Morgunblaðið - 04.10.1931, Síða 3
M ORGUNBLAE’IÐ
3
— =
= Útgef.: H.f. Árvakur, Heykjavlk.
f§ Ritstjórar: Jón Kjartansson.
= Valtýr Stefánsson..
Ritstjórn og afgreiSsla: =
— Austurstræti 8. — Slmi 600.
n Auglýsingastjóri: B. Hafberg. |j
= Auglýsingaskrifstofa: =
Austurstræti 17. — Slmi 700. =
= Heimasímar: =
= Jón Kjartansson nr. 742. =
= Valtýr Stefánsson nr. 1220. =
= E. Hafberg nr. 770. =
= Áskriftagjald: =
= Innanlands kr. 2.00 á mánuöi. =
= Utanlands kr. 2.50 á mánuSi. =
= 1 lausasölu 10 aura eintakiS. =
= 20 aura meS Lesbók. =
'lllllllllllllllllllimillllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllrH
Gjaldeyrisverslun.
Landsbankinn og Útvegsbank-
inn hafa einkarjett á verslun
með erlendan gjaldeyri.
I Lögbirtingablaðinu, sem var
borið út um bæinn í gær, er reglu
gerð um gjaldeyrisverslun, frá
fjármálaráðuneytinu. Er hún sett
samkvæmt heimild í lögum nr.
48, 4. júní 1924, sbr. lög. nr. 9,
27. maí 1925.
Þar er svo fyrir mælt, að Lands
bankinn og Útvegsbankinn skuli
• einir hafa á hendi gjaldeyris-
verslunina, og sje hver sá, sem
á útlendan gjaldeyri, eða kann að
eignast hann síðar, skyldur til að
láta hann af hendi við bankana
íyrir skráð kaupgengi.
öllum er bannað að selja til út-
landa íslenskan gjaldeyri, hvort
heldur seðla, inneignir í bönkum
eða öðrum stofnunum, svo og
kröfur á hendur einstökum mönn
um hjer á landi, nema bankarnir
.annist söluna. Öllum er gert að
skyldu, að skýra Gengisnefnd frá
inneignum sínum í erlendum
gjaldeyri, ]>ar með talin verð-
brjef, þegar þess er óskað, og
skyldir að láta gjaldeyrinn af
hendi við bankana, fyrir skráð
kaupgengi, ef krafist er.
Bankarnir eiga að takmarka
sölu á gjaldeyri til kaupa á ó-
nauðsynlegum varningi, eftir því
isem við verður komið.
Brot á reglugerð þessari varða
frá 100—50.000 króna sektum.
Skráning
erlends gjaldeyris.
í gær var gengisskráning bank-
anna í Reykjavík eins og hjer
•segir:
iSterling............ - 22.15
Dollar............. 5.61%
R.mark...............131.48
Fr. frc.............. 22.46
Belg................. 78.93
;Sv. frc.............110.75
Líra................. 29.08
Peseta............... 50.12
'Gyllini............. 227.69
Tjekk.sl.kr.......... 17.01
‘S. kr...............132.10
:N. kr...............124.98
D. kr................123.74
Sterllngspundið fellur.
New York, 3. okt.
United Press. FB.
Sterlingspundið skráð hjer í
«dag 3.85 dollara.
Póstfingið nm ísland
milli Ameríkn og Norðnrálfn.
Það verður byrjað á því áður en varir, með 12 flug-
vjelum og 20 flugmönnum.
Hver flugmaður á að hafa sinn áfanga af leiðinni.
OaibiL
Preston (til hægri) og Collignon (í miðju). Myndin er tekin af
þeim, er þeir dögðu af stað í tilraunaflug sitt til Evrópu, sem að
vísu misheppnaðist, en verður haldið áfram.
Peter Freuchen, Grænlandsfar-
inn nafnkunni, hefir um langt
skeið verið ráðunautur þeirra
Bandaríkjamanna, sem ætla að
gangast fýrir því að koma á reglu-
bundnum póstflugferðum milli
Ameríku og Norðurálfu með við-
komu á Grænlandi og íslandi. Hef-
ir frjettaritari norska blaðsins
,,Áftenposten“ nýlega haft tal af
honum um þetta efni, og segist
honum svo frá:
— Það er æthinin að póstflugið
byrjí í Detroit í Bandaríkjunum,
og verði flogið þaðan um Roberts
House og Great River á Labrador,
þaðan til Wakham Bay á norður-
strönd Labradors, yfir Hudsons-
sundið og Cumberland-sundið Og
svo til Grænlands. Fyrst var gert
ráð fyrir * því, að hafa þar við-
komustað í Holsteinsborg á vestur-
ströndinni, en td þess fæst ekki
leyfi Dana. Það má ekki koma
nærx-i Eskimóunum, eins og þjer
vit-ið. Staðurinn er auk þess ekki
liinn heppilegasti, því að hann er
umluktur háum fjöllum. — Þess
vegna liefir nú verið kosinn annar
staður, Nepiset, þar sem Hans
Egede bygði vígi, hið eina, sem
til hefir verið á Grænlandi. Þaðan
verður flogið til Straumfjarðar,
þar sem prófessor Hobbs hafðist
við í fyrra, og þaðan þvert yfir
landið til Angmagsalik. — Skamt
þaðan er vatn, sem hægt er að
lenda á. Þegar Cramer flaug til
Angmagsalik, settist hann á sjóinn,
vegna þess, að þá var íslaust þar
í bili.
