosningarnar 2Ö. þ. m. a—b. iliiliilliiiir aUiaáaf IJJ’ Bezti eiginleiki v FLIK=FLAKS lj er, að það bleikir þvottini^! við suðuna, án þess að fjM skemma hann á nokk- /M urn hátt f ^ Ábyrgzt, að laustyB [K. sé við klór. Rskan og bolsabroddarnir. Engir hafa látið meira yfir ást sinni á æskunni og stuðningi sín- um við hana en bolsabroddarnir. Árið út og árið inn hafa þeir kyrj- að lof sitt um æslruna. „Æskan á að ráða. Yið berjumst fyrir rjett- indum hennar“. Þetta er söngur- inn. Nu hafa menn á aldrinum 21—25 ára í fyrsta sinn öðlast kosninga- rjett og kjörgengi. Menn skyldu nú ætla, að bolsabroddarnir hefðu reynst orðum sínum trúir og tekið einhvern ungan mann í örugt sæti á lista sínum. Svo varð þó eigi. All- ir gömlu fulltrúamir eru teknir þar í röð — eftir „embættisaldri“. Ungu mennirnir í flokki sósíalista eru notaðir aðeins sem flotholt und- ir hina afturþungu burgeisa flokks- ins. Oft hafa broddarnir beðið um fylgi æskumannanna, skjallað þá og sagt: „Ef æskan vill rjetta þjer örfandi hönd, þá ertu á framtíðarvegi“. Það er rjett, að þeir, sem æsk- an rjettir höndina, eru á framtíð- arvegi. — Nokkrir æskumenn hafa rjett þeim Hjeðni, Stefáni Jóhanni og Sigurði Jónassyni sína örfandi hönd og þeir hafa komist á fram- tíðarveginn — framtí,ðarveg olíu, tóbaks og embætta. En þegar æskan vill sjálf komast á framtíðarveg hugsjóna sinna — hvar er þá hönd þessara manna ? Um það ber listi þeirra ljósastan vottinn. Sjálfstæðismenn tefla nú fram mjög efnilegum 24 ára gömlum manni. Alþýðublaðið þarf auðvitað að hnýta í þennan unga mann, því að hann er ekki af þess sauðahúsi. En á hvern hátt gerir blaðið það ? Bú- ast mætti við, að það væri vegna skoðana lians. Nei! Það er Vegna æsku hans. Alþýðublaðið velur okkur æsku- mönnum þessa bæjar heitiS pela- börn. — Þar kom vilfurinn undan sauðargærunni. Þarna komu þeir upp um hinn sanna hug sinn til æskunnar. Auglýsing nm ntsvarsskyldn ntansveitarmanna. Samkvæmt lögum nr. 46, 15. júní 1926 um útsvör og reglur 8. n<3v. 1927 um útsvarsskýrslur utansvcitarmannú. ber að senda bæjarstjórninni skýrslur um atvinnu þá, er utansveitarmenn stunda í Reykjavík. Þessir eru skyldir að senda skýrslur um atvinnu sína í Reykjavík: 1. Hver sá einstaklingur, eða fjelag, sem ekki á heim- ilissveit í Reykjavík, en a. hefir hjer heimilisfasta atvinnustofnun, einkaat- vinnu eða útibú, b. stundar fiskveiðar og leggur upp afla sinn í Rvík, c. rekur hjer atvinnu, svo sem verslun, síldarkaup, verksmiðjuiðnað eða slíkt, d. flyst hingað búferlum. 2. Þeir, sem eiga hjer ekki heimilissveit, en stunda at- vinnu í Reykjavík að minsta kosti 3 mánuði samtals á gjaldárinu. 3. Þeir, sem eru lögskráðir á skip í Reykjavík að minsta kosti 3 mánuði samfleytt, en eiga hjer ekki heimils- sveit. Ennfremur allir þeir vinnuveitendur í Reykjavík, og þeir sem hafa hjer heimilisfasta atvinnustofnun skyld- ir að senda skýrslur um atvinnu þeirra utansveitarmanna, sem starfa í þjónustu þeirra. Allar þessar skýrslur skal rita á eyðublöð, sem þar til eru gerð, og fást á skrifstofu borgarstjóra. Skýrslur fyrir árið 1929 bera að senda hingað á skrif- stofuna nú þegar og ekki síðar en fyrir lok febrúarmán- aðar, að viðlögðum dagsektum eftir ákvörðun atvinnu- málaráðuneytisins. . Borgarstjórinn í Reykjavík, 11. janúar 1930. K. Zimsen. Þegar æskan lætur okkur stjórna sjer og rjettir okkur örfandi hönd á framtíðarvegi okkar, þá er htín ágæt. En þegar æskan gerist svo djörf, að heimta rjett sinn til beinna á- hrifa á hag bæjarins, þá fær hún ert vit á slíkum málum fremur en þann vitnisburð, að hún hafi ekk- pelabörn. Þessa munu allir sjálfstæbir æsku- menn í Reykjavík minnast nú við kosningarnar. Þess vegna kjósa þeir C-listann. Æskumaður. Efnalaug Reykjavíknr hefir flutt afgreiðslu sína í hið nýja hús Gúð- steins Eyjólfssonar, Laugaveg 34-

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.