Morgunblaðið - 05.04.1931, Page 10
MORGUNBLAÐIÐ
. -
því hann kom að Belgaum og
þangað til gerð var 1. athugun kl.
12.23, þá vantaði 8 mínútur til
þess að fá út sömu tímalengd, 28
mín., eins og frumskýrslan greinir.
— Fanst mjer þetta ósamræmi
styrkja það álit mitt, að siglt hefði
verið í 24 mín. samkv. frumskýrsl-
unni, en 21 mínútu samkvæmt
viðbótarskýrslunni, væri gert ráð
fyrir, að Ægir hefði verið 3 mín.
frá stað II og þangað tilhann fór
fram hjá Öndverðamestánni; er
þetta í samræmi við álit fyrv.
sjóliðsforingja Capt. A. C. Bro-
berg, og hefir því ekki verið mót-
mælt. Ætti þá Ægir að hafa farið
fram hjá Öndverðamesi kl. 11.58
eftir armbandsúri II. stýrimanns.
Geta vil jeg þess, að Capt.
A. C. Broberg vom ekki sýnd
skjöl Belgaums-málsins, fyr en eft
ir að jeg hafði svarað viðbótar-
skýrslu skipherrans á Ægi.
Jeg vil benda á, að bæði frum-
skýrslan og viðbótarskýrslan eru
staðfestar fyrir rjetti af skipherra
og I. og II. stýrimanni.
Enn kemur nýtt viðbótarágrip
frá skipherranum. Aðalefni þess
ágrips er um ósamræmið í tíma-
lengdinni.
Orð sjálfs skipherrans um þetta
ósamræmi byrja þannig: „Eftir að
hafa á ný athugað umsögn skóla-
stjórans um klukkuna, hefi jeg
orðið þess var, samkvæmt nýjum
upplýsingum, að klukkuskekkjan
hefir atvikast öðru vísi en upp-
lýsingarnar sem mjer voru gefnar
í vor bentu til“.
Leiðrjettingin er á þá leið að
allar athuganir hafi verið skrif-
aðar eftir armbandsúri II. stýri-
manns frá kl. 11.55 til kl. 12.14,
en þá hafi og samtímis verið skrif-
að kl. 12.19 eftir stjómklefaklukk-
unni, og eftir það skrifað eftir
henni.
í viðbótarskýrslunni er þó ber-
um orðum tekið fram, að klukku-
munurinn haldist óbreyttur allan
tímann frá því fyrir innan Önd-
verðarnes og til kl. 1.30.
Út af þessu vil jeg spyrja, hvem
ig standi á því, að þessi óaðgæsla
stýrimannanna, að skrifa ekki alt-
af eftir sömu klukku, kemur ekki
í Ijós fyr en ca. 10 mánuðum eftir
töku Belgaums, eða ekki fyr en
eftir að jeg hefi bent á, að 8 mín-
útur af tímalengdinni vanti.
Báðir stýrimennimir ranka fyrst
við sjer eftir marga mánuði; þá
muna þeir fyrst, að ekki var altaf
farið eftir sömu klukku.
Eftir framburði II. stýrimanns
var Ægir á stað II. kl. 11.55 sam-
kvæmt armbandsúri hans, og kl.
12.-14 eftir sama úri að sögn sama
stýrimanns var stoppað við Bel-
gaum eftir að Ægir var búinn að
snúa sjer í hring.
Þetta tímabil er 19 mínútur.
í þessu sambandi er rjett að
benda á, að I. stýrimaður segist
ekki minnast þess að Ægi hafi
verið snúið í hriiíg áður en lagt
var fram með Belgaum, en samt
hefir hann staðfest, að svo hafi
verið, samkvæmt viðbótarskýrslu
skipherrans.
