Morgunblaðið - 22.09.1931, Page 3
MORGUNBLAÐIÐ
3
Iskyggilegar
fjármálahorfur
í Norðurálfu.
Englansbanki stöðvar
gullinnlausn seðla.
Flest öllum kauphöllum lokað.
Fellur gengi sterlingspundsins?
fll!I(I!ll(IISII!liiil!Íil!(!!llllllllllllimillillllll!l!II!UHIIII!tllll 0?
g U.t. Árv&kor, Kerkjavlk
'S3
g a!t«tjfcrar: Jðn Kj*rt*n*«o*t.
Valtýr fcií.íifáaescn.
S Sltstjírn o* &f|[rclO*l*:
Auct ur.trsetl 1, — Biatl 100.
g A-Ut-í’.íneK.tJðrl: BL H&íticrK.
5 AtiKlýcIneackrlfatofa:
Auaturatrstl 17. — Slntl 700,
S Haliaaaliaar:
Jðn Kjartanason nr. Ttl.
Valtýr Btefánaaon nr. 1110.
B. Hafberg nr. 770.
q ÁckrlftaeJald:
-5 Innanlanda kr. 2.00 4 m&nuBl.
E Utanlanda kr. 1.50 4 aainnTU.
5 t lanaaaðlu 10 aura clntaklð.
10 aura Laabök.
ilUIIIIIIIIIIIIIIIllllilllllllllllllillllllllllllllllllIIIIIIIIIIIIHIIIIB
flugviBl Gramers fundin.
Kbh. 21. sept.
(Frá frjettaritara FB.)
Botnvörpungurinn Lord
Trent, sem fann flugvjel Cram-
«rs í Norðursjónum, er kom-
inn til Hammerfest í Noxegi
með leifarnar af flugvjelinni.
Mótorinn og vængina vantar.
tírið í flugvjelinni hefir stöðv-
ast kl. 1 y%. Cramer hefir því
líklegast farist þremur klst. eft-
ir að hann lagði af stað frá
Lervick.
Afvopnunarmálin.
Genf 21. sept.
United Press. FB.
Stjórnin í Bandaríkjunum
hefir sent Þjóðabandalaginu til
kynningu þess efnis, að Banda-
ríkin þiggi boðið um þátttöku í
nmræðum um frestun vígbún-
aðar á meðan samkomulagstil-
raunir um afvopnunarmálin
íara fram.
Neyðarráðstafanir Þjóðverja
Berlin, 20. sept.
United Press. FB.
Hindenburg forseti hefir skrifað
xtndir þrenn lög, sem sett hafa
Trerig sem neyðarráðstafanir af rík-
ísstjórninni, samkvæmt ákvæðum
48. greinar stjórnarskrárinnar. Lög
þessi ern um eftirlit með bönkum,
foreytingar á hlutafjelagalögum á
tímafresti til að gefa upp eign
«ína í erlendri mynt. Fyrri iögin
tvö ganga í gildi 1- okt., en hin
-síðast nefndu þ. 15. okt.
Zeppelin kominn til Pernam
buco.
London, 21. sept.
United Press. FB.
jFrá Pernambuco er símað, að
,,Graf Zeppelin“ hafi lent þar kl.
6.50 síðd. í gær.
Nautilus kominn til Bergen.
Bergen, 21. sept.
IJnited Press. FB.
Nautilus kom hingað í gær.
Knattspyrnupiltarnir frá Vest-
mannaeyjum ljeku á sunnudaginn
við II. flokk K. R.. Leikur þeirra
var mjög röskur, en hinir voru
leiknari og fór leikurinn svo að
*K. R. vann með 3:1. Að líkindum
keppa þeir vig Fram í dag og
halda síða-n heimleiðis í kvöld. Eru
■þeir mjög ánægðir yfir ferðalaginu
ibg hafa skemt sjer vel.
Englandsbanki hækkar for-
vexti.
London, 20. sept. Mótt. 21.
United Press. FB.
Englandsbanki hefir hækkað for-
vexiti um IÝ2% upp í 6% frá 0g
með mánudegi að telja.
