Morgunblaðið - 06.04.1930, Blaðsíða 3
MORGUNBLAÐIÐ
3
Tfí orgttnblaí>tö
Útgref.: H.f. Árvakur, Reykjavlk
Ritstjðrar: Jðn Kjartansson.
Valtýr Stefánsson.
Ritstjðrn og afgriiBsla:
Austurstræti 8. — Stnai E00.
Auglýsingastjðri: E. Hafberg.
Auglýsingaskrif stof a:
Austurstræti 17. — Simi 700.
Heimasímar:
Jðn Kjartansson nr. 742.
Valtýr Stefánsson nr. 1220.
E. Hafberg nr. 770.
Áskriftagjald:
Innanlands kr. 2.00 á mánuBi.
. Utanlands kr. 2.50 á mánuöi.
í lausasölu 10 aura eintaklö,
20 aura metS Lesbók.
Vikan.
30. mars til 5. apríl.
Veðrið. Fyrir síðustu helgi var
rorðangarður. En um helgina
stilti til. Var á mánudag stilt
veður, en á þriðjudagiim hvesti
af suðaustri og hlánaði á Suð-
ur- og Austurlandi. Síðan gekk
til sunnanáttar með hlýindum
um land alt, og 6—8 stiga hiti
um miðjan daginn. Hefir síðari
hhita vikunnar verið mikil leys-
ing á Norðurlandi. Þó er þar
ekki enn auð jörð, því mikilli
fönn kyngdi niður í norðongarð-
inum.
ís sást frá Grlmsey og Vest-
fjörðum í byrjun víkunnar, en
hann hvarf alveg er brá til
xunnanáttar.
Afli hefír haldist hinn sami
þessa viku fyrir Buður- og Vest-
uriandi, sem að tmdanförnu. —
Hafa nokkrir togarar flutt í land
á 2. þúe. skpd. á hálfum mán-
uði. Afli á öllu landinu er nú um
140.000 skpd., en var um 114.-
OOO skpd. um sama leyti í fyrra.
Er alveg stórfurðulegt, að afl-
inn í ár skuli vera kominn þetta
fram úr aflanum í fyrra, þeg-
ar þess er gœtt, hve mikið gæfta-
og aflaleysi var í janúar og fe-
brúar í ár.
I Vestmannaeyjum eru kom-
in um 24.000 skpd. í land. Hafa
nokkrir bátar þar þegar fengið
meðal vertíðarafla. Netjaveiðar
eru þar lítið eitt byrjaðar. En
búist er við, að menn stundi þar
lítið netjaveiðar í ár, sjái sjer
ekki fært að hætta netum sínui
vegna yfirgangs erlendra tog-
ara, meðan ekki er þar annað
varðskip en fleytan Hermóður.
Á Norðurlandi hefir lítið gef-
ið á sjó enn. Á Austfjörðum
hefir afli verið tregur, og eins
í Homafirði, nema nokkurn
tíma framan af mars.
Fiskverð fer lækkandi. Afli
í Noregi mikill, 42 miljónir af
fiski komnar þar á land, en 47
miljónir á sama tíma í fyrra.
I>á var þar afburða aflaár.
Síðan eldhúsdegi lauk, hefir
verið tíðindalítið í þinginu. Er
talað um að hespa þingstörfin
af fyrir páska. Er líklegast að
þingið hafi þá afgreitt tvö mál,
sem nokkuð kveður að, fjárlögin
og bankamálið, og hefir lengri
tími farið í bankamálið heldur en
hitt. En úr því svo fór, að mál-
inu lauk með „sigri hins góða
málstaðar“ eins og Ásgeir Ás-
geirsson komst að orði, munu
Sjálfstæðismenn ekki harma það,
þó nokkur tími hafi í það farið,
enda eðlilegt, að það yrði dálít-
ið tafsamt, að snúa landsstjórn-
inni algerlega í jafn stórvægi-
legu máli.