Skipherrann telur hringsnúning-
inn hafa staðið yfir í 4—6 mínút-
ur. Með því að draga meðaltal
þessa snúningstímabils, 5 mínútur,
frá 19 míriútum, þá eru eftir 14
mínútur, sem Ægir ætti að hafa
verið á leiðinni út. Nú ber að gæta
þess, að Ægir er ekki búinn að
ná fullhraða í punkti II. og hann
minkar fullliraðann nokkuð, áður
en hann kemur að Belgaum. Mun
óhætt að draga 1 mínútu frá þess-
um 14 og gera, að í 13 mínútur
hafi Ægir siglt með fullhraða. —
Þann hraða áætlar skipherrann
12.5. —
Gerum nú samt ráð fyrir, að
Ægir sigli í 14 mínútur með 12.5
sjóm. hraða; þá fer hann 2.9 sjóm.,
en frá stað II. til staðarpunkts nr.
3 reikna jeg um 4,5 sjómílur, þ.
e. 3.6 frá punkti II. út að land-
helgislínu og þaðan um 0.9 (ef
reiknað er í tíundupörtum) út að
athuguðum staðarpunkti skipsins.
Til þess að komast 4.5 sjómílur
á 14 mínútum þarf um 19 sjóm.
hraða. Mismuninn 4,5—2,9= 1,6 fer
skip á nærri 8 mínútum með 12.5
sjóm. hraða, og það fer líka 4.5
sjóm. á nærri 22 mínútuin með
þessum hraða. Þetta virðist benda
á, að siglingatíminn hafi verið
nær 22 heldur en 14 mín.
Þá vil jeg minnast ítarlegar á
hornmælingarnar.
Aðgætinn varðskipsforingi átti
að hafa kynt sjer, að á stað þeim,
sem hann nú ætlaði að fara að
taka skip á, var ekki unt að fá
nema lítil hom, ef notaðir voru
punktar milli Öndverðarnessvita
og Dritvíkurtanga, en lítil horn
eru jafnan óábyggileg. Siglinga-
fræðin tekur beinlínis fram, að
skurðarhom lína eigi helst aldrei
að vera minna en 30°. Og öllum
er ljóst, að undir umræddum kring
umstæðum þarf enn meiri ná-
kvæmni, þ. e. hornin þurfa að vera
stærri.
Yið töku Belgaums eru mæld
6 horn; fjögur þeirra eru undir
30°, eitt 30°22’ og eitt 34°32’.
Minsta hornið fer jafnvel niður í
23°21’, enda jafnvel ógemingur að
marka þann staðarpunkt nákvæm-
lega.
Eins og hjer stóð á, var ekki
unt að fá stærri hom, fyrst Bárð-
arkista og 830 metra hóllinn voru
notaðir sem millipunktar.
Mjer er því miður ekki kunn-
ugt, hve 830 metra hóllinn er skýr
athuganapunktur, en geri ráð fyr-
ir, að hann sje það. Öndverðames-
vitinn er glöggur athuganapunkt-
ur, en það verður eigi sagt um
Dritvíkurtangann. Eftir landkort-
inu að dæma, er tanginn ógleggst-
ur, en gert er ráð fyrir, að mælt
hafi verið eins framarlega í klett-
ana og unt var. Lít jeg því svo
á, að hægra hornið í síðustu stað-
arákvörðun sje ekki eins ábyggi-
legt og vinstra horaið.
Með uppdrætti, þ, e. sneiðbog-
um, álít jeg rjett ógerlegt að finna
staðarpunktana, vegna þess að í
öllum athugunum skerast sneiðbog
arnir undir svo litlum hornum, að
með vissu er eigi hægt að ákveða
hina rjettu skurðarpunkta sneið-
boganna. Bendir þetta á, að ekki
sje unt að treysta nákvæmlega á
hina athuguðu staðarpunkta.
Þá kemur hjer eitt atriði enn
til greina, sem aldrei hefir verið
minst á í máli þessu, og það er
hæðarmunur athuganapunktanna.
Bæði hornin í nr. 3, em mæld
á ská. Vinstra skáhomið vac 28°
20’ og hægra skáhornið 30°22’.
Með reikningi hefir nú verið
fundið, að í lágrjet.tum fleti átti
vinstra homið að vera 28°14’ og
hægra homig 30°14’.
Samtala homanna minkar þá
um 14’ eða rjett um ^4 úr gráðu,
og flytur það staðarpunktinn vit-
anlega utar, við það að hornin
minka.
