Morgunblaðið - 16.08.1931, Qupperneq 4
4
fif leið ykkar liggur um Hai'n-
ufjörð, þá munið að kaffi og mat-
■ítofan „Drífandi“ Straudgötu 4
;e!ur bestan og ódýrastan mat og
írykk. Heitur matur alla daga.
í'ljót afgreiðsla. Virðingarfylst.
■J ón Guðmundsson frá Stykkis-
iclmi.
Ódýr matarkaup. Fyrsta flokks
frosið dilkakjöt á 60 aura pr.
V2 kg. Pantið í síma 259. H.f.
ísbjörninn.
illl.s. Dr*ií»araisifg
Alexande*ine
fer þriðjudaginn 18. þ. m.
kl. 6 síðdegis til Isafjarðar,
Siglufjarðar, Akureyrar. —
Þaðan sömu leið til baka.
Farþegar sæki farseðla á
morgun.
Fylgibrjef yfir vörur komi
á morgun.
C. Zistsea.
Dilkaslátnr
fást
á morgnn.
SltfurfieiaBlð
Leikfímis- og
skíðakennari
óskar eftir stöðu eftir 1. október.
Tilboð óskast seud undirrituðum.
Biarni Ágústsson,
('Xorðmaður), Viðey.
Hðtel Skialdbreið
4 manna hljómsveit
spilar í kvöld
frð kl. S-lí,
þriðji Sigurður Runólfsson (K. R.)
á 46 mín. 16.2 sek. — Magnús
vann Hafnarfjarðarbikarinn Öðru
sinni og allir þessir þrír fengu
sjerstök verðlaun fyrir lilaupin.
Mr. Anthur Gook frá Akureyri,
sem ætlar að tala í kvöld í K. F.
í'. M.-húsinu kl. 8y2, ætlar einnig
að flytja erindi í samkomuhúsi
Hjálpræðishersins í Hafnarfirði
mánudagskvöld kl. 8y2, og í húsi
Hjálpræðishersins í Reykjavík á
])riðjudaginn á sama tíma.
Til StrandarkRkju frá J. G. M.
2 kr., Sigm. Björnssyni, Yiðey 5
kr., gömlum manni 10 kr., N. N.
(gamalt áheit) 20 ki\, ,T. 10 kr.,
Manna 15 kr., Þ. Á. 2 kr.
Hjálpræðisherinn. Samkomur í
dag: Helgunarsamkoma kl. 10y2
ár.d. Hjálpræðissamkoma kl. 8y2
síðd. Kapt. Williams stjórnar. All-
ir velkomnir!
Kristileg samkoma á Njálsgötu
1 kl. ‘8 í kvöld. Allir velkomnir.
Bílslys varð uppi hjá Óðinstorgi
í gærkvöldi. Rákust tvær bifreiðir
saman á horninu á Óðinsgötu og
Spítalastíg. Annað var einkabif-
reið, hitt bifreið frá Steindóri.
Báðar höfðu þær ekið liægt, en þó
rarð áreksturinn svo mikill að
Steindórs-bifreiðin hrataði út af
veginum. Br þar bratt og misti
hún jafnvægi og valt um koll. Eng
'inn var í henni nema bílstjórinn
og sakaði hann ekki. Bifreiðin
skemdist og furðu lítið, og hin
enn þá minna.
Gamalmennaskemtunin er í dag.
Meðal annars, sem þa.r yerður til
skemtunar, og áður hefir verið tal
ið, syngja tvær dætur síra O. Þor-
lákssonar japanska söngva og
verða í japönskum þjóðbúningum.
Allir góðir menn eru beðnir að
sfuðla að því, að þa.n gamalmenni,
sem þeir þekkja, komist á skemt-
unina.
Myndasýning síra 0. Þoriáks-
sonar í gærkvöldi var mjög vel
sótt og gerði fólk ágætan róm að
henni og þ>ó sjerstaklega að söng
og fiðluleik barna. hans.
Kappróðrarbátur K. R., hinn nýi,
var vígður og skírður í gær. Heitir
hann Ingólfur, í höfuðið á Ingólfi
landnámsmanni. Kristján Gestsson,
formaðnr K. R. hjelt ræðu við
þetta tækifæri og skýrði frá til-
drögum þess, að róðrardeild var
stofnuð innan K. R. Eitt af því,
sem hva.tti stjórnina til þess að
taka róðraríþróttina á stefnuskrá
sína, var það, að fyrir nokkurum
árum var haldinn kappróður, og
mönnuðu þá ungir drengir úr K.
