Morgunblaðið - 23.08.1932, Side 4
4
MORGUNBLAÐIÐ
í'
Huglíslnggdagbák
Húllsaunmr, fallega.star,
bestur og ódýrastur. —■
Fljót afgreiðsla.
^ Kuiilía Þorgeirsdóttir,
Bergstaðastræti 7. Sími 2136.
Nýsaltað dilkakjöt 60 aura %
kr. Cfulrófur 15 aura % kg. ísl.
Kartöflur 18 aura % kg. og út-
lendar Kartöflur 15 aura % kg.
ölæný Bgg 15 aura stk. Guðm.
Guðjónsson, Sbólavörðustíg 21.
Oafé Höfn selur meiri mat, 6-
dýrari, betri, fjölbreyttari og
fljótar afgreiddan en annars stað-
ar.
Sigurður Thoroddsen verkfræð-
ingur. Tek að mjer mælingar lóða,
hailamælingar, vegamælingar og
ýms önnur verkfræðingastörf. —
Fríkirkjuveg 3. Sími 227. Viðtals-
tími frá 4—6 síðd.
gerður á milli brúnna. Einnig hef-
ir komið til mála að setja ódýra
bráðabirgðabrú, að mestu leyti
með því að nota timburleyfar úr
kinum brúnum, yfir Alana, og
verður þá bílfært alla leið að
Markarfljóti.
Er ráðherra hafði lokið máli
sínu, söng kórinn Brúardrápu þá,
sem prentuð er á öðrum stað í
blaðinu .
Hófst síðan skrúðganga yfir
brúna, með því að ráðherrafrúin
klipti á band, er yfir brúna var
strengt.
En í farabroddi skrúðgöngunnar
v&'* borið merki Rangæinga.
2 Bláber,
Kirsnber,
)i«rk«ð, nýkratía.
lalldór R. Gunnarsaon.
Aðalstræti 6. Sími 1318.
ðdýrt.
Boilapör 0.35
Matardiskar 0.50
Ðesertdiskar 0.35
Avaxtadiskar 0.35
Áleggsföt 0.75
Ávaxtaskálar 1.50
Kökudiskar 1.00
Hitaflöskur 1.35
Vekjaraklukkur 6.00
Bosrðhnífar, ryðfríir 0.90
Blómsturvasar 1.50
2ja turna silfurplett afar mikið
úrval o. m. m. fl. ódýrast hjá
II.
Bankastræti 11.
Flanel,
Sumarkjólatau, Crepe de Chine,
Blussuefni hvít og mislit. Ljereft
ódýr og dúnhelt mislitt. Morgun-
kjólar allar stærðir. Buxur, Bolir
og einnig þetta óviðjafnanlega
Peysufataklæði.
MiRGhester.
Laugaveg 40.
Sími 894.
I sl. blómkál
ódýrt.
Klein,
; Baldursgötu 14.
Sími -'73.
Að skrúðgöngunni lokinni varð
nokkurt hlje á ræðuhöldum, er
menn notnðu til þess að fá sjer
hressingu og hitta vini og kunn-
ingja að máli.
En kl. 3 hófnst ræðuhöld að
nýju, með því að sr. Sveinbjöm
Högnason flutti minni íslands. Þá
söng kórinn þjóðsönginn.
Því næst flntti Jón Ólafsson al-
þra. minni Rangæinga.
Talaði hann m. a. um þann kjark
og dug sýslubúa, að hrinda þessn
mannvirki af stokkum fyrir eigin
rammleik þegar alt er uppetið í
ríkissjóðnum. Manndáð Rangæinga
væri arfur frá feðrum þeixra. Sá
arfur hefði m. a. lýst sjer í því,
að þeir hefðu eins og Gunnar forð-
um verið ófúsir að yfirgefa óðul
sín — hefðu því næst undantekn-
ingarlaust setið kyrrir, er Vestur-
farir voru hjeðan sem mestar.
