Morgunblaðið - 27.03.1932, Qupperneq 2
2
MORGUNBLAÐIfc)
Fyrirliggjandi:
Yictoríu-baunir.
Heilbaunir.
Kaffibaunir.
Hrísgrjón.
Hrísmjöl.
Sagogrjón.
Kartöflumjöl.
Haframjöl.
Tanniœkninisstofa
Jóns Benediktssonar
e r f 1 b 11
á ðldngfitn 3.
Hver einasta húsmóðir
sem við vitum til, að
notað hafi Lillu- og
Fjallkonu-súkkulaði,
hefir tjáð okkur, að
aldrei hafi hún fengið
betra og drýgra
súkkulaði en það, sem
er í þessum umbúðum.
Hjartaas bestu þakkir og- kveðjur færum við hjer með öllum
þeim, fjær og nær, sem tóku þátt í sorg okkar vegna andláts Ásu
Jóhannesdóttur frá Fjalli, og í kærleika heiðruðu hana látna.
Móðir hennar, systkini og eiginmaður.
Hjer með tilkynnist að jarðarför móður og tengdamóður okkar,
Ragnkeiðar Runólfsdóttur, fer fram þriðjudaginn 29. þ. m. kl. 1 e.
m. og hefst með húskveðju frá heimili hinnar látnu, Framnesveg 1A.
Helga Guðmundsdóttir. Guðmundur Einarsson.
Innilegt þakklæti fyrir auðsýnda hluttekningu við andiát og
jarðarför Ingólfs Eyjólfssonar bróður okkar.
Systkini hins látna.
Ekkjan Guðrún Hjartardóttir andað.ist 26. þ. m. að heimili
sínu, Reykjavíkurveg 19. Hafnarfirði. Jarðarförin ákveðin síðar.
Marhta Magnúsdóttir.
Jarðarför föður okkar, Ólafs Bjarnasonar söðlasmiðs frá Eyrar-
bakka, fer fram miðvikudaginn 30. þ. m. kl. 1 síðd. frá Njálsgötu 37.
Þuríður Ólafsdóttir. Lilja Ólafsdóttir.
Skafti Ólafsson. Jóhann Kr. Ólafsson.
Maðurinn minn elskulegur, faðir og tengdafaður, síra Árni Björns-
son prófastur í Hafnarfirði, andaðist að heimilli sínu í morgun. Jarð-
arförin ákveðin síðar.
Hafnarfirði, 26. mars 1932.
Líney SigiLrjónsdóttir, börn og tengdabörn.
Hjer með tilkynnist vinum og vandamönnum, að maðurinn minn
eiskulegur og faðir, Sigurgarður Sturluson frá Bíldudal, andaðist á
Landakotsspítala 26. þ. m. eftir nærri tveggja ára legu á spítalanum.
Jarðarförin verður ákveðin síðar.
Yictoría Bjarnadóttir og börn.
5parisjóður Reyhjauíhur
og nógrennis.
Tildrögin til stofnunar spari-
sjóðsins voru þau, að á fundi
Iðnaðarmannafjelagsins í Reykja
vík 27. febr. 1930 hreifði gjald-
keri fjelagsins, Sigurður Hall-
dórsson trjesmíðameistari, uppá-
stungu um það, hvort fjelagið
vildi ekki beita sjer fyrir um-
bótum á peningamálum iðnaðar-
mannastjettarinnar og annara,
með stofnun sparisjóðs í bæn-
um eða á annan hátt. Var málið
rætt talsvert á þeim fundi, og
-'Ö endingu kosin nefnd innan
fjelagsins til þess að athuga mál-
ið og bera fram tillögur um það.
Undirbúningsnefndin hjelt
fyrsta fund sinn 15. maí 1930,
en þá voru nýafstaðnir viðburð-
ir þeir, sem leiddu til þess, að
íslandsbanki var ummyndaður
þannig, að úr honum varð Út-
vegsbankinn. Nefndin vildi ekki
að stofnun sparisjóðs í bænum
yrði á nokkurn hátt sett í sam-
band við neinn óróa út af fjár-
málum bankanna, og vann því
að undirbúningi málsins í kyr-
þey, en þótti ekki tímabært að
leggja tillögur sínar fyrir Iðn-
aðarmannafjelagið fyr en um
síðustu áramót. Komu þær til
umræðu á fjölsóttum fundi í fje-
laginu hinn 13. jan. þ. á., og sam-
þykti fjelagið á þeim fundi svo-
felda ályktun:
„Iðnaðarmannafjelagið í
Reykjavík telur nauðsynlegt,
að stofnaður verði sparisjóður
hjer í bænum, og vill hvetja
meðlimi sína, þá sem hafa á-
stæður til, til þess að gjörast
stofnendur og ábyrgðarmenn
slíks sparisjóðs á þann hátt,
sem lögin frá 3. nóv. 1915 um
sparisjóði mæla fyrir. Felur
fjelagið nefndinni, sem kosin
var á fundi 27. febr. 1930,
framhaldandi forgöngu í þessu
máli.
