Morgunblaðið - 30.08.1932, Blaðsíða 3
MORGUNBIAÐIÐ
8
Pólitísk ferðasaga.
« *
gaor&nnbUbxb |
• •
2 H.f. Áryakur, Rtykjayfk. •
* Sltatjörar: Jön KJartanasoa.
Valtýr StetAnaaon. J
* Sltatjðrn og atsrclðala: *
® Auaturatraetl S. — Slaal 181. J
e •
« J.utrlýalnKaatJðrl: B. Hafber*. •
* Auslýaingaakrlfatofa: e
* Auaturatraatl 17. — Slxal (08. e
* Melaaaalmar: •
Jön KJartanaaon nr. 741. e
« Valtýr Stef&naaon nr. 18X8. •
* B. Hafberc nr. 770, *
* Áskriftag-Jald: •
« Innanlanda kr. 1.00 & at&naBl. •
2 Utanlands kr. X.Efl & m&nnOS. e
* t Ia.u*a»ölu 10 aura «intaklQ. J
20 aura neQ Leibök. •
* •
4» 9 •••• ð> ••••••••••••••••• £,,..
islendingasundið.
Ferþrautarkepnin.
Sundmót.
Þrjú ný met.
Á sunnudaginn var fór íslend-
ingasundið fram úti hjá Ör-
firisey. Sundið er 500 stikur og
er kept um íslandsbikarinn og
sundmeistara nafnbót.
Jónas Halldór.sson (Æ) sund-
kappi Islands varð fyrstur á
sundinu og setti nýtt met á 7
mín. 33.5 sek. Gamla metið, sem
hann átti sjálfur og setti 1930,
vaí 8 mín. 44.8 sek. Næstur hon-
um gekk Hafliði Magnússon (Á)
15 ára piltur. Haun synti 500 m.
á 8 mín. 4.7 sek. og er það hetri
tími heldur en metið var áður,
og er þetta frækileg frammistaða.
hjá honum. Þriðji maður varð
Sigurður Runólfsson (KR) á 9
mín. 29.6 sek.
í ferþrautarkeppninni
sigraði Hanknr Einarsson
(KR) á 35 mín. 12 sek. og er það
nýtt met. Haukur átti metið áður,
og hefir verið að bæta það ár frá
ári, og ætti hann sannarlega skilið
■að fá nú til eignar verðlauniu í
þessari þraut, sem hann hefir
unnið svo glæsilega á undanförn-
um árum. Guðjón Guðlaugsson (K
Jf) var 37 mín. 10,5 sek.
Sundkeppni.
í 50 m. frjálsu sundi fyrir karla
■sigraði Jón D. Jónsson (Æ) á 31.1
sek. og >er það nýtt met. Gamla
nietið var 31.6 sek. Næstur var
Haraldur Sæmundsson (ÍR) 32
sekúndur.
Þá var kept í 50 m. baksundi
(drengir innan 15 ára). 1. verðl.
lilaut Rögnvaldur Sigurjónsson á
51.1 sek. 2. varð Gestur Þorgrímn-
son á 1 mín. 12.1 sek.
Þá var kept í 300 m. snndi —
drengir innan 18 ára. — Fyrstur
varð Stefán Jónsson (Á) 5 mín.
28.1 sek. Annar Ögmundur Guð-
muudsson (Á) 5 mín. 48.2 siek., og
þriðji Ingiþór Jónsson TJ. M. F.
Keflavíkur á 5 mín. 48.7 sek.
Þá var kept í 50 m. sundi (frj&i«
aðferð) fyrir telpur innan 15 ára.
Fyrst varð Hanna Skagfjörð á 45.1
sek., en næst varð Klara Klængs-
dóttir (Á) 47.1 sek.. og þriðja
Guðríður Mýrdal úr íþróttafjel.
„Þjálfa“ í Hafnarfirði, á 49.1 sek.
Bygging'anefnd hefir falið bygg-
ingafulltrúa að gera uppdrætti að
skýlum þeim, sem menn vilja
^yggja í smágörðum.
