Morgunblaðið - 27.03.1931, Blaðsíða 4
HO RGUN B LAÐIÐ
Elómaversl. „Gleym mjer ei“.
Nýkomið fallegt úrval af pálmum
og blómstrandi blómum í pottum.
Daglega túlípanar og hyacintur.
Fyrirliggjandi kransar úr lifandi
og gerviblómum. Alt til skreyting-
ar á kistum. Sömuleiðis annast
verslunin um skreytingar á kistum
fyrir sanngjarnt verð. Bankastrœti
4. Sími 330.
Glænýr færafiskur fæst í dag og
fratnvegis, þegar á sjó gefur. Verð-
iK. lágt. Fiskbúðin, Hverfisgötu 37.
Simi 1974,
Tapast hefir brúnkúfótt hryssa,
með svartan blett siit hvorum
megin við hrygginn. Sá sem yrði
vat við hryssu þessa er vmsamlega
beðinn að gera Einari Guðmunds-
s^ni, Þorkötlustöðum, Grindavík
aðvart með hana.
Stúiku, sem kann að sauma karl-
raaimafatasaum, vantar mig strax.
Guðm. Sigurðsson klæðskeri, Hafn-
arsíræti 16.
Tvö skrifstofuherbeírgi í eða sem
aíESSi miðbænum óskast 14. maí.
Æskilegt væri að lítil geymsla
fylgdi. Ábyggileg greiðsla. Tilboð
merkt „100“, sendist A. S. í.
Foreldrar, í Danmörku deyja
«jö sinrium fleiri pelabörn en
brjóstmylkingar. Kaupið Mæðra-
toókina eftir prófessor Monrad. —
Kostar 3.75.
2 herbergi og eldhús, með mið-
stðð og öðrum þægindum, óskast
14. maí, helst í austurbænum. Að-
eins tvent í heimili. Sími 1009.
Fjallkonii
gljávfirnrnar
gggna mest og fegra best. BiðjiS
flyí kaupmann yðar nm :
Fjallkonu Skósvertu,
Fjallkonu skógulu
Fjallkonu Skóbrúnu
Fjallkonu Hvítu
Fjallkonu Fægilöginn og
Fjallkonu Gljávaxið góða.
Þessar glávörur, þola allan sam-
atlburð, hvað gæði og verð snertir,
við samskonar útlendar vörur, sem
kallaðar eru þær bestu.
Það besta er frá
8.L Efaaserfl Eeykjavlkiir.
Nýkomið:
íslenskt smjðr
og Lnðarikliugnr.
PáU Hallbjörns,
Laugaveg 62. — Sími 858.
Silinrtært
þorskalýsi
selnr
Verslnnin
B jfirninn.
Bergstaðastræti 35, Sími 1091
Sffinsti dngnr
Úlsöiutnar
er í dag.
Hannyrðaverslun
Puriðar Síguri i sdóttur
Bankastræti 6.
Frosin svið
(sviflin)
á 1 kr. Afhendast beint úr íshúsi.
Tekið á móti pöntunum í dag og á
morgun í Fiskbúðinni á Grettis-
götu 57 A, sími 875. Ennfremur
spaðkjöt á 50 aura y2 kg. og smjör
1.50 y2 kg. Grettisgötu 57 A, Sími
875. —
ströndina, þótt engin vissa sje fyr-
ir því, vegna þess að engar fregnir
liafa borist sunnan af hafi. Annars
lítur helst út fyrir hæga A-átt
sunnan lands á morgun og heldur
kaldara í veðri, en NA-átt og dá-
litla snjókomu norðan lands.
Veðurútlit í Rvík föstudag: A-
gola. Skýjað loft en úrkomulítið.
Heldur kaldara.
Messað í fríkirkjunni í Hafnar-
firði í kvöld kl. 8y2. Síra Árni
Sigurðsson prj,edikar.
Karlakór Reykjavíkur endurtek-
ur samsöng sinn í dómkirkjunni
næstkomandi sunnudag kl. 9 síð-
degis. Voru allir aðgöngumiðar að
söngnum í gær uppseldir um miðj-
an dag. Er því vissara, að ná í að-
göngumiða fyrir sunnudagskvöld
sem fyrst.