R. bát og kepptu. Kom þarna í
ljós svo mikill áhugi fyrir þessari
íþrótt, að fjelagsstjórnin hla.ut að
taka hann til greina. En nokkur
dráttur hefir orðið á því, vegna
fjeleysis, að hægt væri að ná í bát.
Fyrst var keypt róðrarvjel og nú
er bátnrinn kominn. Hann er dýr,
en K. R. væntir þess að velunnarar
fjelagsins, sem jafnan hafa reynst
vel, muni énn einu sinni hlaupa
undir bagga.
Hringskemtunin í Kópavogi
hef.st með lúðraleik kl. 3 síðd. í
dag. Þarf fólk því að ná sjer í bíl
þangað suður eftir úr því að klukk
an er tvö. Er betra að ha.fa fyrra
íallið á því, vegna þess að bílarnir
verða ugglaust uppteknir seinustu
míniiturnar, en ilt að verða af
nokkuru af skemtuninni.
Sundmótið á snnnudaginn. Ein.s
og getið er á öðrum stað, verður
sundmót mikið í Örfirisey á sunnu
daginn kemur. Hefir Morgunblaðið
verið beðið að skila til sundmanna,
-em ætla sjer að kepp^, að þeir
verði að tilkynna það sundskála-
verði fyrir þriðjudagskvöld.
Homsteinn nýju ltirkjunnar í
Siglnfirði va.r lagður kl. 1 í gær.
M 0 R GUNB L AÐIÐ
Kappskákirnar. Ekki náðist sam
band við „lsland“ í fyrrakvöld,
og standa* því skákirnar eins og
þær voru þegar sambandið slitnaði
í fyrramorgun. Verður þess nú bið-
ið að dr. Aljechin komi til Kaup-
manna.hafnar. Þá verður tekin á-
kvörðun um það, hvort skákunum
verður haldið áfram með símskeyt-
pm, eða þá að þær verða lagðar í
dóm. Taflstaðan á báðum borðum
er til sýnis í glugga Morgunblaðs-
ins.
Georg Kempff ætlar að leika. á
fríkirkjuorgelið fyrir útvarpið kl.
8—8.15 í kvöld. Á mánudagskvöld
liefir hann orgelkonsert í fríkirkj-
nnni og leikur þar lög eftir tón-
snillinginn Packelbell frá Niirn-
berg (orgel hans er enn þá geymt
í Núrnberg sem helgur gripur),
Variationer eftir Johan Gottfried
Walther (sem var' samtíðarmaður
Ba.chs) og enn fremur lög eftir
Bach og Hándel. Þetta eru síðustu
forvöð að hlusta á Kempff, því að
hann fer til útlanda á þriðjudag-
inn.
Sundskálinn. Aldrei hefir verið
jafnmikil aðsókn að honum eins og
í fyrradag, enda var veður fra.m-
úrskarandi gott, hiti og logn og
sjórinn 17 stiga heitur seinni hhita_
dags. Milli 50 og 60 baðgestir not-
uðu sundskálann, en auk þess kom
fjöldi fólks út í eyju til þess að
baða sig og synda.
íslendingasundið og ferþrautar-
keppnin fer frarn á sunnudaginn
kemnr, 23. ágúst. í íslendingasund
inu geta allir keppt. Það er 500
.metra og mega menn nota hvaða
sundaðferð, sem þeim sýnist. Fer-
þrantarkeppnin er þannig, að
menn hjóla. 1000 metra, hlaupa
1000 metra, róa 1000 metra og
synda 1000 metra. Bæði sundin
fara fram úti hjá Orfirisey, og í
sambandi við þau verður 50 metra
kappsund fyrir karlmenn (frjáls
aðferð), 200 m. bringusund fyrir
drengi innan 18 ára., 50 metra
sund, frjáls aðferð, fyrir drengi á
sama aldri og 50 metra sund
(frjáls aðferð) fyrir telpur innan
15 ára.
Skemtiferð fer Glímufjelagið Ár
mann austur í Langardal (að Lang
arvatni) sunnudaginn 23. ágúst kl.
8 árd. Ekið verður í bólstruðum
kassabílnm, ágætum, og kostar far
ið, fram og til baka, 7 kr. Far-
miðar fást keyptir til fimtndags-
kvölds í Efnalaug Reykjavíkur.
