Morgunblaðið - 05.04.1932, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 05.04.1932, Blaðsíða 4
2 MORGUNBIAÐIÐ Huglvsingadagbðk Ráðleggingarstöð fyrir barns- hafandi konur, Bárug. 2, er op- in fyrsta þriðjudag í hverjum mánuði, frá 3—4. Munið Fisksöluna á Nýlendugötu 14. Sími 1443. Kristinn Magnússon. Brunatrygging er hvergi viss- ari en hjá British Dominions. Þrátt fyrir verðhackkun á tó- baksvörum, eru enn þá margar tegundir af vindlum, cigarettum og Öðru tóbaki með sama verði og áður í Tóbakshúsinu, Austurstræti 17.______________________________ „Orð úr viðskiftamáli“ er nauð- synleg handbók hverjum verslun- armanni. ----- Fæst á afgreiðslu Morgunhlaðsins. Ungbamavernd Líknar, Báru- götu 2, er opin hvern fimtudag og föstudag frá 3—4. Dettifoss kom hingað í gær ■frá útlöndum. Útvarpið og Alþingi. Ákaf- lega margir bæjarbúar munu hafa hlustað á útvarpsumræð- urnar frá Alþingi í gær. Gjall- arhom var sett í glugga í síma- stöðinni, svo ræðurnar heyrð- ust um Austurvöll. En tiltölu- lega fáir voru þar áheyrendur, vegna þess að menn hafa al- ment kosið heldur að hlusta á útvarpið í húsum inni. Nýja fiskbúðin á Laufásvegi 37, hefir daglega nýjan fisk, saltaðan og reyktan. Alt sent heim. Sími 1663. Húsnæði til leigu í Hafnar- firði: Efri hæði hússins Skúla- skeið nr. 2 frá 14. maí, 5 her- bergi og eldhús. Upplýsingar á staðnum eða Lokastíg 25, Rvík. Heitt & Kalt, Veltusundi 1. Sími 350. Heitur miðdegisverð- ur (tveir rjettir) á 1 krónu all- an daginn. Engin ómakslaun. Frímerki. Kaup og skifti á frímerkjum óskast. Georg Kra- mer, Calle Gustavo Becquer 47, Barcelona, Spáni. Athugið! Karlmannafatnað- arvörur ódýrastar og bestar. — Hafnarstræti 18, Karlmanna- hattabúðin. Einnig gamlir hatt- ar gerðir sem nýir. Útbleyttar kinnar eru reglu- legt sælgæti. Fást eins og fleira gott hjá Hafliða Baldvinssyni. Símar 1456, 2098 og 1402. Til leigu í Hafnarfirði nú þegar eða 14. maí sólrík stofa á góðum stað í bænum ásamt ljósi, hita og ræstingu. Upplýs- ingar gefur Hafsteinn Linnet, Linnetsstíg 2, sími 237. ^LXXI. Breytingin. T vær konur áttu sín hvora Krists- myndina. Var önnur myndin af upprisunni. Konurnar báru nú sam- an myndirnar, og þótti þeim and- litsfall Krists ósvipað á myndun- úm. Hugleiddu þær þetta nokkuð, ag sagði önnur: — Það er eins og Frelsarinn hafi breyst við upprisuna. um Gylli, sem er nýkominn frá útlöndum. Var áfengi þetta fal- ið í afturlest milli lofta. Hafði fjölum verið slegið neðan á bit- ana og áfenginu skotið þar á milli og þilfarsins. — Ekki er kunnugt, hver á áfengið, og er málið undir rannsókn. Vöruskrá yfir það helsta, er íslensk framleiðsla nær yfir, hafa forgöngumenn ísl. vikunn- ar sent út í 50 þús. eintökum til v.erslana, með tilmælum um, að þetta blað fylgi hverri vörusend íhgu, sem verslanir afgreiða. Hjálpræðisherinn. Samkoma v.erður í kvöld kl. 8. Ltn. Hilm- ar Andrésen stjórnar. Allir vel- komnir. Danska íþróttafjelagið í Rvík heldur fund annað kvöld kl. 8i/2 í íþróttahúsi K. R. (uppi). Formaður fjelagsins, H. Aa- berg, flytur erindi á fundinum um sund og sundbjörgun, og eru allir Danir, sem hjer eru búsettir, velkomnir á fundinn, og einnig þeir Islendingar, sem áhuga hafa á þessu menning- armáli. Fundurinn er haldinn í tilefni