Prentvilla. í síðasta tbl. var
þessi prentvilla í greininni „Fyrir-
lestrar' ‘: tilgreina hugtakið, í stað
inn fyrir: skilgreina hugtakið.
Guðspekifjelagáð. Reykjavíkur-
stúkan, fundur í kvöld kl. 8V2-
Efni: Mr. Bolt flytur erindi um:
Yoga, kenning og framkvæmd.
Enskur togari kom í gær með
nokkra menn veika af inflúensu.
Mun hann bíða hjer þangað til
mönnunum batnar.
Togarinn, sem strandaði í Skerja
firði fyrir nokkru fór hjeðan í
fyrri nótt, að aflokinni viðgerð.
Inflúensan er komin til Seyðis-
fjarðar, samkvæmt skeyti, sem
þaðan hefir borist .Halda menn að
hún hafi komið þangað með far-
þega á Esjn. Skólinn hefir verið
lokaður og samkomubann sett til
að hefta útbreiðslu veikinnar.
Skipið Njál, sem slitnaði upp
á Siglufjarðarhöfn, rak á land í
Neskrók og hefir það skemt lítið
og búist við að hægt sje að ná
því út.
Kveðjusamsæti er fyrirhugað að
halda próf. Erik Abrahamsen að
.Hótel Borg þriðjudagskvöld 31. þ.
m. Þeir, sem kynnu að vilja taka
þátt í samsætinu, eru beðnir að
rita nöfn sín á lista, er liggur
frammi í Bókaverslun Sigfúsar
Eymundssonar til laugardags-
kvölds og Háskólanum kl. 9—12 í
dag og á morgun.
Skilagrein fyrir samskotum
vegna Hafnarfjarðarbrunans 25.
febr. s.l. Alls hafa safnast í pen-
ingum kr. 4933.13 og þar að auki
mjög mikið af fatnaði, matvælum
og kolum. — Hefir öllu þessu nú
verið úthlutað. — Færum vjer
hjer með öllum gefendum innilegt
þakklæti. Hafnarfirði, 25. mars
1931. Samskotanefndin.
Útvarpið: Kl. 18.30 Búnaðar-
fræðsla Búnaðarfjelags íslands:
Vérmireitir (Sig. Sigurðsson bun-
aðarmálastj.). Kl. 19.00 Búnaðar-
fjelag íslands (Methúsaiem Stef-
ánsson, búnaðarmálastjóri). KI.
19.25 Hljómleikar (Grammófónný.
Kl. 19.30 Veðurfregnir. Kl. 19.35
Þingfrjettir. KI. 19.55 Óákveðið.
Kl. 20 Enskukensla í 2. flokki
(Miss K. Mathiesen).. Kl. 20.20
Hljómleikar: (Hljómsveit Reykja-
víkur). Kl. 21 Frjettir. Klukkan
21.20—25 Erindi: Um ættgengi,
III. (Árni Friðriksson, náttiiru-
fræðingur). 21.40 Lesin upp dag-
skrá 15. útvarpsviku.
Kvennadeild Slysavarnafjelags
íslands hjelt fund síðastliðinn
mánudag. Fundurinn var vel sótt-
ur og gengu 17 nýir fjelagar í
.deildina, þar af einn æfifjelagi.
Stjórn deildarinnar átti þátt í því
að kvennadeild var stofnuð í Hafn
arfirði nú um sjðustu áramót. Og
nú er í ráði að stofna einnig deild
í Keflavík og iær stjórn Reykja-
víkurdeildarinnar þangað í þeim
erindum nú á sunnudaginn þ. 29.
,þ. m. Slysavarnadeildir ættu að
vera til í hverri sveit, að minsta
kosti í hverri sjávarsveit. Um gagn
semi og nauðsyn þeirrar starfsemi
þarf ekki að ræða. Hún er degin-
um ljósari, enda ekki langt á að
minnast að miklu manntjóni varð
afstýrt eingöngu fyrir það að línu-
byssa var til þar nálægt, sem slysið
bar að höndum. Stjórn Kvenna-
deildarinnar í Reykjavík treystir
því að konur í Keflavík og ná-
grenni sæki alment fundinn og
gerist þátttakendur í slysavarna-
starfseminni.