Jafnframt leyfir fjelagið
sjer virðingarfylst að beina
þeirri áskorun til fjármála-
ráðherra, að hann veiti lögum
sparisj óðsins stj órnarstaðfest-
ingu jafnskjótt og þess verður
beiðst“.
Hinn 23. jan. boðaði undirbún-
ingsnefndin á fund alla þáfjelags
menn í Iðnaðarmannafjelaginu,
sem kynnu að vilja gjörast stofn-
endur og ábyrgðarmenn sjóðsins.
Voru á þeim fundi rædd og sam
þykt lög fyrir sjóðinn og við-
staddir fundarmenn undirskrif-
uðu skuldbindingu um ábyrgð
sína fyrir sjóðnum. Því næst var
haldið áfram söfnun ábyrgðar-
manna, meðal iðnaðarmanna og
annara. Nokkur hreyfing um
sparisjóðsstofnun var samtímis
komin upp meðal kaupmanna í
bænum, fyrir forgöngu Sigurðar
Skjaldbergs kaupmanns, og var
þetta sameinað á þann hátt, að
nokkrir áhugamenn úr kaup-
mannastjett gerðust ábyrgðat-
menn. Einnig gerðust nokkrir
mentamenn bæjarins þátttakend-
ur í stofnun sjóðsins. Hinn 16.
febr. sendi undirbúningsnefndin
lög sjóðsins fjármálaráðuneytinu
til staðfestingar, og var staðfest-
ingin veitt viðstöðulaust hinn 5.
mars af fjármálaráðherra Ásg.
Ásgeirssyni.
Ábyrgðarmenn sjóðsins eru 63
að tölu, og ábyrgist hver alt að
500 kr., og þar af innborgast
þegar 250 kr. á hvern sem stofn-
fje sjóðsins. Af þessum 63 stofn-
endum eru eitthvað 46 beinlínis
starfandi iðnaðarmenn, flest iðn
meistarar, hjer í bænum. Af hin-
um eru ýmsir, sem standa sjer-
staklega nærri iðnaðarstjettinni,
svo sem kaupmenn, er lært hafa
handiðn, og verkfræðingar úr
Iðnaðarmannafjelaginu.
Stjórn sjóðsins skipa: Jón Þor
láksson, verkfræðingur, form.,
Gústaf Sveinsson, lögfræðingur, ,
ritari, Jón Halldórsson, hús-
gagnameistari, Guðm. Ásbjörns-
son, bæjarstjórnarforseti og
Helgi Hermann Eiríksson, skóla-
stjóri Iðnskólans. Húsnæði hefir
sjóðurinn fengið í húsi frú Þóru
Magnússon, Hverfisgötu 21, vest-
urendanum, þar sem bæjarfó-
getaskrifstofurnar voru, þegar
Jón heitinn Magnússon og Sig.
Eggerz voru hjer bæjarfógetar.
Er inngangurinn rjett hjá suð-
austurhorni Þjóðleikhússins, sem
nú er í smíðum. Mun sjóðurinn
taka til starfa í þessu húsnæði
í næsta mánuði.
Það er tilætlun stofnendanna
og stjórnarinnar að reka stofn-
un þessa algjörlega eftir full-
komlega heilbrigðum reglum fyr-
ir sparisjóði, með því að leggja
sjerstaka áherslu á að hvetja
börn, unglinga og fullorðna til
þess að spara og leggja smá-
upphæðir sínar jafnóðum til
geymslu og ávöxtunar í sjóðinn,
og með því að ávaxta það fje,
sem innborgast, á fullkomlega
tryggilegan hátt.
J. Þ.
Fjórveldastefna ráðgerð um
skuldamálin o. fl.
París, 26. mars.
United Press. FB.
