Morgunblaðið - 24.05.1931, Page 3
«
MORGUNBLAÐIS
' JHIBHMIÍUHIlHimHUHmillllUIHHIIIIIIIIIlllllllllMlllllllftS^
Útgeí.: H.f. Árvakur, Heykjavlk g
RUstjðrar: Jön KJartaneeon.
Valtýr Stef&nuon.
Rttctjörn og afgreitSsla:
Austurstrætl 8. — SIsil B00. =
Auglýsingastjóri: E. Hafberg. =
Aucrlýsingraskrlf stof a:
Austurstrætl 17. — Slml 700. =
Heimaslmar:
Jön Kjartansson nr. 742.
Valtýr Stef&nsson nr. 1220. =
E. Hafberg nr. 770. •
Áakrif tagjald:
iBaanlands kr. 2.00 á mánuBl. =
Utanlands kr. 2.50 á mánuBi. =
f lausasðlu 10 aura elntakiB.
20 aura meB Lesbök. =
uniHwnnmnmHuttimiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiuiiiif
Anna Borg
keunir heim.
Anua Borg kemur lieim í dag.
Anna Borg? Fyrir ári síðan lítt
;J>ekt íslensk stúlka, í dag ung
listakona á hraðri leið til frægðar.
Fyrir ári vissú tiltölulega fá-
ar urn fágætar listagáfur hennar
Anna Borg sem Halla.
•og. brennandi álmga fyrir leiklist-
inni, en allir sem þektu hana voru
•sannfærðir um þetta tvent, í dag
ik.enmr hún heim sem sigurvegari,
sem hlotið hefir viðurkenningu
þúsmidanna fyrir glæsilegt afrek
á sviðl leiklistarinnar. Unga stúlk
: an íslenska hefir borið hróður Is-
lands langt út fyrir landsteinana.
Anna Borg kom heim í fyrra-
• sumar um svipað leyti og þetta
. að loknu reynsluári símx við kon-
xraglega leilthúsið í Kaupmanna-
höfn. Hafði hún þá um veturinn
og veturinn áður leikið nokkur
'hlutverk hjá leikhúsinu og vakið
á .sjer eftirtekt glöggsýnna list-
■ dómenda fyrir þau leikafrek. —
Meðal þessara hlutverka var María
,í liinska einþáttungnum „Galge-
manden". Páll Renuœert, hinn
ifrægi danski leikari, ljek þar á
mót'i hermi, og sýndu þau þáttinn
víða um Norðurlönd, m. a. hjer
5 Reykjavík hjá Leikfjelaginu
vorið 1929. Gafst þá tækifæri fyrir
okkur Reykvíkinga og samborgara
Onnu Borg að dæma um tækni þá
og kunnáttu, sem hin unga leik
kona hafði tileinkað sjer á náms
árum sínum, undirstöðu þessa leik
afreks vlssum við um eða gat að
minsta kosti rent grun í hverjar
væru: ríkulegir hæfileikar, óve-
fengjanlega teknir í móðurarf.
Hjerlendis rennir víst fæsta
grun í, hvílík upphefð það er,
þegar gamalt og viðurkent leikhús
trúir ungri leikkonu fyrir aðal-
hlutverki í stórkostlegu leikriti.
3*að jafngildir viðurkenningu sjer-
fræðinga, og þegar leikkonan
bregst ekki traustinu, þá jafngild-
ir það einróma úrskurði um lista-
mannsgildi svo sem frekast er
jiægt að krefjast þar sem menn
dæma um menn. Hvorttveggja
varð þegar Anna Borg Ijek hlut-
verk Margrjetar í hinu ódauðlega
leikriti Goethes Faust. Jeg hefi
sjeð marga dóma uin upprennandi
listamenn, leikara og leikkonur,
norræna og þýska, fáar undan-
tekningar kann jeg að nefna þar
sem dómarnir hafa verið skýlaus-
,ari í aðdáun sinni. Anna Borg bar
,uppi sorgarleikinn um Faust, og
það er einna líklegast, að fyrsta
stjórnarárs Adams Poulsens við
konunglega leikhiisið muni lengst
minst fyrir framkomu hinnar ís-
lensku stúlku á þessu gamla og
viðurkenda leiksviði.
Jeg hefi orðið langorðari en til
var ætlast í upphafi — en Anna
Borg kemur mi ekki Iieim á liverj-
um degi. Jeg vil bjóða hana vel-
komna með línum þessum og færa
henni þakklæt.i mitt, og vildi allra
landsmanna, fyrir þá sæmd, sem
hún hefir gert þjóð sinni.
Anna Borg kemur heim — —
hvenær getum við boðið lienni
heim fyrir fult og alt, hvenær get-
um við boðið henni fast starf á
íslensku leiksviði?