Manntak þeirra nú, á þessnm
krepputímum myndi með brúar-
smíði þessari halda sæmd núvef-
andi kynslóðar á Iofti um ókomin
ár. —
Að lokinni ræðn Jóns, sem var
stuttorð og kjarnorð, söng kórinn
„Þú stóðst á tindi Heklu hám“.
Er á dagúm leið.
Samkvæmt skemtiskránni skýldi
nú enn vera klukkustundar hlje.
Voru þá matborð búin í „Rangæ-
ingabúð“, tjaldbúðinni, sem sýslan
á, og skyldu þar mátast virðinga
menn sýslunnar, ýmsir ræðumenn,
sem þama voru og söngmenn.
Borðhald þetta stóð alllengi yfir,
svo ræðumenn þeir, er áttu að
tala kl. 4, voru eigi komnir í
ræðustól kl. 6, en snmt gesta þá
farið, aðrir dreifðir, en hið yngra
fólk hafði fengið aðgang að dans-
ipalli, sjer til dægrastyttingar —
og fekk sjer snúning, að svo miklu
leyti sem því varð við komið sakir
þrengsla.
Kl. að gangá sjö hófust ræðu
höld að nýju. Þá flutti sr. Jón
Skagan múmi kvenna, en Páll
Zophoniasson minni bænda. Kór-
inn söng á undan og eftir ræðun-
um. Var söngnum þá, sem altaf,
mætavel tekið af áheyrendum, sem
viðstaddir voru. En þá var sem
sagt komin sú dreifing á mann-
fjöldann, að nokkrum þótti jafn-
gott að sjá sjer sjálfum fyrir söng
og nmtalsefni, og var sungið við
raust út um bakka: „Því frjálsa
og glaða lífið — það kjósum vjer“
— og annað þessháttar. Fór allur
mannfagnaður vel fram.
Að ræðuhöldum loknum, þeim,
er ákveðin voru á skemtiskrá, tal-
aði Gísli Sveinsson sýslumaður, og
mæltist vel að vanda. Talaði hann
m. a. um væntanlega samvinnu um
að brúa hina síðustu torfæru aust-
ur í Skaftafellssýslu —• Markar-
fljótið.
Samkomuhni var slitið kl. 10 að
kvöldi.
Gagbók.
Veðrið (mánudagskvöld kl. 5):
Fyrir sunnan land er háþrýsti-
svæði, sem nær austur yfir Noreg
og Svíþjóð. Yfir V-Grænlandi er
allstór lægð, sem þokast NA-eftir.
Hjer á landi er SV-gola eða kaldi,
víðast þykkviðri og vestan lands
er þokusúld. Hiti er 10—13 st. á
S- og V-landi, en alt að 17—18 st.
á N- og A-lándi.
Veðurútlit í Rvík í dag: SV-
kaldi. Þokuloft og dálítil súld eða
rigning.
Slys. Það sviplega og ’ sorglega
slys vildi til á „Brúarfossi“ er
hann fór hjeðan seinast vestur og
norður, að á laugardagsnóttina
hvarf af skipinu frú Anna Egg-
ertsdóttir, kóna Sigurmundar Sig-
urðssonar læknis í Flatey. Hafði
hún ætlað að ganga snöggvast úr
káetunni, seni þau hjónin höfðu í
skipinu, og er lækninum tók að
lengja eftir henni, fór hann að
grenslast um hvar hún mundi
vera. Fanst hún þá hvergi í skip-:
inn, og mun hafa fallið fyrir borð
og drukknað.’ Enginn af skipverj-
um varð þó var við það að hún
kæmi npp á þilfar. — Anna var
dóttir Eggferts Jochumssonar,
bróðnr Matthíasar skálds. Eiga
þau Sigurmuhdur læknir sjö börn,
hið yngsta á fyrsta ári. Anna var
mesta myndarkona, eins og hún
átti ætt til, ágæt móðir og stjóm-
söm húsmóðír. Muhu allir, sem
kynst hafa henni, sakna hennar
innilega og syrgja hið sviplega
fráfall hennar.