Tardieu hefir tilkynt, að
brjefaskifti hafi farið fram milli
hans og Mac-Donalds, forsæt-
isráðherra Bretlands, um ýms
stórmál, sem nú eru á döfinni í
Evrópu, svo sem ófriðarskulda-
málin og Danube-tollabandalag-
ið fyrirhugaða. Hafa brjefavið-
skifti þessi leitt til þess, að
meira samræmi hefir komist á
skoðanir Breta og Frakka um
þessi mál. Ráðgert er að halda
fjórveldastefnu um mál þessi og
taka ítalir og Þjóðverjar þátt í
henni, auk Frakka og Breta.
Tardieu ráðgerir þó að hitta
Mac-Donald og fjármálaráð-
herra Breta að máli áður en
fjórveldaráðstefnan verður hald
in, en hvenær hún hefst, er óá-
kveðið enn. Hún hefst þó senni-
lega laust fyrir miðbik apríl-
mánaðar, ef til vill 11. apríl.
> Verður enginn friður?
Sáttaumleitanir Kína og Japans
bera lítinn árangur.
Shanghai, 25. mars.
United Press. FB.
Fullyrt er, eftir góðum heim-
ildum, að friðarumleitanafund-
inum miði lítið áfram í áttina
til varanlegs friðar.
St jórnardeilan £ Japan.
Tokio, 25. mars
United Press. FB.
Aukaráðuneytis-fundur verð-
ur haldinn seinni hluta dags, og
er búist við, að þá verði fallist
á breytingar á skipun stjórnar-
innar. Suzunki verður sennilega
innanríkisráðherra, Kawamura
dómsmálaráðherra. — Búist er
við, að breytingarnar á skipun
stjórnarinnar þyki fullnægjandi
til bráðabirgða.
Frá Noregi.
Rússar kaupa „Íslands-síld“ af
N orSmönnum.
NRP. — FB., 25. mars.
Samkomulag hefir náðst milli
Norðmanna og fulltrúa Rússa-
stjórnar um sölu á „íslands-
síld“ (þ. e. síld veiddri af Norð-
mönnum við ísland). frá því í
fyrra. Verðið er fastákveðið 11
krónur á tunnu (90 kg. lág-
marksþyngd).
Saltfisksverslun NorSmanna.
NRP. — FB., 26. mars.
Fregn frá Kristiansund herm-
ir, að mikill útflutningur salt-
fisks hafi átt sjer stað upp á
síðkastið. Verðið er 8 kr. pr.
„vikt“ (þ. e. 20 kg.). Horfur
eru á, að fiskbirgðir síðasta árs
verði seldar, þegar þessa árs
framleiðsla kemur á markað-
inn.
Hollustueiður íra.
Englendingar heimta aS írar
vinni konungi eið, en De Valera
vill þaS ekki.
Dublin, 24. mars.
United Press. FB.
De Valera kvaddi stjórnina
á fund í morgun. Stóð fundur-
inn lengi. Til umræðu var orð-
sending Bretastjórnar út af holl
ustueiðnum. Undirbýr fríríkis-
stjórnin svar sitt. Það kvað hafa
komið fríríkisstjórninni mjög á
óvænt, hve ákveðin Bretastjórn
var í svari sínu, og hve hreint
og beint hún ræddi málið, og
hefir svarið gert fríríkisstjórn-
ina órólega, en hún mun þó ekki
láta neinn bilbug á sjer finna í
því, að láta þingið ráða, hvort
afnema skuli hollustueiðinn eða
ekki. — I orðsendingu Breta
ei að sögn ekki um neinar hót-
anir að ræða, nje vikið að,
hvaða ráðstafana Bretar grípi
til, ef fríríkisstjórnin haldi fram
til streitu afnámi hollustueiðs-
ins. — De Valera mun ekki
kalla þingið saman til funda
fyrr en 20 apríl.
Frá Aknreyri.
Maður hverfur.
Akureyri, FB. 25. mars.
Fyrir tveimur dögum hvarf
maður að nafni Gunnlaugur Ól-
afsson hjeðan úr bænum. Hefir
hann ekki fundist, en hattur
hans fanst í gær við Oddeyr-
artanga. Er álitið, að Gunnlaug-
ur hafi drekkt sjer. Var hann
fyrir nokkru síðan kominn hing
að frá Vesturheimi, hafði orðið
þar fyrir þungbærri sorg, og ver
ið mjög þunglyndur síðan.