Morgunblaðið - 31.12.1930, Síða 4
4
MOHOTTNTHyA F>TF>
Artalumboðsmaður á íslandi
Th. Beniaminsson
Garðastræti 8. — Reykjavik.
Birgðir í Kaupmannahöfn hjá
Bernhard KJ aei*
Gothersgade 49. Möntergaarden.
Köbenhavn,. K.
Simnefni Hoimstrom.
Þegar þjer kanpið dðsamjðlk
þá mnnið að biðja nm
GYNELRHB
því þá fáið þjer það besta.
I. Brynjélísson & Kraraa.
Hugl^ingtifaEbÉk
Blóm & Ávextir, Hafnarstræti 5.
Körfur, skreyttar blómum, kon-
fekti og ávöxtum.
Blómaverslunin ,Gleym mjer ei“.
Jólatrje og ofskorin blóm, pálmar
og alskonar gerfiblóm, einnig
blómstrandi blóm í pottnm. —
Bankastræti 4: sími 330
Grammófónviðgerðir. Gerum við
grammófóna fljótt og vel. Öminn.
Laugaveg 20. Sími 1161.
Utsprungnir túlipanar og hyaz-
intnr fást í Hellusundi 6, sími 230.
Sent heim ef óskað er.
Einhleyp stúlka óskar eftir litlu
herbergi. Upplýsingar í síma 770.
Blómaverslunin „Gleym mjer ei“
hefir fyrirliggjandi fjölbreytt úr-
val af pappírsskrautlengjum, papp
írshöttum og húfum, konfetti o. fl.
o. fl. Sömleiðis túlipana og hya-
cinthur daglega. Bankastræti 4.
Eaiipið kjöl í nýársmatiim
bjá okknr.
Yerslnnin
Kjðt & Græsmeti.
Bergstaðastíg 61. Sími 1042.
Morgunblaðið. Vegna vjelabilun-
ar í prentsmiðjunni kemur blaðið
seinna út í dag heldur en vant er.
Dansleikurinn í K. R.-húsinu í
kvöld verður haldinn af Moon
Light klúbbnum og Astoria sam-
eiginlega, og geta fjelagar beggja
fengið aðgang fyrir sig og gesti.
Aðgöngumiðar seldir í K. R-hús-
inu í dag frá kl. 11—6.
Hjálpræðisherinn. Gamlársdag
31. des. kl. liy4 e. h., opinber
bænasamkoma, stabskapteinn Árni
Jóhannesson. Nýjársdag 1. jan-
úar kl. 8 e. h., hjálpræðisherssam-
koma, kapteinn Axel Olsen. 2. jan.
kl. 2 e. h., opinber jólatrjeshátíð
fyrir börn. Inngangur 25 aura. 2.
jan. kl. 8i/2 e- h., jólatrjeshátíð fyr-
ir Færeyínga, laut. Hilmar Andre-
sen. Allir velkomnir. Axel Olsen
kapteinn.
Hjónaefni. Ungfrú Rannveig
Helgadóttir, Óðinsgötu 2 og Svein-
björn Egilsson.
Hjúskapur. 1 gær voru gefin
saman í hjónaband ungfrú Guð-
björg Eiríksdóttir, Bárugötu 32 og
Markús ísleifsson búsameistari,
Týsgötu 7. Heimili þeirra verður á
Laugaveg 5.
Á aðfangadag jóla voru gefin
saman í hjónaband, ungfrú Rósa
Gísíadóttir verslunarmær og cand.
jur. Jónatan Hallvarðsson fnlltrúi
hjá lögreglustjóra.
Sigurður Dalmann stöðvarstjóri
á Borðeyri og Guðlaug Jónsdóttir
frá Tannstaðabakka, símamær á
Borðeyri.
Sa.mkomur á Njálsgötu 1. Gaml-
árskvöld kl. 10. Nýjársdag kl. 8 e.
m. Allir velkomnir.
Sjómannastofan. Samkoma í
kvöld (gamlárskvöld) kl. 11 y2. Á
nýjársdag kl. 6 síðd. Allir vel-
komnir.
Verslunarmannafjelag Reykja-
víkur heldur nýjársfund föstudag-
inn 2. jan. í Kaupþingssalnum.
Hljómsveit Bernburgs leikur nokk
ur lög. Síra Bjarni Jónsson flytur
nýjársræðu. Garðar Þorsteinsson
syngur einsöng. Friðfinnur Guð-
jónsson les upp. Á fundinum verða
srngnir sálmar. Fjelagsmenn mega
bjóða með sjer gestum. Salurinn
verður sjerstaklega skreyttur við
þetta tækifæri.
Jólatrjesskemtun Verslunar-
mannafjelags Reykjavíkur verður
haldin fyrir börn fjelagsmanna á
sunnudaginn kemur kl. 5 í K. R.-
húsinu. Síðasti dagurinn til að fá
aðgöngumiða er í dag og fást hjá
Erlendi Pjeturssyni (Sameinaða).
Lúðrasveit Reykjavíkur ætlar -ió
spila á Austurvelli í kvöld kl. 9,
ef veður leyfir.
Jólagjafir afhentar mjer til út-
hlutunar fyrir jólin, voru sem hjer
segir: Frá konu 40 kr. H. E. 100
kr. N. N. 100 kr. E. J. 50 kr. K. F.
