Morgunblaðið - 04.03.1931, Blaðsíða 3
MORGUNBLAÐIg
gwiiimnmnntitttmwtmHnmntHniiiiiimiiiimiiiiiiim
E Útcaf.: H-f. Árvakur, Reykjavlk j=
Rltatjðrar: Jön KJartanaaon.
Valtýr Stefánaaon.
E Rltatjörn og afcrelöala:
Auaturatrœtl 8. — Slml 600.
H Aucl^atncaatjörl: B. Hafberg.
g Auslýrlncaekrlfatofa:
Auaturstrætl 1T. — Slml 700.
B Heiaaaalmar:
.Tön KJartanaaon nr. 742.
Valtýr Stefánaaon nr. 1220.
H. Hafberg nr. 770.
S Áakrlftasjald:
Innanlanda kr. 2.00 á aiánuöl.
Utanlanda kr. 2.60 á mánuOl.
H f lauaaaölu 10 aura elntaklö,
20 aura meö Lesbök.
■UIIIIIIIIIIIIIIIII(IIIIIIIUIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIimilllllllll[r =
Eyrn þjóðarinnar.
Þegar rætt var um vexti bank-
anna í ’Neðri deild, talaði fjár-
málaráðherra allfjálglega um að
jnn. Dalamanna hampaði því æði-
oft, að hann lieyrði raddir almenn-
ings um ýmis efni. Yildi liann
þrýsta sjer inn í eyru þjóðarinnar,
en færri myndi heyra en hann
hjeldi.
Sigurður Eggerz svaraði á þá
leið, að svo virtist sem stjórnin
vildi helst skera eyrun af þjóðinni
svo hiín heyrði ekki neitt. A. m. k.
mætti þjóðin ekki heyra neitt,
nema skjall stjórnarblaðanna og
stjórnardilkanna um stjórnina.
Stjórnin talaði mikið um að
verkin töluðu, en ætli að tölurnar
fari ekki bráðum að tala. Ætli að
42 miljónirnar, ríkisskuldirnar,
ljeti ekki bráðum heyra til sín.
Hann benti á, að þegar íslands-
banki var stöðvaður, skuldaði
hann Landsbankanum hjer um
bil 3.8 miljónir, en mundi skuldin
ekki vera nú á níundu miljón?
Enginn er að finna að því, en
*tli að mismunurinn tali eltki
sínu máli?
Stjórnin er hrædd við að þjóð-
in hlusti, en Sjálfstæðismenn óska
•að hún hlusti sem best. Ef hún
hlustar nógu vel, þá er sögu þess-
arar stjórnar lokið fyrr en varir.
Fjármálaráðherrann fór svo að
tala um kjördæmi Sigurðar Egg-
erz, en Sigurður sagði að liann
mætti vera viss um, að stjórnin
gæti ekki lokað eyrum Dalamanna.
Þeir heyrðu vel og vissu, hvað
væri að gjörast í stjórnmálunum.
Svinhufvnd tekur við völdum
Helsingfors 3. mars.
United Press. FB.
Svinhufvud var í gær settur í
forsetaembættið, í stað Relanders.
í ræðu sinni í þinginu kvaðst
Svinliufvud þegar hafa byrjað
starfsemi í þá átt, að efla vinfengi
og samvinnu Finna víð aðrar þjóð-
Enn fremur kvað hann nauð-
:S3m bera til þess að gæta sem mest
sparsemi í ríkisbúskapnum og
tagði að þingmönnum að sameinast
um að vinna að því að ráða bót
a fjárhagsvandræðunum. — Kallio
fyrverandi forsætisráðherra, for-
seti þingsins, er talinn líklegastur
þess að taka að sjer forsæti í
®ýrri stjórn.
Hármeðalið.
Hakari mælir með fyrirtaks
bármeðali við sköllóttan mann.
Sá sköllótti: Þjer segið að með-
alið sje óbrigðult. Látið mig þá
fá ljósjarpt liár, snoðklippið mig í
bnakkanum og í vöngunum, og
skiftið þjer því hægra megin, en
fijótur nú; því jeg fer með járn-
brautarlestinni kL 5 og 15 mín.
Innheimta ntsvara
í Reykjavik.
Frumvarp til laga um það efni
liggur fyrir næsta bæjarstjórnar-
fundi til athugunar. Þar er svo
fyrir mælt, að gjalddagi útsvars-
ins eigi að vera sem hjer segir:
Hinn fyrsti virkur dagur mán-
aðanna júlí, ágúst, september,
október og nóyember, og fellur
einn fimti hluti hvers útsvars í
gjalddaga um liver þessara mán-
aðarmóta.
