Morgunblaðið - 12.06.1932, Page 4

Morgunblaðið - 12.06.1932, Page 4
* MORGUNBLAÐIf) BLÓM & ÁVEXTIR, Hafnarstræti 5. íslenskt grænmeti daglega: Tó- matar, Agórkur, Radísur o. fl. — Plöntur: Bellis, Morgunfrú, Be- gonia semperflorens til útplönt- unar. Dömukápu-tölur af öllum litum. Andersen & Lauth, Austurstræti 6. Símanúmer mitt er 1726. Prú G. Norðfjörð. Ýsa og þorskur fæst daglega í síma' 1127. Flóra, Vesturgötu 17, sími 2039. Agúrkur ,salat, radísur, karse o. fl. Til útplöntunar alls konar blóma- plöntur, begóníur og afskorin blóm. Pappadiska, pappírsservíettur og anxjgð þess konar verður ávalt best að kaupa í Bókaverslun Snæ- bjarnar Jónssonar. Nuddlækningar. Geng heim til sjÚJslinga. Ingunn Thorstensen, Beddursgötu 7 (Garðshorn). Sími átóinat 14. Mótorhjól, nýtt, D. K. W., 8 hesta, iuxus 300, er til sölu. Þetta merjki er heimsfrægt. Upplýsingar í Híjóðfærasölunni á Laugaveg 19. ■ ■ fljfcrni ■ ' ... ■■■"■ ■■■ ■—" 1 " Plóra, Vesturgötu 17, sími 2039. Höfum margar tegundir blóma, gladiólus, rósir o. fl. Seljum trjá- plöntur að eins þessa viku. Mynda og rammaverslunin, Freyjugötu 11, Sig. Þorsteinsson, sími 2105, hefir fjölbreytt úr\ral af yeggmyndum, ísl. málverk bæði í oííu og vatnslitum, sporöskju- rammar af mörgum stærðum. Verð- ið sanngjarnt. nBoðafosscc fer á þriðjudagskvöld (14. júní) í hraðferð til tsafjarðar, Siglu- fjahðar og Akureyrar. Kemur á Patreksfjörð og stopp- ar á Dýrafirði með farþega. Parseðlar óskast sóltir fyrir há- degi sama dag. p,Bnllfosscc •fer á miðvikndag (15. júní) kl. 6 síðdegis beint til Kaupmanna- hafnar. Parseðlar óskast sóttir fyrir há- de|^ sama dag. Flit. Híim alþekti, bráðdrepandi fiugnalögur, Flit, ásamt sprautum, fyrirliggjandi. járnvörudeild jez SIMSEN Arthur Gook trúboði hefir sam- komu í Bethaniu M. 8% í kvöld. Allir velkomnir. Hjónaband. Nýlega voru gefin saman í hjónaband af síra Prið- rik Hallgrímssyni, ungfrú Ólöf Jónsdóttir og Óskar Guðsteinsson járnsmiður. Heimili þeirra er á Bárugötu 34. Heimatrúboð leikmanna. Almenn samkoma á Vatnsstíg 3, í kvöld kl. 8. Hulda Stefánsdóttir á Þingeyr- um tekur að sjer forstöðu kvenna- skólans á Blönduósi á næstkom- andi hausti. Hún er kona fjölment- uð, en kennarahæfiléikar hennar a'kunnir, frá því hún starfaði á Akureyri. Porráðamenn skólans munu telja honum vel borgið í hennar höndum. 5. bekkingar Mentaskólans voru að Búðum í gær, og ætluðu í dag að Arnarstapa. Eru væntanlegir hingað annað kvöld. Skipafrjettir. Dr. Alexandrine fór frá Höfn kl. 10% árd. í gær- morgun. Botnia fór frá Leitb kl. 7 í gærkvöldi. Sjórjettarpróf fóru hjer fram í gær út af strandi falands, dag- inn áður höfðu farið fram próf hjá sendiherra Dana. ísland fór hjeðan í gærkvöld. Karlakór Reykjavíkur heldur ifund í K. R. húsinu annað kvöld kl. 9. Togararnir hafa nú allir hætt veiðum, þeir, sem gerðir eru út hjeðan. Esja fór í gærkvöldi, áleiðis út, til viðgerðar. Efnar Hielsen. Herra Einar Kvaran skáld, birtir í Morgunblaðinu, 24. mars s.l., grein til varnar svíkaákærum, sem bomar hafa verið á danska miðil- inn Einar Nielsen, og segir þar m. a.: „Það er ekki til neins að hampa framan í mig uppþotinu í Osló 1922, þær „rannsóknir“ met jeg að engu“. Þetta „uppþot“, er E. Kv. nefn- ir svo, gerðist í háskólanum í Osló, ef jeg man rjett, og þátttakendur voru nokkrir af prófessorum há- skólans, nokkrir af lærðustu vís- indamönnum frænda vorra Norð- manna. Einn þeirra, próf. Jæger, var einhver heitasti „spiritisti“ Norðmanna, vinur Einars Niélsen og sannfærður um miðilsgáfu hans. Þeir höfðn samið þannig við E. N., að