Morgunblaðið - 03.05.1932, Síða 2
MORGUNBIAÐIÐ
|M|n mummmww
)) HaTHM & Olsbni ((
Bakarar!
Fengnm með e.s. „Brnarfoss
Hveltl
Cream of Maaitoba,
Cream of Lothians,
Gilt Edge,
Flirsykor, danskan
Pressnger,
Þnrger.
Hnmla.
Ikki er öii vitleysan eins.
Eftir Ól. B. Björnsson.
A Alþingi því er nú situr, hefir
icomið fram tillaga til þingsálykt-
unar um fækkun prestakalla, frá
Vilmundi landlækni Jónssyni. Er
þar gert ráð fyrir að stjórnin leggi
J'yrir næsta þing, frv. til laga um
nýja skipun prestakalla, þannig að
prestsembættum verði fækkað til
mikilla muna, enda leggi stjórnin
jafnframt fyrir þingið frv. til laga
um almennar verslegar nafngiftir
barna, hjónavígslur og útfarir. —
Fylgir þingsályktun þessari, grein-
argerð ásamt frumvarpi um þetta
•efni.
Frumvarp þetta er vitanlega eng
in lækning á neinum þeim meinum,
sem nú þjá þjóð vora mest, en
það munu margir líta svo á, að
það geti orðið til að fjölga þeim
enn meir en orðið er. Andi þessa
frumv., og greinargerðin ber það
• með sjer, að þetta, þó lítið sje,
sje nægjanlegt spor í áttina., ef
að lögum verðiir til þess a§ af-
nema, þegar alt er rjettilega und-
irbúið, alla presta og kirkjur. Með
lies.su og ýmsu öðru, á að ganga
íötót og ákveðin skref að því marki
að útrýma allri kristilegri starf-
semi úr landinu.
Mjer er ekki kunnugt um, að
r.ein lög banni að gefa barni nafn
án þess prestur framkvæmi þá at-
höfn, heldur ekki er ferming nein
skylda að lögum nú orðið, enda
liafa það víst flestir eins og best
á við þvern einn_ Einstaka menn
fyr og síðar hafa ekki látið skíra
<'ða ferma börn sín, liefi jeg heyrt
að flutningsmaður þessa frum-
varps sje einmitt einn af þeim.
Það lítur því helst, út fyrir að
þeim sje ofraun að líða það, að
aðrir geti hindrunaríaust notið
blessunar kirkjunnar, og starfs
þeirra manna, sem enn hafá frú
á því á menningaröldinni!!!, að
fvrst og fremst beri að leiða
liörnin til Jesú, en banna þeim
]>að ekki. Heldur eru ekki til lög
sem banna þá greftrunarsiði sem
hverjum sýnist. Jeg býst líka við
að flutningsmaður væri svo hug-
jiður áð 'fara þ'ar sínar eigin koppa-
irötuv: Eh'ifteð ffv. þessu er hann
]>á víst áð hugsa um sálarneyð
])eirra manna, sem ekki hafa hng-
dirfð til að nota i hverju tilfelli
]>á siði sem best á við hann. Ann-
ars er ýms óvani í þessu sambandi
að leggjast niður án allra laga.
svo sem erfisdrykkjur, o. fl. Eins
og menn vita eru nú í gildi lög
um ■ borgaralcgt hjónaband. Eftir
j að þau gengu í gildr, var það um
i stund móðins að gifta sig hjá fó-
| geta, en nú er þeim altaf að fækka
sem ganga í bqrgaralegt hjóna-
hand.