Með því svo að marka hornin
28°14’ og 30°14’ á staðarvísinn
og miða við ystu klettana fyrir
ofan sjálfan Dritvíkurtangann, þá
fæ jeg staðarpunktinn á land-
kortinu um 1550 metra = 0,837
sjóm. fyrir utan landhelgislmu.
Á sjókortinu fæ jeg þennan
sama punkt um 1640 m. 0,885
sjóm. fyrir utan landhelgislínu.
í skriflegri umsögn um mál
þetta áleit hr. A. C. Broherg, að
Ægir hefði siglt út frá Öndverð-
arnesi um 4,12 sjómílur og að
hann hefði verið 0,92 sjóm. fyrir
utan línu er hann kom að Belg-
aum.
Áætlun hr. Brobergs er mjög
varleg, þareð liann áætlar, að
Ægir hafi aðeins siglt í 19 mínútur
með 12,5 sjóm. hraða.
Mitt álit er, að Ægir hafi siglt
frá Öndverðamesi minst í 21 mín-
iitu með 12,5 sjóm. hraða eða um
4,38 sjóm., og hafi þá Belgaum
verið minst 1,38 sjóm. fyrir utan
landhelgi, er Ægir kom að honum.
Nú er að gæta þess, að stað-
arpunktur Ægis nr. 3 (kl. 12.32)
er fundinn 9 mínútum seinna en
nr. 1 (kl. 12,23), og ber þá að
athuga hliðarrek skipanna á þess-
um mínútum. Þau láta bæði flat-
reka undan ANA-kalda.
Gömul reynsla hefir sýnt, að
þegar kútterar liggja til drifs í
stormi (vindhr. um 20 m. á sek.)
þá er hliðarrek þeirra um 1 sjó-
míla á klukkustund. Nú er óhætt
að ganga út frá því, að í kalda
(vindhr. 6 m. á sek.) er hliðarrekið
alls ekki meira en % af hliðarreki
í stormi. Ætti þá hliðarrekið hjer
að hafa verið um
1852 X 9
----------- = 93 metrar
60 X 3
Er þetta svipuð vegalengd og
talið var, að Ægir hefði verið
fyrir innan Belganm, er hann
gerði fyrstu athugun. Yið þriðju
athugun ætti þá Ægir að vera á
líkum stað og Belgaum var við
fyrstu athugun.
Skipherrann hefir ekki mótmælt
því, að Belgaum hafi haldið beint
undan Ægi í 14 mínútur, að frá-
dregnum þeim 2 mín., sem talið
er, að farið hafi í snúa Belgaum
frá NA til YNV.
Því hefir heldur ekki verið
mótmælt, að Belgaum muni hafa
farið með 3,5 sjómílna hraða. Á
14 mín. á hann þá að hafa farið
0,817 sjóm.
Yið lok snúningstíma Belgaums
verður þá staður hans, að mínu
áliti, miðaður við landhelgislínu
þannig:
1. Samkvæmt sjókorti = 0,885
-r- 0,817 = 0,068 sjóm. utan land-
helgislínu.
2. Samkvæmt landkorti = 0,837
-sf- 0,817 = 0,020 sjóm. utan land-
helgislínu.
3. Samkvæmt áætlun hr. A. C.
Brobregs = 0,920 -f- 0,817 =
0,103 sjóm. utan landhelgislínu.
4. Samkv. áætluji minni 1,180
-r- 0,817 = 0,363 utan landhelgis-
línu.
Hve mikið Belgaum hafi færst
út við snúninginn, verður ekki
sagt með vissu. Skipið hefir snúið
112° horn, en við snúningnin mink
ar hraði skipsins nokkuð. Eftir
VOlVO-vðrubílar.
Vörnliílaeigeaðarl
Hafið hugfast, að VOLVO eru traustustu og end-
ingarbestu vörubílamir sem völ er á, enda búnir
til í Svíþjóð, úr hinu alkunna góða sænska efni.
VOLVO vörubílarnir eru nú einróma lofaðir af
þeim sem reynt hafa, og það jafnt í snjóahjer-
uðum Norður-Svíþjóðar, á fjallvegum Noregs,
sem annarstaðar á Norðurlöndum.
VOLVO vörubíll með bílstjórahúsi er nú til sýnis
og sölu hjer á staðnum.