Kappglíma fyrir drengi um hinn
fagra skjöld sem gefinn var af
Þorgeir Jónssyni frá Varmadal,
fer fram á sunnudagskvöldið í
íþróttahúsi K. R. Öllum drengjum
innan 17 ára aldurs og 100 punda
þyngdar er gefinn kostur á að
vera þátttakendur. Munu um 15
drengir taka þátt í glímunni. Þar
á meðal nokltrir ofan úr Mosfells-
sveit, og munu þeir reynast skæð-
ir. Nánar verður þetta auglýst
hjer í blaðinu á morgun og á
sunnndaginn.
K. R. happdrættið. Allir útsölu-
menn eru beðnir að gera svo vel
og skila andvirði seldra miða sem
allra fyrst, svo liægt verði að
draga á rjettum tíma. Skrifstofa
fjelagsins er opin öll kvöld kl.
7—9, en auk þess má skila til Har-
alds og Guðm. Olafssonar.
V erslunarmannaf j elag Reykja-
víkur heldur skemtifund í kvöld
,kl. 8y2 í Kaupþingssalnum. Til
skemtunar verður: Bernburgssveit
spilar nokkur lög .Hinn góðlcunni
gamanvísnasöngvari Reinh. Richter
syngur alveg nýjar gamanvísur.
Hinn ágæti söngvari Kristján
Kristjánsson syngur nokkur lög.
Að lokum verður dans stiginn
(Bernburgshljómsveit). Fjelags-
menn mega bjóða með sjer gestum.
Bæjarlæknir hjer telur nú lítið
'um infltiensu í bænum, og bætast
fáir nýir sjúklingar við.
HeimdaUur hjelt fund að Hótel
Skjaldbreið síðastliðinn föstudag.
— Eftir umræður um fjelagsmál,
flutti Magnús Jónsson þingfrjettir,
skýrði frá efni helstu frumvarpa,
sem fram voru komin og ýmsu því,
er gerst liefði á þingi. Var ræða
hans fróðleg og skemtileg. Sigurð-
ur Kristjánsson ritstjóri sagði frá
umræðunum, sem farið höfðu fram
þá um daginn, um fyrirspurn Jóns
Þorlákssonar út af skekkjum Ein-
ars Ámasonar. Á. fundinum átti
einnig að ræða um stjórnarskrár-
breytingar, en tími vannst ekki til
’þess, og verður það mál tekið til
meðferðar á fundi fjelagsins næst-
komandi sunnudag. Að lokum voru
sungin nokkur lög.
Bæjarins bestu
larðarber
1 kfi. dós á 2,75
Nýkomið mikifl ai
Blóma- og
Jurtafræ.
Vald. Ponlsen.
Sími 24.
Þegar þið kaupið blautsápu
munið þá að biðja um Hreins
krystalsápu Hún fæst altaf
ný tilbúin, úr bestu efnuip,
og hennar góðu þvottaeigin-
leikar eru löngu viðurkendir.
íslensk sápa fyrir fslendinga.
ILKA
RAKSAPA
1 Krona
Thllnœgriv
ströngustn
I
c
I. Brynjólfsson & Kvaran.
F
Matrosföt
og
Matrosfrakka.
Mikið og gott úrval
nýkomið.
Verðið lækkað.
Virnhúsið.
I
Húsmæðuri
Nú fer að líða að því að þjer
farið að baka til páskanna.
Gleymið þá ekki Álfadrotn-
ingarkökunum.
Pakkar, sem innihalda efni
og pappírskökumót fyrir 20
kökur, kosta aðeins 1 krónu.
Fást svo að segja í Iiverri
einustu matvöruverslun borg-
arinnar.
Leiðarvísir á íslensku er
prentaður á hvern pakka.
1 heildsölur
Mm i s. bimí y.
Sími 2358.
Blómkál
KLEIN,
Kaupið Morgunblaðið.
sími 73.