Morgunblaðið - 16.08.1931, Síða 8

Morgunblaðið - 16.08.1931, Síða 8
f MORGUNBLAÐIÐ Kaffi er þjóðdrykkur íslendinga, þess vegna á RICH’S KAFFI- BÆTIR erindi inn á hvert einasta heimili. Heildsölubirgðir hjá I. Brynjólfsson & Kvaran. lagareglan landinu Laugarnes- sjúkrahúsið, með því skilyrði, að þegar liússins þyrfti ekki lengur meg fyrir holdsveikrahæli, þá yrði það samt framvegis notað til líkn- ar eða mannúðarstarfsemi. Hefi jeg ástæðu til að ætla að ekki yrði fyrirstaða hjá gefendunum, og samkomulag fengist um þá breytingu, sem hjer er bent á, með því móti vitanlega, að ríkið ljeti reisa hæli handa holdsveika fólk- inu, svo sem og sjálfsagt er. Það virðist liggja svo í augum uppi að ódýrara sje að reisa hæli handa 20—30 manns, heldur en 60 —70, að eigi þarf um það orðum að eyða. Eðlilega má búst við því, að sjúklingunum á Laugarnesi yrði það mjög óljúft, ef þeir ættu að fiytja langt burt þaðan, sem þeir eru nú. Og það má alls ekki verða. Flestir hafa þeir dvalið þar lengi, sumir mestan hluta æfi sinnar. — Staðurinn er þeim því kær. Þar eignuðust þeir skjól í köldum gusti mótlætís síns, og síst af öllu vildi jeg verða til þess, með tillögum mínum, að hrella þá, bæta við byrði þeirra sem vissulega er nægi- lega þung og sár. En mjer virðist að það ætti ekki að þurfa að leita langt eftfr góðu og fögru hússtæði handa þeim, það er næsta nóg rúm í Laugamesi í grend við spítalinn og enginn vandi að fá þar þann stað, sem sjúklingarnir sættu sig við. Þá lægi og hitaleiðsla frá laugunum mjög vel við, til þess að hita upp bæði hælin. Um þessar mundir er talað mikið um atvinnuleysi og atvinnubætur. Fjöldi manna horfir með kvíða fram í tímann, og það er ekki ó- eðlilegt eins og horfur eru nú. Hjer er um verkefni — atvinnu- bætur að ræða fyrir allmargar hendur, en — hjer er þó fyrst og fremst um aðkallandi mannúð- armál að ræða. Jeg treysti því fastlega að liátt- virt Alþingi og háttvirt stjóm sýni það með undirtektum sínnm og aðgerðum í þessu máli, að lítil- magnar þjóðarinnar eigi þar góða talsmenn og framkvæmdasama styrktarmenn. Svarti bletturinn. Á síðasta þingi var borið fram frumvarp um dragnótaveiði, er lengdi tímann, er veiða mætti með dragnótum, um 4 mánuði. Frumvarpið var felt frá 2. um- ræðu með 17 atkvæðum gegn 7. Á sumarþinginu nú hafa komið tímann, er veiða. má með dragnót- veiði. Bæði fara í þá átt að lengja tímann, er þeiða má með dragnót- um. 1 fyrradag va.r svo samþykt til 3. umræðu heimild fyrir ríkis- stjórnina til að framlengja um tvo mánuði til eins árs í senn tíma þann, er eftir gildandi lögum má veiða með dragnótum, ef óskir koma fram um þetta frá hjeruð- unum. Á Alþingi virðist því vera orðin algerð stefnubreyting í málinu. En er þá orðin stefnubreyting hjá þjóðinni? Jeg jsegi nei! Höfðingsskapur sá, er Dönum er sýndur í þessu máli, er óvenju mikill. Dönum eru gefnar margar milj- ónir með því að opna landhelgina fyrir þeim, svo þeir geti hagnýtt sjer kolann, sem er verðmætasti fiskurinn á miðum vorum. Ef komið hefði fram tillaga á fjárlögum um að gefa. Dönum t. d. 10 miljónir, þá mundi það hafa þótt hin mesta fjarstæða. Ekki eitt einasta atkvæði í þinginu hefði orðið með þeirri fjárveitingu. En nú virðist mikill hluti liv. Nd. vilja gefa gjöf, sem er enn þá höfðing- legri, með sjerstökum lögum. Vetrarþingið sagði nei. Ætlar sumarþingið að segja já? Jeg endurtek spurninguna: