Morgunblaðið - 02.10.1931, Síða 5
Föstudaginn 2. okt. 1931.
5
H. E. Jesseu
skólastjóri.
20 ára starfsafmæli.
1 gær voru 20 ár liðin frá því,
er M. B. Jessen skólastjóri byrjaði
starfsemi sína hjer á landi. Hann
kom til Islands árið 1911 og hafði
þá verið ráðinn kennari við vjel-
fræðideild Stýrimannaskólans í
Reykjavík. Skyldi deild þessi taka
til starfa þá um haustið, og var
tilætlunin sú, að þeir nemendur,
sem þaðan útskrifuðust, hefðu
heimild til að gæta gufuvjela, er
M. E. Jessen.
framleiddi alt að 700 hestöflum.
Jessen byrjaði kensluna þ. 1. okt.
1911, og vorið 1913 komu fyrstu
vjelst.jórarnir frá þessari deiid eða
námskeiði, 6 að tölu. Vjelfræði-
deildinni var hald-ið í iíku horfi
fr,am á árið 1915, og útskrifaðist
þaðan 21 vjelfræðinemi alls. Þá
var greinilega komig í ljós, að ekki
tjáði að draga það lengur, að skipa
þessum fræðum í þann sess, sem
þeim bar. Hjer þurfti Sjerstakan,
sjálfstæðan vjelskóla, og var meh'a
en nóg verkefni fyrir hann. Það
var því ráðist í að setja á stofn
Vjelstjóraskóla íslands, er veita
skyldi þeim, sem þar lyki fullnað-
arprófi, ótakmörkug rjettindi til
vjelgætslu. M. E. Jessen tókst á
hendur að veita skólanum forstöðu
og rækti starf sitt prýðdega þá
þegar og æ síðan. Vorið 1916 luku
fyrstu 3 nemendurnir burtfarar-
prófi frá skólanum. Alls hafa út-
skrifast þaðan 145 vjelstjórar, og
nú eru á öllum íslenska skipaflot-
anum einir 4 vjelstjórar, sem lokið
liafa prófi annars staðar.
Eigi er þörf á, að gera hjer grein
fyrir því, hve nauðsynleg stofnun
vjelskólinn er, því að það liggur
alveg í augurn, uppi. Um starf for-
stöðumannsins mætti rita langt
mál, en hjer skal að eins fátt eitt
sagt. Það er áreiðanlegt, að hann
hefir ekki legið á liði sínu, og að
honum er það brennandi áhugamál,
að nemendur sínir læri og læri vel.
Hann er eftirgangssamur og dug-
andi kennari, alvörumaður mikill,
]>egar við á, en alt af skemtdegur
og gamansamur jafnframt, rjett-
sýnn og blátt áfram við nemendur
sína og velvdjaður þeim í hvívetna.
Það lætur að líkindum, að þeir
kunni að meta þessa kosti, enda er
svo í raun og veru, að hann er vin-
sæll og vel þokkaður meðal þeirra.
Og ait af fjölgar vinum hans, eftir
því sem tímar líða og fleiri nem-
< ndur komast í kynni við hann og
njóta tdsagnar hans.
Það er óhætt að fullyrða, að
.•ngum einum manni á vjelstjóra-
stjett Islands meira að þakka en
Jessen skólastjóra, enda er henni
það vel ljóst. Þegar vjelstjóra-
skólinn var settur í gær, kom þar
stjórn Vjelstjórafjelagsins td þess
að votta skólastjóra virðingu sína
og óska honum allra hedla á kom-
anda starfsárum. Stjórnin afhenti
honum skrautritað þakkarávarp
frá fjelaginu til viðurkenningar
fyrir vel unnið starf í þágu stjett-
arinnar. Það var að makleikum,
því að um Jessen skólastjóra má
vel segja, án þess oflof sje, að þar
er rjettur máður á rjettum stað.
Vjelstjóri.
------«<»»--------
Aðalfnudnr
Prestafjelags Vestfjarða.
