Morgunblaðið - 10.05.1932, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 10.05.1932, Blaðsíða 2
r* MORGUNBlAÐIÐ Frú Ingunn Blundal áttræð. montunar, sem eykur sálarsýn, efiir andlegt lieilbrigði, og livetur til fróðleiks æfilangt. Frú Ingunn er víðlesin, ljóðelsk og listelsk, en hún þolir illa að skáldgyðjunni sje misboðið, nje heldur feðra- tungunni. Vel ber hún árin sín áttatíu; ung í anda, frá á fæti, hress í bragði, ber hún aðalsmerki sanni*- a ■ æsku, og minnir enn á failegu blómarósina í Steinnesi. Frú Ingunn fæddist að vorlagi, þegar vex birta og vaknar líf. Vorgeislarnir fylktu sínu fagra liði um hana, þeir liafa verið stöðugir förunautar hennar um áttatíu ár, og jeg veit að þeir yfirgefa hana aldrei. Guð blessi áttræða unglinginn. Oft er gaman að líta um öx!l, er áfanga lýkur á ferðalagi. — Samferðamennirnir skemta sjer þá við að ryf.ja upp ferðaminningarn- ar og njóta á ný þess unaðar er ferðin veitti þeim. A áttræðisafmæli frú Ingunnar Blöndal veit jeg að margir líta um öxl, — Iíta til liðinna samferða- stunda, og minnast ])eirra bæði með gleði og þakklæti, því óhætt nlá segja, að vart getur betri föru- naut en frú Ingunni. Hún á svo marga þá kosti til að bera, sem Ijettir fyrir fæti og bætir lund samferðafólksins. Hygni, trygð og háttprýði, glað- værð, stilling, góðvild, eru eigin- leikar, sem frú Ingunn hlaut að i'öggugjöf, og sem hún hefir um átta tugi ára, þroskað í hinum margbrotna skóla lífsins. •Jeg hefi notið vináttu frú Ing- mrnar í hjerumbil aldar þriðj- ung; eru mjer minningarnar um vinfesti hennar og drenglund, iiaiia dýrmætar, svo niunu fleiri mæla á þessiun degi. __ í dag bera.st áttatíu ára afmælis- barninu hlý skeyti hvaðanæfa, bæði sýnileg og ósýnileg; og hug- heilar vinaóskir um blessun Guðs og frið á óförnum árum. Frú Ingunn er af góðu bergi brotin í báða ættleggi. Foreldrar hennar voru merkishjónin síra Jón Jónsson í Steinnesi, og kona hans frú Elín Einarsdóttir frá Skógum. Föðurætt hennar er hin þekta Bólstaðahlíðarætt, en í móðurætt er hún fjórði maður frá hinum þjóðkunna presti síra Jóni Stein- grímssyni. Frú Ingunn ber vel uppi ágæti forfeðra sinna, húh er gædd t'jöl- hæfni að gáfum, en allra besti kosturinn hennar, er hið mikla, kærleiksríka hugarfar, sem aldrei dómfellir, en ávalt reynir að bera í brestina. Hún hefir því eignast marga vini um æfina, ekki síst á meðal þeirra, sem búa forsælu- megin í lífinu. Og frú Ingunn er sannur vinur, það vita þeir best, sem leitað hafa á hennar fund, er örðugleika bar að dyrum. Ráðin Itennar voru góð, og hún brást uldrei traustinu. Frú Ingunn er ein hin allra prúðasta kona í framkomu, skemti leg og orðheppin, enda er jafnan glatt á hjalla, þar sem hún er, þó ávalt stilt við það hóf, sem ein- kennir alt fas frú Ingunnar. Hún naut góðrar mentunar á A ngri árum, þótt ekki væru skóla- setur svo sem nú tíðkast. foreldrahúsunum var lagður hiun. trausti grundvöllur þeirrar Guðrún Lárusdóttir. Sjötug5 afmceli. Magnús Ólafsson, Ijósmyndari er sjötugur í dag. Hann ólst upp í Stykkishólmi og