Morgunblaðið - 23.06.1931, Qupperneq 2
2
MORGUNBLAÐIÐ
\
Biskvpsvígsla
I Dómkirkiaani.
Döðlnr og gráiíkjnr
Sigurður P. Sivertsen vígður bisk-
upsvígslu.
hvergi ðdýrari nje betri.
Heimsfrægar kTikmjradaleikkonnr
neta þessa nnaðslegn hTítn sápn.
OCLTS 51-10
n-c
LUX Hand
SÁPA
LIMITED. PORT SUNLIOHT. ENGIANO
Fagrar konur nota
Lux handsápuna til
að viðhalda fegurð
isinni'. Hið hvíta,
mjúka löður mýkir
húðina, gerir Jiana
hvíta og fallega-,
ilmur hennar er dá-
samlegur.
Lux handsápan.
Hvít sem mjöll — ilmar af
angandi blómum.
Mjúk liúð er mikils virðj,
hvort heldur þjer eruð kvik-
myndaleikkona eða ekki. Jeg
nota Lux handsápuna. hún er dá-
samleg, hrein og hressandi.
Billie Dove
Frits National.
Tilkvnning
irí
Kanpmannafjelagi Hafnarfjarðar.
Frá 1. júlí, og þar til öðruvísi verður ákveðið, verða
■vörur úr verslunum fjelagsmanna aðeins lánaðar gegn
-eftirtöldum skilyrðum og aðeins þeim, sem staðið hafa
og standa í skilum.
1. Úttekt hvers mánaðar skal að fullu goldin fyrir
10. næsta mánaðar eftir að varan hefir verið tekin út.
2. Kröfur þær, sem ekki hafa verið goldnar sam-
Icvæmt ofanrituðu, eða samið um þær, svo og allar eldri
skuldir, verða afhentar lögfræðingi fjelagsins, til skrá-
setningar og innheimtu á kostnað gjaldanda.
3. Sökum hinna óhagstæðu lánskjara og háu vaxta,
"verða eftirleiðis reiknaðir venjulegir bankavextir áf öll-
um verslunarskuldum, sem ekki hafa verið greiddar í
.gjalddaga,
Stjárnfn.
Borgarness og Borgarfjarð arferðir
am HTatfjðrð
byrja á morgun.
Burtfarartími frá Reykjavík kl. 11 árdegis.
Ferðtr dagfega.
Bifreiðarstöð Steindórs.
Um 60 prestar viðstaddir.
A sunnudaginn fór fram í dóm-
kirkjunni biskupsvígsla í sam-
bandi við prestastefnuna, sem var
lokið á laugardaginn. Var Sigurð-
ur P. Sivertsen prófessor þá vígð
ur til vígslubiskups fvrir Skál-
holtsstifti í stað Valdemars Briem,
sem ljetst á síðastl. sumri.
At'höfnin hófst kl. 11 árd, Var
kirkjan þjettskipuð fólki, og einn-
ig stóð mannfjöldi mikill fyrir ut-
an kirkjuna. Gengu þá kennimenn
í skrúðgöngu frá Alþingishúsinu
til kirkjunnar. Gengu fremst tveir
ungir prestar, síra Helgi Konráðs-
son og síra Þorgrímur Sigurðsson,
er síðan stóðu vörð við altarishorn
in meðan á vígslunni stóð. Því
næst gengu biskupar báðir, dr.
Jón Helgason og vígsluþegi, hr.
Sigurður Sivertsen. Þá gengu
vígsluvofctar fjórir, tveir og tveir
saman, en þeir voru: Prófasturinn
í Kjalarnesprófastsdæmi síra Árni
Björnsson, dómkirkjupresturinn
síra Bjarni Jónsson, og embættis-
bræður hins nýja biskups, guð-
fræðikenjiarami'r Magnús Jónsl-
son og Ásmundur Guðmundsson.
Þegar inn að kórdyrunum kom,
gengu þeir, sem þjóna áttu við
athöfnina til skrúðhúss, en hinir
tóku sæti í kór og á stólum fyrir
framan kórdyr. Munu þama hafá
verið um 60 prófastar, prestar og
emeritprestar.
Síra Friðrik Hallgrímsson las
bæn í kórdyrum. Gekk þá síra
Bjarni Jónsson fyrir altari, og
inti af hendi alla altarisþjónustu
fyrir og eftir vígsluna, Þá stje
Magnús Jónsson prófessor í prje-
dikunarstól og lýsti vígslu og las
æfiágrip vígslubiskups, samið af
honum sjálfum.