af 25 ára afmæli danska sundsambandsins. Færeysk skúta strandaði að- faranótt mánudags í Selvogi. Þegar komið var á strandstað- inn um morguninn, var skipið mannlaust, því skipverjar höfðu farið í skipsbátnum til Herdís- arvíkur. í dag leggja strand- mennirnir af stað til Eyrar- bakka, og koma ef til vill hing- að í kvöld. (FB). Hafís. Töluvert hafíshröngl er á skipaleiðinni fyrir norðan Langanes. Talsvert íshröngl rak upp á nesið í stórhríðunum á dögunum, en rekur nú aftur til hafs. Enginn ís er sjáanlegur lengra til hafsins. (FB). Leikhúsið. ,,Jósafat“ var leik- inn á sunnudagskvöldið fyrir troðfullu húsi, og leiknum tek- ið betur en nokkurn tíma áður. Talað hafði verið um, að ,,ís- lenska vikan“ auglýsti vörur á milli þátta, en þegar til átti að taka, reyndust hinar „lifandi auglýsingar“ svo Tyrirferðar- miklar, að ekki var tiltök að koma þeim fyrir á þeim stað, sem þeim hafði verið ætlaður. Verður auglýst með þeim á samkomu þeirri, er „ísl. vikan“ heldur í Iðnó nú á föstudags- kvöldið. z Aðalfundur U. M. F. vervak- anda verður haldinn í kvöld kl. 9 á Laugaveg 1. „Kensluprófastar'‘. Hjer birtast nöfn kensluprófastanna og geta menn af þeim sjeð, hvaða verkefni þessum mönnum er aðallega ætlað að vinna: Steingrímur Arason, í Reykjavík. Helgi Hjörvar, í kaup- stöðum utan Rvíkur. Bjarni M. Jónsson, í Gullbringu- og Kjósar- sýslu. Hervald Björnsson, í Borg- arfjarðarsýslu. Sveinbjörn Jónsson í Snæfellsnessýslu. Jóhannes B. Jónsson úr Kötlum, í Dalasýslu. Hjörtur Hjálmarsson, í A.-Barða- strandarsýslu. Jónas Magnússon, í V.-Barðastrandasýslu. Friðrik Hjartar, í V.-lsafjarðarsýslu. Björn H. Jónsson og Gunnar A. Jóhann- esson, í N.-ísafjarðarsýslu. Guð- mundur Þ. Guðmundsson og Bjarni Þorsteinsson, í Strandasýslu. Guð- mundur Björnsson, í V.-Húnavatns sýslu. Kristján Sigurðsson, í A,- Húnavatnssýslu. Friðrik Hansen, í Skagafjarðarsýslu. Snorri Sigfús- 5jóuátryggingar. Brunatryggingar. FJlí5len5kt fjelag. SjávðtryggiRgaifjeiag Islands h.i. Eimskip 2. h»d, Reykjavik. KVENTOSKUR Afai* fallegt úrval komið i þessarl viku. Vttrusýningin er i afgreiðslusal okkar. Leðnrvðrndeild Hijóðfærahnssins. Brauns-hús. Sonur Lindberghs og barnfóstrah, sem vjek sjer frá meðan drengn- um var stolið. Eftir síðustu fregnum er búist við, að bófarnir hafi barnið á smyglaraskipi úti í hafi, son og Einar M. Þorvaldsson, í Eyjafjarðarsýslu. Egill Þorláksson, í S.-Þingeyjarsýslu. Dagur Sigur- jónsson, í N.-Þingeyjarsýslu. Lúð- vík Þorgrímsson, í N.-Múlasýslu. Sigdór Brekkan og Eiður Alberts- son, í S.-Múlasýslu. Óli Kr. Guð- brandsson, í A.-Skaftafje'llssýslu. Halldór Sölvason, í V-Skaftafells- sýslu. Sigfús Sigurðsson, í Rang- árvallasýslu. Ingimar Jóhannsson og Þorvaldur Sigurðsson, í Árnes- sýslu. l-iP!|3'-! j Útvarpið í dag: 10.10 Veður- fregnir. 12.15 Tónleikar. Frjettir. 12.30 Þingfrjettir. 16.00 Veð- urfregnir. 17.00—19.00 Útvarp frá Alþingi: Eldhúsdagnr í Nd. 19.00 Erlendar veðurfregnir. 19.05 Þýska, 2. fl. 19.30 Veðurfregnir. 119.35 Enska, 2. fl. 20.00 Klnkku- sláttur. íslenska vikan. Búsafurðir. (Sig. Sigurðsson, búnaðarmálastj.). 20.30 Frjettir. 