Ætl- ar sumarþingið að segja já? Sennilega verður þetta „já“ dýr asta jáið, sem Alþingi íslendinga hefir sagt um langt skeið. Ekki er aðeins verið að gefa sambandsþjóðinni miljónagjöf, en það sem verra er, þessi miljóna- gjöf getur orðið sjálfstæði landsins hættuleg. Með því að opna landhelgina fyrir Dönum og bjóða. þeim upp á kolann okkar, er verið að ginna þá til að reka hjer fiskiveiðar í stórnm stýl. Þegar floti þeirra er búinn að ná hjer föstum tökum á landhelg- inni, þá verður ekki látið staðar nema við kolann. Danir eru menn duglegir og myndi því að sjálf- sögðu færa hjer út kvíarnar. En þegar svo væri komið, myndi þeir að sjálfsögðu halda sem fastast í rjettindi þau, er þeir nú hafa samkvæmt samba.ndslögunum. Með öðrum orðum, miljónagjöfin getur orðið Þrándur í Götu fyrir upp- sögn sambandslaganna. Aðrar þjóðir gefa miljónir til að ná í sjálfstæði sitt og vemda sjálfstæði sitt, en -vjer bjóðum fram miljónir til þess að stofna sjálfstæði vorú í voða. Ilvert stefnir þetta alt? Hverjir eru þeir, sem þora að taka á sig ábyrgðina af ráðstöf- unum eins og. þessum ? Hverju ætla löggjafarnir að svara þjóð- inni er hún krefur þá reiknings- skapar um þetta mál? Því miður er búið að telja. of mörgum hjá þjóð vorri trú um, að hollast sje fyrir þjóðina að minnast ekki á sjálfstæðismál sín. En ætli, að það verði nú ekki ljóst, hve hollir þeir menn eru þjóðinni, sem vilja stinga henni svefnkorn í þessum málum, sem hana varðar mest. Væri þjóðin vakandi, þyrði enginn loggja.fi hennar að greiða atkvæði með öðru eins máli og því, er hjer um ræðir. Það er eðlilegt, að Danir berj- ist fyrir því, að landhelgin sje opnuð fyrir þá. Það er eðlilegt, að Danir gleðj- ist yfir því, að þögn sje um sjálf- stæðismálin hjá henni. Það er fyrirgefanlegt, þó að Danir kalli þá íslendinga „a.rga Danafjendur“, sem vilja gera Dani máttlausa hjer í landinu. En það er óeðliegt, að vjer göngum í lið með Dönum til þess að styrkja aðstöðu þeirra. hjer heima á íslandi. Það er óeðlilegt, að vjer gefum þeim miljónagjafir, svo þeir geti trygt áMðarrjett sinn á íslandi. Það er óeðlilegt, er vjer minn- umst hinnar sögulegu reynslu af viðskiftum vorum við Dani, að vjer látum ginnast til að bjóða þeim inn í íslensku landlielgina. Hættulegasti liðurinn í sam- bandslögunum er 6. gr. Er Alþingi íslendinga að tryggja það með sjerstakri löggjöf, að vjer getum aldrei losnað við ábúðar- rjett Dana á íslandi? Hverjum augúm myndu hinar gömlu sjálfstæðishetjur Vorar líta á Ajþingj Islendinga, er þeir væru risnir upp úr gröfum sínum? Ef hin málmþunga rödd þeirra heyrðist í þingsölum þjóðarinnar, þá mundi samviska þingsins vakna og óhamingjunni verða. afstýrt. En rödd þjóðarinnar? Ef þingið vill láta frumburðar- rjett þjóðarinnar fyrir einn bauna- skerf — ætlar þá þjóðin ekki að láta til sín heyra? Danir hafa komið á fót lijá sjeí fiskiveiðabanka. Hugur þeirra stendur nú fast í norðurátt. Blöð þeirra tala um, hve fengur sje í dragnótaveiðum við ísland. Fiskifjelag fslands berst fyrir því að opna landhelgina. Förmaður Fiskifjelags íslands, sem er launaður úr ríkissjóði, er höfuð-hvatamaður að því, að land- helgin sje opnuð. En ef ofan á það bætist svo, að Alþingi fslendinga ætlar að verða leiðsögumaður danska fiskiflotans inn í íslensltu landhelgina, þá mun mörgum þykja skörin færast upp í bekkinn. Það er í minnum haft, er einn erlendur