Morgunblaðið - 05.04.1932, Blaðsíða 5
Þriðjndaginn 5. apríl 1932.
MorfittttWaMÖ
■|ÉSI
{*M.'. 'l'/,
Smlðrlikisnerð
Beyklaviknr
er nýjasta og fullkomnasta smjörlíkisgerð
landsins.
f
Framleiðir: Ljómasmjörlíki í Vz kg. pökkum.
Ljóma jurtafeiti í lA kg. og Vz kg.
pökkum.
Ljóma tólg í Vt kg. pökkum.
Ljóma matarolíu (Salatolíu). ___
Verksmiðjan er aðeins rúmlega ársgömul og eru
vjelar hennar því af fullkomnari gerð en hjer
hefir þekst áður. — Allur útbúnaður verksmiðj-
unnar gerir það auðvelt að viðhafa hið ítrasta
hreinlæti. — Verkstjóri verksmiðjunnar hefir
stafað við tilbúning smjörlíkis í 12 ár.
Besta sönnunin fyrir gæðum
Llðma-smlörlíkis
er hin sívaxandi sala. Á þeim þrem mánuðum, sem
af eru þessi ári, hefir framleiðslan verið því nær
jafn mikil og á sex mánuðiim í fyrra.
*
Bragðbesta og næringarmesta smjörlíki er og
verður
L|ðma-sm|Brlikl
Deila uið
Eimskipafjelagið.
Hinn 11. f. m. skrifaði stjórn
Eimskipafjelagsins öllum starfs
mönnum fjelagsins viðvíkjandi
því, að kaup allra starfsmanna
yrði lækkað um 12Vi% vegna
hinna erfiðu tíma, og vegna
hinnar sjerstaklega erfiðu af-
komu fjelagsins. Um sama leyti
var byrjað á samningum við
stjórn Sjómannafjelags Reykja-
víkur sem umboðsmann háseta
og kyndara á skipum fjelags-
ins vegna þess að samningar
fjelagsins við þá runnu út 31.
f. m. Stjórn Sjómannafjelags-
ins gerði ekki aðeins að neita
að lækka kaup háseta og kynd-
ara að nokkru leyti hvað þá
heldur um tjeðan 12(4%, held-
ur kom þar að auki fram með
óskir um breytingar á samning-
um þeirra við fjelagið, sem að
ýmsu leyti fóru í þá átt að
auka útgjöld fjelagsins. Stjórn
Eimskipafjelagsins reyndi að
sýna stjóm Sjómannafjelagsins
fram á það, að ef hún hjeldi
fast við þessa afstöðu sína, þá
yrði það til að stór spilla fyr-
greindri viðleitni fjelagsins til
þess að fá 12(4 % kauplækkun
hjá starfsmönnum f jelagsins yf-
ir höfuð, en það varð alt ár-
angurslaust. Þegar svo samn-
ingur háseta og kyndara rann
út 31. f. m., þá skýrði stjórn
Eimskipafjelagsins stjórn Sjó-
mannafjelagsins frá því, að hún
sæi sjer ekki fært að gjöra að
svo stöddu bindandi samninga
fyrir ákveðinn tíma við háseta
og kyndara, meðfram með til-
liti til áframhaldandi tilrauna
til kauplækkunar hjá' starfs-
mönnum fjelagsins yfir höfuð,
en bauð hinsvegar að borga
fyrst um sinn hásetum og kynd-
urum sama kaup og verið hafði.
Hefði þá aðstaðan orðið svipuð
hjá Eimskipafjelaginu eins og
nú er, að því er snertir botn-
vörpungana, þar sem að háset-
ar og kyndarar eru lögskráðir
áframhaldandi með sama kaupi
og þeir höfðu áður, en án þess
að samningar hafi verið gerðir
við Sjómannafjelagið, en stjórn
Sjómannafjelagsins krafðist
þess áframhaldandi, að Eimsk.-
fjel. gerði samninga og tók þess
vegna í því efni harðvítugri að-
stöðu gagnvart Eimsk.fjei held-
ur en gagnvart botnvörpunga-
fjelögunum.
Þegar nú stjórn Eimskipafje-
lagsins hjelt við sitt, þá hjelt
stjórn Sjómannafjel. málinu svo
til streitu, að í gær um miðjan
dag gerðu hásetar og kyndarar
á Goðafossi og Selfossi, sem nú
liggja hjer í Reykjavík, verk-
fall, og jafnframt lögðu hafnar-
verkamennirnir niður vinnu við
skipin, svo uppskipun og fram-
skipun í gær stöðvaðist.
Með því nú að stjórn Eim-
skipafjelagsins taldi sig ekki
geta haldið út í baráttu á þessu
sviði eins og nú standa sakir,
og Goðafoss var nærri því full-
lestaður af vörum og átti að
fara af stað í gærkvöldi, þá sá
stjórn Eimskipafjelagsins sig
knúða til þess að framlengja
samninga við háseta og kynd-
ara, se'm giltu frá 31. mars,
þannig, að samningarnir standi
óbreyttir þangað til annarhvor
aðilja segir þeim upp með
þriggja mánaða fyrirvara, en
uppsögn bundin við 1. apríl árs
hvers.
Sjaldan er á
botninum betra.
Þetta máltæki á ekki
við um RYDENS KAFFI,
sem er gott frá fyrsta
sopa til síðasta dropa.
Fæst í öllum
matvöruverslunum.
Skoðið gluggasýningu okkar —
og gjörið kaup.
5% af allri sölu gefum við Slysavarna-
fjelagi íslands í íslensku vikunni. —
HljóðfærahúsiA, Anstnrstræti 10
og Útibúið, Laugaveg 38.