Dráttarvextir af hverjum þeim
hluta útsvara, sem ekki eru greidd
ir í síðasta lagi mánuði eftir gjald-
daga, skulu vera 1 af hundraði á
mánuði, talið frá gjalddaga og þar
til greitt er.
Þegar liðinn er liálfur mánuður
frá gjalddaga, má taka hvern
þann hluta útsvara, sem í gjald-
daga er fallinn, lögtaki, enda er
engrar sjerstakrar birtingar fyrir
skuldunautum eða opinberrar aug-
lýsingar þörf.
í greinargerð sem fylgir frum-
varpinu er þess getið, að sjerstök
ástæða sje til þess að hækka drátt-
arvextina, því að nú sjeu þeir
lægri en bankavextir, og því geti
menn blátt áfram talið sjer hag í
því að draga það .að borga útsvar
sitt.
Enn fremur er þess getið, að
svo virðist sem auglýsingar um
lögtak sjeu gagnslausar, og því sje
rjett- að sleppa þeim.
BlðmsTeigasióðnr
Þorbjargar Sveinsdóttnr
er stofnaður árið 1903 til styrktar
fátækum sængurkonum í Reykja-
vík, og er hann fyrsti sjóðurinn,
sem tekið hefir við dánarminning-
argjöfum, er komi í stað blóm-
sveiga við útfarir. Stofnfje sjóðs-
ins var 1500 krónur, er gáfust við
iitför Þorbjargar ljósmóður Sveins
dóttur, en nú á hann um 28 þús-
und krónur. Síðastliðið ár var
veittur 1635 króna styrkur úr
sjóðnum til 37 sængurkvenna.
Sjóðurinn hefir nú gefið út eink
ar snotur minningarspjöld og ættu
þeir, sem gefa dánarminningar að
minnast þessa þarflega og elsta
blómsveigasjóðs.
Stjórn sjóðsins skipa frú As-
laug Ágústsdóttir, Lækjargötu 12
B, frú Ólöf Björnsdóttir, Túngötu
38 og frú Emilía Sighvatsdóttir,
Breiðabólstað í Skildinganesi. Hjá
þeim fást minningarspjöldin, svo
og í Hljóðfæraverslun Katrínar
Viðar, Lækjargötu 2.
Örþrifaráð
vegna kaupgjalds.
Skipafjelag eitt í Hamborg er
nýlega farið að láta tvö af skip-
um sínum sigla undir fána Pan-
amaríkisins, til þess á þann hátt
að lækka launin til skipshafnar-
innar, þar sem engin siglingalög
eru til í Panama.
Stjórn fjelagsins tekur það fram
að hún hafi neyðst til að taka
til þessara örþrifaráðstafana, þar
sem laun til sjómanna sjeu orðin
svo há, að fjelagið fái eklti undir
þeim risið.
Þingsetningin
og útvarpið.
Yegna blaðaummæla, þar sem
gefið hefir verið í skyn, að af
ásettu ráði liafi verið rofið út-
varpssambandið, er þingmenn tóku
að hrópa húrra þingsetningardag-
inn, hefir útvarpsstjóri beðið blað-
ið að birta eftirfarandi umsögn
verkfræðings útvarpsins, herra
Gunnl. Briem:
„Örsökin til þess að stöðin þagn
aði var sú, að skyndilega bilaði
einangrun eins þjettis (condenser)
í senditækjunum á útvarpsstöðinni
einmitt þegar húrrahrópin voru að
byrja, eða um kl. 14, og varð
stöðin þá að hætta útvarpi í 5 mín-
útur, meðan verið var að koma
henni í lag aftur.
Hins vegar var ekki lokað fyrir
magnarana í Reykjavík fyr en kl.
14.10, eða nokkru eftir að þing-
fundi var lokið.
Til frekari staðfestingar læt jeg
fylgja frumritað blað úr aðaldag-
bók útvarpsstöðvarinnar, er Mr.
Oliver, verkfræðingur Marconifje-
lagsins, hefir skráð umræddan dag.
(Saturday Febr. 14tli 12,45 Run
up for prograrnme, 1,25 Pump
room O. K. 2.00 Insulation of
condenser across Intermediate feed
meter breaks down. 2.05 Start up
again. 2.10 Shut down).
Ennfremur frumritað blað úr
aðaldagbók magnarasalsins í
Reykjavík, er hr. Davíð Árnason,
magnaravörður, hefir skráð.
(Laugardag 14. febr. kl. 13,00
dagskráin hefst. Kl. 14,00 stöðin
hæ'ttir er húrrahróp byrja í þing-
inu. Kl. 14,06 stöðin aftur í gangi,
en þá var þingfundi þegar lokið.
