Morgunblaðið - 02.10.1931, Síða 6
MORGUNBLAÐIÐ
6
Atsftkknlaði.
Snðnsftkknlaði,
Cacao.
Þegar þjer biðjið um ein-
hverja af ofangreindum
vörutegundum, þá takið
fram að það eigi að vera
frá C-I-D-A.
Gardinnstengnr
Fjölbreytt úrval, ýmsar nýjar tegundir nýkomnar.
Ludvig Storr, Laugaveg 15.
SPIL,
Bridgespil (53 bl.), tvenn saman í
laglegum kassa, ágæt tegund, gull-
hyrnd. - Verð k.r 5.50. -
Búkav. Sigfúsar Eymundssonai
Heiðruðu
húsmæður
Litið sjálfar í lieimahúsum úr
Citocol, sem er mjög einfalt og
fyrirhafnarlaust.
Ur Ciitocol má lita eins vel úr
köldu vatni sem heitu.
Citocol hefir hlotið mestu og
bestu viðurkenningu og tekur öll-
um öðrum litum fram.
Citocol litar því næst alt sem
litað verður.
Leiðarvísir fylgir hverjum pakka
Aðalumboð og heildsölubirgðir
liefir.
H,!. Efnagerö
Reykjavíkur.
Regnfrakkar
eru bestir og ódýr-
astir hjá okkur. Ný
sending tekin upp
fyrir nokkrum dög-
um. —
VðrohBsSð.
Lifur. — Hjörtu. — Svið.
Klein
Baldursgötu 14. Sími 73.
I slátrið
þarf að nota íslenska rúgmjölið
frá Mjólkurfjelagi Reykjavíkur.
Ekkert annað rúgmjöl er jafn-
gott til sláturgerðar. Biðjið kaup-
mann yðar um íslenska rúgmjölið.
Hafi hann það ekki til, þá pantið
það beint frá Mjólkurfjelagi
Reykjavíkur.
Mjðlkurtjelag Reykjavfkur.
Þann signaða dag vjer sjáum
enn. Form. las upp Ef. 3, 14.—
21.. og flutti bæn.
Var ]>á tekið fyrir:
7. Handbókarmálið. Formaður
fiutti inngangserindi og kom með
svohljóðandi tillögu: Fundur
Prestafjelags Vestfjarða telur
æskilegt: 1. að textaröðum verði
fjölgað og pistlar og koliektur
verði endurskoðuð og endursam-
in og að meiri fjölbreytni komi
í guðsþjónustuformið eftir því
bvar og hvenær guðsþjónusta er
flutt, og 2. að sjerstakt ritual
verði samið fyrir guðsþjónustur
þær, sem presturinn einn eða
með örfáum safnaðarmeðlimum
gengur í kirkju til guðsþjónustu
Tillagan var borin undir atkv.
í tvennu lagi og var fyrri liður
hennar samþyktur með 9 atkv.
og sá síðari með 8 atkv.
Þá skýrði sr. Böðvar Bjarna-
son frá ýmsum breytingartillög-
um, sem hann hefir gert við ýmis
atriði helgisiðabókarinnar, og
sem hann ætlar sjer að senda
nefnd þeirri, sem fjaliar um
breytingar á helgisiðum kirkjunn
ar, kosinni af synodus. Svohljóð-
andi tillaga var borin fram:
Fundur Prestafjelags Vest-
fjarða beinir þeirri áskorun til
helgisiðabókarnefndarinnar, að
hún taki til rækilegrar yfirveg-
unar breytingartillögur sr. Böðv-
ars Bjarnasonar, Rafnseyri, og
telur þær yfirleitt stefna í rjetta
átt. Tillagan var borin undir at-
kvæði og samþykt í einu hljóði.
8. Fundurinn samþykti í einu
hljóði, að senda svohljóðandi sím
skeyti:
Formaður Prestafjelags íslands,
vígslubiskup Sigurður Sívertsen,
Reykjavík.