í 6. gr. frv., er talað um ein-
hverja eigendur og umráðamenn
kirkjugarða, en lögin kveða ekk-
ert á um það, hverjir þeir eig-
endur og umráðamenn sjeu, þ. e.
hverjum sje skylt að eiga og við-
haída kirkjugarði. Ekki er frjáls-
lyndinu fyrir að fara, því ef t.
d. bálstofa kemur upp í kaupstað,
þá skulu allar útfarir fara þar
fram. IJndanþágu má þó veita hjer
frá, ef skilríki koma frá þeim
Jlauða. Ef ágreiningur rís hjer af,
á að skjóta honum undir úrskurð
dómsmálaráðunéytisins. Þeir sem
þekkja skrifstofuganginn, geta því
búist við þegar til slíks kænii, að
svo gæti farið, að lík yrði að
standa nokkuð lengi uppi!!! Eftir
frv. má og hafa helgisiði ef skil-
ríkin eru nóg, og öllu því má
skjóta sömu leið til úrskurðar. —
Fara nú höftin að gerast nærgöng-
ul þegar það má ekki lengur vera
algert einkamál manna, án allra
skilríkja hvernig menn haga út-
för sinna nánustu.
Greinargerðin byrjar með al-
mennum hugleiðingum um það,
livað möunum vaxi í augum fjöldi
embættismanna, og hvað mjög tíð-
ar kröfur komi um fækkun þeirra
til að spara ríkissjóði útgjöid. eða
til að losa fje, senv verja mætti
til annars þarfara. í næstu máls-
grein er því svo slegið föstu, að
'ekki sje líklegt. að þessar óskir
fáist uppfyltar, því ]«> ]>essar
óskir sjeu látnar í ljósi, sje sífelt
■ krafist meiri og flóknari starfa af
I ’-íkinu. En frá þessu segir höf. að
, sje ein undantekning, því jafn-
framt því sem krafist sje meira
af ríkinu í veraldlegum efnum,
hirði menn minna og miuna um
sálarheili sína og andlega velferð.
Það er alveg rjett, að það eru
margir sem hirða minna og minna
mn sína eigin og anftara sálarheill.
Þó býst jeg við, áð enn sje í land-
inú eigi a]l-lítill hópur manna, er
lætúr sig nokkuru skifta þe^si mál,
og halda því fram. að sambúð
manna verði ekki betri, nje and-
legur þroski þeirra meiri, þó felt
sje niður alt kristilegt starf. Jeg
býst þess vegna við að enn sje
það alt of djarft úr flokki talað,
að gera sjer í hugarlund, að slíkur
meiri hluti sje til staðar.
Þá gerir höf. all-verulega og
rjettilega grein fyrir því, hvað
prestastjettin hafi alla tíð verið
roikil fyrirmyndarstjett. Þeir voru
alt í öllu. Ráðgjafar manna í hvers
konar málefnum, aðalmenn í sveit-
ar- og hjeraðsmálum, frömuðir í
búskap, kendu, eða höfðu umsjón
með alUri fræðslu, og margir hverjir
hepnir læknar, og svona má lengi
telja. Höf. heldur því ekki fram
sjerstaklega, að prestar nú, sjeu
ekki álíka hæfir í sínum verka-
bring eins og áður var. Heldur
dettur manni í hug að til grund-
vallar liggi, að almenuingur sje
nú farinn yfir höfuð, að slaga
svo hátt upp í þessa lærðu menn,
klerkana, að til þeirra sje ekkert
iengur að sækja í þeim efnum, og
geti flestir og kjósi að leiða þar
sjálfan sig. Enda þótt mikið megi
nú láta af mentuninni, býst jeg
við að finna megi margar sveitir
í þéssu landi, sem söknuðu vinar
í stað þar sem presturinn væri,
frá því að hafa áhrif á barna og
unglingafræðslu í sínu hjeraði. —
Og enn má víst finna presta, sem
forstaða hrepps- og hjeraðsmála
hvílir á, að eltlei all-litlu leyti, ein-
mitt af þörf. En þar sem eftir hÖf.
kenningu þurfi prestanna nú ekki
lengur með til að vera fvrirmynd
' hinum ýmsu borgaralegu málum,
þá sje best að láta þá ,,róa“, því
hið eiginlega prestastarf, sem og
starf kirkjunnar yfir höfuð, er
einskis virði í augum þessara
manna.