hann kæmi til Osló 0g sannaði þar líkamningar sínar undir ströngu eftirliti. Þegar þetta gerðist var jeg að- stoðarlælcnir við Haukelandssyke- hus í Bergen; þar vakti' þetta mikla athygli. Nielsen hafði gengið inn á, að gerðar væru allar nauðsynlegar varúðarráðstafanir til þess að fyr- irbyggja, að hann gæti orðið grun- aður um svik. Þetta vakti traust mitt og annara, sem áhuga höfðu fyrir því hver niðurstaðan yrði. Rannsóknarnefndin var líka starfi sínu vaxin, og bjó svo um hnút- ana, að svikum yrði ekki auðveld- lega við komið. A undan fundum var Nieilsen færður úr öllum fötum og rannsakaður, jafnvel maginn skolaður, að mig minnir; síðan var hann færður í prjónasamfellu sem hvergi var op á nema að ofan; það vaj- svo dregið þjett saman um iálsinn og svo frá því gengið að ekki yrði losað um án þess að um- merki sæjust. Þeim til skýringar, er ekki þekkja miðilsgáfu Nielsen, skal jeg taka það fram, að hann er frægur orðinn fyrir hið svonefnda „útfrymi“, sem virðist streyma út frá munni hans, og á ljósmyndum, sem teknar hafa verið af honum í miðilsástandi, liggur útfrymið eins og slæða yfir höku hans og brjóst. Líka hafa andar framliðinna birtst á fundum hans, og Ijósmyndir náðst af þeim. Mig minnir að net (slæða) væri sett um höfuð Niélsens og fest við hálsmálið á samfellunni, á fvrstu fundunum í Osló. En hvort sem það var eða ekki þá gerðist ekkert yfirnáttúrlegt á þeim fund- um. En svo kom sú þráða stund, að útfrymið sýndi sig, en við eftirrannsókn á fötum miðilsins varð vart við óþægileg merki þess hvar útfrymið hafði verið geymt, sem jeg skal ekki fara nánar út í. En niðurstaðan af rannsókninni varð sú, að nefndarmenn voru sammála um, að Einar Nielsen hefði orðið ber að svikum. Skrif- uðu þeir allir undir yfirlýsingu þess efnis, Iíka próf. Jæger, og var honum þó víst ekki Ijúft að þurfa þess. Hann fór nokkru seinna að afsaka vin sinn Nielsen, með því, að honum hefðu verið svikin óafvitandi; það var Mika (stjórnandi N. frá öðrum heimi) sem fann upp á þessum hrekk! — Menn geta nú farið nærri um það, hvort próf. Jæger hefði skrifað undir yfirlýsinguna um svik Niel- se'ns ef þar hefði verið um nokkurn vafa að ræða. Það hefði hann vissu lega ekki gert, en hann hafði sjeð svikin með eigin augum, og átti þarna um að velja að afneita sann- leikairam eða Nielsen, og sem heið- arlegnm manni sæmdi tók hann seinni kostinn. En í þessu sam- bandi er alls ekki hægt að tala um „uppþot“, þarna starfaði nefnd' virðulegra lærdómsmanna, sem all- ir urðu sammála um árangurinn. Uppþot er fremur hægt að tala um í Reykjavík, þegar Nielsen ári seinna fekk hið glæsilega vottorð hr. E. Kv. og annara mætra manna þar; þá varð það bert af Maða- skrifum á eftir, að ekki voru allir fundarmenn sannfærðir um, að yf- irnáttúrlegir hlutir hefðu gerst. — Jeg man ekki betur en ,að þá væri Einar Nielsen. farið'niðrandi orðum um rannsókn prófessoranna í Osló án þess að neinn gerðist til þess að verja þeirra málstað. Þegar nú var aftur höggvið í þann saina knjerunn gat jeg ekki stilt mig um að hreifa andmælum, því að mjer virðist að Norðmenn geti tekið það svo, sem hjer sje verið að lítilsvirða stærstu mentastofnun þeirra, háskólann í Osló. Jeg fylgdist með öllu því, sem opinbert varð við tilraunirnar með Niélsen, bæði í Osló og Reykjavík, og mjer virtist, að eftirlitið mundi hafa verið miklu' strangara í Osló en í Reykjavík, og líklegra til að Ieiða hið sanna í Ijós. En hvað sem því líður, veit jeg, að svo greindur 0g sómakær mað- ur, sem herra Einar Kvaran er, hlýtur að finna, við nánari athug- un, að