konungur vildi fá Gríms- ey að gjöf, að þá stóð upp ís- lenskur bóndi og varaði við þeirri óhæfu. Sagan geymir nafn þessa bónda. Þeir sem með atkvæði sínu vilja opna landhelgina fyrir Dönum, gefa þeim gjöf, sem er margfalt dýrari en Grímsey. Er Alþingi íslendinga búið að gleyma sögu sinnar eigin þjóðar? Opnun landhelginnar er svartur blettur í sögu þjóðarinnar. Með opnun landhelginnar er verið að vígja danska ábúðar- rjettinn á íslandi. íslehdingunum er órótt um hjartaræturnar um þessar mundir. Sig. Eggerz. ðllum fjandanum finna mann upp á. Eins og kunnugt er, þykir það kjöt best ef fitan er ekki eingöngu rífleg, heldur jafndreifð innan um vöðvana. Þykir það galli á ís- lensku kjöti, hversu bráðfeitt sum- arspikið liggur í lögum fyrir sig. Hjá þessu verður naumast komist, ef skepnan lifir við skort að vetrinum en allsnægtir á sumrin. Nýlega hafa Frakkar fundið ráð til þess að gera magurit kjöt feitt, og það svo að fitan sje dreifð út um alla vöðva. Þetta er gert með því að dæla feiti, olíu, smjöri eða öðrum fitublöndum, inn í æð- ar dýrsins, þegar því er blætt út. Æðarnar, sem hvíslast um allan líkamann, fyllast þá af fitu, og er sagt að kjötið fái alt annað bragð, verði sem gott feitt kjöt. En þeir góðu menn þykjast geta gert enn betur! Með því að blanda salti og allskonar kryddi í feitina segjast þeir geta gefið kjötinu alls konar breytilegt og gómsætt bragð, hálfu betra en af eðlilegu kjöti. Er svo að skilja sem versta horkjöt verði að lierra- mannsmat við þessa meðferð. Það skyldi nú verða niðurstaðan, að bændur fari að slátra á út- mánuðum, þegar heylaust er orðið, fiti síðan sitt framsóknar-horkjöt og selji það Reykvíkingum fyrir okurverð. Þetta væri eftir þeim -— Framsóknardelunum! En hvað segði blessuð stjómin um það að senda einhvern at- kvæðasmalann, með nesti og nýja skó, til Frakklands, til þess að læra þessa göfugu list?Það yrði styrkur fyrir sveitamenn, ef vet- urinn yrði slæmur, smalinn fengi ferðina ríflega borgaða og Tím- inn efni í langa grein um nýtt afrek stjórna.rinnar. Hatfar liuir eg harðir. Smekklegt nrval. Til Hkureyrar og Húsavikur nm Knidadai ier biireið þriðjndagl8.þ.m. Sæti laus. Bifreiðastiið Sfeindárs. NýKomið: Reimar, Reimalásar Reiæavas. Versi. Vald. Poulsen. Elapparstíg 23. Fyiirspurn til stjómar verkamannafjelagsins „Dagsbrún“. Var þag ekki meiningin meö- sameiningu vörubílastöðvanna að almennur flutningstaxti skyldi haldast? Sje svo, þá vil jeg benda á, að eftirlitið með stjórn Vöru- bílastöðvarinnar í Reykjavík af hálfu Dagsbrúnarstjórnarinnar er óþolandi. Því að jeg get bent á að bílar af ofan nefndri stöð hafa komið og bolað öðrum frá vinnu með niðurboðum. Þeir liafa boðið akstur fyrir 4 kr. á tíma.nn með „sturtun“ og 3.75 á tímann „sturtu“-laust. Jeg læt þetta nægja þar til jeg hefi fengið svar uppá þessa spurningu mína, sem jeg vonast eftir að verði bráðlega. Virðingarfylst, Gísli H. Guðmundsson, Nýlendugötu 22. Hagstofa þýska ríkisins hefir gefið út skýrslu, sem sýnir, að barnsfæðingum þar í • landi hafi fækkað iir 17.9 af 1000 árið 1929, niður í 17,5 árið 1930. Er þetta í fyrsta sinn í langa-n tíma að barns- fæðingatalan sje lægri í Þýska- landi en í Frakklandi, en þar fæddust árið 1930, 18,1 af hverj- um þúsund íbúum. f Þýskalandi fæddust árið 1930 1.126.829 börn., en árið 1929 1.147.458 börn.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.