Morgunblaðið - 22.02.1931, Qupperneq 7
M0KGUNBLAÐIÐ
Aasfnr á
lyrarbakka
Frá Steindóri.
Nýkomnar
géðar
kariðflnr
á 0.25 pr. kg.
Miólkurfjeiag Reykiavíkur
StatesmiD
•r stéra orðifl
kr. 1.25
á torflifi.
WelIIngfon
fægilðgnr
Hreinsar best. Gljáirmest.
Iienf egg.
18 anra.
llýtt nautakiöt.
KLEIN,
_ sími 73.
fallega Tulipana
^yasintur, tarsettur og páskaliljur
fáið þjer á Klapparatíg 29 hjá
Vaid Ponlsea.
Sími 24.
Húsfreyjur!
yður vantar steinoliugas-
vjel þá kaupið „Juwel*1 hjá
okkur. Þœr eru spameytnar,
hita fljótt og eru ódýrar. —
lt. Ðnarsson S Funk.
7 '
þeim umráðarjetti, sem hún að lög-
um hefir yfir eignum bæjarins og
stofnunum.
í fimta lagi liótar sjálfur j-jett-
arvörðurinn að hrjóta lög á fátæk-
um berklasjúklingum, ef bæjar-
stjórn vilji halda fram rjetti sín-
um. -—■
Þetta síðasta atriði í skeyti dóms
málaráðherrans liefir komið mjer
tit að skrifa grein þessa, því að
það er sögulegra en svo, að í lág-
inni megi liggja. Dómsmálaráðherr
ann veit, að hjer er kreppa, fá-
tækt og fjeleysi. Yeit, að fjöldi
foreldra liefir engin peningaráð til
að kosta af eigin ramleik börn sín
á spítala, enda þótt spítalavist sje
eina ráðið til að bjarga þeim frá
að veslast upp af seigdrepandi
berklaveiki. Veit líka, að þangað
þarf að senda ýmsa fullorðna sjúk-
linga til að forða börnum þeirra
frá smitun. Oftast er ekki um ann-
að að tala, þegar bráðra aðgerða
þarf við, en leggja þessa sjúklinga
á spítala bæjarins, því venjulegast
verður að bíða mánuðum saman
eftir bælisvist. Veit einnig, að sam-
kvæmt giídandi landslögum eiga
slíkir sjúklingar lagalega heimt-
ingu á, að ríkissjóður greiði legu-
kostnað þeirra á spítala, enda eru
berklavarnarlögin ekki eingöngu
sett til líknar þeim einstöku sjúk-
lingum, heldur og til varnar kom-
andi kynslóð. Slíkur ríkissjóðs-
styrkur er ekki skoðaðúr sem fá-
tækrastyrkur og það gerir m'örgum
sjjikling Ijiifara en ella að leggjast
á spítala.
Dómsmálaráðherrann, seni á að
sjá um, að lögum landsins sje
hlýtt, hótar að brjóta lög. Hann
á fyrst og fremst að gæta rjettár
lítilmagnanna í þjóðfjelaginu, en
hótar þó að níðast á þeim. Hann
á að sjá um þær ráðstafanir, sem
gérðar eru til varnar lífi og heilsu
komandi kynslóðar, en neitar þó
saklausum börnum og brjóstmylk-
ingum um þá vernd.
Þessi varmenska bendir til þess,
að maðurinn viti sjálfur, þótt illa
sje að sjer í lögum ekki síður en í
heilbrigðismálum, að bæjarstjórn
er í sínum fulla rjetti. Annars
þurfti engar hótanir, heldur aðeins
það, að láta dómstólana skera úr.
Hið illrænda glæpamannafjelag
„La Mafia“ eða „svarta höndin“
liótaði oft að níðast á saklausum
hörnum manna, þegar ekki var
hægt að kúga iit úr þeim fje á
annan hátt. IJr ráðherrastóli á fs-
landi eru send hótunarbrjef eftir
fyrirmynd þessarar samltundu
hófa og illi'æðismanna. Slíkt er
rjettarfarið ó landi þessu.
Þetta skeyti ráðherrans er ein
af skuggamyndunum af því sið-
gæði, sem ríkir í Tímaherbúðun-
um. Hjer á flokksbróðir í hlut, sem
kvartar um að kosti sínum sje
þrengt, enda þótt hann hafi tvö-
faldar embættistekjur á við flesta
aðra lijeraðslækna. En fyrir flokks
bræður verður Jónas alt að gera,
því þeim á hann það að þakka, að
liann hefir í meira en 3 ár fengið
að misþyrma lögum og rjetti, feng-
ið að bruðla með fje ríkisins og
fengið óhindraður að svala sjúkri
valdafíkn og illmannlegri hefni-
girni.