Gengu þá allir þeir er við át-
höfnina þjónuðu í skrúðgöngu frá
skrúðhúsi til kórs, og voru biskup-
arnir báðir skrýddir biskupskáp-
um en prestar rykkilínum, og fór
svo vígsluathöfnin fram með ræðu
biskups, upplestri vigsluvotta og
vígslusöng og öðrum þeim helgi-
siðum er þar til heyra. Að því
loknu stje hinn nývígði biskup í
stólinn og flutti prjedikun dagsins.
Lagði hann út af orðunum: Mark.
II, 22.—24. Lýsti hann því, hvern-
ig fjall örðugleika og vandamála
ægði mönnum oft og einatt, en
samkvæmt orðum Krists gæti sá,
sem trúna ætti og fullkomið
traust,, sagt við fjallið: Lyftist þú
upp og steypist þú í hafið. í þessu
væri fólgin bjartsýni kristindóms-
ins.
Á eftir vígslunni voru biskupar
báðir og prestarnir til altaris.
Athöfnin stóð yfir í þrjá klukku
tíma og var mjög hátíðleg og
fögur.
Áður en í kirkju var gengið
afhenti biskup vígslubiskupi bisk-
upskross Tir gulli, sem prestar í
stiftinu höfðu látið gera. En um
kvöldið hjeldu prestar þeim bisk-
upunum báðum samsæti að Hótel
Borg.
*------------------
Rio de Janeiro 20. júní.
United Press. FB.
Do. X. lenti kl. 1 e. h.
99
Það er gaman að líta á þrottinn“
segir húsmóðirin.
Jeg Þvæ
skemdalaust
og á helmingi
styttri
tíma með
RINSO
Lökin og koddaverin eru hvít eins
og mjöll, hvergi stoppuð eða bætt.
Það er Rinso að þakka. Rinso
tieldur þvottinum drifhvítum, eng-
irxn núningur, engin bleikja, ekk
ert sem slítur göt á þvottinn, að
eins hreins sápulöður sem nær
úr öllum óhreinindum. Jeg gæti
ekki hugsað mjer að vera án
Rinso.
Er aðeins selt i pökkum
— aldrei umbúðalaust
Lítill pakki — 30 aura
Stór pakki — 55 aura
LtVER BROTHIRS UMITED
PORT SUNLIOHT. ENOLAND
nssmmmæzmaamlt
W-R 24-047*
ÚtlMtMÍugsnefnd
Síldareinkasðln íslands
#
hefir ákveðið að gefa síldarsöltun að þessu sinni frjálsa
þannig, að síldareigendur semji sjálfir við söltunarstöðv-
arnar og beri ábyrgð á síldinni gagnvart einkasölunni
uns síldin er afhent henni af saltanda. Einkasalan hefir
þó ákveðið hámark þess er salta má á hverri stöð. Einka-
salan getur ráðstafað söltun þeirrar síldar, sem engir
samningar hafa verið tilkyntir um fyrir 10. júlí n. k. og
ákveður hún þá söltunargjald fyrir þá síld. Síldareinka-
salan greiðir söltunarlaun beint til saltenda nema skil-
ríki liggi fyrir um að þau sjeu greidd á annan hátt enda
hafi ekki komið fram kröfur um ógreidd vinnulaun.
Akureyri 20. júní 1931.
Fyrir hönd útflutningsnefndar Síldareinkasölu íslands
Erlingnr Friðjúnsson.
Kjöp Sölvrev fra Norge.
Men kun av beste kvalitet!
Vestvik Pelsdyrav, Trondelag, selger nu til Island árshvalpe, av
sine utvalgte stamdyr. Disse har ærespokal, lste, 2den eller 3dis
primie og er av höit premiert og avlsrik slekt. I ár op til 9 hvalper
i Kullet. Fritt valg blandt ca. 50 hvalper hvis De er ute i tide.
14 dagers gratis ophold og oplæring i reveopdrett i vár modeme
og sanitæme revgárd. Skriv efter óplysninger til
lærer Bjarne Aune, Steinkjer.
B. S. B.
hefir fastar ferðir frá Borgarnesi til Skagafjarðar alla
daga er E.s. Suðurland kemur til Borgarness. Allar upp-
lýsingar verða gefnar og farseðlar seldir á afgreiðslu
öuðurlands í Reykjavík. Sími 557. Sími í Borgarnesi er
16. Einnig bílar til leigu í lengri og skemmri ferðir.