Morgunblaðið - 02.10.1931, Blaðsíða 3
MORGUNBLAÐIÐ
S
EUIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIý:
:■= Útgef.: H.f. Árvakur, Reykjavlk.
;= Ritstjðrar: Jón Kjartansson.
Valtýr Stefánsson.
Ritstjðrn og afgreiðsla:
Austurstræti 8. — Slmi 600.
= Auglýsingastjóri: B. Hafberg.
'■11 Auglýsingaskrifstofa:
Austurstræti 17. — Simi 700.
= Heimasímar:
= Jón Kjartansson nr. 742.
Valtýr Stefánsson nr. 1220.
E. Hafberg nr. 770.
S Áskriftagjald:
Innanlands kr. 2.00 á mánuSi.
Utanlands kr. 2.50 á mánuCi.
= 1 lausasölu 10 aura eintakiS.
20 aura meC Lesbók.
l'lllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllll?
Gengiö
London, 30. sept. Mótt. 1. okt.
United Press. PB.
New York: Gengi sterlingspunds
3.88, er kauphöllinni var lokað.
Verðlag var þá breytilegt.
Kanadiski dollarinn hefir fallið
í 86 cents. Sá orðrómur leikur á
í Wall.street, að í ráði sje að fresta
öllum greiðslum í gulli til Kanada.
Samkvæmt tilkynningu frá
sendiherra Dana í gær, var
sterlingspund skráð í Kaup-
mannahöfn á 17.85 danskar
krónur á þriðjudaginn og sama
verð miðvikudaginn. Dollar var
skráður á kr. 4.70 á þriðjudag-
inn, en kr. 4.65 á miðvikudag-
inn.
1 gær var skráning á er-
lendri mynt í Kaupmannahöfn
þessi:
Sterlingspund 17.90
Dollar 4.57
Mörk 107.25
Franskir frankar 18.25
Belga 63.75
Svissneskir frankar 90.50
Pesetar 41.00
Gyllini 186.50
Sænsk króna 105.50
Norsk króna 100.50
Tjekknesk króna 13.75
Lira 23.50
Eftir þessu hefir sterlings-
pundið hækkað í gær um 5
aura, dollar lækkað um 13
aura síðan á þriðjudag, þýsk
mörk lækkað úr 110.50, Gyll-
ini lækkað um krónu hundrað-
ið, pesetar lækkað um 50 aura,
í'anskir frankar lækkað um
25 aura hundraðið og eins
tjekknesk króna, sænskar krón-
ur hækkað um krónu hundr-
'ðið. norskar krónur hækkað
um 1.50 hundraðið, svissneskir
fiankar Iækkað um krónu
hundraðið, ítölsk mynt staðið
í stað og belgisk mynt fallið
um 25 aura hundraðið. Gagn-
vart dönsku krónunni hafa því
ekki aðrar myntir hækkað í gær
en sterlingspund, norsk og
sænsk króna.
New York City 1. okt.
United Press. FB.
Gengi sterlingspunds 3.9914.
London 1. okt.
United Press. FB.
Gengi sterlingspunda 3.941/2
"dollar. Norskar og danskar
krónur 18, sænskar 17.
Kristján Andrjesson, Framnes-
veg 15, hefir sótt um leyfi bæjar-
stjómar til að mega hafa veitingar.
Fjárhagsnefnd hefír lagt til, að því
verði neitað.
Listamaður látinn.
London, 30. sept.
United Press. FB.
Sir William Orpen, listamaður-
|inn frægi er látinn í London, 52
ára gamall. Hann hafði verið veik-
ur síðan í maímánuði.
Sir William Orpen var írskur að
ætt. Hann var fæddur í Dublin
1878, og gerðist málari, þegar
hann hafði þroska til þess. Yarð
hann frægur fyrir myndir sínar,
er liann málaði á stríðstímunum,
hernaðarmyndir frá vesturvíg-
stöðvunum. Nafnkunnastar þeirra
eru „Bombing Niglit“ og „Poilu
and Tommy“ (franskur hermaður
og enskur). Hann málaði líka
mynd af friðarfundinum. Árið 1918
,kom út bók með myndum hans úr
stríðinu. Hann varð meðlimur
Royal academi árið 1910.
Fyrirlestrar.