21.00—24.00 Útvarp frá Alþingi: Eldhxisdagur í Nd. Vetrar-heiðlóur í Mosfellssveit. Fyrir skömmu, nálægt Góuttokum, var þess getið í blaði, að heyrst hefði lóukvak í Mosfellssveit, og af því ályktað, að þá væri „lóan kom- in“. Það mun sjaldgæft, að ekki sjeu eftirlegulóur þar í sveit á vetrum. Þegar hart er á jörð, halda þær sig í hverahverfunum, þar sem eigi festir snjó nje klaka vegna jarðyls. Nú á þorra sá jeg tvær hjer hjá Grafarholti. B. B. Aumlegri hefir framkoma dómsmálaráðherrans vart ver- ið annan tíma, en við eldhús- dagsumrælðurnar í gærkvöldi. Hann átti að verja fjársukk sitt og sóun úr ríkissjóði, en hafði ekki önnur ráð, en lýsa æfiat- riðum nokkurra gjaldþrota fyr- irtækja — eins og hann vildi leiða athygli útvarpshlustenda ,að því, að úr því þessi fyrirtæki .hefðu farið á höfuðið, þá myndi ‘eins geta farið með ríkissjóðinn. Að ræðulokum. Er Tryggvi Þórhallsson hafði lokið máli sínu í Efri deild í gær, og varp- aði því fram, að stjórnarand- istæðingar yrðu að þera ábyrgð 'á gerðum Alþingis, varð útvarps íhlustanda að orði: „Já, þetta er eftir þeim Framsóknarmönn- um. Þeir segja, sem sje, að nú, þegar þeir eru búnir að setja 'alt á hausinn, þá sje það á á- byrgð andstæðinganna að koma þjóðinni út úr öngþveitinu aft- ur! Skólahlaupið fór fram síðastl. sunnudag og tóku þátt í því nemendur frá Iðnskólanum og Reykholtsskóla. Urslitin urðu þau, að Iðnskólinn sigraði með 10 stigum, átti fyrsta, þriðja og sjötta mann, sem komu að marki. Reykholtsskólinn átti annan, fjórða og fimta mann og fjekk 11 stig. — Það er undarlegt, hvað þáttaka er lít- 11 í skólahlaupinu. Hvers vegna taka Laugarvatnsskólanemend- ur ekki þátt í því? Við þann skóla á þó að leggja mikla stund á íþróttir, og er miklu fje til íþróttakenslu varið. Og ekki er Laugarvatnsskóli svo útúr- skotinn, nje svo langt frá Rvík, að hann ætti ekki að geta tek- ið þátt í skólahlaupinu.— Þetta er nú í þriðja sinn í röð, að Iðnskólinn sigrar í þessu hlaupi og fengu því nemendur hans vefrðlaunabikarinn !til eignar. Er það bæði skólanum og nem- endum hans til frægðar, og sje iðnnemum þökk fyrir áhuga sinn. Á næsta ári mun K. R. gefa nýjan bikar til þess að keppa um. — í hlaupinu varð fyrstur að marki Ólafur Guð- mundsson. Hljóp hann vega- lengdina á 8 mín. 52,4 sek. Annar í röðinni varð Valgeir Pálsson á 8 mín. 54,4 sek., og hinn þriðji Halldór Stefánsson á 8 mín. 59.5 sek. Allir eru þeir úr K. R. Morgunblaðið er 12 síður í dag. Bróðir Hindenburgs forseta, Bernhard v. Hindenburg rit- höfundur, er nýlega látinn í Lii- beck, 74 ára að aldri. Jámbrautarverkfall á Spáni. Búist er við því, að bráðlega muni hefjast verkfall meðal járnbrautarmanna á Spáni, ef stjórninni tekst ekki að miðla málum milli þeirra og járn- brautareigenda. Heimta verka- menn launahækkun, þrátt fyrir það, þótt tekjur járnbrautanna fari síminkandi. Búa að sinu. ■Framleitt og keypt og fargað er, frumleikinn horfinn mönnum, forðast að nota fisk og smjer, fólkið með skemdum tönnum. Oft það sem kemst í eitthvert verð, ■er selt til stórra baga, mörg er sú stund sem fer í ferð, flytja og að sjer draga. Verslun er góð í hófi höfð, helst svo að eins nægi, verða þá ekki verkin töfð, velflest í góðu lagi. Lifa á því sem landið gaf, láta þó sjerhvern velja. Græða á því sem gengur af greiðlega öðrum selja. i Ingvar Guðmundssom

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.