U. K. 25 kr. A. J. J. 25 kr. M. Þ.
5 kr. K. P. 5 kr. I. M. 10 kr. J. G.
20 kr. D. 50 kr. P. B. 50 kr. I. B.
50 kr. N. N. 30 kr. Þ. og H. 16 kr.
Alls 576 kr. Auk þess matvæli,
fatnaður, sælgæti og leikföng. —
Gjöfum þessum, sem allar voru
mjög kærkomnar, hefi jeg skift
svo sem jeg áður hefi skýrt frá.
Að endingu skila jeg bestu þökk-
allra hlutaðeigenda.
Guðrún Lárusdóttir.
Brennxt og flugeldasýningu ætl-
ar knattspymufjelagið Fram að
hafa á Iþróttavellinum í kvöld.
Segir svo í auglýsingu frá fjelag-
inu hjer í blaðinu í dag, að þótt
bannað sje að skjóta flugeldum á
götunum, þá sje það leyfilegt suð-
ur á Iþróttavelli. — En þrátt fyrir
það vill Morgunblaðið vara drengi
við því að vera með stórar „púður-
kerlingar". Hafa sorgleg slys áð-
ur orðið af ógætni nm það, og
„bóf er best að bafa í hverjum
máta“.
Bansskóli Rigmor Hanson. —
Grímudansleikur verður fyrir nem-
endur og gesti. Börn kL 5, full-
orðna kl. dy2 á laugardaginn kem-
ur í K. R.-húsinu. Skylda að bera
grímu, en búningar eftir vild. Að-
göngumiðar, sem verða takmark-
aðir, fást á Laugaveg 42 í síð-
asta lagi á föstudaginn 2. jan. eins
og auglýst er í blaðinu í dag.
Samningar milli Prentarafjelags
ins og Prentsmiðjueigenda voru
undirskrifaðir í gær. Eiga þeir að
gilda um þrjú ár.
ÚtYarpið.
Gamlársdagur.
Kl. 18: Kvöldsöngur í fríkirkj-
unni (síra Árni Sigurðsson). Kl.
23.50: Kór: „Nú árið er liðið“. —
Nýjársdagur.
Kl. 11: Messa í dómkirkjunni
(síra Bjarni Jónsson). Kl. 16.10:
Barnasögur (síra Friðrik Hall-
grímsson). Kl. 17: Messa í dóm-
kirkjunni (síra Friðrik Hallgríms-
son). Kl. 19.25: Veðurfregnir og
frjettir. Kl. 19.40: Einsöngur:
TGarðar Þorsteinsson, guðfræðing-
ur). Kl. 20.10: Hljómleikar: (Þór-
arinn Guðmundsson, fiðla), (Emil
Thoroddsen, slagharpa). Kl. 20.30:
Nýjárskveðja: (Fors^ti sameinaðs
þings). Kl. 21: Frjettir. Kl. 21.10:
Karlakór K. F. U. M.
Allir þeir,
scm þurfa að kaupa konfekt fyrir nýjárið ættu að líta inn
á Laugaveg 76 og reyna gæðin á hinu nýja konfekti.
Kanpmen
Reynið konfektið, sem gert er af fagmanni, og sannfær-
ist um gæðin.
Þessar tegundir eru ávalt fyrirliggjandi:
Katfekt
Romm, 2 teg.
Cream, 5 teg.
Döðlu.
Marcipan, 5 teg.
Gráfíkju.
Valhnotu.
Heslihnota.
Cocus o. m. fl.
Appelsínustykki og Cocosstengur.
HVERGI BETRA! HVERGI ÓDÝRARA!
Honfektgerð Bergmanns.
Laugaveg 76.
Sími 237*
llíkrnarðeiilin
hefir allar snyrtivörur, sem þjer þurfið, svo sem
púður, krem, sápur, ilmvötn, augnabrúnastifti,
varaliti, freknukrem og margt fleira.
Austurstræti 16.
•••••••••••••••••••••••••••••<
••«••••••••••••••••••••••••••<
Sími60 og 1060.
»•••••••••••••••••
»•••••••••••••••••
Með því að við höfum tekið að okkur umboð fyrir
Chevrolet og fleiri tegundir bíla frá General Motors,
viljum við benda heiðruðum viðskiftavinum okkar á,
að framvegis getum við ekki aðeins tekið að okkur
bílaviðgerðir fyrir þá, heldur einnig selt þeim heppi-
legustu bílategundirnar, sem til landsins flytjast að
dómi allra sem til þekkja. Varahluti tilheyrandi bíl-
unum munum við hafa fyrirliggjandi svo að trygging
er fyrir því að þeir verði til þegar á þarf að halda.
Þeir, sem hafa í huga að kaupa bíla, eru vinsamlega
beðnir að kynna sjer verð og skilmála okkar áður en
þeir festa kaup hjá öðrum.
Fyrirliggjandi er nú nýi 2 tonna Chevrolet vörubíll-
inn fyrir kr. 3100.00, og aðrar tegundir vöru og
fólksbíla útvegaðar með stuttum fyrirvara.
Stííei & Heiri.
bifreiðaumboð.
Hverfisgötu 78, Reykjavík.
Sími 1906. Sími 1906.