Prestafjelag Vestfjarða þakk-
ar yður, háæruverðugi hr. vígslu-
biskup, fyrir hlýja kveðju og
árnaðaróskir frá yður og Presta-
fjelagi Islands og óskar yður
heilla og blessunar í framtíðar-
starfi yðar fyrir kirkju og krist-
indómsmál með þjóð vorri.
Sigurgeir Sigurðsson.
9. Stjórnarkosning. Stjórnin
var endurkosin í einu hljóði. I
varastjórn til eins árs voru kosn-
r sr. Sigtryggur Guðlaugsson og
r. Helgi Konráðsson.
10. Endurskoðandi var kosinn
il eins árs sr. Páll Sigurðsson.
11. Kirkjan og útvarpið. Sr.
Jón N. Jóhannesson flutti inn-
gangserindi. Formaður taldi það
æskiiegt, að allir prestar lands-
ins flytji útvarpsguðsþjónustur,
er skiftist þannig niður, a. m. k.
10 prestar utan Reykjavíkur
flytji útvarpsguðsþjónustur á
ári, þannig, að hver prestur
messi a. m. k. 10. hvert ár fyrir
útvarpið, og að hljóðtakar verði
settir í sem flestar kirkjur þar,
sem því verður við komið í sam-
bandi við síma. Samþykti fund-
urinn með öllum greiddum at-
xvæðum að senda útvarpsráði Is-
ands þessa ályktun.
12. Prestafjelagsstjórninni var
falið að ræða við útvarpsstjóra
um, hvort ekki væri tiltækilegt,
;ð útvarpið flytti bæn að lok-
inni dagskrá á sunnudögum.
Var þá sunginn sálmurinn:
Þú Jesús ert vegur til himinsins
heim, og síðan var fundi frestað.
13. Við miðdegisverðarborðið
stóð formaður fjelagsins upp og
þakkaði sr. Jóni N. Jóhannes-
syni og frú hans fyrir hinar á-
'.■ætu viðtökur, og tóku allir fund
armenn undir það með því að
standa upp. Pastor loci þakkaði
fundarmönnum komuna og árn-
aði þeim góðrar heimferðar.
14. Kl. 6.30 e. m. flutti sr.
Böðvar Bjarnason erindi um ei-
lífðarmálin í barnaskólahúsinu á
Hólrnavík. Sungið var undan og
eftir. Fjölmenni var viðstatt.
Að því loknu var fundi haldið
áfram.
15. Stjórninni var falið að á-
kveða næsta fundarstað fyrir að-
alfund fjelagsins.
Að lokum sungu fundarmenn:
Son guðs ertu með sanni.
Fundargerð lesin upp og sam-
þykt, og sagði formaður því
næst fundi slitið.
Sigurg. Sigurðsson.
Helgi Konráðsson
fundarritari.
Til lesenda „Skðlholts".
Bæði sakir fjarvista minna frá
Islandi, og til þess að seinka ekki
um of útgáfu „Skálliolts“ hefi jeg
ekki átt kost á að lesa sjálfur próf-
arkir að hinu nýútkomna 2. bindi.
En hjer hefir íekist svo illa til, að
lesmálið er á ekki fám stöðum
ruglað á mjög meinlegan hátt, svo
að jeg sje mjer ekki annað ráð
vænna en að snúa mjer til blað-
anna og biðja þau flytja eftirfar-
andi lista yfir þær villur, sem
valda misskilningi, er jeg get ekki
unað ólagfærðum.
Má jeg eiga vísa þá góðvild ís-
lenskra blaða, að þau taki upp
þessar leiðrjettingar — og lesenda
„Skáiholts“, að þeir lagfærí text-
ann samkvæmt þeim?
Bls.
23. hvað þá í þessu augnabliki —
á þessu augnabliki.
24. inspection — inspeetione.
26. klukkusveinn — kiukku-
sveinninn.