Þegar það varð ofan á undir
þinglokin í vor, að mynda sam-
steypustjórn var talsverður uggur
í ýmsum mönnum úr báðum hinna
stóru flokka, sem að þeirri stjórn-
armyndun stóðu. Ef ráða má af
því, sem fram kemur í röddum
víðs vegar af landinu, þá fer
uggur þessi þverrandi og eins og
friður færist yfir meir og meir.
Yfirleitt verður ekki annað sagt
en að svo líti út sem landsmenn
kunni þessu vel. Þeir sýnast hafa
verið orðnir þreyttir á ofsóknun-
um og ófriðnum.
En einn er sá maður á landi
hjer, sem illa kann friðnum. Þessi
maður er Jónas frá Hriflu. Hann
er síhvæsandi í blaði sínu og hann
hefir verið á sífeldu flökti um
landið í sumar, til þess að reyna
að hlása að glóðum tvídrægni, hat-
urs og ófriðar. Ymsar fregnir ber-
ast frá ferðum hans og allar á
þatín veg, að honum gangi erfið-
lega trúboð sitt. Náttúrlega eru
enn einhverjir, sem hann getur
haldið á sínu bandi, en sögur
segja, að þeir sjeu næsta fáir.
Margir munu telja að ekki sje
trygt að reiða sig á sögnsagnir
um þetta og víst >er það rjettast
að trúa ekki orðrómi að órann-
sökuðu máli. En orðrómur þessi
hefir nú fengið staðfestingu úr
óvæntri átt. Jónas frá Hriflu hefir
sjálfur staðfest hann í grein, sem
hann ritar í Tímann nýlega. í
þeirri grein barmar hann sjer yfir
því, að rnenn utan Sjálfstæðis-
flokksins láti í ljós traust ‘á flokkn
um eða leiðtogum hans og að þeir
sjeu teknir að efast um, að gömul
vígorð J. J. sjeu á rökum hygð.
Það er eftirtektarvert, að Jónas
frá Hriflu skrifar þetta í blað sitt
einmitt nú, þegar hann er nýbúinn
að ferðast um mestan hluta lands-
ins. Greinilegri vott um sviknar
vonir þessa pólitíska langferða-
manns er ekki vel hægt að fá.
Aðaláhrifum sínum úr ferðalaginu
lýsir hann með þessu andvarpi
sinnar mæddu sálar: Sjálfstæðis-
flokknum >er að vaxa fylgi. Honum
liefir orðið hverft við og til þess
að reyna að draga úr þessum
veðrahrigðum endurtekur hann
mikinn þorra af margtuggnum
i
ósannindum sínum og rangfærsl-
um um Sjálfstæðisflokkinn. Engu
af því er nein ástæða til að svara.
Það er alt áður marghrakið og
skýrt. Þar er 'ekkert nýtt annað
en þessi andlega stuna, þetta ang-
Istarvein hins pólitíska ferðalangs,
sem finnur að fótfestan er brostin
og að hann er sífelt að tapa, sífelt
að hrapa.
Enginn þeirra, sem við stjórn-
mál fást á landi hjer, hefir gert
eins mikið til þess að rægja sam-
starf flokkanna til stjórnarmynd-
unar eins og J. J, Hann hefir
aldrei sjeð í friði þann Sjálfstæð-
ismanninn, sem í stjórninni er.
Hann hefir farið um mestan hluta
iandsins til þess að spilla fyrir
samvinnunni milli flokkanna. Upp-
skeru sinni hefir hann nú sjálfur
lýst. Honum liefir mistekist her-
ferðin. Hanu kemur bónleiður til
búðar. Ósigur sinn í ferðalagiuu
hyggst hann að hæta með því að
endurtaka hrakyrði sín um Sjálf-
stæðisflokkinn, en liann er óleyfi-
lega grunnhygginn ef hann held-
ur, að einmitt sömu vopnin, sem
hann hefir notað í mörg ár og
hafa snúist gegn honum sjálfum,
muni vinna á andstæðingunum.
Jónas frá Hriflú ætti að athuga
það, að ástæðan til, að landsmenn
yfirleitt eru honum fráhverfir
orðnir, er hans eigin framferði.