Tilkynnt hvenær næst yrði útvarp-
að. Kl. 14.10 dagskrá lokið.)
Aths. Mikið er útvarpsstjóra um-
hugað um að fá það staðfest, að
það hafi ekki verið af ásettu ráði
að húrrahrópin í Jóni Baldvins-
syni heyrðust ekki út um landið
við þingsetninguna. Hjer í blaðinu
var þess getið til, að um tilviljun
hafi verið að ræða, að útvarpið
lokaðist í sömu andránni sem Jón
Baldvinsson opnaði munninn. En
ekkert var hægf að fullyrða um
það efni að óreyndu máli. Hitt gat
eins vel hafa átt sjer stað að for-
sjónin hafi tekið í taumana eins
og Tr. Þ. kemst að orði. Þetta hefir
Jóni Baldvinssyni sennilega mislík
að.
Ofanritað sakleysisvottorð frá
Undirjónasi er ekki annað en und-
irgefnisleg tilgerð framan í Jón
Baldvinsson, sem Mbl. flytur til
þess að sýna í hvers hÖndum hús-
bóndarjetturinn er í stjórnarlið-
inu.
Frá aðalráði Fascista.
Rómaborg 3. mars.
United Press. FB.
Mussolini var sjálfur forseti á
fyrsta fundi aðalráðs Fascista-
flokksins á þessu ári. Var fundur-
inn settur í dag. Giuanti flutti
skýrslu um flokksframfarir á und-
anförnum fimm mánuðum.
Grandi og Sirianni skýra frá
samkomulaginu í flotamálunum á
fundinum í kvöld.
Þlngtíðindi.
Ábyrgð fyrir Rnssa
5 miliónir.
Efri deild.
Á dagskrá var till. Erlings um
að ríkissjóður ábyrgist alt að 5
milj. króna viðskifti við Rússa.
Erlingur mælti með tillögunni.
Sagði meðal annars að menn
mundu ekki alment skilja hvernig
stæði á þessum örðugleikum á við-
skiftum við Rússa. Þetta sagðist
hann geta skýrt. Það kæmi af því
að Rússar nytu meira lánstrausts
en aðrar þjóðir af því viðskifti
við þá væru svo trygg!
Um gróðavonina af viðskiftun-
um við Rússa sagði hann, að ef
einkasalan seldi þeim í sumar 200
þiis. tn. af saltsíld (sem ætlað
væri) mundi græðast á því 1 milj.
og 700 þús. kr. fram yfir það að
setja í bræðslu.
H. Steinsson sagði að ríkissjóð-
ur hefði gengið lengra en góðu
hófi gegndi í því að ganga í á-
byrgðir. Hjer væri farið fram á
alt. að 5 milj. kr. ábyrgð. Væri það
allmikil uppliæð, en þá væri hitt
enn varhugaverðara, að hjer væri
farið inn á nýja braut í ábyrgð-
um, þar sem ætlast væri til að
ríkið færi að ábyrgjast áhættuvið-
skifti í verslun. Nú væru örðug-
leikar á sölu fleiri ísl. afurða svo
sem fiski, ull og gærum. Gæti svo
farið að menn leituðu sölu á þess-
um vörum með gjaldfresti og
beiddust svo ríkisábyrgðar á
greiðslunni. Bað hann væntanl.
nefnd að athuga gaumgæfilega að
hjer væri stefnt lit á hálan ís.
Jón Þorláksson tók í sama
streng og Halld. St. með ríkisá-
byrgðirnar. Mættu menn ekki
ætla að þær væru bara áhættulaus
greiði. Þó væri hjer alt öðru máli
að gegna, en með ábyrgð fyrir
innlenda menn, eða fyrirtæki.
Hjer væri farið fram á að ísl.
ríkið ábyrgðist. fyrir annað ríki,
Rússland, skrifaði sem ábyrgðar-
maður á víxla, sem rússneska
stjómin ætti að greiða.
Þá minntist ræðumaður á þá
áætlun flm. að græðast mundi á
hverri síldartunnu, sem seld yrði
til Rússa næsta sumar, kr. 8,50
fram yfir bræðslusíldarverð. Sýnd-
ist það ekki í góðu samræmi við
söluna til þeirra s. 1. sumar.
Erlingur ætlaði fyrstað mótmæla
því að 17 deilt með 2 væri 8,50, en
fjell brátt frá því og fór að reikna
á aðra lund. Sagði hann að á verk-
un græddust 4 kr. á tunnu. Þar
gleymdi hann bæði því, að nokkur
vinna væri við síldarbræðslu og
því sem bagalegra var, að vinnan
væri peninga virði. Þá sagði hann
að græddist kr. 1.05 í toll t.il ríkis-
sjóð. Þar gleymdi hann alveg að
tollur væri af útfl. lýsi og pær
sagði hann að sjómenn græddu.