Jeg vildi sannarlega óska, að
þjóðin yrði sem fyrst svo gagn-
mentuð, að prestarnir gætu gefið
öðrum það eftir, að vasast í hvers
konan óskyldum málum, sem skapa
arg og óróa, þrætur og alls konar
illindi. En það væiú gleðilegt ef
þjóðin yrði jafnsnemma svo þrosk-
uð að andlegu atgerfi, að hún
mintist Iiinna mörgu afreka sem
prestar og kirkja þessa lands hafa
unnið í þúsund ár; að hún teldi
það heiður sinn og metnað í senn,
ef hún greiddi kirkjunni nokkúð
af þeirri þakklætisskuld, með því
að hún leyfði þessari stjett nií,
að gefa sig alveg og einhuga við
þeim málum einum, sem fyrst og
fremst beyra kirkjunni til.
Höf. gerir mjög lítið úr sálu-
sorgarstarfi prestanna og segir að
þeir tali mest um það á sýnodus,
en annars staðar verði þeirra ekki
vart. Þetta er vægast sagt, ekki
rjett, því margur prestur telur það
aðalstarf sitt og yndi og leggur
mikla rækt við það, þekki jeg
nokkra sem eru framúrskarandi
menn á því sviði. Það er vitamlegt
að prestar hafa oft og tíðum hjálp-
að til að lækna andleg mein sinna
sóknarbarna; er hægt að henda á
presta, sem að minsta kosti jafn-
margir sækja til eins og meðal
læknis svo ekki sje of mikið sagt.
En þau störf eru ekki þess eðlis
að gera megi skýrslu um þau, eins
og þegar læknir krukkar í fing-
ur, eða setja þau í blöðin, eins og
begar þingmaður skammast á fund
um, eða ungar fit vanhugsuðu frv.
Það gengur eins og rauður þráður
í gegn um alla þessa greinargerð,
að starf prestsins sje í höf. augum
ekkert orðið annað en að skíra,
ferma. gifta og jarða.
Frh.
Kvenfjelag þjóðkirkjunnar í
Hafnarfirði heldur síðasta fund í
kvöld kl. 8.30 í húsi K. F. U. M.
Attrcrðisafmceli.
Guðmundur Sveinbjörnsson
bóndi á Yaldastöðum í Kjós, er
áttræður í dag\
Hann er einn hinna merkustu
manna í bændastjett hjer um
sveitir. Hann hefir búið allan bú-
skap sinn á Valdastöðum, fyrir-
myndarbúi. Er heimili hans kunn
ugt fyrir myndarskap og gest-
risnu. Hefir hona hans, Katrín
Jakobsdóttir, verið honum sam-
hent um að gera garðinn frægan,
svo sem allir hinir mörgu vinir
þeirra vita. Þau eiga 5 börn á
lífi af 9 börnum, er þau eignuð-
ust, og eru þau börn öll sínurn
góðu foreldrum samboðin.
Guðmundur á Valdastöðum hef
ir verið dugnaðar- og þrekmaður
hinn mesti, og ber það enn með
sjer, þrátt fyrir aldurinn, að
hann hefir verið karlmenni á
vöxt og afl. Hefir honum notast
vel af burðum sínum og karl-
mensku í búskap og framkvæmd-
um.
Jeg kyntist, Guðmundi á Valda-
stöðum fyrst fyrir nokkrum ár-
um síðan, og hefi haft mikla á-
nægju af þeim kynnum. Það er
ævinlega gaman að hitta fyrir
aldraða menn, sem lokið hafa ó-
sviknu dagsverki, og eiga enn á
efri árum óveiklað andans fjör
og krafta, sem ungir væru, og
unna öllu frelsi og heilbrigðum
framförum. Þeif. bera þess
gleggstan vott, að enn er kraft-
ur og kjarni til í íslendingum.