Ár 1930, miðvikudaginn 2.
sept., kom Prestafjelag Vest-
fjarða saman á Stað í Stein-
grímsfirði til að halda aðalfund
fjelagsins, sem er 4. fundur
þess. — Fundurinn hófst með
guðsþjónustu í kirkjunni kl.
12,30 síðd. Síra Helgi Kon-
ráðsson prjedikaði og í.agði út
af Gal. 4, 4—7., en s: , Sigur-
geir Einarsson þjónaði i yrir alt-
ari. Allir prestarnir, s< m voru
mættir, gengu til alt iris, en
þeir voru þessir:
Stjórn fjelagsins: Formaður
sr. Sigurgeir Sigurðsson prófast
ur Isafirði, sr. Böðvar Bjarna-
son Rafnseyri, sr. Halldór Kol-
beins Stað í Steingrímsfirði, og
auk þeirra sr. Sigtryggur Guð-
íaugsson Núpi prófastur, sr. Jón
Brandsson Kollafjarðarnesi,
prófastur, sr. Sveinn Guðmunds
son Árnesi, sr. Jón N. Jóhannes-
son pastor loci, sr. Þorsteinn Jó-
hannesson Vatnsfirði, sr. Helgi
Konráðsson, Bíldudal.
Að lokinni guðsþjónustu flutti
formaður erindi í kirkjunni, þar
sem hann beindi þeirri ósk sinni
til viðstadds safnaðar og um
leið til safnaða yfirleitt að
starfa betur en hingað til með
prestum sínum að kirkju- og
kristindómsmálum. Þörfin væri
sennilega meiri nú en nokkru
sinni fyr, þar sem erfiðleikar í
kirkjumálum fara vaxandi og
andúð gegn kristindómi eykst.
Mundi vafalaust mega bæta úr
þessu með meira samstarfi
presta og safnaða, fegurri
kirkjuhúsum o. fl.
Gunnlaugur Magnússon ávarp
aði fundarmenn nokkrum orð-
um á eftir og þakkaði þeim fyr
ir komuna.
Fundur fjelagsins hófst síð-
an í kirkjunni kl. 5 e. m. Setti
formaður fundinn og stýrði hon
um. Var þá gengið til dagskrár:
1. Formaður las upp endur-
skoðaðan reikning Lindarinnar
og skýrði frá hag ritsins.
2. Prestaskifti. Svo hljóðandi
tillaga var samþykt í einu hljóði:
Fundurinn telur æskilegt, að
preátar messi hver hjá öðrum
og felur próföstunum að beita
sjer fyrir framkvæmdum þess
meðal prestanna.
3. Svo hljóðandi símskeyti
barst á fundinn:
Formaður Prestáfjelags Vest-
fjarða, Stað í Steingrímsfirði.
Stjórn Prestafjelags Islands
sendir fundinum kveðju og bið-
ur guð að blessa gróanda og sam
hug í kirkjulífi Vestfjarða.
Sigurður Sívertsen.
Eftir að formaður hafði lesið
upp þetta símskeyti, fór hann
nokkrum orðum um, hve mikils-
virði okkur væri samhugur og
skilningur formanns Prestafje-
lags Islands, prófessors Sigurðar
Sívertsen, og bað fundarmenn
að standa upp í virðingarskyni
við hann, og var svo gert.
4. Kristindómsfræðsla. Máls-
hefjandi sr. Halldór Kolbeins. —
Taldi hann æskilegt, að prestar
hefðu á hendi kristindómsfræðslu
í skólum, þó að til þess þyrfti að
fjölga prestum, sem óhjákvæmi-
iegt yrði, a. m. k. í stærri kaup-
stöðunum. Kristindómsfræðsla
væri ekki fullnægjandi sem sögu-
legt nám að eins, heldur einnig
trúfræðilegt og siðfræðilegt. Um
kensluaðferðir var hann mótfall-
inn þululærdómi, en hjelt fram
mikilvægi endurtekningar þess,
sem fegurst er og best.