byrjaði snemma að stunda versl- nnarstörf, og stundaði þau bæði í Stykkishólmi og á Búðum í Stað- arsveit. Þaðan fór hann til Stylck- ishólms aftur og var þar nokkur ár við verslun, fluttist þaðan suð- ur og var í 19 ár við Thomsens- ver.slun á Akranesi, og stjórnaði þeirri verslun um þann tíma í 15 ár. Hingað til Reykjavíkur kom Magnvis árið 1901 og hóf þá þegar æfistarf sitt, sem er ljósmynda- gerð. Hefir hann að mörgu leyti verið brautryðjandi á því sviði og er þar merkilegur niaður. — Fiann byrjaði á því að taka ,,stereoskop“-myndir hjer. —- Einu sinni, þegar hann fór í hringferð í gamla daga með „Laura“ gömlu og var kominn til Akureyrar, langaði liann mikið til þess að taka þar ,,stereoskop“-mynd af jliúsbruna. sem ]>á varð þar. En hann hafði enga Ijósmyndavjel. Hvað varð honum ]>á fyrir? Hann bjó sjer til ljósmyndavjel vvr smjör líkiskassa og gleraugum. Sagaði hann gat á gaflinn á kassanum, setti glerin ]>ar í hvert á móti öðru, og tók mynd með þessu. Þetta er eitt af mörgum dæmum um það, liver snillingur Magnús Ólafsson er. En þegar hans er minst á þessum degi má ekki gleyma því, að hann hefir verið fyrstur allra manna til þess að festa á ljósmyndir marga fegurstu staði lands vors og myndir af náttúruhamförum, svo sem Heklu- gosinu, Hvítárflóðinu mikla o. m. fleira. Carlsbergsjóður hefir veitt 150 þús. kr. til aukins landnáms i Austur-Grænlandi. (Sendih.frjett), Kosningarnar í Frakklandi. París, 9. maí. United Press. FB. Seinni liluti kosninganna til full- trúadeildar þingsins fóru fram í gær. Samkvæmt opinberri tilkynn- ingu hafa kosningaúrslitin orðið þessi. Flokkar þeir, sem styðja Herriot, hafa fengið þingsæti, sem lijer segir: Róttækir jafnaðarmenn (radical socialists) 156, sameinað- ir jafnaðarmenn (unified social- ists) 129, lýðveldis og' óháðir jafn- aðarmenn (republican and ind- pendent socialists) 36. óháðir rót- tækir 61. Flokkarnir, sem eru andstæðir Herriot, hafa fengið þingsæti, sem hjer segir: Sambandsflokkur lýð- veldismanna og demokrata (re- publicandemocratic union) 76, ó- háði hægriflokkurinn (Right Inde- pendents) 28, vinstri lýðveldisfl. 72 (left repub'licans)), íhaldsmenn 5. conservatives), jafnaðarní.-kom- mvinistar (communist-socialists) 11, kommúnistar 12. demokratar (po- pular democrats) 16. — Kosning- arnar fóru rólega fram vegna frá- falls Doumers. Sigur Herriots. Stjórnin beiði&t lausnar. Painlevé forsetaefni. ParLs, 9. maí. United Press. FB. Ríkisstjórnin hefir ákveðið að beiðast lausnar á morgun (þriðju- dag). Samkv. opinberri fullnaðar- skýrslu um úrslit kosninganna bafa þeir fiokkar, sem styðja Herriot fengið 389 þingsæti, en þeir flokkar sem styðja Tardieu 198. Painlevé hefir tilkynt, að hann gefi kost á sjer sem rílrisforseta- efni. Fráfall Doumers. Þjóðarsorg. París, 8. maí. United Press. FB. Ríkisstjórnin hefir gefið út nýj- an boðskap til þjóðarinnar og vottað Madame Doumer hluttekn- ingu í sorg liennar. I þjóðarboð- skapnum er tilkynt, að þjóðþingið komi saman á þriðjudag, en út- förin fari fram á fimtudaginn ke'mnr. Líkið