Landsmenn eru orðnir þreyttir á
ófriðnum. Þeir eru að. fá óbeit á
manninum, sem þeir vita nú, að
hefir sagt þeim ósatt. Þeir horfa
með lítilli virðingu á manninn,
sem hefiir notað aðstöðu sína til
hefnda á pólitískum andstæðing-
um. Þeir liafa óbeit á manninum,
sem hefir sökt ríkissjóðnum í
skuldafen og sýnt það átakanlega,
að hann er gersneiddur allri þekk-
ingu á meðférð fjár. í stuttu máli:
Þeir trúa honum ekki lengur.
Ferðir sínar um landið hefir J.
J. farið til þess að útvega sjálfum
sjer fylgi, með andróðri gegn sam-
vinnu stóru flokkanna um stjórn-
armyndunina. Þetta er sama og að
reyna að kljúfa Framsóknarflokk-
inn, því að nær allur flokkurinn
studdi það mál. Svo djúpt er hanrt
sokkinn,' að hann er tekinn að
vinna gegn sínum eigin flokki. Hið
eina, sem enn þá er í myrkrum
hulið, er hvort hann ætlar sjer
að taka sig út úr og kljúfa flokk-
inn með þeim, sem honum vilja
fylgja. Engu skal um það spáð,
en hitt er víst, að starf hans í
sumar er svik við flokk hans, en
yfir því gráta Sjlálfstæðismenn
þurrum tárum. Þeir hafa altaf
haldið því fram, að hann væri að-
skotadýr í flokknum og hirða lítt
hvort hann verður dreginn í sinn
rjetta dilk fyr eða síðar.
Hkureyrarkaupstaður
70 ðra.
Akureyri, FB. 28. ágúst.
Akureyrarkaupstaður á sjötíu
ára afmæli á mánudaginn. Akur-
eyri fekk kaupstaðarrjettindi með
konunglegri reglugerð 29. ágúst
1862. Fyrsta bæjarstjórn var kosin
31. mars vorið eftir og var hún
skipuð 5 mönnum, auk bæjarfó-
geta. Fimm verslanir voru á Akur-
eyri fyrir 70 árum og allar dansk-
ar, tvær veitingaknæpur og ný-
bygð kirkja, sú sama, sem bærinn
á enn við að búa, en engan spítala
og engan barnaskóla átti bærinn
þá. Prentsmiðja var á staðnum og
eitt blað var gefið út og var rit-
stjóri þess Björn Jónsson hinn
eldri. Lyfjabúð var hjer og dansk-
ur lyfsali. Embættismenn voru:
Sýslumaður og bæjarfógeti Stefán
Thorarensen, h jeraðslæknir J ón
Finsen, sóknarprestur Daníel Hall-
dórsson, en hann var búsettur á
Hrafnagili. Amtmaðurinn, Pjetur
Hafstein, sat á Möðravöllum. íbú-
ar Akureyrar voru þá 286, en eru
nú fjórum þúsundum fleiri. Tekj-
ur fyrsta fjárhagsárið voru 644
ríkisdalir og 30 skildingar eða um
1330 krónur. Árið 1931 námu þær
654 þíisundum.
Hjálpræðisherinn. Opinber sam-
koma í kvöld kl. 8%. Kapt. H.
Andrésen stjórnar. Samkoma fyrir
hermenn og nýfrelsaða annað
kvöld kl. 8%. Majór Hal. Beckett
talar.
t
H. 5. Hanson
kaupmaður
ljest í Landakotsspítala í fyrri
nótt, eftir langan og erfiðan sjúk-
dóm.
Uígsla
5iglufjarðarkirkju.
Mikil viðhöfn.
Siglufirði, mánudag.
Eins og til stóð fór vígsla liinn-
ar nýju kirkju hjer fram klukkan
2 á sunnudaginn. Hófst hún með
því að klukkum gömlu kirkjunn-
ar var hringt og síðan gengu hisk-
up og átta prestvígðir menn á-
samt honum með gripi gömlu
kirkjunnar til hinnar nýju kirkju.
Biskup vígði kirkjuna og síð-
an lijelt síra Bjarni Þorsteinsson
guðsþjónustu. Var kirkjan troð-
full af fólki. Hún tekur um 600
manns í sæti, en talið var að 900
væri þar inni, en þó mundi hitt
fleira, sem úti fyrir stóð, og ekki
lcomst inn.
Að vígslu lokinni var haldið
samsæti og voru þar mikil ræðu-
hMd.