Einn þeirra manna er Guðmund-
ur á Valdastöðum. Þáð er bæði,
að hann hefir verið þróttmikill í
lund, glaður og reifur, og hefir
auk þess notið hamingju heima
fyrir, þrátt fyrir sorgir, er sóttu
heim, enda hefir hann líka fram
til þessa staðist furðu vel í Í’ang-
brögðum við Elli.
Guðmundur er rammíslenskur
í anda, bókhneigður, víðlesinn og
fjölfróður. Hefir hann aflað sjer
mikillar mentunar, lesið flest það
íslenskra bóka, sem til verður
náð, en auk þess margt og mikið
í Norðurlandabókmentum. — Er
gaman við hann að tala um allan
þjóðlegan fróðleik, því að þar er
hann frábærlega vel að sjer. I
viðræðum er hann skýr, skemtinn
og hnyttinn.
Guðmundur á Valdastöðum er
frá mínu sjónarmiði sannur og
ósvikinn íslendingur, sem ann
því mest í þjóðlífi sínu að fornu
og nýju, sem vitni ber um dáð
og drengskap, en hefir djúpa og
rótgróna andstygð á því siðferð-
islosi, læpuskap og dáðleysi, sem
er eitur í beinum hverrar þjóð-
ar. Er það mjög að vonum, því
ð sjálfur hefír hann verið óveill
og ósjerhlífinn dugnaðarmaður
Engar cigarettur, sem
seldar eru hjer á landi
fá jafn abnent lof og
„TEOFANI“
Því veldur hið ljósa,
ilmandi, egypska tó-
bak, sem í beim er. —
Aldrei hefir það borg-
að sig1 betur en nú, að
reykja
TEOFANI.
TEOFANI & Co. Ltd..
London.
og sómi stjettar sinnar.
Margir munu minnast Guð-
mundar og Valdastaðaheimilisins
í dag. Og mjer er sjerstaklega
ljúft, vegna ágætrar viðkynning-
ar, að senda hinum merka bænda-
öldungi kveðju á þessum tíma-
mótum ævi hans, og óska honum
heilla öll ófarin spor.
Ámi Sigurðsson.
Innbrot í barnahœli
Oöö-Felloooa.
Nýlega hefir verið brotist inn í
Barnaliæli Odd-Fellowa við Sil-
ungapoll. Þrælmenni þau, er þar
hafa verið að verki, Ixafa opnað
lilera á húsinu, brotið rúðu og með
því getað opnað glugga, sem
kræktur var að innanverðu og
skreiðst þar inn. Þjófahyski þetta
hefir stolið allmiklu af borðbúnaði
.hælisins o. m. fl. og er nú verið að
rannsaka hve mikið það liefir ver-
ið. í gær fóru t.veir forstöðumenn
hælisins þangað u]>p eftir, ásamt
lögreglnþjóni einum hjeðan úr
bænum, sem lögreglustjóri hafði
góðfúslega látið þeim í tje til að-
stoðar, jafnskjótt sem það varð
kunnugt að inn hafði verið brotist
Einhvepja ..eftirlátna muni“ þjófa
hyskis þessa og varmenna, höfðu
þeir fundið í berbergjum hússins,
lögregluþjónninn og mennirnir
tveir, er með honum voru, og er
vonandi að munir þessir, meðal
ýmisl. aimars, er þeir uppgötvuðu
í ferð sinni, verði til þess að leiða
óþokkana fram í dagsbirtuna og
láta þá fá makleg málagjöld.
Smyglari ákærir lögreglu.
Finslti vínsmyglarinn Nisko lief-
ir boðið dómsmálaráðuneytinu að
ljósta up]> ýmsu um það hvernig
finska lögreglan hjálpar smyglur-
um í starfi þeirra og er þeiin
meðsek. Hefir hann nefnt ti! ýmsa
kunna lögreglumenn. Segir hann
að þeir hafi verið í vitorði með
smyglurunum gegn ágóðaþóknun,
og sett það líka sem skilyrði að
fá að vita hverjir væri kaupendur
að áfenginu, til þess að geta tekið
þá og refsað þeim. ,