Morgunblaðið - 29.05.1932, Síða 3

Morgunblaðið - 29.05.1932, Síða 3
] IRdHðttttUa^ • H.f. Arvkkur, Rerkj&rlk. • • Rlt*tJ6rar: Jön KJartanaaon. Valtýr Btefánaaon. « Rltatjörn og afarelBala: •*• Auaturatrntt S. — Staal 10«. • AuslýalnBaatjörl: H. Hafbarr. *• Aufflýalnffaakrlfatofa: ' • Auaturatrntl 17. — Siaal 70*. • Heimaafmar: . J Jön Kjartanaaon nr. 741. - • Valtýr Stefánaaon nr. 1SS4. • E. Hafberc nr. 770. ; J Áakrlftagrjald: . • Innanlanda kr. S.00 & mánuSl. '* Utanlanda kr. S.SO & aaáauBL ■ • t lauaaaölu 10 aura elntakiB. SO aura m#8 Leabðk. Eáðuneyti forsætisháðherra hef- ir sent F.B. eftirfarandi tilkynn- ingu (dags. 28. mUí): „Konungur hefir tekið lausnar- beiðni ráðherranna til greina og óskar að þeir annist áfram em- hætti sín þangað til ný stjórn hefir verið mynduð. Eins og fyr hefir verið frá skýrt, benti Tr. Þórhallsson á JiSgeir Asgeirsson sem líklegan til nð mynda nýja stjórn. Sneri því konungur sjer til Ásg. Ásg. með tilmæli um, að mynda stjórn. Tak- íst sii stjórnarmyndun, mun til- kynning um það væntanleg fljót- lega. en þó er óvíst að hún geti komið á morgun. E S J A Bráðabirgðaskoðun fór fram á •'Skipinu í Stykkishólmi í gær, og reyndust skemdir það miklar, að -ókleift var að halda strandferð- inni áfram. —- Var í gær unnið að því, að þjetta skipið og kem- ur það svo liingað til frekari skoð- raiar og aðgerðar. Kaupdeila á Akureyri. Akureyri FB. 28. maí. Kaupdeila. stendur yfir hjer út af kaupgjaldi fiskverkunarkvenna Vill verkakvennafjelagið halda fyrra árs kauptaxta, því nær ó- ibreyttum, en fiskverkendur lækka 3iann til muna. Halda þeir því fram, að með miverandi fiskverði nemi verkunarkostnaðurinn eftir faxta verkakvenna.fjelagsins nær- felt 30% af söluverði hinnar verk- nðu vöru ennfremur að markaðs- verð þessarar vöru sje svipað nú <og fyrir stríð, en verkunarkostn- aðurinn hækkað um 500—600%. Kauplækkun sú sem fiskverkendur fara fram á, nemur 20% af tíma- kaupi í dagvinnu og 40% af fisk- Jjvotti. 1 morgun átti að byrja að vinna m verkunarstöð dánarbús Ragnars "Ölafssouar og voru konur komnar fil vinnunnar, en fulltrúar verk- lýðsfjelaganna komu þá á vett- vang "og tálaðist þá svo milli þeirra •og vinnuveitenda, að frestur yrði fil mánndags, en samningatilraun- ir færi fram í dag. Er frekara bú- ist við, að miðlun náist. Á fisk- verkunarstöð Helga Pálssonar hef- ir verið unnið tvo daga. Heldur vinnan áfram þrátt fyrir vinnu- stöðvunartilraun í dag. Látinn er hjer í bænum Vilhj. Þorsteinsson fyrrum bóndi í Nesi í Höfðahverfi, tæpra 75 ára gam- »11. Hann var bændahöfðingi um langt skeið. 5tjómar5krármálið. Eftir lón Porláksson. 1. Yfirlýsing forsætisráð- herra. í tilkynningu þeirri, er fráfar- andi forsætisráðherra ljet lesa upp af forsetastóli í þingdeild- unum hinn 27. þ. m. hefir hann m. a. komist svo að orði: „Síðan“ (þ. e. síðan yfirlýsingar Sjálfst.fl. og Alþ.fl. um afstöðu þeirra til skattalaga og fjárlaga í sambandi við kröfuna um jafnan kosningarrjett komu fram) „hafa verið gerðar mjög ýtarlegar til- raunir til að fá þá lausn á kjör- dæmamálinu, sem fíokkarnir gætu orðið ásáttir um. Af hálfu beggja aðilja hefir komið fram vilji um að leysa málið. Eigi að síður liafa samningatilraunir ekki borið full- nægjandi árangur“ e. s. frv. Út