Það var sem kunnugt er fastur
og einbeittur ásetningur lands-
stjórnarinnar að láta fram fara
gjaldþrotaskifti á bankanum. Og
sá vilji hennar var altaf jafn
einbeittur, uns sexmenningarnir
í Framsókn gerðu landsstj. að-
vart um það, að ef bankinn yrði
leiddur á höggstokkinn. þá fyki
landsstjórnin úr valdasessi. Þá
snerist stjórnin, lofaði bót og
betrun. Þá vann „hinn góði mál-
staður“ sigur.
Og landsstjórnin gerði enn
meira. Hún hóf upp lofsöng —
um sjálfa sig, og hin „föstu tök“
sín í bankamálinu. „Föstu tök-
in“ eru orðin að einskonar
„motto“ fyrir skopleik þeim sem
stjórnin hefir leikið í þessu máli.
„Föstu tökin“ lýstu sjer í því,
að stjórnin 1. neitaði öllum til-
raunum tfl að endurreisa þenE<<
ann, 2. bar fram frumvarp um
gjaldþrotaskifti, 3. dró á lang-
inn að fram færi rannsókn
á hag bankans, 4. birti falska
skýrslu um rannsóknina, er
henni var iokið; alt til að koma
í veg fyrir að bankinn yrði opn-
aður aftur. — Jafnframt því
varaðist stjómin eins og heitan
ekl að örfa nokkra mannveru til
h 1 utafjárframlaga hjer innan-
íande. Úr því ekki tókst að reka
rothöggið á bankann á eínum
degi, þá átti að seigdrepa hann.
— En þegar stjórnin sá, að
fengnar voru 2 miljónir króna
i hlutafje innanlands, og fáan-
leg myndi erlend aðstoð, en
lánstraust landsins væri að fjara
út, ef bankinn yrði ekki endur-
reistur, og þegar brakaði I fún-
um löppum ráðherrastólanna, þá
slepti stjómin þeim einu
„föstu tökum“, sem hún hafði
tekið í þessu máli, tökunum, sem
hún fyrst með lævísum rógi, síð-
ar í heift og bráðræði hafði tek-
ið um kverkar bankastarfseminn
ar; og snerist á sveif með end-
urreisnarmönnunum.
I þeim hringsnúning bjargaði
stjórnin einu hálmstrái, sem nú
skartar í stjórnarhattinum. —
Bankinn breytti um nafn. Hann
heitir Útvegsbanki, en er sami
og íslandsbanki. Nafnbreyting-
in var eini „útvegur“ stjórnar-
innar til þess að reyna að villa
þeim sýn í bili, sem í fjarlægð
búa. —
inga-títuprjóna-yfirvaldsins stór-
fræga, er sprottin af því, að
meirihluti Framsóknar vjek hon-
um úr forsetastólnum en kaus
Ásgeir Ásgeirsson. Það var Ás-
geir sem stóð fremst í flokki við
að kippa bankamálinu í lag. Það
var Ásgeir, sem átti fyrst og
fremst að vera í bankaráðinu. En
fyrir þær athafnir fjekk hann
óvild frá ó^num bankans. Og
þeir óvinir hugsuðu til hefnda.
Ásgeiri var sparkað í þetta sinn,
en Magnús Torfason kosinn. —
„Klögumálin ganga á víxl“ —
í Framsókn, eins og í vísunni
stendur.
Mikið ánægjuefni er það öll-
um Sjálfstæðismönnum, hve
fylgi flokksins fer vaxandi með-
al unga fólksins. í Reykjavík og
Hafnarfirði eru fjelög ungra
Sjálfstæðismanna sífelt að efl-
ast. Fjelagið hjer í Reykjavík,
Heimdallur, gefur út samnefnt
blað, þar sem ungir áhugamenn
flokksins rita um ýms dagskrár-
mál. Hafa þar birtst ágætar
greinír undanfarið. Ættu fyigiiv
roenn' Sjálfetæðisflokksins fjær
og nær, að styrkja þessa starf-
semi hinna ungu liðsmanna.
Nokkrar konur hjer í höfuö-
staðnum efndu til fundar ný-
lega, til þese að ræða um alysa-
vamirnar. Slysavarnafjelagið er
enn ungt og vanmegnugt til að
lyfta því mikla verkefni sem fyr-
ir Kggur. En hálfnað er verk
þá hafið er.