Láxus Sigurbjörnsson.
Hannes Thorstelnson
fyrv. bankastjóri.
(F. 2, okt. 1863, d. 17. maí 1931),
Sunnudaginn 17. þ .m. andaðist
á heimili sínu hj'er í bænum fyrv.
bankastjóri Hannes Thorsteinson,
og skorti hann rúma fjcra mán-
uði á 68 ára aldur, því að luran
var fæddur 2. okt. 1863 í sarna
liúsinu sem hann dvaldist í alla
Hannes Thorsteinson.
æfi sína, nema námsárin, sem
hann var erlendis. Hefi jeg fyrir
satt, að hann hafi aldrei á æfi
sinni dvalist eina nótt undir öðru
þaki hjer í bæ, enda leit hann til
hinstu stundar á þetta æskuheim-
ili sitt sem helgidóm, er sem minst
mætti hagga við, og skylt væri að
varðveita ósnortinn af óðagoti
tímans og byltingagirni. Hann
hafði að eðlisfari óbeit á allri o-
þarfri tilbreytni. Og þannig varð
þá líka allur æfiferill hans ærið
tilbreytingalaus.
Að afloknu námi (1892) gerðist
hann aðstoðarmaður föður síns á
landfógeta-skrifstofunni, en jafn-
framt því starfi hafði hann (frá
1894) á hendi málaflutningsstörf
við yfirdóminn, alt, þangað til Is-
landsbanki var settur á stofn 1904.
Þá gerðist hann bankaritari þar,
og eftir lát Páls amtm. Briem,
lögfræðilegur ráðunautur banka-
stjórnarinnar. Frá áramótum 1920
varð hann einn af meðstjórmendum
bankans, en hvarí frá því starfi
eftir fjögur ár ,þegar það var
gert að lögum, að ríkisstjórnin
skipaði tvo af bankastjórunum.
Upp frá því helgaði hann sig einka
hagslífinu, en átti síðustu árin við
heilsuleysi að' stríða, sem oft batt
liann við rúmið vikum og mánuð-
úm saman. Hann kvæntist aldrei.
Hannes Thorsteinson var maður
vel gefinn í mörgu tilliti. Hann
var að vísu enginn námsmaðnr í
uppvextinum og er mér nær að
halda, að laganámið hafi aldrei
tekið huga hans fanginn. En hann
var engu að síður hygginn maður
og athugull, og gæddur riæmri um-
sýslunarmannsgáfu. Mikil sam-
viskusemi og ákveðin rjettlætis-
kend einkendi allan æfiferil hans.
Þetta lýsti sjer ekki síst í mála-
flutningi hans við yfirdóminn.
Hann kastaði aldrei höndunum til
iess starfs. Hann skoðaði gaum-
gæfilega hvert mál, sem hann
liafði til meðferðar, áður en hann
tók jákvæða afstöðu til 'þess, og
jeg hygg, að honum hafi alla tíð
verið ógeðfelt að taka að sjer
nokkurt mál, sem va.fi gat leikið
á, hvort væri á rjettum rökum
bygt. Með þessu ávann hann sjer
fylsta traust þeirra, sem leituðu
til hans. Hanu varð suemma kunn-
ur að því að vera bæði heilráður
og hollráður, enda hefir slíkt
löngum verið vísasti vegurinn til
mannhylli. Og hennar varð hann
þá líka aðnjótandi af öllum, sem
við hann áttn að skifta. Vin-
margur maður varð hann aldrei og
sóttist lítt eftir því, svo vina-
vandnr sem hann var að eðlisfari,
en trygð hans við þá, sem hann
einu sinni hafði bundið vináttu
við, brást aldrei. í margménni
hafði hann sig lítt í frammi og
mannfundi sótt hann sjaldan, en
í fámennum vinahóp var liann bæði
skemtinn og viðræðisgóður. Hann
var alla æfi reglumaður í sjer-
hverri grein og einstakt prúð-
m.enni í framgöngu, hinn grand
varasti til orða og verka og al
úðlegasti í viðmóti við hvern, sem
í hlut átti. I fám orðum: hann
vildi ekki í neinu vamm sitt vita.