Horfið frá gullinnlausn
seðla.
London, 21. sept.
United Press. FB.
Ákveðið hefir verið að hverfa
um stundarsakir frá innlausn seðla
0g í því skyni að leita samþykkis
þingsins á fruimvarpi um það efni,
sem borið verður fram á mánu-
dag (þ. e. í dag). Einnig hefir
verið ákveðið að loka kauphöllinni
á mánudag. Opinber tilkynning
segir, að ákvörðunin um afnám
gullinnlausnarskyldunnar sje fram
komin vegna þess, að síðan í mdðj-
um júlí hafj meir en 200 miljónir
sterlingspunda horfið úr umferð á
peningamarkaðinum í London. —
Ákvörðun þessi tekur ekki til
skuldbindinga stjómarinnar e®a
Englandsbanka, sem greiddar
verða í erlendri mynt.
Gengi sterlingspunds fer eft-
ir því hvernig Frakkar og
Bandaríkjamenn líta á málið.
London, 21. sept.
United Press. FB.
Hagfræðingurinn frægi, Sir Ge-
orge Paisli hefir í einkaviðtali við
Uiiited Press látið í ljós skoðun
sína á afleiðingunum af því, að
hórfið hefir verig frá gullinnlausn.
Telur hann, að afleiðingarnar geti
orðið mjög alvarlegar, en hverjar
afleiðingarna-r verði, sje fyrst og
fremst undir því komið, hver áhrif
þetta hefir í Bandaríkjunum og
Frakklandi. Komi eigj fram ótti
við afleiðingamar í þessum lönd-
um, eru eigi miklar líkur til að
sterlingspund falli mjög í verði.
Hins vegar, ef Bandaríkin og
Frakkland leggja áherslu á sölu
sterlingspunda, vegna þverrandi
trausts á Bretlandi, gæti sterlings-
pund fallið mjög í verði, en tel-
ur þetta þó ótrúlegt, vegna þess
að Bretland standi á öruggum
fjárhagslegum grundvelli.
Sir Josiah Stamp forstj. Eng-
landsbanka hefir sagt í einkavið-
tali við United Press, að afleið-
ingarnar af aðgerðum stjórnarinn-
ar sje að miklu leyti undir því
komnar, hvert -traust aðrar þjóðir
berj til Bretlan'ds framvegis. Bret-
land, sagði Sir Josiah, var neytt
til þess að hverfa frá gullinnlausn
yegna aðstreymis fólks í bankann,
til þess að taka út fje, en að-
streymi þetta varð a-ð stöðva, af
þeirri einföldu ástæðu, að meira
gull er ekki fyrir hendi.
Ótti viö veröhrun.
KauphöUum lokað.
London, 21. sept.
United Press. FB.
Kaupmannahöf n: — Kaup-
höllin hjer er lokuð í dag>
einnig kauphallirnar í Osló
og Stokkhólmi.
Berlín: — Kauphallarskrá-
setningum frestað óákveðinn
tíma. Engin viðskifti milli
bankanna eins og stendur.
Hamborg: — Kauphöllinni
lokað óákveðinn tíma.
Berlin: Öllum kauphöllum
Þýskalands hefir verið lokað.
Amsterdam: — Kauphöll-
inni lokað í dag.
Helsingf ors: — Finnlands-
banki frestar skrásetningu á
gengi erlendrar myntar.
Verðhrun í París.
París: Mikið vérðhrun varð á
kauphöllinni í morgun, fáum
mínútum eftir að opnað var.
Ýmis helstu verðbrjef fjellu í
verði um 10%.
Danzig hverfur frá sterlings-
pundi.
Danzig: Senatið hefir sam-
þykt að afnema það fyrirkomu-
lag að leggja sterlingspund til
grundvallar myntinni og miða
hjeðan í frá við gullgildi.
Sterlingspund lækkar í Sví-
þjóð.
Kbh. 21. sept.
(Frá frjettaritara FB.)
Ríkisbanki Svía hefir hækk
að forvexti úr 4 í 5%. Ster-
lingspund er skrásett í Stokk-
hólmi í dag á kr. 17.25.