verður jarðsett í Pantheon, þar sem ýmsir mætustu synir Frakklands eru grafnir, svo sem Voltaire Rousseau, Victor Hugo, Emile Zola o. fl. Tilkynt er,. að þjóðarsorg skuli standa yfir í 40 daga, vegna frá- falls forsetans. General major Castenskjold mæt- ir við litför Doumers fyrir hönd konungs og leggur blómsveig á kistu hans frá íslendingum og Dönum. --------------------- Fyrirleatrar dr. Nörregaards prófessors. Eins og tilstóð byrjaði dr. Nörre- gaard háskólafyrirlestra sína á laugardaginn kl. 6 og annan fyrir- lesturinn flutti hann í gærkvöldi. Báðir voru fyrirlestrar þessir á- gætir og sýndu að hjer er fyrir- lestramaður á ferðinni, sem hefir einstakt vald á efninu. DiMarmMgQLsgM Nýkomlð: Flórsykur { Rúgmjol { Hveitl tter | Belgískur. Danskur. Blegdamsmöllen. Nobis. Cream of Manitoba. Gilt Edge. Pressuger. Þurger. Klðiiarapiðss til vörugeymslu eða fyrir verkstæði, ca. 180 ferm. gólfflöt- ur, til leigu í miðbænum. Menn semji við Eggert Claessen hrm. fyrir 14. þ. m. 14. maí. Lampar flytjast ódýrast í bænum. Hringið í síma 1553 og ákveðið tíma. — Raflagnir og viðgerðir ódýrastar og fljctt og vel af hendi leyst. Jðn Úlafsson & Aaberg - Langaveg 58. Prðf utsnsKðlaharifl. Miðvikudaginn 11. maí, kl. 1 e. m. eiga öll börn í Hafn- arfirði, sem hafa verið utanskóla í vetur að koma til prófs í barnaskóla Hafnarfjarðar. Skólastjórinn. Hllluoappir og hilluborðar, kreppnpappír. nmbnöapappír og teiknistifti hví! og míslit f Bðkaverslun Sigfðsar Eymundssnnar og Bókabáð Anstnrbajar B. S E. Lv. 34. í fyrri fyrirlestrinum lýsti próf. hinu andlega umliorfi, sem Ágúst- ínus ólst upp og tiklrögunum til ],ess, hversu hann dróst að minni dulrænu stefnu Manikea-flokksins knúður af þrá eftir sannleikanum og hinni sönnu spelti, sem lestur ritsins Hortentíus, eftir Cicero, liafði vakið í sáht hans. 1 síðari fyrirlestrinum gerði dr. N. grein fyrir því hvernig Ágúst- ínus, eftir komu sína til Róms kyntist höfuðritum nýplatónsku stefnunnar, eins og hún sjerstak- Iega kemur fyrir sjónir lijá Plitin- usi. og þeirri baráttu milli liolds og anda, efnisheims og hugsjóna- lieims, sem einkennir þá stefnu. Sýndi dr. N. fram á livernig á því stóð, að Ágústínus gat orðið liugfanginn af þeirri stefnu, svo að hún jafnvel kom honum fyrir sjónir sem hin sanna mynd krist- indómsins. í næstu tveimur fyrirlestrum sín- um (í dag og á morgun) ætlar dr. N. að gera í hö.fuðdráttunum grein fyrir hugsanaheimi Ágúst- íns og álirifunum af starfi þessa fjölskrúðuga, víðfeðma og frum- lega mikilmennis. - •-**&&**■—-— . | JH XCII. Fjörugt. renghnokki er myrkfælin var, bað konu um fylgd innanbæjar milli búrs og baðstofu. Var hún treg til fylgdarinnar, og hug- hreysti dreng með því, að hann væri aldrei einn, hvar sem hann l’æri, því Guð væri altaf með lionum. Þetta stoðaði ekki. Konan varð að láta fylgdina í tje'. Er fram í göngin kom ávarpaði drengur konuna, og sagði: — Nú gengur það fjörugt, mi erum við þrjú. Hún spurði hvað hann ætti við. — Jú — þú og Guð og jeg.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.