Frá Angmagsalik á að fljúga
tíl íslands og annað hvort. norðan
eða snnnan við landið, eftír því
hvernig veður er. Næsti lendingar-
staður verður { Færeyjum, ef þok-
an neyðir þá ekki flugmanninn til
þess að halda til Hjaltlands í ein-
um áfanga. Þaðan verður flogi? til
Stafangurs í Noregi og svo til
Kaupmannahafnar, sem verður önn
ur endastöðin. Alls verða 12 flug-
stöðvar á leiðinni þar sem flug-
vjelarnar halda til. Tekur hver við
áfanga. Með þessu móti kemur í
mesta lagi sex tíma flug á hvern
flugmann á dag.
— Hvað er orðin um þá Preston
og öollignon?
— Þeir hafa flogið heim tíl
Detroit aftur tíl þess að láta setja
skíði á flugvjelina, vegna þess
hvað nú er áliðið. En þeir halda
áreiðanlega áfram fluginu milli
heimsálfanna. Þeir fara sjer að
engu óðslega, því að þeir eiga að
rannsaka öll flugskilyrði sem best.
Þeir, sem hafa lagt fram fje til
fyrirtækisins, hafa lagt mikla á-
liersiu á það, að engin óhöpp komi
f'yriv á reynslufluginu, og þess
\egna var það enn sárgrætilegra
hvernig fór um öramer.
Edwin L. Preston er maður um
þrítugt og hefir í þrjú ár verið
fiugmaður hjá Trans-american
Airlines Corporatíon. Á þessum
árum hefir hann flogið alis í 4400
klukkustundir, þar af 1200 stundir
um nætur. Fjelagi hans, Robert
H. Collignon er 33 ára gamall og
hann er bæði leikinn flngmaður og
ioftskeytamaður.
— Hvemig eru annars horfumar
með þetta póstflug?
— Þegar þess er gætt, að dag-
lega em sendar 4% miljón brjefa
milli Ameríku og Norðurálfu, þá
er auðskilið hverja þýðingu þetta
póstflug hefir. En í hverri flug-
ferð þarf að hafa 18 þús. brjefa
póst, svo að hún borgi sig. Það er
gert rág fyrir því að flugið taki
alls 36 stundir. Næsta ár verður
alt efni sent til allra lendingar-
stöðvanna. Það verður byrjað með
12 flugvjelar og 20 flugmenn .
Jeg hefi góða trú á þessu fyrir-
tæki, og það kemst áreiðanlega í
framkvæmd.
Erindi fagnaðarboðans, orsök
þess og takmark; heitir fyrirlest-
ur, sem Pjetur Sigurðsson flytur
í Yarðarhúsinu í kvöld ld. 8%, og
verður þetta hans síðasti fyrirlest-
ur hjer um tíma: Allir velkomnir.
Siómannastofan. — Samkoma í
af annari og annast. flugið ákveðna Ikvöld kl. 6. Allir velkomnir.
□ Edda 59311067 — 1.
I. O. O. F. 3 = 113958 = 8 /, II.
V.eðrið í gær: í morgun var
kyrt veður og bjart um alt land
en víða 1—3 st. frost. Nú er hins
vegar komin, S-átt um alt land með
rigningu á S- og V-landi og 6—9
st. hita. Austanlands er veður enn
þurt og 4—6 st. hiti. Lægðitn við
S-Grænland, sú er getið var í gær,
er nú komin norðaustur í Græn-
landshaf og hreyfist áfram í NA.
Lítur út fyrir SV-átt hjar á
landi á morgun með skúrum á S-
og V-landi.
Veðurútlit í Rejkjavík í dag;
SV-kaldi. Skúrir.
Hjúskapur. Hinn 1. þ. m. gaf
síra Ámi Sigurðsson saman í hjóna
band Kristínu Helgadóttur og Þor-
stein Jónsson. Heimili þeirra er á
Laufásvegi 17.
1 gær voru gefin saman af dóm-
kirkjupresti sr. Bjarna Jónssyni,
verslunarmær Lilja Fjeldsted og
Páll Andrjúesson bílstjóri hjá
Shell. Ungu hjónin búa í Dal við
Skerjafjörð.
í gærkvöldi voru gefin saman
af síra Bjarna .Jónssyni ungfrú
Sveinsína Jónsdóttír og Magnús
Guðbjartsson 1. vjelstjóri á Þór.