London 21. sept.
United Press. FB.
Kauphöllinni í London verð-
ur lokað á morgun (þriðjudag).
K.höfn: Gengisskrásetning á
erlendri mynt hefir verið frest-
að. Ákvörðun þessi var tekin á
fundi bankastjórnar Þjóðbank-
ans. Stóð fundurinn yfir í tvær
stundir.
MacDonald
talar við þjóð sína gegnum út-
varpið.
I gærkvöldi hjelt Mac-Donald
forsætisráðherra Breta ræðu í
breska útvarpið, þar sem hann
lýsti fjármálaástandinu, og ráð
stöfunum þeim, sem gerðar
hafa verið, til þess að stöðva
verðhrun og gengisfall.
Sagði hann enga hættu á því
að gengi sterlingspunds gæti
fallið, nema lítið eitt og yrði
þess eigi langt að bíða, að það
næði fullu gengi aftur.
Ef erlendir bankar ætluðu
að nota sjer þau vandræði, sem
Bretar hefðu ratað í, nú í bili,
þá mundi stjórn Breta grípa til
sinna ráða, sem myndu hrífa,
þegar þar að kæmi.
Frakkar og Bandaríkjamenn
tregir til að lána Bretum.
„Engin hætta ef stjórnað er
með hyggindum og gætni“,
segir Snowden.
London, 21. sept.
United Press. FB.
Snowden fjármálaráðherra lagði
í da.g fyrir neðrimálstofuna frum-
varp til laga viðvíkjandi gullinn-
ilausn seðla (sbr. fyrra skeyti).
i'Kvað hann ríkisstjóminni hafa
borist brjef frá Englandsbanka á
laugardag þess efnis, að lán það
sem fengist liefði frá Frakklandi
og Bandaríkjunum væri á þrotum.
Englandsbanki lagði því fast að
stjórninni að sjá svo um, að bank-
inn vær^ leystur frá gullinnlausn-
arskyldunni, þar sem svo brýna.
nauðsyn bæri til. Stjórnin skýrði
ríkisstjórunutn í Bandaríkjunum
og Frakklandi í trúnaði frá því
hvernig ástatt væri á föstudag og
íeitaði álits þeirra. Svar beggja
ríkisstjórna var vinsamlegt, en
engar horfur taldar á frekari lán-
nm. Horfurnar á laugardag voru
svo alvarlegar, að eina úrræðið var
að hverfa frá gullinnlausn um
stundarsakir. „Jeg sje enga ástæðu
til, að sterlingspund falli í verði
að nokkru ráði til nokkurs telj-
andi tíma, ef fjármálum Bret-
lands verður stjórnað af hyggind-
um og gætni“.
Saltti s kmarkaðurinn
ð Spáni.
Norska blaðið „Aftenposten“
hefir nýlega birt samta.l, sem blað-
ið átt-i við norska konsúlinn í
Sevilla. Auðvitað barst tahð að
saltfiskmarkaðinum, og sumt af
því, sem konsúllinn segir þar um,
gæti verig oss íslendingum til leið-
beiningar.
Blaðið spyr hvort nokkur von
sje til þess að Norðmenn geti aukið
saltfisksölu sína á Spáni á næstu
árum.
— Já, eí vjer viljum, svaraði
konsúllinn. Yjer verðum bara að
skilja viðskiftamennina, minnast
þess, að Spánverjar eru eins og
Arabar í því, að þeir vilja fá að
sjá þá menn, sem þeir versla við.
— Norsku pappírsverksmiðjurnar
hafa t. d. fengig ágætan markað
fyrir blaðapappír á Spáni, vegna
þess, að Hroar Olsen, forstjóri
Norsk Avispapir Kompani, ferðast
iðulega til Spánar og nær í ný
sambönd í hverri ferð.