ekki er sæmandi að tala um niðurstöðu af vísindalegri rann sókn háskólakennara með þeirri lítilsvirðingu, sem hann gerir þég- ar hann er að verja vin sinn E. N. Det danske Selskab f Reykjavik fejrer Yaldemarsdagen, Onsdag den 15. Juni, med Middag og Bal paa 1 Hotel Borg. Alle lierboende Danske er Velkommen, og Medlemmene liar Ret til at medtage Gæster. Indtegning til Pesten sker hos Bestyrelsen, og er en Liste fremlagt hos Köbm. L. Storr, Laugaveg 15, Telefon 333. Tegningen maa helst ske inden Mandag den 13. Juni Kl. 7 Efter- middag. Bestyrelsen. DRflGHðTHVIHDUR með tilheyr.s'„stoppmaskíRU‘‘ mtsssitm v:wc.m«in»raep' n » er jeg útvegaði mikið af i fyrra gegnum umboðsmann firmansjí Vestmannaeyjum og, sem líkuðu ágætlega — útvega jeg nú beint með mjög stuttum fyrirvara. ____________________0. Ellinusen. Aðalfunöur skipstjóra og stýrimannafjelagsins ,»Ægir“ verður haldinR í Varðarhúsinu þriðjudaginn 14. þ. m. kl. 2 síðd. Dagskrá samkvæmt fjelagslögum. STJÓRNIN. Væntanlegt: Appelsínur, Jaffa og Brasil. Epli, Delicious. Laukur. Nýjar kartöflur. Norskar kartöflur gamlar. Eggert Kristjánsson & Ce. Símar: 1317 og 1400. Til Búðardals, Hvammstanga og Ðlönduóss fara bílar hvern þriðjudag og föstudag. — Lengra norður, ef farþegar bjóðast. j Bifreiðastððin HEKLA. Sími 970. Lækjargötu 4. Sími 970. Nú er lokið aðaltllgangi mínum með þessum línum. Jeg er sann- færðnr um, að Nielsen varð ber að svikum í Osló; ekki er þó hægt að 'fullyrða, að öll hans fyrirbrigði sjeu blekkingar. Óneitanlega verð- ur þó frásögn Carstensen senni- legri af því, að hitt er á undan gengið, og það því fremur, sem N. var ekki flekklaus áður en liann fór til Ósló, heldur var, af gildum ástæðum, fallinn grunur á hann áður. Jeg get sagt það hreinskilnis- lcga, að mjer þótti það mikið mið- ur hve margir góðir menn og greindir urðu til þess að undir- skrifa vottorðið, sem Nielsen fekk í Reykjavík, og mjer er nær að halda að svo hefði ekki farið ef þeim hefði verið fullkunnugt um það, sem fram fór á tilraunafund- unum í Osló. Það er enginn verri maður fyrir það, þótt hann sjái ekki við svik- aranum. Það eru oft bestu menn- irnir, sem fyrir því verða, því „aðra heldur eins og sig, sá aldrei gengur vjelastig“. Ekki vil jeg heldur telja það óhugsandi að E. N. hafi engin brögð haft í tafli í Reykjavík, þó að hann sje staðinn að því á öðrum stöðum; en óneit- anlega þykir mjer hitt líklegra að brögð hafi verið í tafli, og að það sem rifnaði er frúin tók í slæðuna í Reykjavík, liafi verið líkur vefn- aður og útfrymispjatlan, sem rann- sökuð var efnafræðislega í Osló. Og mjer virtist óþarflega mikið sagt í yfirlýsingu Reykjavíkur- nefndarinnar og jafnvel móðgandl í garð nefndarinnar í Osló. Og þegar svo sterkar líkur erix um svik, eins og þær, sem fram eru komnar gegn E. N., er full þörf á því, að menn fái hið sannæ að vita, bæði um það sem nú er að gerast og einnig um hans fyrri feril. Það er fullsannað mál, að marg- ir miðlar, fleiri en Nielsen, hafa orðið uppvísir að svikum, einkum. þó þeir sem ilíkamningar hafa gerst hjá, svo að vafasamt. mun að telja slík fyrirbrigði vísindalega sönn- uð. En jeg er líka viss um að elcki verður alt það, sem gerst hefif á miðilsfundum skýrt á þann hátt. En þeir sem unna málefninu: og vilja vinna að eflingu þess og endanlegum sigri, þeir mega allra síst taka að sjer að verja svikar- ana, því auðvitað eru það þeir, senr frá upphafi hafa gert spíritisman- um mest mein. Breiðabólsstað í apríl 1932. Snorri Halldórsson, læknir. ——

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.