Heimili þeirra verður á Bjargar-
stíg 2.
Aðalfundur Glímufjelagsins Ár-
mann verður haldinn í Varðarhús-
inu annað kvöld (mánudag) kl. 8
síðdegis. Fjelagar fjölmennið.
25 þúsund f jár hefir verið slátr-
að hjá Sláturfjelagi Suðurlands,
síðan slátrun hófst í sumar. Er
búist við að eftir sje að slátra
öðru eins í haust og verður þá
1 með mesta móti. Auk þess
hefir fjelagið sláturhús bæði á
Akranesi og í Vík í Mýrdal. Á
]jeim stöðum er búist við að slátr-
að verði alls um 20 þús. fjár.
Ríkisútvarpið er flutt í hið nýja
hús landssímans við Thorvaldsens-
strætí.
Met í kúluvarpi. Á innanfjelags-
mótí Ármanns í fyrrakvöld setti
Þorsteilm Einarsson nýtt imet í
kiiluvai’pi, kastaði 12.65 m. með
betri liendi og 21.95 samanlagt
beggja handa kast. Marínó Kristj-
ánsson kastaði 11.54'm. með betri
hendi og 21.64 með báðum. Eldra
metíð í kúluvarpi var 21.62, beggja
handa, og 12.40 betri hendi, og er
ekki nema örstutt síðan að Þor-
steinn Einarsson setti það á 1-
þróttavellinum.
Thorvaldsen fallinn. Nri hefir
líknesi Thorvaldsens á Austurvelli
verið rifið niður og á að flytja
það suður í skemtigarðinn hjá
Tjorninni. En líknesi Jóns Sigurðs-
sonar verður aftur flutt á Austur-
völl og var í gæi verig að steypa
grundvöll undir það. En þar sem
iíkneski Jóns Sigurðssonar stend-
ur nú, fyrir framan Stjórnarráðið
á að reisa líkneski Hannesar Haf-
steins.
Trúlofun. Nýlega hafa opinberað
trúlofun sína. ungfrú Kristjana J
Jónsdóttir, og Jóhann Ól. Jónsson
Hafnarfirði.
Hjálpræðisherinn. Samkomur
dag: Helgunarsamkoma kl. 10%
árd. SunnudagaskóÍiinn tekur aft
ur til starfa kl. 2 síðd. Hjálpræð
issamkoma. kl. 8. Kapt. Axel Olsen
og frú stjóma. Lúðraflokkurinn
og strengjasveitín aðstoða. Allir
velkomnir.
Heimilasambandið byrjar aftur
á mánudaginn 5. okt. kl. 4 síðd
Frú stabskapt. Á. Jóhannesson tal'
ar. Dorkas fundur kl. 8 síðd.
Gamanvísnasöngur. f kvöld kl
Ekki veitir af
að hressa upp á
skapið í kreppunni
RYDENS
KA FFI
er fyrirtaks
hressing.
í Fæst í næstu búð.
Fermingarkjólar.
Undirföt.
Kjólar sanmaðir
eftir máli.
Verslun
Þingholtsstræti 2.
Remington.
Ameaáskar vörur hljóta að hækka í
verði. Nokkrar Remingtonvjelar
fást með gamla verðinu. Heimsins
sektustu ritvjelar.
8% ætlar Jón Norðfjörð að syngja
Bðrn þan
er eiga að ganga í skóla hjá okkur
vetur, mæti í Bergstaðastíæti 2
mánudaginn 5. okt kl. 2 síðdegis.
Vigdís G. Blöndal.
Sigríðnr Magnúsdóttilr.
Silvo
silfurfægilögur
er óviðjafnan-
legur á silfur,
plet, nickel og
alumineum
Fæst í öllum
helstu verslun-
um.
með 10 bragi, sem fjalla nm dag-
inn og veginn, menn og málefnii og
sumt er um Reykj aví kurlífið. Má
vænta. þama góðrar skemtunar,
þegar dæmt ef eftir því hvað
norðanhlöðin segja um hæfileika
hans til þess að fá menn tíl að
hlæja.
Kristileg samkoma á Njálsgötu
1, í kvöld kl. 8. Allir velkomnir.
Óvenju mikið kapp hefir verið
lagt á að afla góðra mima á Vals-
lilutaveltiina í K. R.-húsinu í dag
og því trídegt að fjöldi fólks not-i
þetta sjerstaka tækifæri til að
freista gæfunnar. Hin góðkunna
Reyk j a ví kur-h 1 j óms veit (-ba n d),
mun skemta allan tímann. x.
Perlur III. hefti 1931 er koniið
út. Það hefst á sögu eftir Gunnar
Gunnarsson. Hún heitir „Glaumur
fíflsins“ og hefir Sigurður mag.
Skúlason ]>ýtt hana. og skrifar auk
>ess smágrein um Gunnar. Kvæði
gamanvísur í Iðnó. Fer hann þar leru þarna eftir Stefán frá Hvíta-