Og svo verðum vjer að minnast
þess, að framleiða vöruna eins og
Spánverjar vilja hafa hana. Það
er enginn efi á því, að Spánverjum
þykir vor fiskur betri en sá ís-
lenski. Innflytjendur í Sevilla
borða. sjálfir norska fiskinn, en
selja þann íslenska, sem er út-
gengilegri vegna þess, hvað hann
er drifhvítur. Það gerðj ekki svo
mikið til um litinn á fiskinum,
meðan liann var seldur í skran-
búðum, en nú er fiskurinn hafður
tiT sýnis á marmaraplötum, í búð-
argluggum, og það or ckki svo.
undarlegt, að kaupendur veljí
þarin fisk, sem er fallegastur á
að sjá.
Innflutningurinn til Sevilla er
um 9000 smálestir á ári, eða tæpuí
fimti hluti af öllum saltfiskinn-
flutningnum, en þar af liefir verið
tiltölulega lítið af norskum fiski.
Nú er þetta að lagast. Nýlega
kom sýnishörnasending af sjer-
verkuðum fiski frá Noregi, og
fjell hann Spánverjum ágætlega í
geð. Er í ráði að önnur stærri
sending komi bráðlega, og er von-
andi að það stuðli til þess að
vjer náum þeim markaði, sem vjer
höfðum fyrir 30 árum. Norsk yf-
irvöld liafa hjálpað lijer mikið til,
bæði nieð því að sjá um sendingar
á þessrim reynslufiski og láta menií
fylg.ja lionum til Spána.r. Innflytj-
endur hafa sagt við mig, að þeir
væri fúsir til að kaupa heila skips-
farma, ef fiskurinn væri jafngóð-
ur og sýnishornin. og verðið ekki
liærra en almenningur gæti borgað..
Það verður líka að auglýsa vör-
una vel — senda Spánverjum.
prentaða bæklinga um fiskirin,
ekki á ensku, heldur á spánsku.
Þið ættuð að sjá hvað Svíar gera
til þess að ná markaði í Spárd
fyrir sínar vörur. Þeir hafa ðll
spjót úti, og þeir ná sa.mbandi við
Spánverjann. Það sjest best á
því, að fjöldi spánskra kaupsýslu-
manna fer á kverju ári í sumar-
Jeyíi sínu til Svíþjóðar, og þar
heimsækja þeir viðskiftavini sína,
sem þeir eru málkunnugir. En ti!
Noregs koma þeir ekki.
Hann gat þess, að á næsta ári'
stæði þó til, að gerður væri iit
leiðangur spánskra blaðamanna til
Xoregs með skipinu Stella Polaris.-
— Jeg vil líka ráða norskum
ferðamönnum að fara. til Spánar.
Þar er ódýrt að lifa og landið er
guðdómlegt.
Dafbék.
Veðrið (mánudagskvöld kl. 5):
Loftþrýsting er há yfir austan-
verðu Atlantshafi og Bretlandseyj-
nm, norður um ísland og austur
yfir Norðurlönd. Mest er loftþrýst
ing vestur af Skotlandi Um 779
mm. Yfir Grænlandi er hins vegar
lægð, sem nær austur um Jan
Mayen. Veldur hún SV- og V-átt
norðan lands, veðurliæð 4—6, en
annars er hæg S-átt hjer á landi.
Vestan lands er þykt loft og sums
staðar dálítil rigning, en bjart-
viðri víðast á N- og A-landi. Þar
'er og mjög hlýtt, 13—20 st. víða,
en annars er hiti 11—13 st.
Veðurútlit í Rvík í dag: SV-
kaldi. Skúrir.
Knattspymumót II. aldursflokks
s.l. sunnudag lauk svo, að „Valur“
vann mótið, með 6 stigum, og
fjekk knattspyrnustyttuna til eign
ar. —
Knattspymumót III. alduxs-
flokks. A sunnudaginn var kepptu
K. R. og Valur, og sigraði Valur
með 2:1. Úrslitaleikurinn verður
seinna í vikunni á milli K. R. og
Víkings, sem hafa jafnmarga vinn-
inga á mótinu.
Sálarrannsóknarfjelag fslands
heldur fund annað kvöld kl. 8V2 í
Iðnó. Frú Guðrún Guðmundsdóttir
flytur erindi um dulræna reynslu