Morgunblaðið - 14.06.1930, Side 2
2
MORGUNBLAÐIÐ
jj)) temiHi & Qlsem ((
TAÐA.
flöfuui fil söln ca. 130 besta af verulega góðri töðu, á
sjerstaklega gððn verðl. Verðnr afhent í dag
og næstn daga á Vestnrgötn 2.
Nákvæm prófun
hráefna, til hinna full
komnu o" vönduóu
vjela, sanna hinn ó-
viðjafnanlega styrk-
leika.
RALEIGH
THE ALL-STEEL BICVCLE
Allar nánari upplýsingar hjá
Heildveralnn Ásgeirs Signrðssonar.
Hafnarstræti 10—12. Sími 299.
Hykomið:
Peysufatasikli.
Peysufatamillipils (tricotine).
Kasmirsjöl (svört, hvít, grá, d'rap)
einföld og tvöföld.
Slifsi.
Svuntuefni.
Gefið öOrnunym banana
J / J
kvðlds og morgna.
Eru bestir
Pjelög gvðleysingja í Leningrad
hafa fengið leyfi ríkisstjórnarinn-
ar til að taka til sinnar iiotkunar
-811 lokuð klaustur og dómkirkjur
þar í hje’raðinu. Stjórnin í Moskva
er að láta undirbúa nýja kvikmynd
á móti trúarbrögðunum, sem heitir
„ópíum“. (Straumar).
annað kvötd Klia 8^2 I
BF1LLETTKU0LD
IMIhriretie Broch Hselsen
AÐEINS NÝIR DANSAR ! 10 ATRIÐI.
Búningar frá Kgl. leikhúsinu í Khöfn og frá
París — Berlín — Sevilla.
3 dansar, dansaðir af
nemanda frú Brock-Nielsen.
ungfrú ÁSTU NORÐMANN.
1 DÚETTDANS:
Jórunn Viðar og Helene Jónsson
(Nemendur Ástu Norðmann)
AðgBngumiðar 2,50 og 3,00, stœði 2,00, í Hljóðfærahúsinu og Bókav ísafoldan
Vestur-Islenðingum fagnað.
Skip Cunardlínunnar, „Antonia“
kom hingað í gærkvöldi. Með skip-
inu voru á 6. hundrað farþegar.
Meðal þeirra voru nál. 200 Alþing-
ishátíðargestir. Bæjarstjórn ákvað
á dögunum að borgarstjóri, ásamt
forsetum bæjarstjórnar, fagnaði
þessiim ferðamannahóp er hann
kæmi hingað. Móttökurnar fóru
fram sem hjer segir:
Það var kl. 9y2 £ gærkvöldi, að
farþe'gasltipið „Antonia' ‘ lagðist
hjer á eystri höfnina. Um sama
leyti lagði hafnarbáturinn ,Magni‘
frá landi. Með honum var borgar-
stjóri, og bæjarstjórnarforsetar, al-
þingisforsetarnir, svo og söng-
flokkur K.P.IT.M.
Er Magni rann iít höfnina tók
söngflokkurinn lagið, en mann-
fjöldinn sem þegar hafði safnast
saman á hafnarbakkanum, veifaði
til söngmanna.
Er Magni nálgaðist „Antonia"
gullu við fagnaðaróp 'af þilförum
skipsins, og tókn söngmenn undir
með öflugu húrrahrópi.
Er upp á skipið kom var öllum
vísað í borðsal skipsins. Ætlaði að
ganga erfiðlega nokkuð að safna
komumönnnm saman þangað, því
þröng var mikil af farþe'gum skips-
ins. En er í borðsalinn kom var þar
hvert sæti skipað.
Söngflokkurinn söng nú Eld-
gamla ísafold. Var einkennilegt að
sjá svipbrigðin í andliti nokkurra
aldraðra Vestur-íslendinga, við þá
fyrstu frónsku kveðju. Það var
sem hinir dálítið harðneskjulegu
„amerísku“ drættir þiðnuðu við
söngkveðjuna.
Því næst ávarpaði horgarstjóri
Vestur-ísle'ndingana með nokkrum
orðum.
Skýrði hann frá, að honum hefði
verið falið af hæjarstjóm að taka
á móti hínum vestur-íslensku gest-
um og væri það honum hið mesta
ánægjuefni.
Benti hann á með fáum orðum,
að þótt margt hefði breyst á landi
hjer síðan íslendingar fluttust ve'st
ur um haf, væri svipur landsins
óbreyttur, og kvaðst hann vona, að
heimsókn þessi Vestur-lslendinga
mætti verða til þess, að samband
fslendinga beggja vegna hafsins
mætti verða innilegri og áhrifa-
rikari en nokkru sinni áður.
