Morgunblaðið - 12.06.1932, Page 2
2
tSSrS:
MORGUNBIAÐIÐ
Fyrlrllgg|andl
Dragnætnr.
fyrir kola og ýsn, sama ágata tegnnd, eius
og jeg hefi selt mikið af nndanfarandi 6 ár.
Draguðtatðg, allar stærðir.
Dragnðtatðg-lásar.
Dragnðtatðg-siguluaglar.
Dragnðta-bætigarn.
Dragnðta-nálar.
Gjðrið svo vel að Ifta á gaðin og
spyrja nm verðið.
0. ELLINOSEN.
1867
er simanáner mitt.
Jón Ormsson,
nðalsafaaiarfindir
dómkirkjraxiar verður kl. Sy2 í kvöld í dómkirkjuxuii.
DAGSKRÁ:
1. Reikningar lagðir fram til úrskurðar.
2. Skýrsla frá mötuneyti safnaðanna.
3. Tveir menn kosnir í sóknarnefnd og safnaðarfulltrúi.
4. Kristindómsfræðsla æskulýðsins og fækkun presta.
Málskefjandi: Síra Friðrik Hailgrímsson.
SÓKNARNEFNDIN.
Nfkomið:
I Hefldverslun Garðars Gísiasonar:
Ávestir, Jarðepll, Lanknr,
Swanhveiti, Rúgmjöl, Hrísgrjón,
Hafragrjðn, Kafti, Syknr e.m.fl.
Funður
i Kvennadeild Slysararnarlielags íslands
í kvðld kl. 87* siðdegis í K.Rhdsinn (nppi).
STJÓRNIN.
$
5jötugsafmŒli.
Sigurður H. Kvaran fyrv. al-
þingismaður og hjeraðslæknir á
sjötugsafmæli á morgun h. 13. þ.
n> Hann er fæddur í Blöndudals-
hó'lum 13. júní 1862 og voru for-
eldrar hans Hjörleifur prestur Ein-
arsson, síðast að Undirfelli í Vatns-
dal, og fyrri kona hans Guðlaug
Eyjólfsdóttir bónda á Gíslastöðum
Jónssonar. Hann fór í Latínuskól-
ann 1877 og útskrifaðist þaðan ár-
ið 1883. Sigldi hann þá til há-
skólanams í Kanpmannahöfn og
nam þar læknisfræði og varð kandí
dat 1893. Var hann þá settur auka-
læknir í Höfðakverfishjeraði og
skipaður þar hjeraðslæknir árið
1900 eftir að lögin um læknaskip-
un frá 1899 voru gengin í gi'ldi.
En vegna annara áhngamála sinna,
sótti hann um lausn frá embætti
og fluttist til Akureyrar 1904. Þar
var hann ritstjóri blaðsins Norður-
land frá 1905 til 1912 en stundaði
jafnframt lækningar á Akureyri.
Þá fluttist hann til Reykjavíkur
og var meðritstjóri blaðsins Isa-
foldar 1 ár 1912—1913. Var hann
þá árið 1913 settur hjeraðslæknir
a Eskifirði og skipaður þar árið
1914. En árið 1928 fekk hann
lausn frá embætti og flutti til
Reykjavíkur og er hjer búsettur.
Jeg hefi góða heimild fyrir því
að honum Qjetu vel læknisstörfin
og þegar hann fór úr Höfðahverfi
var hans saknað bæði sem læknis
og ágætis fjelagsmanns. En þó að
læknisstörfin hafi verið aðallífs-
starf hans þá hefir hann jafnan
haft önnnr áhugamál sem hann
hefir gefið sig við, og þá sjer í
lagi þjóðmálastarfsemi. Hann var
eins og áður segir ritstjóri Norð-
urlands í 5 ár og hefir ávalt fylgt
sjálfstæðismönnum að máli. Hann
er prýðilega ritfær maður og gáfu-
maður í hesta iagi eins og hann á
ætt til. Fór honum ritstjórnin mjög
vel úr hendi og ritaði hann margar
snjallar greinar, sem vöktu eftir-
tekt og voru mikill styrkur máli
því er blað lians studdi og fleiri
ritfærir menn rituðú í það og
spratt á þeim árum upp sjálfstæð-
isstefnán og náði festu. Arið 1908
var hann kosinn Alþingismaður
fyrir Akureyri og sat á þingi 1909
—1911 og reyndist þaj; ötull og
áhugasamur og hinn besti liðsmað-
ur. Var hann allvel máli farinn og
einknm flutti hann ræður sínar
vel undirbfinar og skipulegar. Ár-
io 1911 var hann kosinn í milli-
þinganefnd um fjármál landsins,
því að hann þótti skýr og greina-
góður um þau mál. í öðru sinni
var hapn kosinn 2. þingmaður
Sunnmýlinga og sat þá á Alþingi
1920—1923 og reyndist sem áður
hinn nýtasti starfsmaður. Og þó
að hann nú gefi sig ekki opin-
berlega við landsmálum, þá fylgist
liann ekki síður með og hefir mik-
inn áhuga fyrir þeim. En á síð-
ustu missirum hefir honum daprast
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda vináttu við andlát og jarð-
arför föður og tengdaföður okkar Ólafs Ólafssonar.
Börn og tengdabörn.
Jarðarför konunnar minnar elskulegrar, móður okkar og
tengdamóður, Guðnýjar Ólafsdóttur, fer fram þriðjudaginn 14.