af þessum ummælum þykir mjer sem kjósendur landsins eigi heimtingu á að fá að vita hvern- ig málið stendur nú, og hverjar þær „ýtarlegu“ samkomulagstil- raunir eru, sem forsætisráðherr- ann talar um. Mun jeg því reyna að gjöra grein fyrir þessu í sem stytsu máli. 2. Tillögur Framsóknar- flokksins. Við meðferð stjórnarskrár- málsins í efri deild þingsins, sem málið hafði fyrst til meðferðar, báru Framsóknarmenn fram breytingartillögur við 1. gr. frv., og voru aðalatriði þeirra þessi: a) Ákvæði frumvarpsins um að Alþingi skuli svo skipað, að þingflokkarnir hafi þingsæti í samræmi við atkvæðatölu (jafnrjettisákvæðið) átti að falla burtu. b) Núverandi kjördæmaskipun skyldi tekin upp í frv. með þeirri einu breytingu, að þing mönnum Reykjavíkur skyldi fjölgað úr 4 upp í 8. Tví- menningskjördæmi áttu að haldast þau, sem nú eru, en hlutfallskosningar í þeim skyldu bannaðar. Heimilt skyldi að skifta tvímennings- kjördæmunum. c) Heimilt skyldi að ákveða með lögum 5 —fimm— upp- bótarsæti til jöfnunar á mis- ræmi milli flokka, en við út- hlutun þeirra sæta áttu at- kvæði Reykvíkinga ekki að koma til greina, heldur aðeins atkvæði kjósenda greidd í kjördæmum utan Reykjavík- ur. Eftir þessum tillögum átti tala þingmanna að verða alls 45, ef uppbótarsætin heimiluðu eru tal- in með. Þar af kosnir 32 óhlut- bundnum kosningum í 26 til 32 kjördæmum utan Reykjavíkur, 8 kosnir hlutfallskosningu í Reykja vík og 5 uppbótarsæti. Þessar tillögur voru eiginlega aldrei ræddar í efri deild, og at- vikaðist það þannig, að ákveðið var að útvarpa 2. umr. um málið. Einar Árnason var framsögumað- Ur að þessum breytingartillögum, en hann tók ekki til máls við út- varpsumræðurnar, heldur talaði forsætisráðherra Tr. Þórh. þá af hendi Framsóknarflokksins, og hann gerði þessar tillögur ekki að umtalsefni. Þar sem svona lítið var úr þeim gjört af hálfu flutn- ingsmanna gerðum við andstæð- ingar þeirra ekki ráð fyrir, að nein alvara fylgdi þeim af flokks ins hálfu. Þær voru svo feldar, og frv. fór til neðri deildar. Töld um við víst að Framsókn mundi þar bera fram einhverjar tillög- ur, sem líklegri væru til samkomu lags. En sú von brást. Við 2. umr. málsins þar í deildinni bar Framsókn fram þessar tillögur ó- breyttar og voru þær samþyktar þar. Þannig liggur þá stjórnar- skrárfrv. fyrir sem stendur, hef- ir ekki ennþá komið til 3. umr. í n. d. Skal nú efni þessara tillagna athugað nokkuð. Tala kjördæmakosinna þing- manna er eftir þessum tillögum 40, en eftir tillögum okkar Pét- urs Magnússonar í milliþinga- nefndinni átti hún að vera ein- ungis 30. Ef jafnrétti milli flokka á að nást, leiðir þetta óhjákvæmi- lega til fjölgunar á þingmönnum. En jafnrjetti getur alls ekki náðst með 5 uppbótarsætum. Þessu til sönnunar skal bent á það, að eft- ir þessari tilhögun í heild hefði útkoma kosninganna 1931 orðið: Framsóknarfl...... 22 þingm. Sjálfstæðisfl..... 17 — Alþýðufl............ 6 — Framsókn hefði fengið 5 eða 6 þingsætum meira en þeim flokki bar, og þau tekin frá hinum flokk unum. Aðeins 630 atkv. bak við hvern Framsóknarþingm. en um eða yfir 1000 atkv. bak við hvern þingmann hinna flokkanna. Þess- ar tillögur eru því hrein og al- gerð afneitun á kröfunni um jafnan kosningarrjett. Getur auðvitað ekki komið til nokk- urra mála að andstæðingaflokk- ar Framsóknar gangi að slíku. 