Við hjer heiina gleddumst yfir
því, að landar vorir vestan hafs
hefðu varðveitt tunguna, og væri
það þeirra sæmd.
Að endingu kvaðst hann óska
þess, að heimsókn þessi mætti
verða gestunum að vestan ógleým-
anleg.
Verið öll hjartanlega velkomin
til Reykjavíkur — velkomin til
íslands.
Margoft dundi við lófatak á-
heyrenda me'ðan borgarstjóri tal-
aði.
Því næst söng söngílokkurinn
„Ó, Guð vors lands.“
Þá talaði dr. Brandson nokkur
orð.
Þakkaði hann hina hlýju kveðju
og sagði, að þessi stund myndi
verða þeim Vestur-lslendingum ó-
gleymanleg.
Mintist hann þess, að 60 ár væri
liðin síðan vesturfarir hófust hjeð-
an. Og þó margir fslendingar hefðu
komið he'im á þessum árum, þá
hefði aldrei komið svo stór hópnr
þeirra sem þessi. Hjer væru nú
fulltrúar þriggja kynslóða að vest-
an, menn, sem aldraðir hefðu farið
vestur, aðrir sem hefðu farið þang-
að á barnsaldri, eins og hann, og
væri nú fullorðnir og enn aðrir sem
aldrei hefðu ísland sjeð, aðeins
þektu það af afspnrn. Óvíst væri
hverir hefðn hlakkað mest til far-
ar þessarar, en sjer væri nær að
halda, að það væri yngsta kjmslóð-
in, því svo vel hefði tekist, að
halda við ást á landinu meðal
þeirra sem alist hefðu upp vestra.
Hann sagði ennfremur, m. a. að
þó Vestur-íslendingar kæmi ekki í
einum hóp að þessu sinni, þá kæmi
þeir allir með þeirri sameiginlegu
ósk, að hátíð sú, sem nú stæði
fyrir dyrum, yrði íslensku þjóð-
inni til farsældar og blessunar, og
að heimsókn þessi gæti orðið til
þess að samúðin yrði innilegri milli
íslendinga austan hafs og vestan.
Hann kvaðst vona að heimsókn
þessi yrði á etagan hátt til þess að
varpa skugga á hátíðina, heldur
Hugiýsingadagbðk
Ýmislegt til útplöntunar í Hellu-
sundi 6. Einnig plöntur í pottum.
Större leveringsdygtig engros
Pirma i færdige lædervarer söger
en godt indfört Agent paa Pro-
visionsbasis. Bille't mrk. „DEA 31“
modtager Bladets Kontor.
Athugið! Hattar enskar hiifur,
sokkar, manchettskyrtur, háls-
bindi, vinnuföt, o. fl. Ódýrast og
best í Hafnarstræti 18. Karlmanna-
hattabúðin.
<
Vinna.
Ef þjer þurfið að fá flutt, þá
biðjið um vörubíl í síma 646.
frekar til að auka ánægju þá, sem
yrði hátíðinni samfara.
Ifann óskaði íslensku þjóðinni
innilega til hamingju með hátíðina
og að hún yrði þjóð vorri til ævar-
andi sóma.
Að ræðunni lokinni, söng flokk-
urinn ,Þú álfu vorrar yngsta land‘.
Þá var móttöku athöfninni lok-
ið; menn heilsuðu kunningjum, er
þeir komu áuga á í mannþyrping-
unni, og hjeldu síðan út í Magna,
er beið við skipshlið.
All-margir V e'stur-f slendingar
urðu samferða með Magna í land.
En á hafnarhaklcanum heið sá ara-
grúi af fólki til að taka á móti
þessum fyrstu kátíðargestum, að
lögreglan átti fult í fangi með að
ihafa hemil á mannþyrpingunni.
Heimdallur, kosningablaðið kem-
ur út í dag. Söludrengir komi í
Varðarhxisið kl. 10.
Almennur fundur fyrir stuðn-
ingsmenn C-listans verður í Nýja
Bíó í dag og hefst kl. 4þ(>. Áríðandi
er að menn mæti stundvíslega.
Skipstjóra og stýrimannafjelagið
Ægir, heldur fund í K. R. húsinu
kl. 4 í dag. Fjelagar heðnir að
fjölmenna.
Aðalfundur Eimskipafjelagsins
verður í dag í Kaupþingssalnum.