Nú hafa konur höfuðstaðar-
ins tekið höndum saman til þess
að ljá málefní þessu lið. Með
því móti er það trygt, að starf-
semi Slysavamafjelagsins fái í
framtíðinni þann blæ í innileika
og trúmensku í starfinu, sem
konur leggja fram, er þær taka
að sjer mikilvæg störf.
Hver getur betur dæmt um
nauðsyn slysavarna, og hver finn
ur betur nauðsyn þeirra, en k<
ur hjer í Reykjavík, sem mik-
inn hluta ársins verða að vera
með hugan hjá ástvinum úti á
hafinu?
Eins og aðrir skopleikir, end-
aði skopleikur stjórnarinnar með
eftirtektarverðri rúsínu í end-
anum.
Aðalfundur var haldinn nú i
vikunni, er stóð á þriðjudag, mið
vikudag og föstudag. Þar kaus
stjórnarliðið í bankaráð Magn-
ús Torfason. — Það vefst fyr-
ir sumum í svip hversvegna hann
varð fyrir valinu. — Hann sigldi
eins og menn muna í suihar —
til að læra mannasiði — til að
verða forseti Alþingishátíðar-
innar. En síðan kom meirihluti
Framsóknarflokksins á þingi
sjer saman um að kjósa ekki
Magnús, heldur mann, sem flokk
urinn kinnroðalaust gat horft
á í forsetastólnum.
Þeir sem kunnugastir eru í
heimahögum Framsóknar, vita
Enn frjettist ekkert um það,
að Islendingar ætli að sinna fiski
veiðum við Grænland í ár. Er sú
deyfð alveg óskiljanleg, úr því
reynsla annara er svo skírmælt,
sem raun er á. Nú er Hellyers'
fjelagið hætt útgerð frá Hafn-
arfirði. Tvímælalaust m. a. vegna
þess, að fjelaginu þykir sú út-
gerð ekki bera sjer nægilegan
arð. Sama fjelag leggur sem
kunnugt er mikið kapp á veiðar
við Grænland. Þar er gróðinn
vís. — Og þar moka Færeying'
ar upp fiski ár eftir ár, og græða
stórfje — enda þótt veiðitæki
þeirra sjeu talin úrelt hjer á
landi.
Hafa íslendingar efni á að
sitja lengur hjá aðgerðalausir ?
Væri ekki nær að fara vestur
á Grænlandsmið í sumar, í stað
þess að eyða fje í að veiða síla
sem e. t. v. eins og í fyrra, er
veidd til þess eins að skila henni
aftur í sjóinn.
Tíminn birti á dögunum eft-
irtektarverða skýrslu eftir Sig-
urð búnaðarmálastjóra um það
hve jarðrækt hafi margfaldast
Meö vaxandi hraöa ryöur
ARISTON sigarettan
s}er til rúms.
Munið nýja myndasafnið.
Bestu bifhjólin
og fílsterku reiðhjólin
fást í
Heildv. Garðars Gískisonar.
árgreiðslnsftoian
„Ondnla“
ðskar eftir dnglegri faUnama stnlku.
vel, að bankaráðstign Árnes-'sveitum landsins síðan jarðrækt-
arlögin komust á. „Bændavin-
irnir“, sem að Tímanum standa
geta ekki neitað því, að engin
löggjöf hefir á síðari árum gert
landbúnaðinum eins mikið gagn
eins og jarðræktarlögin. Þau
hafi lagt þann grundvöll, sem
búnaðarframfarirnar byggjast á
í náinni framtíð.
Tíminn skeytir ekki um að
halda því á loft hverjir sömdu
' jarðræktarlögin. — Höfundar
þeirra ekki heldur. Þeim er nóg
að reynslan hefir sýnt að lögin
koma að tilætluðum notum.
En ef svo hefði verið, að Tíma
menn hefðu þar verið að verki,
þá myndu eigi margir mánuðir
líða án þess að minst væri á það
í Tímanum, hverjir hefðu borið
gæfu til þess, að leiða löggjafar-
valdið inn á þá braut, að þvinga
fram örar framfarir í ræktun
landsins.