Prófessor A. Jolivet hjelt 2. fyr-
irlestur sinn í Allianee Francaise
síðast Uðinn föstudag um skáldið
Emile Zola. „Verk listarinnar er
þáttur úr náttúrunni sem eru sjeð
gegnum skapferli hvers eins‘ ‘. Fyr
irlesarinn dvaldist við hugarfar
Zola og þann kafla úr náttúrunni,
sem Zola lýstí sjerstaklega í verk-
um sínum. Eftír þessum tveim
hugsjónum lýsti hann aðaleigin-
leikum skáldskapar Zola. Undir-
staða hugarfars Zola var kraftur.
Alt líf hans var barátta gegn mót-
stöðumönnum hans í andlegum
efnum og, síðari hluta ævi hans.
gegn stjórnmálaandstæðingum. f
þessari baráttu virðist hann ávalt
hafa verið innblásinn miklum á-
huga o g bjartri von um framtíð.
Yrkisefni sitt valdi hann úr hinum
ýmsu stjettum þjóðfjelagsins. —
Kannj athugaði þær mjög nákvæm-
lega hið ytra, en honum yfirsást
innri maður þeiri’a. í staðinn fyrir
sálrænar athuganir kemur hann
með villandi kenningar um erfða-
lögmálið. Niðurstaðan af því verð-
ur, að aðalinnihald rita Zola eru
lýsingar af heiminum hið ytra,
eins og hann kemur fyrir sjónir
hverjum einstökum. En skap hans
va.r svo öflugt., að þessar lýsingar
samsvöruðu ekki veruleikanum. —
Þær voru öfgafullar, sjeðar með
augum örgeðja ljóðskálds. En aft-
ur á móti tókst Zola vel upp með
lýsingar á fjöldanum á hraðri
hreyfíngu, t. d. í verkföllum, bylt-
ingum eða stríði. Fyrirlesaranum
sagðist prýðilega, og lýsti sjer
glöggt hinn skarpi skilningur hans
á andanum í verkum Zola.
Þriðja fyrirlestur sinn hjelt próf.
Jolivet s.l. miðvikudag. Fyrirles-
arinn bvrjaði á því, að gefa. yfírlit
nútíma leikrita Frakka. Nefndi
ymissar lýsingar af lífi ríkra
imanna og iðjuleysingja, og af
ýmissum stjettum þjóðfjelagsins.
Hann benti sjerstaklega á leikrit
er fært hafa nýja strauma inn í
bókmentir nútímans, t. d. leikrit
Lenormand sem hefír notfært sjer
hugsjónir Freuds. Hann talaði því
næst um Jules Romains og sýndi
fram á áhr.if hans á hið andlega
líf nú á dögum.Hann gaf skýringar
á leikriti J. R. sem heitir „Knock
ou la triomphe de la médecine“, er
fjallar um læknir, sem vill láta alla.
íbúa sveitarinnar leggjast í rúmið.
Hann sýndi hvernig leikrit þetta
var skemtilega skrifað og í anda
Moliéres. Síðan á tímum MoHéres
hefir það verið venja, að „satyri-
sera“ lækna, náttúrlega án allrar
beiskju, en aðeins til skemtunar.
I dag, föstudag, heldur próf.
Jolivet fyrirlestur um „Le Parle-
ment et les partis politiques en
France“. Verður þetta síðasti fyr-
irlestur prófessorsins, fyrir AIH-
ance frangaise, en í okt. mun hann
halda fjóra fyrirlestra við Há-
skóla íslands. Sömuleiðis halda
kensluæfingar hans áfram fram
yfir miðjan okt. á sama stað og
tíma. Fyrirlestramir voru prýði-
lega sóttir, hvert sæti skipað i
salnum.
Smitandi lungnabðlga
f fie.
Svo heitir ritgerð eftir Níels P.
Dungal, sem komið hefir út í ensku
vísinda-tímariti (Journal of Com-
parative Pathology and Thera-
peutics). Er þetta nákvæm grein-
argerð fyrir rannsókn N. D. á drep
sótt þeirri, sem gekk í Borgarfirði
1929 og drap fjölda fjár. Mestur
hluti ritgerðarinnar er lýsing á
sýklinum, einkennum veikinnar,
hverjum breytingum hún valdi í
líkamanum, um tilbúning bóluefnis
og álirif þess. Má nú telja það víst,
að hjer sje um nýjan sýltil að ræða
og öll líkindi eru til þess að bólu-
efni hafi fundist, sem sje hin mesta
vörn gegn veikinni. Er það sjald-
gæft, að svo greiðlega gangi að
finna, orsakir sjúkdóma og vörn
gegn þeim.