Sr. Sigurgeir Sigurðsson tók
í sama strenginn og frummæl-
andi og gat þess enn fremur, hve
æskilegt það væri, að sameinað
væri í framtíðinni prestsseturs-
byggingar og heimavistarskóla
fyrir börn í sveitum landsins,
svo að prestar gætu haft fræðslu
störf á hendi. Fleiri tóku til
máls, og snerust umræður um
þessar þrjár spurningar frum-
mælanda: Hver á að kenna? —
Hvað á að kenna? og hvernig á
að kenna? Sr. Sigtryggur Guð-
laugsson bætti við þessari spurn
íngu: Hvenær á að byrja að
kenna barninu kristinfræði? —
Taldi hann, að það yrði aldrei of
snemma byrjað, en þó væri nám
ið þýðingarmest, er barnið væri
komið um og yfir fermingarald-
ur, þar af leiðandi væri aldrei
rjett að sækja um fermingarleyfi
fyrir ófullaldra börn. Sr. Hall-
dór Kolbeins kom fram með svo
hljóðandi tillögu, er samþykt var
í einu hljóði:
Fundurinn skorar á kenslu-
málastjórn landsins að hlutast til
um það, að kristinfræði sje kend
í öllum þeim skólum, sem njóta
opinbers styrks, og sjá um, að
hæfar kenslubækur verði gefnar
út á íslensku í kristinfræðum.
5. Um kirkjurækni flutti sr.
Jón Brandsson erindi, og spunn-
ust út af því umræður. Sr. Sigur
geir Sigurðsson benti á, að prest-
ar ættu jafnvel ekki að gera
messufall, þótt enginn kæmi til
kirkju. — Sr. Halldór Kolbeins
skýrði frá, að hann hefði þegar
tekið upp þann sið, að messa áv-
allt, ef hann hefði auglýst
messu. I sambandi við þetta var
kosin nefnd til þess að gera til-
lögur um helgisiðamálið og
leggja fyrir fundinn næsta dag.
I nefndina var stjórn fjelagsins
kosin.
6. Sálmabókarmálið. Sr. Sveinn
Guðmundsson flutti inngangser-
indi um málið. Svo hljóðandi til-
laga kom fram:
Fundurinn skorar á kirkju-
stjórn íslands að vinda sem bráð
astan bug að endurskoðun sálma
bókarinnar. Till. borin undir at-
kvæði, og samþykt með 6:3 at-
kv., sem að eins óska viðbætis
við núverandi sálmabók.
Var því næst fundi frestað til
næsta dags.
Fimtudaginn 3. sept. hófst
fundur að nýju kl. 8 f. m., með
því að sunginn var sálmurinn:
Nýkontið:
SAGÓGRJÓN
HRÍSMJÖL
KARTÖFLUMJÖL
HRÍSGRJÓN
BAUNIR „Victoria“
RÚGMJÖL.
Skygðustu filutir skfna betur.
V I2I-IO
LtVtR bROTHfcRS LIMll'ED. PORT SUNLIGHT.
Allir munir úr málmi skína
skærar sjeu þeir fægðir úr Vim.
Gluggar og gler sindra, steindir
hlutir, eggjárn og postulín.
Pottar og pönnur skína, sjeu
þeir fægðir úr Vjm. Um leið og
Vim hreinsar grómið gefur það
gljáa.
'V’im sparar tíma og erfiði.
Fngin v'r"arvera má
Vim-laus vera.
Pakkinn 25 aura.
Bósin 60 aura.
l,HeIios,i kemur.
Aðalfnndnr Fasteisnalánafjelags fslands
verður hakHnn á skrifstofu fjelagsins, Hafnarstræti 5, í Reykjavík,
laugardaginn 31. október n.k. kl. 3 síðd.
Dagskrá samkvæmt fjelagslögunum.
AðgöngunHðar að fundinum verða afhentir á skrifstofu fjelagsins
þrjá síðustu dagana fyrir fundinn.
STJÓRNIN.
Allt með íslenskniii skipnm! *pi|