31. Jón Jónsson sendi — sendir.
42. liafa mínir elskuðu foreldrar]
. — elsku foreldrar. 1
57. þessi orð hafa áheyrn —1
áheyrn biskups.
59. var vísvitandi — er vísvitandi
60. leggja hana undir sinn vilja
— beygja hana undir o.s.frv.
61. minni heimskulegu baráttu
við holdsins syndugu fýsnir
— minni heimulegu baráttu
o. s. frv.
62. þótt hún hefði gull og hun-
ang í tungu sinni — á tungu
sinni.
69. halda áfram að ganga í þess-
ari vímu — þessari pínu.
79. þau eru ung, og hann hefir
langan vilja — hún hefir
langan vdja.
97. í sínum fínlegu másaugum —
pírulegu másaugum.
131. leggur hitastrókur út frá gló-
andi ofnhúsinu — leggur hita-
strokur o. s. frv.
133. gengur yfir altari — gengur
fyrir altari.
134. Guðs verðugur þjónn — Guðs
óverðugur þjónn.
165. Hálfri stundu síðar var hringt
— er hringt.
199. Eina morgunstund — Ein
morgunstund.
204. von miðjanna — von niðjanna
208. unglegur en með fjörutíu og
sjö ár að baki — unglegur
enn með o. s. frv.
217. blása til þings — láta blása
til þings.
232. helzt því sem óbundið er —
ófengið er.
312. hverfur fyrir næsta hólbarðið
—hæst hólbarðið.
S. st. Khöfn, í sept. 1931.
Guðmundur Kamban.
Lennart prins,
sonarsonur Gústafs konungs í Sví-
þjóð, mun ætla að giftast heitmey
sinni, ungfrú Karen Nissvandt nú
í haust. Hefir hann tekift þriggja
herbergja íbúð á leigu í nýbygðu
húsi í Stokkhólmi. — Hann missir
við giftingu sína arfgengi sitt og
lífeyri, en fær aftur á móti í heim-
anmund með konu sinni langt yfir
miljón króna.
Myrtur í kofforti.
Lögreglunni í Marsedle var bent
á koffort, sem kona ein hafði tekið
eftir að blóð rann úr. Lá koffortið
á þjóðvegi utan vig bæinn. Kom í
ljós þegar koffortið var opnað, að
í því var lík kínversks götusala,
illa útleikið mjög. — Er það talið
víst að tveir samlandar Kínverjans
hafi myrt hann til fjár, því að það
upplýstist ag hann hafði að stað-
aidri gengið með 20 þús. franka í
peningum í vösum sínum. (20 þús.
frankar = ca. 3600 kr. ísl.). Til
œorðingjanna hafði sjest, þegar
þeir voru að flytja koffortið, en
síðan hafa þeir ekki sjest.
Trjáviðarsala Norðmanna
hefir brugðist í ár.
Sjaldan eða aldrei hefir trjá-
viðarsala Norðmanna brugðist svo
hastarlega serti í ár. Eftirspurnin
að timbri hefir engin verið, en
verðið hefir haldist óbreytt frá því
sem var síðast liðið ár. Búast skóg-
eigendur ekki við því, að markað-
urinn mimi lifna neitt fyrst um
sinn.
Þeir, sem mikið
reykja og aldrei fá
óþægindi í hálsinn
eru þeirsemaltaf
REYKJA
TEOFANI
ILMANDI EGYPTSKAR,
Dívaaar,
vel unnir úr vandaðasta efni. —
Mjög ódýrir af mörgum gerðum.
Húsgagnaverslun Reykjavíkur.
Vatnsstíg 3. Sími 1940.
HHslðtrað dilkakjfit,
lægst verð í bænupi. Lifur og
hjörtu. íslenskar gulrófur og ísl.
kartöflur. Sviðin svið. Sent um alt.
Versl. BJðrniun,
Bergstaðastræti 35. Sími 1091.
Week
niðursuðuglösin eru best. — Allar
stærðir og varahlutir fyrirliggj-
andi í
NB. Vergið lækkað!