„í kröld hefst útvarpið með
veðurfrjettumi“. Á hverju kvöldi
er þetta sagt í útvarpinu. Það
sýnist næsta óþarfi, þar sem það
er föst venjá: að veðnrfrjettum er
útvarpað fyrst á hverju kvöldi.
Það þarf þvi ekki að endurtaka
venjuna, beldur aðeins ef út af
þessu er brugðið. Útvarpsþríspilið
eða fjórspilið ætti ekki að spila
söngva, sem eru á góðum plötum,
því það spilár ekki eins vel og
spilað er á plötum. Besta músíkin,
sem vjer getum fengið hjerna, er
á góðum plötum. Það eru margir
snillingar, hver á sínn sviði, sem
eru á plötum'. Það virðist því ó-
þarfi að nota mikið þá innlendn,
sem kosta mikið meira, hið fátæka
útvarp, og eru venjulega lakari,
allflestir. Útvarpshlustari.
Útvarpið í dag: 10.00 Veður-
fregnir. 12.15 Hádegisútvarp. 16.00
Veðurfregnir. 19.30 Veðurfregnir.
19.40 Tónleikar: 'Oelló-sóló (Þór-
hallur Árnasón). 20.00 Klukku-
sláttur. Grammófóntónleikar: Or-
feus-Ouvertui'fe. eftir Offenbach.
Tveir dúettar úr „Rigoletto“ eftir
Verdi: E il sol dell’ anima, sung-
inn af L. Sc&öene og Hislop, og
Tutte la feste al tempio, sunginn
af L. Schoene og Janssen. — Dú-
ett úr „Gioconda“, eftir Ponehiélli,
snnginn af Báttistini og de "Witt.
Terset úr ,;Ernani“ 'eftir Verdi,
sunginn af Battístini, de Witt og
Taccani. 20.30 Frjettir. Músík.
52 ára prestskaparafmæli átti
síra Ólafur óláfsson í gær. Vígðist
22. ágúst 1880 til Strandarkirkju
(Vogsósaprestákalls), gegndi því
prestakalli 4 ár, síðan í Gnttorms-
haga í Holtum í 9 ár, þá í Amar-
bæli í Ölfusi í 10 ár, síðan prestur
hjer í Reykjavík og Hafnarfirði
og er enn þjónandi prestur hælis-
ins Kleþph' Er, hann langelsti
þjónandi prestur landsins. '
Lúðrasveit Reykjavíkur spilar á
Austurvelli í kvöld kl. 8 ef veður
leyfir. Stjórnandi Páll ísólfsson.
Drengurinn minn heitir tjekko-
slavisk mynd, sem sýnd er í Nýja
Bíó þessi kvöld, áhrifarík mynd
að efni og meðferð, um aðalsfrú,
sem tekur sig upp með son sinn úr
allsnægtum, en ratar í ýms vand-
ræði og raunir á lífsleiðinni. —
Magda Sonja leikur frúna, en
Hans Feher, 6 ára gamall hnðkki,
leikur son hennar, með frábærri
snild. Myndin er sjerkennileg að
efni og meðferð, og hefir Vakið
mikla eftirtekt hvar sem hún hefir
verið sýnd. Textinn þýskur, mjög
skýr.
Knattspjrmufjel. Víkmgur. 3. fl.
æfing í kvöld kl. 8.
Kviknar í bifreið. 1 gærmorgun
kviknaði í flutningabifreið á
Hverfisgötu. Slökkviliðið kom
fljótt á vettvang og slökti eldinn á
svipstundu.
Lyra kom hingað frá útlöndum
í gærkvöldi.
Látin er hjer í bænum frú Mar-
grjet Jónsdóttir, kona SamúeLs
Jónssonar smiðs og móðir Guðjóns
húsameistara.
Sjötugsafmæli átti í gær Jð-
hannes Sigurjónsson, fyrrum óðals
bóndi á Laxamýri, nú til heimilis
á Ránargötu 7.