En hvaðan þær 3 kr. ættu að
koma var og er hans leyndarmál.
Ekki sást annað en að frsm.
væri í betra lagi ánægður með
frammistöðu sína.
Tillögunni var vísað til síðari
umr. og fjárhagsnefndar.
Á dagskrá var: Br. á lögum
um hlutafjelög. Frv. er um það,
að forkaupsrjettur eða aðrar höml
ur á sölu eða veðsetningu hluta-
brjefa, skuli ekki gilda gagnvart
banka, sveitabanka eða sparisjóði.
Jón Bald. mælti nokkur orð mcð
frv. og fór það síðan til nefndar.
f Neðri deild
fór allur fundartíminn í orða-
sennu út af tillögunni um vaxta-
lækkunina. Tóku margir til máls
og voru hvassyrtir með köflnm.
Verður síðar vikið að þessuta
vesælmannlega skrípaleik stjórn-
arliðsins.
Málinu var visað til fjárhags-
nefndar.
ÚtTaritS.
Miðvikudagur.
Kl. 18 Utvarpsguðsþjónusta (sr.
Fr. Hallgrímsson). Kl. 19,25 Hljóm
leikar (grammófónn). Kl. 19^30
Veðurfregnir. Kl. 19,40 Barnasög-
ur (frk. Sigrún Ogmundsdóttjý).
Kl. 19,50 Hljómleikar (Þór. Guð-
mundsson, Emil Thoroddsen). KJ.
20 Enskukensla í 1. flokki (Anna
Bjarnadóttir kennari). Kl. 20,20
Hljómleikar (Þór. Guðm., E. Tþ.).
Kl. 20,30 Erindi: Frá Breiðafirði
(Olína Andrjesdóttir skáldkona).
Kl. 20,50 Óákveðið. Kl. 21 Frjett-
ir. Kl. 21,30 Grammófónhljómleik-
ar (kórsöngur).
Daghík.
Veðrið (þriðjudagskvöld kl. 5) :
Áttin er nú orðin SA-læg um alt
land og hefir snjóað talsvert á
Vesturlandi, en á A-landi hefir
engin snjókoma orðið, og vart telj
andi á Norðurlandi,
í Vestm.eyjum er SSA-stormur,
eða veðurhæð 9, og hiti 1 st. í Rvk
og Stykkishólmi er 0 st. hiti, en
á N- og A-landi er 9 st. frost. ,
Lægðin fyrir suðvestan landið
er mjög víðáttumikil og þokast
hægt norður eftir. Um 1000 km.
snður af Reykjanesi er hæg S-átt
með þoku og 10 st. hita. Er þess
að vænta, að S-áttin haldist fyrst
um sinn og smáhlýni í veðri.
Veðurútlit í Rvík í dag: All-
hvast á SA. Frostlaust og slydda
eða rigning með köflum.
Ofærð er nú svo mikil hjer um
slóðir, að bílferðir teptust alveg í
gær, nema rjett um götur bæjar-
ins, þræluðust bílar gegn um fönn-
ina við illan leik. Ekki var reynt
að komast til Hafnarfjarðar með
bíla í gær, en ráðgert var að byrja
skyldi snjómokstur á Hafnarfjarð-
arveginum í dag. Til Lauganess
varð heldur ekki komist með bíl,
eftir því sem sagt var á Litlu-
bílastöðinni, en sú stöð heldur
annars uppi áætlunarferðum þang-
að.
Mjólkurflutningar teptust áð
nokkru leyti til bæjarins í gær,
eftir því sem Mjólkurfjelag
Reykjavíkur skýrði frá. Flutt var
mjólk í sleðum úr Mosfellssveit-
inni og af Álftanesi. Kjalnesingar
bjuggust til að hefja snjómokstur
snemma í morgun og er búist við
að mjólk af Kjalarnesi verði kom-
in hingað um hádegi.
Tíu þingmenn höfðu boðað veik-
indaforföll í gær í Efri deild. Þeir
Pjetur Magnússon, Guðm. í Ási og
Jónas ráðherra. í Neðri deild Hjeð
inn," Bernharð, Magnús Jónsson,
Magnús Guðmundsson, Sigurjón
Ólafsson, Tryggvi Þórhallsson og
Ásgeir.
Fiskveiðar Noorðmanna. Samkv.
síðustu skýrslu um fiskveiðar
Norðmanna við Lofoten, er afK
þar með minna móti, mun minni