N. D. liefir áður sagt frá þeim
atriðum, sem mestu varða fyrir al-
menning. Þau eru í fám orðum
þessi:
1. Sýkillinn drepst fljótlega utan
líkamans og lifir því ekki í fóðri,
en berst frá kind til kindar, er þær
koma saman, hvorf sem er í húsi
eða haga. Hann virðist ekki berast
með öðrum húsdýrum en kindum
og ekki milli húsa með fjármönn-
um. —
2. Kindur frá sýktum bæjum
geta borið sýkilinn, þó þær virðist,
með öllu heilbrigðar. Það hefir
ekki tekist að ákveða, hve lenefi
smitunarhætta getur stafað af slík-
um sýklaberum.
Þó veikinnar verði lítt, eða ekki
vart að sumrinu, bendir sumt til
þess að fje, sem gengur saman- í
sumarhögum geti smitað hvað
annað.
3. Bólusetning með hæfilegum
skamti af dauðum sýklum hefir
reynst mikil vörn gegn veikinni og
Tiættulítil.
------------------
DafbíL
I. O. O. F. — 1121028V2.
Karlakór Reykjavíkur óskar eft-
ir einum til tveim góðum mönnum
í 1. tenór. Menn snúi sjer til söng-
stjórans, Sig. Þórðarsonar, síimar
2177 og 1299.
Vestri kom í fyrradag til Lissa-
bon.
Verslunarmenn í Hafnarfirði eru
beðnir að taka eftir auglýsingu frá
fjelag’i þeirra um að aðalfundur
fjelagsins verður haldinn í kvöld
í kaffíhúsinu Drífandi, og ihefst
kl. S’/o. Ennfremur auglýsir fje-
lagið námsskeið fyrir verslunar-
fólk, og ættu þeir, sem vilja taka
þátt í námsskeiðinu að tala sem
fyrst vig Stefán Sigurðsson í Versl.
Jóns Matthiesen.
Innflutningur á hjerum. Ríltis-
stjórnin hefir gefið Veiði- og loð-
dýrafjelagi Islands leyfi til jiess
að flytja inn lifandi hjera frá
Grænlandi. Kom brjef um það til
fundar fjelagsins, sem haldinn var
í fyrrakvöld, og hefir fjelagið þeg-
ar pantað nokkur hjerahjón, og
koma þau ltingað bráðum, en ekki
er enn ráðið hvar þeim verður
slept, vegna þess að menn eru
hræddir um að tófan kunni að
granda þeim. Fundurinn var liinn
fjörugasti og gengu margir menn
í fjelagið.
Bókasala Mentaskólans selur
allar þær bækur, sem nota þarf
undir gagnfræðapróf. Opin 2—3
og 3V2-—7, næstu daga.
Knattspyrnufjelag Reykjavíkur.
KVetrarstarfsemi fjelagsins í K. R.
húsinu, hefst í næstu viku. Verða
æfðir fimleikar karla, kvenna og
barna, glíma, knattleikur, róður,
hlaup og frjálsai' íþróttir. K. R,-
fjelagar undirbúið ykkur nú þegar
til að geta tekið þátt í íþróttaiðk-
unum í vetur. Þeir sem ætla í náms
tíma á kvöldin í vetur, ættu að
athuga æfingatöflu K. R. áður en
þeir ákveða livaða kvöld þeir á-
kveða til þess. Æfingatafla K. R.
verður birt í blöðunum næstu daga.
Verslunarmannafjelag Rvíkur
heldur fyrsta fund sinn á þessu
hausti í kvöld kl. 8y2 í Kajipþings-
salnum. Stjórnin gefur skýrslu.
Veðurstofan er flutt frá Skóla-
vörðustíg 3 í hið nýja hiis Lands-
símans við Thorvaldsensstræti.
íþróttaæfíngar glímufjelagsins
Ármann, fimleikar, glímur o. fl.
hefjast á þriðjudegi í næstu viku.
Allar nánari upplýsingar viðvíkj-
andi vetrarstarfsemi fjelagsins fá
fjelagar í Mullersskólanum hjá
kennurunum (sími 738) daglega
frá 10—12 árd. og 3—6 síðd. Fje-
lagar, þið sem ættið að æfa í vetur,
gefið yltkur sem fyrst fram.
Uppboðiö á vöruleifum Bóka-
verslunar ísafoldar heldur áfram
1 dag og hefst kl. 10 árd. Á upp-
boðinu í gær var byrjað að selja
ýmissan annan varning, og þegar
uppboðinu lauk, var mestur hluti
af vörum Bókaverslunarinnar
eft.ir.
Kvöldskóli sendisv.eina verður
settur á sunnudaginn 4. okt. kl.