3. Hinar „ýtarlegu“ sam- komulagstilraunir. Innan Framsóknarflokksins mun málið hafa verið nokkuð rætt á flokksfundum undanfar- ið, en um efni þeirra umræðna er mjer auðvitað alveg ókunnugt. Ef til vill *lúta ummæli forsætis- ráðherrans meðfram eða að ein- hverju leyti að samkomulagstil- raunum innan Framsóknar, um það er mjep ókunnugt. En gagn- vart Sjálfstæðisflokknum hafa aðeins komið fram 2 uppástung- ur frá Framsókn, svo jeg viti. Fyrri málaleitunin kom fyrir eitthvað viku síðan, og var fyr- irspurn um það, hvort Sjálfstæð- isflokkurinn mundi vilja sam- þykkja þingfrestun um nokkurn tíma. Við sáum ekki að þetta gæti neitt greitt fyrir úrlausn kjördæmamálsins eins og þá stóð, og svöruðum því neitandi, en með þeirri viðbót, að er mynduð yrði ný stjórn, sem vildi beita sjer fyr- ir úrlausn málsins, og ef sú stjórn færi fram á þingfrestun, þá skyldi Sjálfstæðisflokkurinn taka það mál til nýrrar yfirvegunar. Litlu síðar bárust boð um það, að Framsóknarflokkurinn mundi vilja til samkomulags, ganga inn á þá breytingu á framangreind- um tillögum sínum, að hlutfalls- kosning yrði viðhöfS í tví- menningskjördæmunum. Þessu svöruðum við á þá ieið, að við teldum breytinguna vera til bóta, en ekki nægilega til samkomu- lags. Aðrcir uppástungur hafa okk- ur ekki borist frá Framsókn. Orðasveimur hefir verið hjer í bænum um að Framsókn hafi gert eða viljað gera einhverjar aðrar uppástungur, en jeg get engan trúnað lagt á það. En sjálfsagt er að gera grein fyrir áhrifum þessarar einu tilslökun- ar frá Framsókn, sem orðuð hef- ir verið. 4. Hlutfallskosning í tvímenn ingskjördæmum. Til þess að skýra áhrif henn- ar vil jeg víkja dálítið að þörf- inni á uppbótarsætum til jöfn- unar á niðurstöðu kosninga í kjördæmum. Rannsóknir hafa verið um það gerðar af milliþinganefndum, bæði í Danmörku og Noregi, hve mörg uppbótarsæti þyrfti ofan á kosningar í einsmannskjördæm um til þess að ná jafnrjetti milli flokka, ef kosningaraðferðin sjálf er á engan hátt misnotuð til þess að raska jafnrjettinu. Báðar nefndirnar komust að sömu niðurstöðu, sem sje að tala uppiótarsætanna þurfi að vera 50% af tölu einmenningskjör- dæmanna. Þetta kemur nokk- urnveginn heim við athugun á tvennum síðustu kosningum hjer á landi. Miðað við 26 einmerm- ingskjördæmi og 1 hlutfallskjör- dæmi með 4 þingm. hefði tala uppbótarsætanna til fullrar upp bóta þurft að vera 13 til 14, eða rjett 50% af tölu kjördæmanna. Tvímenningskjördæmi með meirihlutakosningu eins og þeirri sem ákveðin er í núgildandi kosningalögum, gildir í þessu sambandi að minsta kostí á við tvö kjördæmi. Fyrir því er hægt að færa full rök, og ef notuð yrði heimildin til þess að skifta þess- um kjördæmum þarf engin rök, því að þá verður hvert þeirra að tveimur einmenningskjördæm- um. Eftir tillögum Framsóknar cbreyttum þurfa uppbótarsæti móti 32 einmenningskjördæmum uk Reykjavíkur, að vera eigi færri en 16 til 17. Þá væri tala þingmanna komin upp í 56 til 57. Lögleiðing hlutfallskosningar í tvímenningskjördæmunum gjörir nú breytingu á þessu. Kjördæmin yrðu ekki nema 27 alls. Af þeim yrðu 20 einmenn- ingskjördæmi, og ofan á þau þarf 10 uppbótarsæti samkvæmt framansögðu. Þar að auki þarf viðbót fyrir hlutfallskjördæm- unum. Um það atriði hef jeg engar erlendar rannsóknir, en jeg hef reiknað út fyrir kosning- una hjer 1931: Uppbótarsætaþörf fyrir 26 einmkjd. og eitt fjögramanna kjörd. nákvæml. 