Hann var frá æsku mjög söngv-
inn, hafði mætur á sönglist og
hljóðfæraslætti og ljek sjálfur á
hljóðfæri á yngri árum. Einnig
hafði hann næma listbejid og opið
auga fyrir öllu fögru, 'hvort sem
það heldur hirtist honum í verk-
um mannanna eða úti í náttúr-
unni. Hann liafði mikinn áhnga á
garðyrkju og blómrækt., enda hafði
jhann frá æsku alist upp við lif-
andi áhuga á slíku lijá foreldrum
sínum. „Landfógeta-garðinum' *
yar lengi viðbrugðið hjer í bæ
fyrir góða rækt og liirðingu, og
varð þá líka fram eftir öllu feg-
ursti bletturinn lijer í bæ, Hannes
sál. ljet sjer þá og mjög ant um,
,að garðurinn gengi ekki úr sjer
og var gaman að ganga með Iion-
um um garðinn og fróðlegt. að
heyra hann skýra frá reynslu sinni
varðandi garðyrkjuna og blóm-
ræktina. Hvem þátt liann átti í
endumeisn „Garðyrkjufjelags ís-
lands“, veit jeg ekki, en hann var
forseti þess frá 1918 og bar hag
þess og þrif einlæglega fyrir
brjósti.
Hestamannafjelagið Fáknr.
Kappreiðar.
Fyrstu kappreiðar fjelagsins á þessu ári verða háðar
á skeiðvellinum við Elliðaárnar annan hvítasunnudag og
hefjast klukkan 3 stundvíslega.
Um 30 hestar keppa og meðal þeirra margir nýir
gæðingar.
Danspallur og veitingar á staðnum.
OOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOO^
Therma straulðrn
sem á stríðsárunum kostuðu 26 krónur, kosta
nú 12 krónur.
Sjaldgæft er, að það besta sje jafnframt
ódýrast, en það ætlar þó að verða um Therma-
jámin. Þau hafa altaf ómótmælanlega verið best,
en jafnframt nokkuð dýrari en aðrar samhæri-
legar gerðir. Nú eru þau, sakir óhemju mikillar
framleiðslu orðin eins ódýr og miðlungs tegundir.
Jnlíns Bjðrnsson,
Austurstr. 12.
Sími 837.
►oooooooooooooooooooooooooooooooooooo
oooooooooooooooooooooooooooooooooooo
En lengst mun geymast í með-
vitund vandamanna og vina Hann-
esar sál. Thorsteinson minningin
um hinn yfirlætislausa og vandaða
drengskaparmann, sem öllum, er
honum kyntust., hlaut að verða
lilýtt til. Mætti sú minning lifa
lengi með oss hreín og björt, eftir
að hann mi er frá oss horfinn að
sýnilegum návistum.
Dr. J. H.
Dagb&k.
oooooooooooooooooo
JACOBS
blandaðar kremkökur
Veðrið (laugardagskvöld kl. 17).
Hægviðri um alt land, víðast N
eða A-átt. Því nær heiðskírt á öllú
N- og V-landi, en uokkuð skýjað
SA-lands. Hitinn er 5—7 st. á N-
og A-landi, en 11—13 st. syðra.
Loftþrýsting er stöðugt há yfir
Islandi og norðurundan, en lág
fyrir sunnau Bretlandseyjár. —
Veðrabreytingar eru engar fyrir-
sjáanlegar næstn dægur.
Veðurútlit í Rvík á snnnudag:
N-gola. Ljettskýjað.
Knattspyrnukappleikur verður
háður annað kvöld kl. 8y2 milli
sjóliðanna á enska herskipinu
„Harebell“ og knattspyrnufjelags-
ins Víkingur. — Söludrengir að-
göngumiða ei*u beðnir að koma
til Agnars Kl. Jónssonar í Tjarn-
argötu 22, kl. 1 á morgun.
Kappreiðarnar við Elliðaár. —
Hestamannafjelagið Fákur ætlar
að lieyja kappreiðar á skeiðvell-
inum annan hvítasunnudag. Ern
,þetta fyrstu kappreiðar fjelagsins,
á árinn og er nú fult af snjöllum
og góðum hestum. er keppa, og
mun vart mega í milli sjá, hverjir
sigrast myni.
Teikningar Gagnfræðaskóla
Reykvíkinga eru til sýnis í Iðn-
W* fi- JACOB & C? U.° DUBUN. IRELAND
eru h er sem annars stað-
ar uppáhald allra hús-
mæðra, sem vilja hafa
verulega góðar kökur með
kaffinu handa gestum sín-
um og heimafólki.
Jakobs kex og kökur fást
i flestum búðum.
oooooooooooooooooo
skólanum (stofu D), yfir hátíðina.
Knattspyrnumót 2. aldurflokks
hefst á morgun kl. 2 á íþrótta-
vellmum. Eru það drengir 15—18
ára. Kh 2—3 keppa K. R. og Vík-
ingur og kl. 3—4 Fram og Valur.
K. R. sigraði á þessu móti í fyrra.
Mun verða mikið kapp í hinum
keppinautunum að sigra á þessu
móti og hafa fjelögin yfirleitt á-
gæt-a menn í þessum flokki. Und-
I anfarin ár hefir leikur þessara
»