Táknmynd rjettlætisgyðjunnar
er venjulega sýnd með vog, þar
sem hún vegur á það sem mæl-
ir með og móti í máli hverju.
—- Dómsmálaráðherra íslands
liefir einnig sína vog, en það
er sviltavog, sem vegur honum ög
fáeinum klíkubræðrum í hag, en
almenningi í óhag. í þessu máli
Ijet hann í aðra metaskálina ósk
eins klíkubróður um að fá tvö
embætti í stað eins og bætti ofan
á það löngun sinni til að hefna
sín á andstæðingi, sem áður hafði
flett ofan af honum. í hina meta-
skálina ljet hann sjálfsákvörðun-
arrjett heils bæjarfjelags, lagaleg-
an rjett sjúklinganna og mannúð-
arskylduna gagnvart þeim, sem
eiga við tvennskonar böl að stríða,
sem sje bæði fátækt og heilsuleysi.
Samt sem áður varð þessi meta-
skál ljettari í hans liöndum.
Það er sá galli á allri svikinni
vog, að það er ekki hægt að láta
hana gilda nema gagnvart þeim
einfeldningum, sem ekki sjá í gegn
um svikin. Og þjóðin er farin að
sjá þau. Farin að sjá, að dóms-
málaráðherrann liefir á undanförn
um árum viktað klíknbræðrum
sínu miklu meira en þeim bar af
fje því og fríðindum, sem þjóðin
trúði honum fyrir. Þess vegna fylg
ir honum, meðan sagan minnist
hans, sama viðurriefnið og öðrum
óráðvöndum viktarmönnum. Þjóð-
inni hefir liann aftur á móti vikt-
að út þrælabyrði í sköttum og
tollum, sem hefir sligað atvinnu-
vegina, svo að þeir hanga á blá-
bræði nú, þegar kréppan ber áð
dyrum. En það hefir ekki orðið
honum nóg, því samanlagðir kraft-
ar núlifandi kynslóðar hafa eklci
hrokkið, til að fóðra hann og fjen-
að hans, heldur verður næsta kyri-
slóð að þræla í 40 ár og neita sjer
um margt af þeim lífsþægindum,
sem liún annars liefði getað veitt
sjer, til að vinna af sjer þær skuld-
ir, sem þjóðin hefir komist í vegna
Tímaflokksins, sem hefir jetíð
hana út á gaddinn. Næsta kynslóð
íæðist okki með silfurhnapp í
munninum, heldur með þrældóms-
ok um hálsinn. Það er sá arfur,
sem Tímaklíkan með Jónas Jóns-
son í broddi fylkingar hefir vigt-
að lienni út.
Vestmannaeyjum, 15. janúar 1931.
P. V. G. Kolka.
Fyrsti sigur
Gandhis.
Rúmlega 50000 índverjar voru
teknir fastir fyrir þátttöku í ó-
hlýðnisbaráttunni á móti Englend-
ingurn á mánuðunum apríl til des-
ember 1930. 100 biðu bana og 427
særðust í bardögum við lögregluna
á tímabilinu apríl til júlí 1930.
Vöruflutningur frá Englandi til
Indlands hefir minkað mikið, síðan
Gandlii hóf baráttuna á móti ensk-
um vörum. Afleiðingarnar hafa
jafnharðan gert vart við sig í Eng-
landi, einkum í baðmullariðnaðin-
um x Lancashire, þar sem atvinnu-
leysið vex. Engleiidingar eiga tngi
miljarða punda í allskonar fyrir-
tækjum í Indlandi. Þessi auðæfi
eru í liættu vegna uppreisnar-
lireyfingai-innar í Indlandi. Þetta
og mai’gt fleira hefir gert það að
verkum, að Englendingar eru nxx á
undanhaldi í Indlandsmálunum.
Flestum Englendingum er ljóst, að
Indverjum verður ekki stjórnað
með byssustingjum og vjelbyssum.
Englendingar hafa því slakað mik-
ið til við Indverja á indversku
ráðstefnunni í London. Henni var
nýlega slitið.
Á þessax-i ráðstefnu var samið
uppkast að indverskri stjórnar-
sltrá. Ráðstefnan leggur til að Ind-
land (breska Indland og fursta-
dæmin indversku) verði gerð að
bandaríkjum. Fylkin í breska Ind-
landi og furstadæmrix eiga að liafa
löggjafai'þing, og ber stjórn þeirra
ábjrrgð gagnvart þinginu í hlutað-
eigandi fylki eða fui’stadæmi. Yfir
stjórnum hinna einstöku ríkja
stendur sambandsstjórnin og sam-
handsþingið í Delhi. Sambands-
stjórnin á að bera ábyrgð gagn-
vart sambandsþinginu. -— Enska
stjórnin hefir þó áskilið sjer rjett
til þess að leggja stjórn utanrík-
ismála og hermála fyret um sinn
í hendur vísikóngsins, aðalumboðs-
manns Breta í Indlandi. Ekki er
þó tilgreint, hve lengi hann eigi
að stjórna þessum málum.En enska
stjórnin ætlast til þess að Indverj-
ar fái með tímanum stjórn þeirra
í sínar hendnr. Mae Donald hefir
lýst yfir því, að markmið Eng-
lendinga sje að veita Indverjum
nýlendusjálfstjórn (domdnaon
status).