13.0, en fyrir 20 einmkjd. og 6 tvímkjd. með hlutfallskosn. og 1 fjögra manna kjördæmi nákvæmlega 12.4. Er þá í bæði skiftin reiknað með sömu atkvæðatölum. En eftir því sem flokkum var háttað 1931 mundi fjölgun þingm. Reykja- víkur úr 4 up,p í 8 hafa vegið á móti 1 til 2 uppbótarsætum. Heildarniðurstaðan er sú, að með hlutfallskosningu í núver- andi tvímenningskjördæmum og 8 þingmönnum í Reykjavík hefði þurft ll uppbótarsæti við kosn- inguna 1931, og tala þingmanna þurft að vera 51. Engin trygg- ing fæst fyrir viðunandi jafn- rjetti með 5 uppbótarsætum, sem Framsókn hefir boðið. Sjálfstæðisflokkurinn hefir á- valt tekið liðlega í það, að halda tvímenningskjördæmunum, ef þess yrði óskað, að því áskildu, að þar yrði lögleidd hlutfalls- kosning. En það er mjög erfitt að verja það, að halda jafn fá- mennu tveggja manna kjördæmi og Norðurmúlasýslu (2777 íb. 1930) nema bætt yrði þingsæti við Gullbr. og Kjósarsýslu, sém nú hefir aðeins 1 þingmann en 5179 íbúa 1930. Hefir í því sam- bandi verið orðað að gjöra Hafn- arfjörð ásamt Gullbr. og Kjósar- sýslu að þriggja manna hlutfalls kjördæmi, og þá máske líka Eyjafjarðarsýslu með Siglufirði, sem sker sig nokkuð úr núver- andi tvímenningskjördæmum að fólksfjölda. En ekki hef jeg orð- ið þess var að neinar teljandi til- raunir hafi verið gjörðar til þess að ná samkomulagi um þetta. Hvað er framundan? Nú vænta menn þess, að ný stjórn setjist á laggirnar næstu daga, undir forustu Ásgeirs Ás- geirssonar. Að sjálfsögðu verð- ur sú stjórn að telja það sitt fyrsta hlutverk, að leysa stjórn- arskrármálið, eða kjördæmamál- ið, sem margir nefna svo. Frá- -farandi stjórn lýsir yfir því, að hún ,víki úr sæti sakir þess, að hún treystist ekki að leysa það mál. Þar með er hitt sjálfgefið, að nýja stjórnin verður að taka það verkefni að éjer. Þetta mál getur ekki haldið áfram að liggja óleyst. Það ástand getur ekki með nokkru móti haldist, að valdið yfir málefnum þjóðarinn- ar sje í höndum minnihlutans. Að kosningarrjetturinn sje jafn fyrir alla og að meiri hluti ráði ef ágreiningur verður, eru hyrn ingarsteinar lýðræðisins. Þeir hafa sem stendur færst úr skorð- um hjá oss. Sú nýja stjórn, sem við tekur, verður fyrst að rjetta hyrningarsteinana, þar á eftir getur þjóðin ne\"tt lýðfrelsis síns eins og henni veitist gipta til. ÍSLANDSFLUG ÍTAT.A. London 27. maí. United Press. FB. Flug ítölsku sæ-flugvjelanna, er bráðlega fljúga frá Rómaborg til Reykjavíkur, stendur í samband* við alþjóðaathuganir, sem fram eiga að fara um skilyrði til flug- ferða á norðurhveli jarðar. RSð- gert er, að flugvjelarnar komi við í Amsterdam, fljúgi því næst tií Londonderry (borg í Norður-tr- landi) til þess að taka bensín. — Búist er við, að flugvjelamar verði komnar til Londonderry fyr- ir lok þessa mánaðar. FORVEXTIR LÆKKA í Danmörku. Höfn, 28. maí. United Press. FB. Forvextir hafa lækkað um 1% í 4%. Laust embætti. Hjeraðslæknis- embættið í Grimsneshjeraði er aug lýst laust til umsóknar.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.