Fjelagsmenn mnnu að sjálfsögðu
fjölmenna, því að skemtiferðir fje-
lagsins hafa þótt hinar ágætnstn.
Allir þátttakendur verða að hafa
með sjer nesti.
Nýr bankastjórd við Útvegsbank
ann. Á fundi fulltrúaráðs Utvegs-
banka Islands í gær var kosinn
bankastjóri frá næstu áramótnm,
Helgi Guðmundsson fiskifulltrúi, í
stað Helga P. Briem, er hafði beð-
ist lausna.r frá þeim tíma. Mun
svo til ætlast- að Helgi P. Briem
taki við fiskifulltrúastarfinu, frá
,sama tíma. Helgi Guðmundsson,
er sem kunnugt er, þaulkunnugur
bankastarfsemi, fiskiverslun og
fiskiútvegi.
Til Hallgrímskirkju í Saurbæ,
Áheit frá gamalli konu 15 kr. Með-
tekið. E. Thorlacius.
K. R. hefir sett npp á íþrótta-
hús sitt tvo myndakassa. Eru þa-r
sýndar ýmsar íþróttamyndir. M. a.
eru þar að þessn sinni myndir af
meistarakappleiknum í Wembley
um ensku meistaratignina. La.nds-
kappleik milli Dana og Svía. Besta
knattspymumanni hins fræga f.je-
lags Arsenal. Heimsmeistarannm í
tennis. Hinúm heimsfræga íþrótta-
manni, Nurmi, o. fl. Einnig er þar
dómur um kappleik K. R. í Vest-
mannaeyjum.
Verslunin
Jðlnlag k Uerkfæri"
Miölkurfjelagshúsinu, Hafnarstræti 5.
Opnar næstkomandi þriðjudag 18. þ. m.
Málning af öllum tegundum og alt sem henni til~
heyrir, einnig alls konar smíðatól og verkfæri, allt í heild-
sölu og smásölu.
Vörurnar valdar af stjórnanda verslunarinnar sem
er fagmaður í iðninni, og veit hvað kaupanda hentar best.
Hið heimsfræga firma „Bitulac“ Limited Newcastle
on Tyne, leggur upp stórkostlegar birgðir hjá versluninni
af vörum sínum fyrir ísland og hefir verslunin heildsölu-
lager, einkasölu og aðalumboð fyrir allar „Bitulac“ vörur
ásamt fleiri firmum enskum og þýskum, sem verslunin
hefir einkasölu fyrir.
Öll málningarvara selst með sjerlega lágu verði.
Umboðsmenn óskast víðsvegar um landið, öllum fyr-
irspurnum svarað fljótt.
Allar pantanir afgreiddar samstundis hvert á land
sem er. Biðjið um alt sem yður vantar; ef vjer ekki höf-
um það sjálfir, útvegum vjer yður það til að greiða fyrir
viðskiftunum.
Verslunin „Málning I Verkfærr.
FISK
dekk og sISk §iir
hafa reyasf hetnr en flesfar aðrar pmmífeganflir, sem
hjer eru I notkun.
Mýjnr birgðír áwalt fyrirliggjandi. Verðið lækkað t. d.
32X6 Heavy Duty 10 strigalaga kr, 148,50. Slöngur 11,25
34X7 — — — — — 206,00. — 14,20
475/20 Balloon Rugged 6 — — 47,50. — 6,10
500/19 — — _ — — 48,50. 6,10
500/20 — — — — — 52,00. — 6,25
550/19 — — — — — 60,00. — 7,15
700/19 — — — — — 86,50. — 7,85
Kaupið FlSK-dekk. Þnn mnnn endast vei.
Ei iill Vfilkiálmsson.
Greftisgðtn 16.
,Hriiígurinnc
Skemtfti heldur Hvenfiei. .Hringurinn1
í dag á túninu í Kópavogí.
Til skemtana:
1. Ræða: Síra Friðrik Hallgrímsson.
2. Bögglauppboð með mörgu góðu í, peningum o. fl.
3. Kappróður. Hið ágæta kappróðrarf jelag.
4. Dans og hljóðfærasláttur.
Rólur fyrir börn. Kaffiveitingar, gosdrykkir, öl, ávext-
ir, sælgæti, cigarettur og vindlar, alt á staðnum,
Skemtistaðurinn upplýstur með rafmagnsljósum.
Inngangseyrir 1 króna, en ókeypis fyrir börn
— Skemtunin hefst kl. 3 síðd.
STJÓRNIN.