Kirkjan' hefir kostað rúmlega
hundrað þúsundir króna, en þó
vantar enn nokkuð á það, að hún
sjs fullger.
fnollison
leg-gur á stað heimleiðis.
New York 28. ágúst.
United Press. FB.
ÍMollison lagði af stað hjeðan
áleiðis til St. Johns New Bruns-
wick í morgun.
Mollison og flugvjel hans.
• St. Johns New B. 28. ág.
United Press FB.
Mollison lenti á grasvelli í 13
mílná fjarlægð frá borginni ld.
6.06 síðd.
St, John, New B. 29. ág.
Mollison lagði af stað hjeðan í
dag áleiðis til Sidney, Nova Scotia
— Þaðan flýgnr hann til Harbour
Grace, á Nýfundnalandi.
Htuinnubcetur
í Þýskalandi.
Berlín 29. ág.
United Press. FB
von Papen hjelt ræðu í gær og
skýrði frá áformum ríkisstjórnar-
innar til þess að bæta úr at-
vinnuleysi og auka viðskiftin í
landinu. Ætlar stjórnin að leggja
fram 2 miljarða ríkismarka til
framkvæmda á víðtækum verk-
legum fyrirtækjum og gerir sjer
vonir um, að geta með þessu móti
veitt um 2 milj. atvinnuleysingja
atvinnu.
Furðuleg hjótrú.
,,Tartaramýrar“ gátan
í Helsingfors leyst.
Eins og getið var um í blaðinu
í fyrra, fundu menn í -svonefndri
,,Tartaramýri“, skamt frá Hels-
ingfors, mikið af afhöggnum
mannshöfðum, höndum og fótum
í dýi nokkru. Fregnin um þetta
vakti skelfingu þar í landi eg
vissi enginn hvernig á þessum
hryllilega fundi gæti staðið. —
Rannsókn var þegar hafin, en
henni miðaði lengi vel ekki neitt
áfram. Hjeldu meun fyrst að hjer
hefði verið morðingjar — eða
jafnvel mannætur að verki. En
svo var það, að einhverjum hug-
kvæmdist, að þessum líkamaleifum
hefði verið rænt úr Malm-kirkju-
garði og fluttar út í mýrina. Voru
þá margar grafir í kirkjugarðin-
um rannsakaður, og kom í ljós,
að mörg lík höfðu verið grafin
upp og höggvin af þeim höfuð,
hendur og fætur. Og nú hefir
lögreglunni að lokum tekist að
handsama þá, sem þessa voru
valdir.
Það eru þrír ungir menn. — Sá
helsti þeirra heitir Kallio og hafði
áður verið vinnumaður. Hinir
heita Saari og Hedman, háðir at-
vinnuleysingjar, og hafa lifað á
sveitarstyrk. Auk þess höfðu tvær
eða þrjár stúlkur verið í vitorði
með þeim. Ekki höfðu þau flutt
alla líkamspartana út í Tartara-
mýri, heldur höfðu þau grafið
talsvert af höfðum, höndum og
fótum í gamla kirkjugarðinum til
þess að hafa þar handhægar
birgðir og þar hefir lögreglan
fundið þær að tilvísan þeirra.
Við yfirheyrslurnar hefir það
komið í ljós, að þau hjeldu að
þau gæti náð sambandi við anda-
heiminn með því að hafa þessa
líkamshluta í fórum sínum, og
þóttust á þann hátt geta fengið
hæfileika til að lækna »jiika, finna
stolna muni, og koma í veg fyrir
rangindi. Meðal annars er það
upplýst að þau ætluðu á þenna
hátt að hjálpa móður Hedmansi
tii að vinna erfðaþrætumál sem
hún átti í.
Kallio hefir í mörg ár þóst
vera læknir. Lækningalyf hans
hefir verið vatn úr dýinu í Tart-
aramýri, því að hann áleit að það
hefði yfirnáttúrlegan kraft, eftir
að líkhlutarnir höfðu í því legið.
Aðrar ástæður en þessar virð-
ast ekki hafa verið fyrir hinu
ógeðslega framferði þeirra. Það
er hlind hjátrú, löngun til galdra,
gerninga og kraftaverka, sem hefir
verið aðalhvötin að því.