Verslunarráð íslands. Skýrsla
um starfsemi þess á árinu 1931 er
komin út. Hið markverðasta, sem
gerðist i sögu Verslunarráðsins á
þessu ári var það, að það rjeðist í
að kaupa húseignina Grundarstíg
24 hjer í Reykjavík handa Versl-
unarskólanum. — Hafa kaupmenn
hjer í Reykjavík lagt fram mikið
fje til þessara húskaupa, en kaup-
menn út um land mjög lítið. Má
þó öllum vara ljóst að skóli þessi
er ekki áðeins fyrir Reykjavík,
heldur er hann sjerskóli fyrir
verslunarmenn á öllu landinu, og
ætti því kaupmönnum utan Reykja
víkur eigi síður að bera skylda til
þess að styðja hann, og vonandi
gera þeir það.
Einar Kristjánsson söngvari
dvelur nú sem stendur í höll suður
í Bæheimsskógi (í Tjekkóslóva-
kíu). Hallareigandiun bauð honum
þangað til sín og í sumar hafa
verið þar ýmsir aðrir listamenn,
því að hallareigandinn safnar slík-
um mönnum að sjer á hverju
sumri. Lætur Einar að vonum vel
yfir vistinni þar og náttúrufegurð,
sem er þar mjög mikil. — í ágúst-
lok byrjar söngnám Einars aftur.
A hann þá fyrst að syngja aðal-
hlutverk í operettu og síðan í
operunni Troubadour. — Áður en
hann fór frá Dresden í sumar söng
hann í operettu í Schauspilhaus,
0g var hún sýnd í 10 kvöld í röð.
Sundmót Haínarfjarðar var háð
á sunnudaginn. í 50 m. sundi fyrir
drengi innan 14 ára sigraði Ágúst
Sveinsson á 54 sek. 1 50 m. sundi
fyrir telpur innan 14 ára sigraði
Guðríður Mýrdal á 49 sek. í 100
m. sundi fyrir pilta 14—18 ára
sigraði Ingólfur Eyjólfsson á 1
'ínín 46 sek. í 100 m. sundi fyrir
telpur á sama aldri sigraði Klara
Hjartardóttir á 1 míu 47 sek. f
200 m. sundi fyrir karla sigraði
Ingólfur Eyjólfsson (sá sami og
í drengjasúndinu) á 3 mín. 59.6
sek. — Hallsteinn Hinriksson kenn
ari hefir kent sund í Hafnarfirði
í sumar og orðið vel ágengt þótt
sundlaug sje engin nema sjórinn.
Hefir fjöldi unglinga lært að synda
þar í sumar og öðrum farið mikið
fram.
Til StrandarkirkjTi frá S. K. H.
25 kr., ónefndum (gamalt áheit)
2 kr., N. N. 4 kr., N. N. 1 kr.
Til Hallgrímskirkju í Saurhæ frá
ónefndum (gamalt áheit) 5 kr.
Réykiði
Teofani
cigarettur
og
Wer
munuð 'i .
sannfserast.
að '
gaéðin
leyna
sjer
ekki.
,
Svflla-
diykkir
mjög hentugur og góður
á ferðalögum.
Verðið lækkaðf
RRI gP
Amatördeild
F. A. Thiele.
Filmur, sem eru afhendar
fyiir kl. 10 að morgni, em»
jafnaðarlega tilbúnar kl. &•
að kvöldi.
Öll vinna framkvæmd með»
nýjum áhöldum frá KO-
DAK, af útlærðum mynda-
smið.
Framköllun. — Kopiering.—
Stækkun.
Leiðrjetting: í grein hjer í blað-
inum um Belgaumsmálið á sunnu-
daginn, hafa slæðst þessar prent-
villur: í úrskurði Hæstarjettar
stendur: staðfestingar f. staðsetn-
ingar, og staðfestingu f. staíðsetn-
ingu, hennan f. þenna, og tanga--
oddanum f. tangaoddann.
Itodl iskukv rtntr* I
o« ísteuk &p.