Halldór Eiríksson,
Hafnarstræti 22.
Reykjavík. Sími 175.
Stndebaker.
Langferðabíll „Rnfnbíll11.
Hvers vegna selst meira af Studebaker vörubílum en öðram tegund-
um? Það er af því að Studebaker skarar nú langt fram úr öðrum
bifreiðaframleiðendum, enda bílarnir mikið aflmeiri og sterkari en
aðrir sambærilegir. 1 y2 tonn burðarmagn brúttó 2350 kg. 2 tonna
burðarmagn brúttó 3102 kg. fást í þessum lengdum milli hjóla: 130,
136, 148 og 160 þumlungar fást einnig með 4 afturhjólum. Komið og
sjáið sjálfir, berið saman við aðra bíla, og þá munið þjer kaupa
Studebaker.
Hagkvæmir greiðsluskilmálar.
Aðalumboðsmaður Studebaker
Egill Vilhjálmsson.
beinni línu, hefði skipið átt að
sigla 0,117 sjóm. með 3,5 sjóm.
hraða í 2 mín. Varla mun það
vera rrieira en helmingur þessarar
vegalengdar, eða 0,058 sjóm., sem
Belgaum hefði færst út. Útkom-
an mundi sem næst verða þessi,
við byrjun snúningsins:
sagt, að hjer sje um „einsýnt11
landhelgisbrot að ræða, eins og
sjálfur dómsmálaráðherrann held-
ur fram.
í grein hans um mig í Tíman-
um sje jeg, að honum fellur illa,
að jeg skildi komast að annari nið-
urstöðu en undirdómarinn.
1. ’ Samkvæmt sjókorti 0,068
-7- 0,058 = 0,01 fyrir utan línu.
2. Samkvæmt landkorti 0,020 -f-
0,058 = 0,038 sjóm. fyrir innan
línu.
3. Samkv. áætlun hr. A. C. Bro-
bergs 0,103 -f- 0,058 = 0,045 sjóm.
fyrir utan línu.
4. Samkv. áætlun minni 0,363
-f- 0,058 = 0,305 fyrir utan línu.
Bendir þetta greinilega á hið
mikla ósamræmi milli staðar-
punkta þeirra, sem jeg tel vera,
og þess punkts sem skipherrann
á Ægi telur vera. Hann hafði talið
Belgaum vera 0,2 sjóm. innan land
helgi, er hann kom að honum, en
jeg tel Belgaum liafa verið um
0,9 sjóm. fyrir utan línu. Mis-
munurinn er 1,1 sjóm. Þó virðist
þessi mismunur meiri eftir sigl-
ingunni — að Belgaum hafi verið
utar.
Sigling samkv. framskýrslunni
bendir á, að Belgaum hafi verið
utar, eins og áður er tekið fram.
Enda vænti jeg, að hinir þrír sigl-
ingafróðu menn athugi það atriði
rækilega.
Út af því, sem jeg hefi nú tekið
fram, held jeg, að tæpast verði
Atvik gátu þó verið þau, að
dómsmálaráðherrann hefði kosið,
að jeg skyldi komast að annari
niðurstöðu en undirdómarinn.
Gemm t. d. ráð fyrir, að Belg-
aum hefði verið útlendur togari,
er dæmdur hefði verið sekur í
undirrjetti.
Sækjandi málsins í Hæstarjetti
hefði t. d. beðið varðskipsforingja
af öðru skipi en Ægi, að afmarka
staðarpunktana á sjókort, og segj-
um að hann hefði fengið svipað
út og skipherrann á Ægir. Eftir
þessu staðfestir Hæstirjettur dóm
undirrjettar.
í málinu væri aðeins skýrsla
skipherrans lögð til grundvallar,
því hún væri talin svo skýr, glögg
og rjett í alla staði að henni mætti
fyllilega treysta.*
Nú eru öll málsskjolin send rjett
um erlendum hlutaðeigendum.
í greinargerð um áminst fimt-
* Að minsta kosti ætti ekki að
gera ráð fyrir,, að skipheirra kæmi
með nýjar og nýjar viðbótar-
skýrsluir tál að breyta frumskýrsl-
unni, er haarn hefði staðfest fyrir
rjetti.