Enn þá vita menn ekki, hvoi’t
hægt verður að framkvæma til-
lögur ráðstefnunnar. í fyrsta lagi
liafa Indverjar ekki getað komið
sjer saman um vernd þjóðerriis-
legra minnihluta, tilhögun þing-
kqsriinga í Indlandi o. fl. þýðing-
armikil atriði. Yfirleitt er valda-
baráttan og hatrið á milli liinna
mörgu og gagnólíku þjóða, trúar-
bragðaflokka og stjetta í Indlandi
hin alvarlegasta hindrun fyrir því,
að Tudverjar geti stjórnað sjer
sjálfir.
í öðru lagi vita menn ekki,
livort indversku fulltrúarnir á ráð-
stefnunni í London geta fengið
landa sína heima í Indlandi til
þess að fallast á tilboð Englend-
inga viðvíkjandi stöðu Indlands
innan breslia heimsveldisins. Flest-
ir Indverjar hafa lengi heimtað
nýlendusjálfstjórn strax. Vilja
þeir nú láta sjer nægja að fá fyrst
um sinn aðeins „nýlendusjálfstjórn
með fyrirvara“ — og loforð um
meira seinnaf
Mikið er komið undir Gandlii
og þjóðernissinna flokki hans. —
Gandhi er kröfuharðastur allra
Indverja. Hann hefir heimtað al-
geran skilnað við Englendinga.
Englendingar ljetu Gandhi ný-
lega lausan úr fangelsinu, til þess
að liann gæti óhindrað tekið þátt
í iimræðunum um tilboð Englend-
inga. Um leið voru allmargir aðrir
foringjar þjóðernissinna látnir
lausir, allir skilyrðislaust. Gandlii
heldur þó óhlýðnisbaráttu sinni
áfram og hann berst áfram fyrir
því, að Indverjar kaupi ekki ensk-
ar vörur. En það var þó vafa-
laust hyggilegt af Englendingum
að láta Gandhi lausan. Það getur
ef til vill styrkt aðstöðu liægfara
þjóðernissinna, sem vilja semja við
Englendinga. Gandhi hefir enn
þá ekki viljað segja neitt um
tilboð Englendinga. En líklega
telur hann það ófullnægjandi.
Tilhoð Englendinga er árang-
urinn af baráttn Gandhis, fyrsti
sigur hans, en varla hinn síðasti.
Tilboðið fer miklu lengra en til-
Eitthvað til að gala aft
Eggladnft - Gerdnft
og Krydd.
ðmlssantl I allaa bakstnr.
Ferrosan
er bragðgott og styrkjandi
járnmeðal
og ágætt meðal við blóðleysi
og taugaveiklun.
Pæst í öllum lyfjabúðum
í glösum á 500 gr.
Verð 2.50 glasið.
imrii
besta blóðaukandi meðal. Læknar
um allan heim mæla með því. ■—
F»s 1 öllnm lyfjabáðum.
Þeir eru hiS langbesta naeCal sem
menn þekkla viS gikt, þursabiti (Lum-
bago), Ischias, bakverk, verk og kvell
fyrir brjösti. Verkurinn fær ekki staSist
hinn mlkla kraft plástranna, Hin sef-
andi lilýja, sem þeir veita, læknar og
rekur aS fullu burtu þjáningarnar, ogt
lina þeir þrautirnar undir eins og þelr
eru settir á.
Allcocks plástra má bera vtkum sam-
an, og altaf halda þeir áfram aS eefa
þrautirnar allan tlmann, sem þeir ern
notaSir, þangaS til þær eru algjörlega
horfnar.
ALLCOCKS
POROUS PLASTERS
fást 1 öllum lyfjabúSam.
-V';; s . i
ASalumboSsmaSur okkar fyrtr fsland er:
STEE’An thorarbhshjv.
Reykjnvlk.
AIAGOCK MAÍilJFACTIJIUWG CO,
Birkenkead. Kngliæi.
E66EHT CLAESSEH
hæstarjettarmálaflutningsmaCtuc.
Skrifstofa: Hafnaratræti 5.
Sími 871. Viðtalstími 19—12 f. ti.