þ. mán. kl. 1 e. h. og hefst með húskveðju á heimili okkar, Ing-
ólfsstræti 6.
Helgi Guðmundsson, börn og tengdabörn.
Bróðir minn, Jón Hjálmarsson, andaðist 6. þ. m. Jarðarförin
fer fram frá Landakotskirkju mánudaginn 13. þ. m. kl. 9 árd.
Fyrir hönd móður minnar og systkina.
Sigríður Hjálmarsdóttir.
Tengdamóðir mín, Guðný Bjarnadóttir frá Breiðtunýri, and-
aðist á Elliheimilinu aðfaranótt 10. júní.
Skúli Guðmundsson.
Faðir minn, Guðmundur Sveinbjarnar.on, Ijest að heimili
sinu, Valdastöðum þ. 11. þ. m. og verður hann jarðsunginn að
Valdastöðum, laugardaginn 18. þ. m kl. I1/2 e. h.
Fyrir hönd aðstandenda.
Steíni Guðmundsson.
allmjög sjón, en lestur og ritstörf
stundar hann þó enn af kappi.
Af öðrum áhugamálum lians vil
jeg • nefna sálarrannsóknamálið.
Byrjaði hann þegar er hann var á
Akureyri að kynna sjer það og
varð því brátt fylgjandi. Ilefir
liann þar bæði rannsakað nokltuð
sjálfur og lesið mjög mikið, svo að
liann er með fróðustu mönnum í
þeim bókmentum. Hefir hann mjög
stutt það mál og mikinn áhuga
fyrir því, ritað nokkuð og haldið
fyrirlestra.
Hinn 7. ág. 1895 kvæntist Sig-
urður Þuríði Jakobsdóttur kaup-
manns á Vopnafirði Helgasonar.
Hafa þau eignast 5 hörn og eru
4 á lífi: Jakob kaupm. á Akur-
eyri, Hjördís bóklialclari í Reykja-
vík, Einar verslunarmaður á Eski-
firki og Eiður stúdent við háskól-
ann í Miinchen.
Af framan rituðu stuttu ágripi
sjest, að Sigurður á að baki merk-
an og starfríkan æfiferil. Hann
ei enn ern og heilsugóður að und-
an tekinni sjóndeprunni. Hann er
jafnan glaður og reifur að ræða
áhugamál sín en athugar ætíð vel
mái sitt. Hann mun hafa eignast
margt vina á þeim stöðum er hann
hefir verið, sem munu árna honum
ailra heilla á þessum tímamótum,
þar á meðal undirritaður, er kom
í skóia samtímis honum, og hefir
ávalt farið vel á með okkur, sjer-
staklega samvinnan á Alþingi og
áttum saman önnur áhugamál.
Kr. D.
5kemtiferð
kvennadeildar Slysavarnafjelags
íslands.
Þótt Slysavarnafjelag íslands
eigi ekki iangan starfstíma að baki
sjer, liefir það þó nú þegar eignast
þau tök í hugum fslendinga, að
öilum þorra manna er það ljóst
orðið, hverja þýðingu slík starf-
semi hefir fyrir þjóð okkar. Ekki
síst eru það við sjómennirnir, sem
með þakklátum huga hugsum til
Reykjavíkur og er þar búsettur.
Skiitainndnr
verður haldinn á bæjarþingstof-
nnni mánudaginn 13. þ. m. kl. 6
síðd. í þrotabúi H.f. ísólfur.
Setuskiftaráðandinn í Reykjavík,
10. júní 1932.
St. Gnnnlaagsson.
þeirra karla og kvenna í landi,
sem liafa tekið höndum saman, til
að veita okkur lið í baráttunni við
þær mörgu liættur, sem fylgja
starfi okkar. Er það einlæg ósk
okkar allra, að blessun fylgi slík-
um fjelagsskap í framtíðinni, svo
að máttur hans til framkvæmda
þessarar göfugu hugsjónar megi
eflast með ári hverju.
Fyrir því vil jeg beina athygli
allra þeirra, er unna þessari starf-
semi, að skemtiferð þeirri, sem
kvennadeild Slysavarnafjelags ís-
lands efnir til með „Gullfossi“ á
þriðjudagskvöldið, er kemur. Fyrir
einstaka velvild framkvæmdastjóra
Eímskipafjelags Islands, hefir þessi
deild fengið „Gullfoss“ lánaðan til
stuttrar skemtifarar upp í Hval-
fjörð. Er það með fegurri siglinga-
leiðum hjer nærlendis, sem kunn-
ugt er, en þó sjaldan fegurra en á
björtu sumarkvöldi. Ágóði allur
af skemtiför þessari rennur í sjóð
deildarinnar, og vænti jeg þess, að
sem flestir taki þátt í för þessari,
sem þannig er fyrir komið, að
ollum er gert sem hægast, að vera
með. Það munar um hvern einstak-
an, sem skerst úr leik, eins og
það munar um metirinn, sem á
vantar að ‘kaðallinn nái út í skipið
ti! þeirra manna, sem í sjávarháska
eru staddir og bjarga á til lands.
Jeg her það traust til sjómanna-
stjettarinnar og allra þeirra, sem
kunna að meta starf hennar og
skilja, hvílíkar hættur verða á vegi
sjómannanna, að þeir setji sig ekki
úr færi, þegar slíkt tækifæri, sein
þetta, gefst til að auka öryggi
þeirra manna, sem ferðast þurfa
um hinu úfna íslenska sæ.
GuÖm. Jónsson, skipstjóri.