2 síðd. í Kaupþingssalnum. Eru
þeir sendisveinar ámintir að mæta
sem sótt hafa um inntöku þareð
aðsókn að skólanum er afarmikil
og færri komast ag en vilja. Nám-
skeið fjelagsins mun verða. sett
kl. 3 sama dag og á sama stað.
Eru þeir beðnir að mæta sem sótt
hafa um inntöku.
Vinnuskólinn í Grænuborg. Nokk-
urar umræður urðu á bæjarstjórn-
arfundi í gær um hinn fyrirhug-
aða vinnuskóla í Grænuborg, sem
Steingrímur Arason lýsti lijer í
blaðinu í gær. Að lokum samþykti
bæjarstjóm m.eð 9 :2 atkv. að gera
tilraun með slíkan skóla í vetur
með því fyrirkomulagi sem Stein-
grímur hefír lagt til.
Atvinnubótavinnan. Á bæjar-
stjórnarfundi í gær, var nokkuð
rætt um atvinnubótavinnu þá, sem
fyrirhuguð hefír verið. En eins og
salrir standa, þá vantar bæinn enn
fje til þessa. Var í ráði, að taka
lán og var lánstilboð fengið rjett
áður en sterlingspundiig fjell á
dögunum, en alt fór út um þúfur
við fa.ll pundsins. Borgarstjóri
bjóst þó við, að eitthvað mundi
greiðast úr þessu máli innan skams
Síðustu forvöð til að ná sjer í
aðgönguntiða að Ungmennafjelags-
hófinu í kvöld, eru um hádegi í
dag. Enn em nokkrir miðar óseld-
ir og fást þeir hjá Ársæli, í Acta
og á Hótel Borg.
Sjómannakveðja. FB 1. okt. —
Farnir til Englands. VelHðan allra.
Kærar kveðjur til ættingja og
vina. Skipshöfnin á Ara.
„Selfoss"
fer til vestur og norðurlands-
ins í kvöld, og kemur hingað
aftur.
Fer hjeðan um miðjan
mánuð til Noregs.
Aðalfnndnr
Glímufjelagsins Ármann,
verður haldinn í Varðarhús-
inu mánudlag'inn 5. október
1931 kl. 8 síðdegis.
Dagskrá samkvæmt fje-
lagslögum.
Stjórnin.
DOmunski
Nýjasta tíska.
Leðurvfirudeild
Hljóðfærahússins,
(Brannsverslnn)
Embættaverslunin. Embættaveit-
ingar stjórnarinnar verða með degil
hverjum lireinni pólitísk verslun.
— t sumar, þegar stjórnin keypti
þá sósíalista þingmenniua, varð
opinbert, að einn greiðslutiðurinn
var landlæknisembættið til Vil-
mundar. Samt leikur stjórnin þann
ski'ípaleik að auglýsa embættið,
eins og ekkert hefði i skorist, og
setur umsóknarfrest. til 30. sept.
Á þenna hátt tókst henni áð' naiTia
ýmsa ágæta menn læknastjettar-
innar til að sækja um þetta em-
bætti, meðan maðilr þessi, sem að
öllu leyti stendur þehn að baki,
er að ráðstafa húsi sínu í tsa-
firði og taka saman föggur sinar.
Kemur hann með alt sitt nú á
sunnudáginn með „Drotningunni“.
En veitingarbrjefið var auðvitað
ekki liægt að dagsetja fyr en í gær.
Það sjerkennilegasta við þessa
verslun er þó það, að stjórniu
ljeti innrjetta íbúð fvrir Vilmuud
heima hjá sjer í Lanfási, rjett eins
og þetta væru búpeningskaup.
Charmaine heldur dansleik í Iðnó
annað kvöld, fáeinir .aðgöngumiðar
ern eftir og verða þeir seldir í
Tðnó í dag kl. 4—7 síðd.
f. R. -sýning verður í kvöld kl.
9 í Iðnó. Sýnir þar I. flokkur
kvenna. undir stjórn Björns Jak-
ohssonar. Yerður þar meðal ann-
ars sýnd leikfimi sú, sem hann
hefir samið eftir fallandánum í ís-
lenska þjóðsöngnum, og áður hef-
ir verið sýnd hjer við góðan orð-
stír. Sýningin er haldin í tilefni
af því. að Björn Jakohsson er nú
að flytjast alfarinn austur að
Laugarvatni og verður fimleika-
kennari við skólann þar í vetur.
Verður þetta ef til vill semasta